Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 22
4. september 2014 FIMMTUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTARITSTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Í vor heimsótti okkur guðfaðir hamingju mælinga, prófessorinn dr. Ruut Veenhoven, og hélt erindi í Háskóla Íslands. Hans skilaboð eru að hamingj- una sé hægt að mæla og hægt sé að auka hamingju. Það sem rannsóknir hans sýna er að það er þrennt sem einkennir samfélög þar sem hamingja mælist há. Í fyrsta lagi er það ákveðin hagsæld sem einkennir þau samfélög, fólk verður jú að hafa í sig og á. Í öðru lagi er aukin hamingja eftir því sem traust er meira í samfélaginu. Traust milli manna, í sam- skiptum, traust á stofnunum samfélags- ins og nágrönnum og að hægt sé að ganga um götur án þess að hafa áhyggj- ur af lífi sínu og limum. Í þriðja lagi eru það stjórnhættir. Góðir stjórnhættir er m.a. skýr upplýsingagjöf, jafnrétti, rétt- arríki, lýðræði, aðgengi að heilbrigðis- þjónustu og Veenhoven lagði sérstaka áherslu á í erindi sínu aðgengi að for- vörnum á sviði geðheilbrigðisþjónustu. Hann hvetur til þess að í boði sé ráðgjöf við ákvörðunartöku t.d. á tímamótum. Einnig hvatti hann skóla og meðferðar- stofnanir, vinnustaði og sjúkraheimili til að hafa hamingjumælingar til að vita raunverulega um líðan og árangur af inngripi. Flestallir skilja spurninguna „Hvað finnst þér þú hamingjusamur með líf þitt á heildina litið á bilinu 1–10?“ og „Hvað finnst þér þú hamingjusamur núna á bilinu 1–10?“. Veenhoven hélt því fram að það sem við höldum að geri okkur hamingjusöm hafi lélegt forspár- gildi. Ein leið til þess að þekkja betur eigin hamingjuvaka er að halda dagbók þar sem þú skráir hvað þú gerir klukku- tíma fyrir klukkutíma frá því þú vaknar og þar til þú ferð að sofa og skráir svo í lok dagsins hvað hver klukkutími gaf þér í hamingju (t.d. á bilinu 1–10). Þá færðu góða vísbendingu um þína eigin hamingjuvaka. Veenhoven heldur því fram að erfðir skýri um 30% af hamingju okkar (t.d. geðslag), uppeldi skýri 15%, 15% séu vegna ákvarðana sem við tökum, 10% af félagslegu neti og tengslum, 5% af félagslegri og efnahagslegri stöðu og 10% skýrist hreinlega af heppni eða óheppni. Forsendur hamingjunnar SAMFÉLAG Hrefna Guðmundsdóttir MA í vinnu- og félagssálfræði ➜ Einnig hvatti hann skóla og meðferðarstofnanir, vinnustaði og sjúkraheimili til að hafa hamingju- mælingar til að vita raunverulega um líðan og árangur af inngripi. Viðskiptajöfnuðurinn Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, stuðaði mann og annan með grein í Fréttablaðinu í gær sem ber yfirskriftina „Góðar fréttir“. Silja Dögg segir að ríkisstjórn Sigmundar Dav- íðs Gunnlaugssonar hafi „lyft Grettistaki og komið efnahagslífinu á réttan kjöl“. Í greininni fullyrðir hún að viðskipta- jöfnuðurinn sé jákvæður það sem af er ári. Hið sanna er að viðskiptajöfnuður er neikvæður um 2,7 milljarða það sem af er ári, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Vöruskiptajöfnuðurinn er neikvæður um 9,7 milljarða króna. Það sem hún meinti Viðskiptajöfnuður er auðvitað ekki það sama og undirliggjandi viðskipta- jöfnuður. Og Greining Íslandsbanka benti vissulega á að undirliggjandi viðskiptajöfnuður er betri mæling á gjaldeyrisflæði landsins en bara við- skiptajöfnuður. Þegar rætt er um undir- liggjandi viðskiptajöfnuð eru reiknaðar svokallaðar þáttatekjur og gjöld slitabúa gömlu bankanna tekin með í reikninginn. Greining Íslandsbanka telur eðlilegra að undanskilja gömlu bankana. Silja Dögg hlýtur auðvitað að hafa verið að tala um undirliggjandi viðskiptajöfnuð þegar hún lofsamaði árangur ríkisstjórnarinnar. Fjármögnunin ekki í hendi Í áðurnefndri grein Silju Daggar minntist hún á stærsta mál ríkisstjórn- arinnar, sjálfa skuldaleiðréttinguna. Benti hún á að beinar niðurfærslur á höfuðstól verðtryggðra lána og möguleiki á að nýta séreignarsparnað til að greiða niður höfuðstól myndi hjálpa heimilum með verðtryggð lán á beinan hátt með því að lækka mánaðarlega greiðslubyrði af lánum og hækka ráðstöfunartekjur fjöl- skyldunnar. Hún minntist ekki á það sem Tryggvi Þór Herbertsson sagði síðar þann daginn. Nefnilega það að leiðréttingin er háð fjármögnun verkefnisins, sem er víst ekki alveg föst í hendi og mun að öllum líkindum verða tilefni dómsmála á næstu mánuðum. jonhakon@frettabladid.is Landssöfnun 6. september Skráning og nánari upplýsingar á raudikrossinn.is. Af mannúð í ár U m nýliðin mánaðamót rann út frestur fólks til þess að sækja um niðurfærslu verðtryggðra húsnæðislána sinna. Ríflega 69 þúsund umsóknir bárust. Allmörgum spurningum er enn ósvarað. Óvíst er að allir sem sóttu um eigi rétt á niðurfærslu. Föst upphæð er til skiptanna og því hefur endanlegur fjöldi gildra umsókna áhrif á það hversu mikið hver og einn fær í sinn hlut. Þá er óvissa um hvort þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar eru fjármagnaðar að fullu. Tryggvi Þór Herbertsson, verkefnisstjóri skuldaleiðréttingar ríkisstjórnar- innar, upplýsti í morgunútvarpi Ríkisútvarpsins í gær að hugsanlega þyrfti að afturkalla hluta aðgerðanna færi svo að bankaskatturinn sem standa á undir þeim stæðist ekki lög. Þrotabú Glitnis lætur reyna á það fyrir dómi. Þá var forvitnilegt að heyra Tryggva árétta að aðgerð ríkis- stjórnarinnar væri í raun fjármögnuð úr ríkissjóði. Í því ljósi er líka áhugaverð yfirlýsing Vigdísar Hauksdóttur, formanns fjárlaganefndar Alþingis, í Síðdegisútvarpinu í gær, að ekki sé í myndinni að afturkalla aðgerðirnar að hluta. Getur þá verið að skattgreiðendur verði eftir allt saman látnir standa undir „leið- réttingunni“? Þá er kannski eins gott að hún er ekki nema hluti af þeim stórkarlalegu yfirlýsingum sem forsvarsmenn Framsóknar létu frá sér fara fyrir síðustu alþingiskosningar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra var í gær upptekinn í útlöndum, en í fréttum Útvarps á þriðjudag sagði hann fjölda umsókna um „leiðréttingu“ sýna að úrræðisins hefði verið beðið. Ánægjulegt væri hversu vel hefði tekist til. Auðvitað er samt ekkert hægt að gefa sér um ástæður alls fjöldans þegar kemur að ástæðum þess að sótt var um og leiður sá plagsiður margra stjórnmálamanna að gera fólki upp skoðanir til þess að hampa sjálfum sér. Fyrir liggur að aðgerðirnar eru þensluhvetjandi. Bæði Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn og Seðlabankinn hafa bent á að þensla auki líkur á vaxtahækkunum og verðbólgu. Augljóst er að þeir sem ekki sóttu um (eða áttu ekki rétt á) niðurfærslu eru í verri stöðu en hinir til þess að taka á sig neikvæð áhrif þenslunnar með endurvarpi inn í verðtryggðar skuldir. Einhver gæti því hafa talið óábyrgt að sækja ekki um, hversu vitlausa sem sá hinn sami taldi aðgerðina annars vera. Eins og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur bent á hefði vitanlega verið skynsamlegra að nota þessa 80 milljarða í að greiða niður skuldir ríkisins. Að fenginni reynslu af íslenskri hagstjórn má ljóst vera að spurningin er ekki hvort heldur hvenær næsta verðbólgu- skot verður. Og verðbólga þarf ekki að aukast mikið til þess að éta upp ávinninginn af skuldaniðurfærslunni, verminum skammgóða. Nær væri að huga að ábyrgri stefnu í peningamálum, sem ekki byggist á örmynt sem ekki fær þrifist nema í skjóli ofurvaxta og/ eða gjaldeyrishafta. Enn sem komið er hefur bara verið bent á eina raunhæfa leið í þeim efnum, myntsamstarf við ESB og upptöku evru í framhaldinu. Raunveruleg kjarabót er fólgin í stöðugum gjaldmiðli og vaxtakjörum á borð við þau sem bjóðast í nágranna- löndum okkar. Neikvæð áhrif skuldaniðurfellingar snerta alla: Alvöru kjarabót Óli Kristján Ármannsson olikr@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.