Fréttablaðið - 04.09.2014, Blaðsíða 28
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Mér finnst mikilvægt að vera skemmtilega klædd. Ég er nánast alltaf í litríkum fötum en er meðvitað að prófa að ganga stundum
í svörtu. Mér finnst föt eiginlega vera búningar og
hef mjög gaman af að blanda saman ólíkum flíkum
og sjá hvernig fötin breyta mér og minni líðan. Mér
líður mjög illa í gallabuxum og bol, það er bara
ekki ég,“ segir Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona,
spurð út í fatastílinn.
Hún segist eiga erfitt með settlegheit og ef svo
ólíklega vilji til að litasamsetningin passi of vel
saman þegar hún hefur sig til grípur hún til sinna
ráða.
„Ég þarf alltaf að hafa smá rokk í lúkkinu. Það
gengur ekki að vera settlega greidd, á hælum og
í litum sem passa alveg saman. Ef það gerist þá
hendi ég inn einum kreisí lit eða skipti hælaskónum
út fyrir grófari skó,“
Áttu mörg skópör?
„Mörg, kannski þrjátíu!“
Háir hælar eða flatbotna?
„Oftast flatbotna en hælar eru voða fínir þegar
maður nennir þeim.“
Hver er þín helsta tískufyrirmynd?
„Mamma er einn besti stílisti sem ég þekki. Hún
blandar saman gersemum úr Rauða krossinum og
mjög dýrum flíkum á ótrúlegan hátt. Ætli ég hafi
ekki fengið sjálfstraust til að finna minn eigin stíl út
af hennar hugrekki í samsetningum.“
Spurð hvort hún kunni að sauma segist Álfrún
hafa notað saumavélina talsvert á unglingsárunum
í tilraunir. „Ég breytti til dæmis gallabuxum og gekk
í þeim á röngunni á tímabili. Ég þyrfti að fara að
rifja upp gamla takta.“
Uppáhaldshönnuðir Álfrúnar eru Marc Jacobs,
Sonya Rykiel, Matthew Williamson, Chie Mihara og
fleiri. Hana dreymir um að versla í KronKron en er
líka dugleg við að gramsa í „second hand“-búðum.
Bestu kaupin í fataskápnum segir hún brúnan
leður jakka sem hún keypti fyrir tíu árum í Barse-
lóna og notar enn.
En hver eru verstu kaupin?
„Ég lét lita sandala hvíta tveimur dögum fyrir brúð-
kaupið mitt í sumar hjá ónefndum skósmið. Þegar
ég sótti þá litu þeir út fyrir að hafa verið tippexaðir
hvítir og voru svo harðir að ekki var hægt að ganga
í þeim. Borgaði 10.000 krónur fyrir, fór heim í sjokki
og reyndi að sannfæra sjálfa mig um að þetta væri
nú bara allt í lagi. Daginn fyrir brúðkaupið, eftir
svefnlausa nótt, þræddi ég allar skóbúðir bæjarins
og fann loksins skó sem björguðu mér frá því að
gifta mig í tippex-skónum.“
Er einhver flík í skápnum í uppáhaldi?
„Prjónuð ullarslá eftir Hönnu Hlíf Bjarnadóttur sem
ég keypti í Skúmaskoti í sumar. Ótrúlega falleg hlý
og einstök flík.“
Hvað er annars að frétta?
„Ég er að byrja sýningar 6. september á einleiknum
mínum KAMELJÓN sem verður á fjölunum í Tjarn-
arbíói í september og október. Kameljón er ein
mest krefjandi en jafnframt skemmtilegasta sýning
sem ég hef unnið að og ég hlakka mikið til að sýna
hana á ný.“
■ heida@365.is
GIFTI SIG EKKI Í
TIPPEX-SANDÖLUM
TÍSKA Álfrún Helga Örnólfsdóttir leikkona á erfitt með að vera settleg. Hún
lítur á föt sem búninga og sést sjaldan í gallabuxum og bol.
UPPÁHALDSFLÍKIN
„Prjónuð ullarslá eftir
Hönnu Hlíf Bjarnadóttur
sem ég keypti í Skúma-
skoti í sumar er í upp-
áhaldi. Ótrúlega falleg,
hlý og einstök flík,“ segir
Álfrún. Brúna leður-
jakkann keypti hún á
„second hand“-mark-
aði í Barselóna fyrir tíu
árum.
MYND/GVA
Skipuleggjum einnig námsferðir til Englands fyrir hópa og einstaklinga
Enskuskóli Erlu Ara - Let’s speak English
Enskunámskeið í Hafnarfirði fyrir byrjendur og lengra komna
Á hverri önn sækja um 200 nemendur enskunám í skólanum,
langflest konur á aldrinum 35 ára og eldri.
• 10 getustig með áherslu á tal
• Öllu lesefni fylgja hljóðdiskar
• Styrkt af starfsmenntasjóðum
Skráning stendur yfir í síma 891 7576
og erlaara@gmail.com
www.enskafyriralla.is
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style
Smart föt,
fyrir smart skvísur
Stærðir 38-52
Kí
ki
ð
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
F
ac
eb
oo
k
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Skyrta
á 8.900 kr.
2 litir: hvítt og svart
Stærð 34 - 52 (54)
Stretch
Buxur
á 13.900 kr.
5 litir: svart, vínrautt,
mosabrúnt, flöskugrænt
og steingrátt.
Stærð 34 - 52 (54)
Stretch og háar í mittið
Opið virka daga kl
. 11–18.
Opið laugardaga k
l. 10–15.