Fréttablaðið - 13.09.2014, Blaðsíða 42
FÓLK| HELGIN
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Þingmaðurinn Katrín Jakobsdótt-ir ætlar að mæta á kvöldstund hjá Vinstri grænum um helgina
og eyða tíma með fjölskyldunni. Hún
segir líf þingmannsins breytast mikið
þegar þingið er starfandi, þá missir
hún stjórn á tíma sínum því hún veit
aldrei hvað dagurinn ber í skauti sér.
Hvað gerir þú alltaf um helgar? Ég
þvæ hverja einustu helgi. Raunar ver
ég megninu af helgum í þvottahúsinu!
Stendur eitthvað sérstakt til um
þessa helgi? Það stendur til að mæta
á kvöldstund hjá Vinstri grænum í
Hamraborg á föstudagskvöld þar sem
kynnt verður metnaðarfull vetrar-
dagskrá. Svo mun ég hitta gott fólk á
laugardagskvöld, verja tíma með fjöl-
skyldunni minni góðu og svo verð ég
að sjálfsögðu í þvottahúsinu!
Hver er óskamorgunmaturinn um
helgar? Hann er pönnukökur með
sírópi!
Hver er yfirleitt helgarmorgunmat-
urinn? Ekki pönnukökur með sírópi,
svo mikið er víst! En ég borða hafra-
graut nánast alltaf en fæ mér stundum
hrökkbrauð með osti á
sunnudögum.
Hvernig er dæmigert
helgarkvöld? Ef ég er
heima þá sest ég í sófann
til að horfa á Barnaby
lögreglufulltrúa og
sofna svo yfirleitt
skömmu eftir fyrsta
morðið. En stundum
nýti ég nú kvöldin til
að hitta góða vini og
þá endist ég lengur
en með Barnaby.
Sefur þú út um helgar? Yfirleitt
ekki enda með þrjú börn sem vakna
snemma. Sef samt lengur en á virkum
dögum.
Vakir þú fram eftir? Nei, ég lognast
yfirleitt út af fyrir miðnætti nema ég
sé í þeim mun meira stuði.
Ef þú ert næturhrafn færðu þér eitt-
hvað í gogginn á kvöldin? Það kemur
fyrir og algjörlega nauðsynlegt ef ég
ætla að vaka. Örsjaldan rifja ég upp
unglingsárin og borða pitsu í kringum
miðnætti – svona einu sinni á ári!
Ertu með nammidag? Hvaða nammi
færðu þér? Alltof margir dagar í mínu
lífi eru nammidagar og þá er lakkrís
og súkkulaði fyrsta val.
Hvað er í sunnudagskaffinu? Pönnu-
kökur ef tími er til, stundum snúður
úr bakaríinu eða bara hrökkbrauð.
Hvað er annars að frétta? Af þvott-
inum? Allt gott að frétta og alltaf nóg
af spennandi viðfangsefnum.
ÞVÆR ALLAR HELGAR
HELGIN Katrín Jakobsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, eyðir miklum tíma í
þvottahúsinu um helgar. Hún borðar yfirleitt alltaf hafragraut í morgunmat en
langar mun frekar að borða pönnukökur með sírópi enda svolítill nammigrís.
NÓG AÐ GERA
Þingmaðurinn Katrín
veit sjaldnast hvað
dagurinn ber í skauti sér
nú þegar þingið hefur
tekið til starfa að nýju.
BÆJARLIND 16 - KÓPAVOGUR - SÍMI 553 7100 - WWW.LINAN.IS
OPIÐ MÁNUDAGA TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 LAUGARDAGA 11 - 16
GO
TT VERÐ
GOTT VERÐ
YUMI
2 saman
í setti
kr. 28.700
YUMI
Sófaborð
130x70
kr. 55.800
GINA
Stóll á
Eikarfæti
kr. 19.900
AMI
Eikarstóll
kr. 24.900
HD
Lampaskermur
kr. 14.900
PORGY
Stóll á
krómfæti
kr. 17.900
TURTLE - Hægindastóll kr. 239.9000
Hönnun: Lenka Tellmann
BETINA - Eikarskenkur strð: 170x43x72 kr. 151.700
Stofudjásn...