Fréttablaðið - 13.09.2014, Blaðsíða 4
13. september 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
vantar Háskóla Íslands
til að standa jafnfætis
öðrum háskólum á
Norðurlöndunum.
missa
atvinnuleysis-
bætur um
áramótin.
fær NATO í framlög frá íslenska rík-
inu samkvæmt fj árlögum, 7,3 millj-
ónum meira en á fj árlögum 2014.
kostar fl aska af Bríó í
áfengisverslun sænska
ríkisins. Hér á landi
kostar fl aska af bjórn-
um 329 krónur.
233 KR.
tölvur vinna rafmyntina Bitcoin
í gagnaveri Advania í Reykja-
nesbæ. Yfi r 20 erlend fyrirtæki
leigja aðstöðu í gagnaverinu.
er markaðsverðmæti
stoðtækjafyrirtækis-
ins Össurar.
600
ELLEFU
MILLJARÐA
2.500
272,3
MILLJÓNIR
MILLJARÐAR
146
„Það sem kemur á óvart er hvað
nýtingin í 101 er rosalega mikil
og í raun á höfuðborgarsvæðinu
öllu. Ef maður skoðar tölur fyrir
árið í ár er nýtingin í mars 97,5
prósent og það er náttúrlega bara
ótrúlegt,“ segir Anna Hrefna Ingi-
mundardóttir, sérfræðingur hjá
Greiningardeild Arion banka. Hún
kynnti nýja skýrslu um stöðu hótel-
markaðarins á morgunverðarfundi
bankans í fyrradag.
Ein af niðurstöðunum úr skýrsl-
unni er sú að mun minni árstíða-
sveifla sé í nýtingu hótelherbergja
á höfuðborgarsvæðinu en annars
staðar. Meðalnýtingin á höfuðborg-
arsvæðinu er 77 prósent yfir árið
en minnst er hún á Vesturlandi og
Vestfjörðum, eða 39,5 prósent.
„Helsta ástæðan fyrir því að árs-
tíðasveiflan er minni á höfuðborg-
arsvæðinu er kannski ekki síst sú
að þeir sem koma á veturna eru lík-
legri til að halda sig í borginni. Það
eru meira viðskiptatengdar ferðir.
Það eru síður fjölskylduferðir og
meira um það að þeir sem koma
séu einir í herbergi,“ segir Anna
Hrefna. Það sé því ekki endilega
góð rúmanýting þótt herbergjanýt-
ingin sé góð.
Anna Hrefna segir að það sé
mjög jákvætt hvað tekist hafi að
draga úr árstíðasveiflunni. „Sam-
kvæmt mínum upplýsingum þarf
rosalega lítið markaðsstarf til að
auglýsa sumarferðir. Allt markaðs-
starfið miðar eiginlega að því að fá
fólk utan sumarmánaðanna. Starfið
í kringum alla þessa viðburði, eins
og HönnunarMars, Food and Fun
og Iceland Airwaves, er að skila
sér,“ segir hún.
„Það hefur verið unnið mikið í
því að lengja tímabilið fram í maí
og september og teygja það inn í
vorið og haustið en af ýmsum sam-
gönguástæðum hefur verið erfið-
ara fyrir okkur að markaðssetja á
fullum krafti fyrir vetrartímann.
Það er hins vegar þannig að við
erum með mjög góðar aðstæður
bæði á norðursvæðinu og suður-
svæðinu til að hýsa ráðstefnur og
ráðstefnugesti. Málið er bara að
það þarf að skipuleggja það með
akstri. Það er ekki hægt að reiða
sig á flug,“ segir Gísli Halldór Hall-
dórsson, bæjarstjóri á Ísafirði.
Flugvöllurinn á Ísafirði er ekki
millilandaflugvöllur og það háir
ferðaþjónustunni. „En ég er nátt-
úrlega viss um það að þessi 50-70
þúsund tonn sem stefnir í að verði
hérna á næsta áratug af fisk-
eldi muni knýja menn til að koma
hérna á alþjóðaflugvelli. Ég sé ekk-
ert annað í stöðunni en að menn
muni vilja það þegar öllum þessum
verðmætum verður skipað á land,“
segir hann. jonhakon@frettabladid.is
Vonast eftir nýjum
millilandaflugvelli
Nýting hótelherbergja er að jafnaði best í Reykjavík en verst á Vestfjörðum og
Vesturlandi, samkvæmt nýrri rannsókn. Bæjarstjórinn á Ísafirði segir vetrarferða-
mennsku þar háða samgöngum á landi, en vonast eftir nýjum flugvelli.
MIÐBÆR ÍSAFJARÐAR Ferðamennska á Ísafirði er háð samgöngum á landi, segir
Gísli Halldór. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
DANMÖRK Dönsk stjórnvöld hafa
lagt til að erlendir ríkisborgarar,
sem búa í Danmörku og fara til
Sýrlands til að taka þátt í stríðinu
þar, verði sviptir dvalarleyfi í
Danmörku. Litið er svo á að ógn
geti stafað af þeim þegar þeir
snúa aftur til Danmerkur.
Dómsmálaráðherra Danmerk-
ur, Karen Hækkerup, segir í við-
tali við danska ríkisútvarpið að
ekki eigi að bjóða þá velkomna
aftur hafi þeir haldið út í stríð
þrátt fyrir varnaðarorð. - ibs
Tillaga dönsku stjórnarinnar:
Stríðsmenn
snúi ekki aftur
Helsta ástæðan fyrir því
að árstíðasveiflan er minni á
höfuðborgarsvæðinu er kannski
ekki síst sú að þeir sem koma á
veturna eru líklegri til þess að
halda sig í borginni.
Anna Hrefna Ingimundardóttir,
sérfræðingur hjá Greiningadeild
Arion banka.
STJÓRNMÁL Stjórnarskrárnefnd
óskar eftir athugasemdum við
fyrstu áfangaskýrslu sína.
Þau málefni sem sett voru í
forgang eru: þjóðaratkvæða-
greiðslur á grundvelli undir-
skrifta, framsal valdheimilda í
þágu alþjóðasamvinnu, auðlindir
og umhverfisvernd.
Hlutverk stjórnarskrárnefnd-
ar er að leggja til breytingar á
stjórnarskránni með hliðsjón af
þeirri vinnu sem farið hefur fram
á undanförnum árum.
Hægt er að gera athugasemdir
til 1. október. - jme
Frestur hjá stjórnarskrárnefnd:
Ábendingar komi
fyrir 1. október
5.9.2014 ➜ 12.9.2014
75%
einstaklinga sem útskrifast hjá
starfsendurhæfi ngarsjóðnum
VIRK fara út á vinnumarkað
eða í lánshæft nám.
116 langreyðar hafa verið veiddar síð-
an hvalveiðitímabilið hófst
15. júní síðastliðinn.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Verð frá: 188.900 kr.
og 12.500 Vildarpunktar*
Á mann m.v 2 fullorðna í íbúð m/1. svefnh. á Roque Nublo í 26 nætur.
*Verð án Vildarpunkta 198.900 kr.
Roque Nublo
Kanarí
31. okt. til 26. nóv.
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Skráðu þig
í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.I
S
V
IT
7
05
43
9
/2
01
4
FÉLAGSMÁL Hafnarfjarðarbær
ætlar að aðstoða og styðja sex
manna fjölskyldu sem er komin
til landsins frá Afganistan.
Fjölskyldan er komin hingað
á grundvelli ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar um móttöku flótta-
fólks en hún miðaðist við að
tekið skuli á móti konum í hættu
frá Afganistan.
Flóttamannanefnd var falið
að undirbúa móttöku fólksins og
var leitað til Hafnarfjarðar um
möguleika og vilja bæjarfélags-
ins til þess að taka að sér verk-
efni sem þetta. - jme
Afganskir flóttamenn komnir:
Fá skjól og aðstoð
í Hafnarfirði
FÆR AÐSTOÐ Sex manna afgönsk fjöl-
skylda flytur til Hafnarfjarðar.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANIEL
Ingibjörg Karlsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
ÞURRT Í DAG en fer að rigna í nótt eða fyrramálið sunnan og vestanlands. Annað
kvöld bætir svo í úrkomuna þegar skil ganga til austurs yfir landið. Styttir upp á
mánudag, fyrst vestan til, og léttir heldur til um tíma.
10°
9
m/s
11°
7
m/s
11°
5
m/s
11°
6
m/s
Strekkingur
vestan til
en annars
fremur
hægur
vindur.
Strekkingur
allra vestast
og austast,
annars
hægari.
Gildistími korta er um hádegi
20°
31°
20°
24°
23°
16°
20°
20°
20°
27°
21°
30°
30°
29°
23°
22°
21°
21°
11°
4
m/s
12°
5
m/s
14°
5
m/s
12°
8
m/s
12°
8
m/s
11°
8
m/s
6°
8
m/s
12°
10°
13°
10°
11°
10°
17°
13°
19°
14°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN
HEILBRIGÐISMÁL Ástandið á lyf-
lækningadeild Landspítalans er
afar slæmt samkvæmt úttekt
landlæknisembættisins.
Í úttektinni kemur fram að hús-
næði er úr sér gengið og stenst
ekki nútímakröfur. Í viðtölum við
stjórnendur og starfsfólk
komu fram margir þættir sem
taldir voru geta ógnað gæðum
þjónustu og öryggi sjúklinga, svo
sem mikið álag, of fá rúm, of
mörg fjölbýli, of fá einbýli,
gangainnlagnir, skortur á tækj-
um, mannekla og ófullnægjandi
húsnæði og starfsaðstaða.
Þá kemur fram að illa gangi að
fá lækna til starfa á deildinni. - jme
Of mikið álag á Landspítala:
Illa gengur að fá
lyflækna í störf
ÚR SÉR GENGIÐ Húsnæði lyflækninga-
deildar Landspítalans er slitið og lúið.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA