Fréttablaðið - 13.09.2014, Blaðsíða 58
Hlutastarf
Starfið felst í aðstoð við hreyfihamlaðan vinnandi ein-
stakling á heimili hans. Aðstoða þarf við athafnir daglegs
lífs, þrif, innkaup, heimilisbókhald, vinnuferðir o.fl. Um er
að ræða óreglulegan vinnutíma á morgnana og kvöldin eða
eftir samkomulagi. Nauðsynlegt er að umsækjandi hafi bíl-
próf. Vinnan byggir á hugmyndafræði NPA (notendastýrðri
persónulegri aðstoð).
Upplýsingar veitir Haraldur í síma 896 7887.
Smiðir óskast
Óskum eftir að ráða vana trésmiði
í fjölbreytt verkefni, framtíðarstörf.
Þarfaþing hf. er traust verktakafyrirtæki sem hefur verið starfandi
frá árinu 1993. Fyrirtækið óskar eftir vönum trésmiðum í fjölbreytt
verkefni, um framtíðarstörf er að ræða.
Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á netfangið eggert@tharfathing.is
Efnafræðingur/ Efnaverkfræðingur
Carbon Recycling International
Vinsamlegast sendið ferilskrá og kynningarbréf netfangið vilborg@carbonrecycling.is
Setjið starfsheiti sem sótt er um í titilinn.
Frekari upplýsingar fást á vefsíðu okkar www.carbonrecycling.is
Carbon Recycling International (CRI) endurvinnur koltvísýring úr útblæstri iðn- eða orkuvera og umbreytir í endurnýjanlegt metanól elds-
neyti sem blanda má út í bensín fyrir óbreytta bíla. Endurvinnsla koltvísýrings dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda. Fyrirtækið rekur
fyrstu verksmiðju sinnar tegundar í heiminum við Svartsengi.
Starfslýsing
Starfið er við rannsóknar og þróunardeild CRI og snýr að
þróun á nýrri tækni til framleiðslu á vistvænu eldsneyti.
Starfið felst í umsjón með rannsóknarverkefnum og fram-
kvæmd tilrauna á tilraunastofu s.s. efnasmíði á efnahvötum,
efnagreiningum og gæðaeftirlit við framleiðslu.
Ábyrgðasvið:
• Umsjón með daglegum rekstri á rannsóknarstofu.
• Úrvinnsla gagna og skrásetning á niðurstöðum.
• Tæknirannsóknir og gerð einkaleyfa.
• Framkvæmd reglubundinna mælinga.
• Þátttaka í evrópskum rannsóknarverkefnum.
Hæfisskilyrði:
• BS gráða í efnafræði/efnaverkfræði.
• Meistaragráða í efnafræði/efnaverkfræði æskileg.
• Reynsla af vinnu við rannsóknir.
• Nákvæm og vönduð vinnubrögð.
• Geta til að vinna sjálfstætt, taka frumkvæði og hæfni
í mannlegum samskiptum.
• Mjög gott vald á ensku í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 28. september 2014
Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími: 590-5100 | klettur.is
KLETTUR - SALA OG ÞJÓNUSTA
LEITAR EFTIR VIÐGERÐAMÖNNUM
Bifvélavirkja, vélvirkja eða starfsmann með reynslu af vörubíla-
viðgerðum vantar til starfa á vörubílaverkstæði Kletts.
Verkstæðið er mjög vel tækjum búið og öll starfsaðstaða til
fyrirmyndar.
Áhugasamir vinsamlega hafi samband við Svein Símonarson
í síma 825 5752 eða svsi@klettur.is
VERKEFNISSTJÓRI Í VÉLADEILD
ÍSTAK óskar eftir að ráða verkefnisstjóra, með haldgóða þekkingu á
eða reynslu af vinnuvélum, til starfa á skrifstofu félagsins. Leitað er að
skipulögðum og sjálfstæðum einstaklingi með góða samstarfs- og
samskiptahæfileika.
Konur jafnt sem karlar eru hvött til að sækja um starfið.
Starfssvið:
Kaup og sala á vinnuvélum og tækjum.
Eftirfylgni við rekstur og viðhald véla.
Skráning á vinnuvélum og tækjum.
Upplýsingagjöf um tæki og rekstrarkostnað.
Umsjón með leigukerfi.
Yfirferð og samþykkt á reikningum.
Umsjón með vinnuskýrslum.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem tæknifræði,
viðskiptafræði eða rekstrarfræði er kostur.
Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð.
Góð tungumálakunnátta (enska og norðurlandamál).
Góðir samskiptahæfileikar.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 400 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
Upplýsingar um starfið veitir starfsmannastjóri ÍSTAKS, Bugðufljóti 19,
270 Mosfellsbæ og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Sækja skal um
störfin á www.istak.is – undir „Starfsumsókn“ fyrir 22. september næstkomandi.
Járnprýði ehf vantar vanan stálsmið eða blikksmið til starfa.
Þarf að geta unnið sjálfstætt og vera reyklaus.
Viðkomandi þarf að vera íslenskumælandi.
Járnprýði er lítið og persónulegt fyrirtæki
sem veitir víðtæka þjónustu.
Áhugasamir sendi umsókn með ferilskrá á netfangið
ingi@jarnprydi.is
Laus er til umsóknar staða sérfræðilæknis í svæfinga- og
gjörgæslulækningum við svæfinga- og gjörgæsludeild
Landspítala. Starfshlutfall er 100%. Starfið verður veitt frá
1. janúar 2015 eða eftir nánara samkomulagi. Til greina kemur
að veita hlutastöður.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Sérfræðistörf í samráði við yfirlækna sérgreinarinnar,
svo sem vinna á skurðstofum, gjörgæslu, móttöku, við
svæfingar á útstöðvum sjúkrahússins, bráðameðferð og
meðhöndlun bráðra og langvinnra verkja.
» Þátttaka í bakvöktum og bundnum staðarvöktum
samkvæmt vaktafyrirkomulagi sérgreinarinnar.
» Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækna
og prófessor.
Hæfnikröfur
» Sérfræðiviðurkenning í svæfinga- og gjörgæslulækningum
á Íslandi.
» Frekari sérhæfing innan svæfingar á sviði bæklunar/barna/
heila- og tauga/háls-, nef- og eyrna/æða- eða lýtalækninga
og/eða gjörgæslulækninga er æskileg en ekki skilyrði.
» Reynsla í kennslu og vísindavinnu er æskileg en ekki skilyrði.
» Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við yfirlækna
deildarinnar.
» Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 1. október 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr.
yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags.
2 maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006.
» Umsóknum fylgi vottfestar upplýsingar um nám,
fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og
stjórnunarstörfum ásamt sérprentum eða ljósritum af
greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt
skulu berast í tvíriti fyrir 1. október 2014 til skrifstofu
aðgerðarsviðs LSH.
» Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og
setja viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn
fyrir læknastöðu, sjá vef Landlæknis.
» Upplýsingar veita Sigurbergur Kárason, yfirlæknir,
skarason@landspitali.is, sími 543 1000 og Alma D. Möller,
framkvæmdastjóri aðgerðasviðs, almam@landspitali.is,
sími 543 1000.
Sérfræðilæknir í svæfinga-
og gjörgæslulækningum