Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 32

Fréttablaðið - 13.09.2014, Side 32
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 HRÆÐILEGT AÐ FYLGJAST MEÐ ALLRI UMFJÖLLUN UM MÁLIÐ Ebba Guðný segir ekki gott að ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá réttarhöld- unum. Þar með hafi þau orðið að sápuóperu. (Á myndinni sjást Oscar og Ebba á góðri stundu). MYND/ÚR EINKASAFNI Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var ellefu mán-aða þegar báðir fætur hans voru fjarlægðir fyrir neðan hné vegna sjaldgæfs fæðing-argalla, en sperrilegg vantaði í báða fætur hans. Það sama á við um son Ebbu, Hafliða, og þannig kynntust fjöl- skylda Ebbu og Pistorius, sem Ebba segir mikilvæga fyrirmynd fyrir Hafliða. „Ég held að aðalmálið fyrir Oscar og alla sem þykir vænt um hann sé að sannan- ir hafi leitt í ljós að hann var, alveg frá upphafi, að segja satt og rétt frá. Það er hræðilegt að þurfa að sitja undir því að hafa drepið einhvern viljandi, það er alveg nóg að bögglast við að reyna að lifa með því að hafa valdið dauða einhvers óviljandi,“ segir Ebba Guðný. Margir lifa í ótta „Ég vissi um leið og ég heyrði hvað gerðist að hann væri að segja satt. Þetta er ekkert einsdæmi í Suður-Afríku þó margir tali þannig. Við höfum búið þarna, fjölskyldan. Það gerist allt of oft að fólk drepur maka eða fjölskyldu- meðlim í misgripum fyrir innbrotsþjóf. Margir lifa í ótta og fréttir af fólsku- legum árásum tröllríða miðlum þar ytra. Það er alltaf verið að ala á ótta, ótti selur, því miður. Fólki, sem er við- kvæmt eða berskjaldað eins og Oscar – fótalaus, frægur og ríkur, hættir til að taka svona fréttir mjög inn á sig og verða mjög hrætt. Mjög margir eiga byssur og sofa með byssur jafnvel. Frægt er annað mál þar ytra þar sem faðir skaut unglingsdóttur sína er hún var að koma heim,“ útskýrir Ebba Guðný og bætir við að nokkur svipuð mál hafi komið upp á meðan dómsmál Oscars var í gangi. „Hvað Oscar varðar þá er hann alinn upp í ótta ef svo má segja. Mamma hans skildi við pabba hans þegar hann var bara 6 ára gamall. Hún var mikið ein með börnin sín og alltaf hrædd, svaf til að mynda með byssu. Þetta hefur áhrif á börn, þau taka inn á sig óöryggi og ótta foreldra sinna. Það þarf engan sálfræðing til að fatta það. Þar að auki hefur hann orðið fyrir ofbeldi sjálf- ur og orðið vitni að hræðilegu ofbeldi. Þetta allt setur mark sitt á fólk.“ Beðin um að lýsa Oscari segir Ebba: ,,Hann er ljúfur og indæll, kurteis, hugrakk- ur, skemmtilegur og fylginn sér.“ Ebba Guðný segir ekki hægt að neita því að lögreglan hefði getað staðið betur að rannsókninni og upplýsingagjöf strax í byrjun. „Við réttarhöldin komu í ljós ýmsir vankantar á vinnubrögðum og við- brögðum lögreglu. Þar að auki láku upp- lýsingar frá lögreglunni á netið. En hætt- an er líka meiri þegar sakborningur er fræg persóna. Þegar ég var úti í nokkrar vikur þá mætti ég í dómsalinn alla dag- ana. Ég tek ofan fyrir Masipa og hjálpar- mönnum hennar. Mér finnst dómurinn mjög sanngjarn, hún heldur sig algjör- lega við staðreyndir, sannanir og lögin. Flækist ekki vitundarögn í tilfinningum eða einhverju sem á ekkert erindi inn í dómsal. Hún er góð fyrirmynd.“ Réttarhöldin eins og sápuópera Aðspurð segir Ebba Guðný ekki gott að ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá réttarhöldunum. „Ég held að ókostirnir verði ofan á. Réttarhöldin verða eins og sápuópera þar sem fólk gerir ekki greinarmun á raunveruleika og leiknu efni og um leið missir það alla samhygð og skilning. Það er aldrei gott. Mér hefur almennt þótt hræðilegt að fylgjast með umfjöllun um málið. Þarna gerist hræðilegt slys. Eng- inn veit það betur en Oscar og foreldr- ar Reevu. Fólk hleypur upp til handa og fóta með alls kyns sleggjudóma og for- dóma án þess að vita nokkuð um málsat- vik, án þess að vita neitt um Suður-Afr- íku, án þess að vita nokkuð um Oscar og hans líf, án þess að vita neitt. En þetta er ekkert einsdæmi. Svona er þetta. Mann- legur breyskleiki. Ég hef lært mikið á þessu öllu sem ég hefði viljað læra öðru vísi. Ég hef alveg stundum hugsað mitt er ég hef lesið fyrirsagnir blaðagreina varðandi önnur mál, hugsað mitt og dæmt í hljóði án þess að vita nokkuð, ég mun ekki gera það framar. Frétta- mennska, sérstaklega á netinu, geng- ur því miður alltof mikið út á að kasta fram breiðum og villandi fyrirsögnum. Margir lesendur kynna sér málið ekkert lengra en fyrirsögnin nær. Fjölmargar rangar fyrirsagnir og greinar hafa verið birtar varðandi þetta mál og Oscar er ekki í neinni aðstöðu til að verja sig. Mér finnst þessi setning Voltaire ansi góð: „It is better to risk saving a guilty person than to condemn an innocent one.““ En hvað hugsar Ebba þegar hún heyr- ir að hann gæti setið inni í allt að fimm- tán ár? „Ég ætla að bíða með að hafa áhyggjur af því þangað til refsingin er ákveðin og gefin upp. Ég ber fullt traust til Masipa, líkt og Oscar og fjölskylda hans, að hún verði réttlát fyrir alla aðila. Aðalmálið núna, eftir að vandlega er búið að kryfja málið til mergjar, er að vitnisburður Oscars var í algjöru samræmi við sann- anir.“ Vissi að hann sagði satt Ebba Guðný Guðmundsdóttir er vinkona suðurafríska spretthlauparans Oscars Pistorius og hefur hann reynst fjölskyldu Ebbu afar vel. Dómari mun tilkynna um refsingu Pistorius 13. október, en hann var fundinn sekur um manndráp af gáleysi í gær. Pistorius varð unnustu sinni að bana á heimili sínu í Pretoríu í febrúar í fyrra. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist. Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Stiklað á stóru í lífi Oscars Pistorius 14. febrúar 2014 Ár frá dauða Steenkamp. Pistorius sendir kveðju á opinbera heimasíðu Steenkamp og segir engin orð fá lýst til- finningum sínum þegar hann hugsi til slyssins. 8. apríl 2014 Pistorius kúgast í réttarsaln- um þegar hann lýsir því hvernig hann skaut Reevu. 11. mars 2014 Fyrr- verandi kærasta Pistorius, Samantha Taylor, ber vitni í réttarhöldunum. Hún segir frá því þegar Pistor- ius, í bræðiskasti, hleypti skoti af byssu í gegnum þaklúgu á bíl eftir að hafa verið stoppaður af lög- reglu í september 2012. 3. mars 2014 Réttarhöld í málinu hefjast í Pretoríu og eiga að taka þrjár vikur samkvæmt dagskrá. 11. September 2014 Dómarinn Thokozile segir að ekki hafi tekist að sanna það að suðurafríski sprett- hlauparinn hafi myrt unnustu sína að yfirlögðu ráði og sýknar hann af þeim ákærulið. Hún frestar úrskurði þar til daginn eftir. 2. júlí 2014 Skýrsla er lesin í réttar- salnum sem segir Pistorius alvarlega þunglyndan og lík- legan til að fremja sjálfsvíg. Skýrslan mælir með að hann verði færður undir læknishendur. 12. maí 2014 Sérfræðingur segir Oscar haldinn kvíðaröskun. Réttarhöldunum er frestað. 12. september 2014 Pistorius er fundinn sekur um manndráp af gáleysi. Dómari mun tilkynna um refsingu Oscars Pistorius þann 13. október 8. ágúst 2014 Réttarhöldin klárast og ákveðið er að dómur falli þann 11. september. 30. júní 2014 Eftir sex vikna hlé er það einróma álit sálfræðinga og geð- læknis að Pistorius sé ekki haldinn geðsjúkdómi. 15. apríl 2014 Suðurafrískt dag- blað segir frá því að Pistorius hafi sést á djamminu og daðra við konur í Jóhannesarborg á meðan hann er laus úr varðhaldi. Pistorius neitar að hafa gert það. 14. apríl 2014 Aðdáendur Pist- orius, þekktir sem Pistorians, standa fyrir utan dómsalinn, styðja sinn mann og bera skilti. Aðrir biðja fyrir honum. Síður eru settar upp á samfélagsmiðlum honum til stuðn- ings. 24. mars 2014 SMS milli Steenkamp og Pistorius eru lesin við réttarhöldin. Hún lýsir því hvernig hún var hrædd við hann– „Ég er hrædd við þig stundum og hvernig þú snöggreiðist.“ 10. mars 2014 Pistorius kastar upp, aftur og aftur, í réttarsaln- um eftir að hafa heyrt mynd- rænar lýsingar á sárum sem drógu Steenkamp til dauða. 25. febrúar 2014 Dómar- inn Dunstan Mlambo veitir leyfi til þess að sjón- varpa hluta réttarhald- anna og taka upp. 28. mars 2013 Skilyrðin eru milduð af æðra dómstigi, þannig að hann má ferðast til þess að taka þátt í alþjóðlegum mótum, þótt ekkert verði úr því þegar til kastanna kemur. 22. febrúar 2013 Dómarinn Desmond Nair lætur hann lausan gegn milljón randa tryggingu. Skilyrðin eru að hann láti af hendi vegabréf sitt og öll vopn. 17. febrúar 2013 Umboðsmaður Pistorius segir að hætt hafi verið við allt sem hann hafði á dagskrá til að veita honum svigrúm til að einbeita sér að réttarhöldunum. 14. febrúar 2013 Pistorius er handtekinn á heimili sínu í Pretoríu fyrir morðið á Reevu Steenkamp, kærustu sinni. Ágúst 2012 Pistorius er fyrsti fótalausi íþróttamað- ur sögunnar til að keppa á Ólympíu- leikum. Desember 2007 Pistorius hlýtur verðlaun frá BBC sem íþróttamaður ársins fyrir hugrekki og afrek sín þrátt fyrir mótlæti. 2002 Móðir Oscars, Sheila Pistorius, deyr af völdum læknamis- taka. 19. ágúst 2013 Steenkamp hefði orðið þrítug. Pistorius er fyrir rétti hjá dómaranum Desmond Nair til þess að hlýða á formlega ákæru. Hann er ákærður fyrir morð að yfirlögðu ráði og fyrir að hafa í fórum sínum byssukúlur án leyfis. Ríkið birtir mögulegan vitnalista, en á honum eru 107 nöfn. 11. mars 2013 Lögfræðingar hlauparans áfrýja því að honum séu sett skilyrði fyrir því að vera látinn laus gegn tryggingu. 19. febrúar 2013 Útför Reevu Steenkamp fer fram í Port Elizabeth. Sama dag kemur Pist- orius fyrir dómara í aðdraganda réttarhaldanna. Saksóknari í málinu segir Pistorius hafa skotið fjórum skotum í gegnum bað- herbergishurð og að þrjú þeirra hafi hæft Steenkamp. Lögfræð- ingar Pistorius lesa yfirlýsingu frá honum þar sem hann segist hafa haldið að kærasta sín væri innbrotsþjófur. 15. febrúar 2013 Pistorius er leiddur fyrir dómara þar sem hann brotnar niður þegar honum er tilkynnt að ákæruvaldið hygg- ist sækja hann til saka fyrir morð að yfirlögðu ráði. September 2012 Keppir á Ólympíuleikum fatlaðra í London, þar sem hann vinnur til tvennra gullverðlauna. Maí 2008 Keppnis- banninu er aflétt rétt fyrir leikana í Peking, eftir áfrýjun Pistorius, en það er of seint. Þess í stað keppir hann á Ólympíumóti fatlaðra og vinnur þar til þrennra gullverðlauna. 2007 Pistorius hefur að keppa gegn ófötl- uðum á alþjóðlegum mótum víða um heim. Fljótlega fara að heyrast gagnrýnisraddir. Halda menn því fram að blöðkufæturnir veiti honum forskot á aðra keppendur. Er honum í kjölfarið bannað að hlaupa á gervifótunum gegn ófötluðum íþróttamönnum og draumur hans um að keppa á Ólympíuleikunum í Peking 2008 verður að engu. 22. nóvember 1986 Oscar Carl Pistorius fæðist í Jóhannesarborg. Hann var ellefu mánaða þegar báðir fætur hans voru fjarlægðir fyrir neðan hné vegna sjaldgæfs fæðingar- galla, en sperrilegginn vantaði í báða fætur hans. Ég tek ofan fyrir Masipa og hjálparmönnum hennar. Mér finnst dómurinn mjög sanngjarn, hún heldur sig algjörlega við staðreyndir, sannanir og lögin. Flækist ekki vitundarögn í tilfinningum eða einhverju sem á ekkert erindi inn í dómsal.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.