Fréttablaðið - 13.09.2014, Page 32
13. september 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
HRÆÐILEGT AÐ
FYLGJAST MEÐ
ALLRI UMFJÖLLUN
UM MÁLIÐ Ebba
Guðný segir ekki
gott að ákveðið hafi
verið að sjónvarpa
beint frá réttarhöld-
unum. Þar með
hafi þau orðið að
sápuóperu.
(Á myndinni sjást
Oscar og Ebba á
góðri stundu).
MYND/ÚR EINKASAFNI
Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var ellefu mán-aða þegar báðir fætur hans voru fjarlægðir fyrir neðan hné vegna sjaldgæfs fæðing-argalla, en sperrilegg vantaði í
báða fætur hans. Það sama á við um son
Ebbu, Hafliða, og þannig kynntust fjöl-
skylda Ebbu og Pistorius, sem Ebba segir
mikilvæga fyrirmynd fyrir Hafliða.
„Ég held að aðalmálið fyrir Oscar og alla
sem þykir vænt um hann sé að sannan-
ir hafi leitt í ljós að hann var, alveg frá
upphafi, að segja satt og rétt frá. Það
er hræðilegt að þurfa að sitja undir því
að hafa drepið einhvern viljandi, það er
alveg nóg að bögglast við að reyna að lifa
með því að hafa valdið dauða einhvers
óviljandi,“ segir Ebba Guðný.
Margir lifa í ótta
„Ég vissi um leið og ég heyrði hvað
gerðist að hann væri að segja satt. Þetta
er ekkert einsdæmi í Suður-Afríku
þó margir tali þannig. Við höfum búið
þarna, fjölskyldan. Það gerist allt of
oft að fólk drepur maka eða fjölskyldu-
meðlim í misgripum fyrir innbrotsþjóf.
Margir lifa í ótta og fréttir af fólsku-
legum árásum tröllríða miðlum þar
ytra. Það er alltaf verið að ala á ótta,
ótti selur, því miður. Fólki, sem er við-
kvæmt eða berskjaldað eins og Oscar –
fótalaus, frægur og ríkur, hættir til að
taka svona fréttir mjög inn á sig og verða
mjög hrætt. Mjög margir eiga byssur
og sofa með byssur jafnvel. Frægt er
annað mál þar ytra þar sem faðir skaut
unglingsdóttur sína er hún var að koma
heim,“ útskýrir Ebba Guðný og bætir við
að nokkur svipuð mál hafi komið upp á
meðan dómsmál Oscars var í gangi.
„Hvað Oscar varðar þá er hann alinn
upp í ótta ef svo má segja. Mamma hans
skildi við pabba hans þegar hann var
bara 6 ára gamall. Hún var mikið ein
með börnin sín og alltaf hrædd, svaf
til að mynda með byssu. Þetta hefur
áhrif á börn, þau taka inn á sig óöryggi
og ótta foreldra sinna. Það þarf engan
sálfræðing til að fatta það. Þar að auki
hefur hann orðið fyrir ofbeldi sjálf-
ur og orðið vitni að hræðilegu ofbeldi.
Þetta allt setur mark sitt á fólk.“ Beðin
um að lýsa Oscari segir Ebba: ,,Hann
er ljúfur og indæll, kurteis, hugrakk-
ur, skemmtilegur og fylginn sér.“
Ebba Guðný segir ekki hægt að neita því
að lögreglan hefði getað staðið betur að
rannsókninni og upplýsingagjöf strax
í byrjun. „Við réttarhöldin komu í ljós
ýmsir vankantar á vinnubrögðum og við-
brögðum lögreglu. Þar að auki láku upp-
lýsingar frá lögreglunni á netið. En hætt-
an er líka meiri þegar sakborningur er
fræg persóna. Þegar ég var úti í nokkrar
vikur þá mætti ég í dómsalinn alla dag-
ana. Ég tek ofan fyrir Masipa og hjálpar-
mönnum hennar. Mér finnst dómurinn
mjög sanngjarn, hún heldur sig algjör-
lega við staðreyndir, sannanir og lögin.
Flækist ekki vitundarögn í tilfinningum
eða einhverju sem á ekkert erindi inn í
dómsal. Hún er góð fyrirmynd.“
Réttarhöldin eins og sápuópera
Aðspurð segir Ebba Guðný ekki gott að
ákveðið hafi verið að sjónvarpa beint frá
réttarhöldunum.
„Ég held að ókostirnir verði ofan á.
Réttarhöldin verða eins og sápuópera
þar sem fólk gerir ekki greinarmun á
raunveruleika og leiknu efni og um leið
missir það alla samhygð og skilning. Það
er aldrei gott. Mér hefur almennt þótt
hræðilegt að fylgjast með umfjöllun um
málið. Þarna gerist hræðilegt slys. Eng-
inn veit það betur en Oscar og foreldr-
ar Reevu. Fólk hleypur upp til handa og
fóta með alls kyns sleggjudóma og for-
dóma án þess að vita nokkuð um málsat-
vik, án þess að vita neitt um Suður-Afr-
íku, án þess að vita nokkuð um Oscar og
hans líf, án þess að vita neitt. En þetta er
ekkert einsdæmi. Svona er þetta. Mann-
legur breyskleiki. Ég hef lært mikið á
þessu öllu sem ég hefði viljað læra öðru
vísi. Ég hef alveg stundum hugsað mitt
er ég hef lesið fyrirsagnir blaðagreina
varðandi önnur mál, hugsað mitt og
dæmt í hljóði án þess að vita nokkuð,
ég mun ekki gera það framar. Frétta-
mennska, sérstaklega á netinu, geng-
ur því miður alltof mikið út á að kasta
fram breiðum og villandi fyrirsögnum.
Margir lesendur kynna sér málið ekkert
lengra en fyrirsögnin nær. Fjölmargar
rangar fyrirsagnir og greinar hafa verið
birtar varðandi þetta mál og Oscar er
ekki í neinni aðstöðu til að verja sig.
Mér finnst þessi setning Voltaire ansi
góð: „It is better to risk saving a guilty
person than to condemn an innocent
one.““
En hvað hugsar Ebba þegar hún heyr-
ir að hann gæti setið inni í allt að fimm-
tán ár?
„Ég ætla að bíða með að hafa áhyggjur
af því þangað til refsingin er ákveðin og
gefin upp. Ég ber fullt traust til Masipa,
líkt og Oscar og fjölskylda hans, að hún
verði réttlát fyrir alla aðila. Aðalmálið
núna, eftir að vandlega er búið að kryfja
málið til mergjar, er að vitnisburður
Oscars var í algjöru samræmi við sann-
anir.“
Vissi að hann sagði satt
Ebba Guðný Guðmundsdóttir er vinkona suðurafríska spretthlauparans Oscars
Pistorius og hefur hann reynst fjölskyldu Ebbu afar vel. Dómari mun tilkynna
um refsingu Pistorius 13. október, en hann var fundinn sekur um manndráp
af gáleysi í gær. Pistorius varð unnustu sinni að bana á heimili sínu í Pretoríu í
febrúar í fyrra. Hann gæti átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist.
Ólöf
Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Stiklað á stóru
í lífi Oscars
Pistorius
14. febrúar 2014
Ár frá dauða
Steenkamp. Pistorius
sendir kveðju á
opinbera heimasíðu
Steenkamp og segir
engin orð fá lýst til-
finningum sínum
þegar hann hugsi til
slyssins.
8. apríl
2014
Pistorius
kúgast í
réttarsaln-
um þegar
hann lýsir
því hvernig
hann skaut
Reevu.
11. mars 2014 Fyrr-
verandi kærasta Pistorius,
Samantha Taylor, ber vitni
í réttarhöldunum. Hún
segir frá því þegar Pistor-
ius, í bræðiskasti, hleypti
skoti af byssu í gegnum
þaklúgu á bíl eftir að hafa
verið stoppaður af lög-
reglu í september 2012.
3. mars
2014
Réttarhöld
í málinu
hefjast í
Pretoríu og
eiga að taka
þrjár vikur
samkvæmt
dagskrá.
11. September
2014 Dómarinn
Thokozile segir
að ekki hafi tekist
að sanna það að
suðurafríski sprett-
hlauparinn hafi
myrt unnustu sína
að yfirlögðu ráði
og sýknar hann af
þeim ákærulið. Hún
frestar úrskurði þar
til daginn eftir.
2. júlí 2014 Skýrsla
er lesin í réttar-
salnum sem segir
Pistorius alvarlega
þunglyndan og lík-
legan til að fremja
sjálfsvíg. Skýrslan
mælir með að hann
verði færður undir
læknishendur.
12. maí 2014
Sérfræðingur
segir Oscar haldinn
kvíðaröskun.
Réttarhöldunum er
frestað.
12. september
2014 Pistorius
er fundinn sekur
um manndráp af
gáleysi. Dómari
mun tilkynna um
refsingu Oscars
Pistorius þann
13. október
8. ágúst 2014
Réttarhöldin klárast
og ákveðið er að
dómur falli þann
11. september.
30. júní 2014 Eftir
sex vikna hlé er
það einróma álit
sálfræðinga og geð-
læknis að Pistorius
sé ekki haldinn
geðsjúkdómi.
15. apríl 2014
Suðurafrískt dag-
blað segir frá því
að Pistorius hafi
sést á djamminu
og daðra við konur
í Jóhannesarborg
á meðan hann er
laus úr varðhaldi.
Pistorius neitar að
hafa gert það.
14. apríl 2014
Aðdáendur Pist-
orius, þekktir
sem Pistorians,
standa fyrir utan
dómsalinn, styðja
sinn mann og bera
skilti. Aðrir biðja
fyrir honum. Síður
eru settar upp á
samfélagsmiðlum
honum til stuðn-
ings.
24. mars 2014 SMS
milli Steenkamp og
Pistorius eru lesin
við réttarhöldin.
Hún lýsir því
hvernig hún var
hrædd við hann–
„Ég er hrædd við þig
stundum og hvernig
þú snöggreiðist.“
10. mars 2014
Pistorius kastar
upp, aftur og
aftur, í réttarsaln-
um eftir að hafa
heyrt mynd-
rænar lýsingar á
sárum sem drógu
Steenkamp til
dauða.
25. febrúar
2014 Dómar-
inn Dunstan
Mlambo veitir
leyfi til þess
að sjón-
varpa hluta
réttarhald-
anna og taka
upp.
28. mars 2013 Skilyrðin eru
milduð af æðra dómstigi, þannig
að hann má ferðast til þess að
taka þátt í alþjóðlegum mótum,
þótt ekkert verði úr því þegar til
kastanna kemur.
22. febrúar 2013 Dómarinn
Desmond Nair lætur hann lausan
gegn milljón randa tryggingu.
Skilyrðin eru að hann láti af
hendi vegabréf sitt og öll vopn.
17. febrúar 2013 Umboðsmaður
Pistorius segir að hætt hafi verið
við allt sem hann hafði á dagskrá
til að veita honum svigrúm til að
einbeita sér að réttarhöldunum.
14. febrúar 2013 Pistorius
er handtekinn á heimili sínu í
Pretoríu fyrir morðið á Reevu
Steenkamp, kærustu sinni.
Ágúst 2012
Pistorius
er fyrsti
fótalausi
íþróttamað-
ur sögunnar
til að keppa
á Ólympíu-
leikum.
Desember
2007 Pistorius
hlýtur verðlaun
frá BBC sem
íþróttamaður
ársins fyrir
hugrekki og
afrek sín þrátt
fyrir mótlæti.
2002
Móðir
Oscars,
Sheila
Pistorius,
deyr af
völdum
læknamis-
taka.
19. ágúst 2013 Steenkamp hefði
orðið þrítug. Pistorius er fyrir
rétti hjá dómaranum Desmond
Nair til þess að hlýða á formlega
ákæru. Hann er ákærður fyrir
morð að yfirlögðu ráði og fyrir að
hafa í fórum sínum byssukúlur
án leyfis. Ríkið birtir mögulegan
vitnalista, en á honum eru 107
nöfn.
11. mars 2013 Lögfræðingar
hlauparans áfrýja því að honum
séu sett skilyrði fyrir því að vera
látinn laus gegn tryggingu.
19. febrúar 2013 Útför Reevu
Steenkamp fer fram í Port
Elizabeth. Sama dag kemur Pist-
orius fyrir dómara í aðdraganda
réttarhaldanna. Saksóknari í
málinu segir Pistorius hafa skotið
fjórum skotum í gegnum bað-
herbergishurð og að þrjú þeirra
hafi hæft Steenkamp. Lögfræð-
ingar Pistorius lesa yfirlýsingu
frá honum þar sem hann segist
hafa haldið að kærasta sín væri
innbrotsþjófur.
15. febrúar 2013 Pistorius er
leiddur fyrir dómara þar sem
hann brotnar niður þegar honum
er tilkynnt að ákæruvaldið hygg-
ist sækja hann til saka fyrir morð
að yfirlögðu ráði.
September 2012 Keppir á
Ólympíuleikum fatlaðra í London,
þar sem hann vinnur til tvennra
gullverðlauna.
Maí 2008 Keppnis-
banninu er aflétt rétt
fyrir leikana í Peking,
eftir áfrýjun Pistorius,
en það er of seint. Þess
í stað keppir hann á
Ólympíumóti fatlaðra
og vinnur þar til
þrennra gullverðlauna.
2007 Pistorius hefur að keppa gegn ófötl-
uðum á alþjóðlegum mótum víða um heim.
Fljótlega fara að heyrast gagnrýnisraddir.
Halda menn því fram að blöðkufæturnir veiti
honum forskot á aðra keppendur. Er honum
í kjölfarið bannað að hlaupa á gervifótunum
gegn ófötluðum íþróttamönnum og draumur
hans um að keppa á Ólympíuleikunum í
Peking 2008 verður að engu.
22. nóvember 1986
Oscar Carl Pistorius fæðist
í Jóhannesarborg. Hann
var ellefu mánaða þegar
báðir fætur hans voru
fjarlægðir fyrir neðan hné
vegna sjaldgæfs fæðingar-
galla, en sperrilegginn
vantaði í báða fætur hans.
Ég tek ofan fyrir Masipa og hjálparmönnum hennar. Mér
finnst dómurinn mjög sanngjarn, hún heldur sig algjörlega við
staðreyndir, sannanir og lögin. Flækist ekki vitundarögn í
tilfinningum eða einhverju sem á ekkert erindi inn í dómsal.