Fréttablaðið - 04.10.2014, Síða 6
4. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
Fæst án lyfseðils
Verkir?
Verkjastillandi og
bólgueyðandi! AFGANISTAN, AP David Camer-on, forsætisráðherra Bretlands,
hét því í gær að styðja við bakið
á nýkjörnum forseta Afganist-
ans og nýrri ríkisstjórn landsins.
Þetta sagði hann í óvæntri heim-
sókn sinni til Kabúl, höfuðborgar
Afganistans.
Cameron varð fyrstur heims-
leiðtoga til að hitta Ashraf Ghani
Ahmadzai síðan hann sór embætt-
iseið síðastliðinn mánudag. „Bret-
land hefur greitt það háu gjaldi
að hjálpa til við að koma á stöðug-
leika í þessu landi,“ sagði Cameron
og átti við þá 453 breska hermenn
sem hafa fallið í landinu.
„Það þjónar okkar þjóðarhags-
munum og hagsmunum Afganist-
ans að landið sé laust við al-Kaída-
samtökin,“ sagði hann. „Núna,
þrettán árum síðar, getur og verð-
ur Afganistan að halda sjálft uppi
öryggi í landinu. En við ætlum
ekki að láta þetta land eiga sig. Þið
munuð eiga sterkan samherja og
vin í Bretlandi.“
Hét hann því að styrkja Afgan-
istan um 35 milljarða króna á ári
til ársins 2017. Féð mun fara í
mennta- og heilbrigðiskerfið og í
annars konar opinbera þjónustu í
landinu.
Cameron heimsótti Afganistan
degi eftir að hann heilsaði upp á
breska herflugmenn á Kýpur sem
taka þátt í loftárásum á Íslamska
ríkið í Írak. Breskar herþotur hafa
tekið þátt í árásunum í eina viku,
eða síðan Bretar gerðust samherjar
Bandaríkjanna og annarra ríkja í
baráttunni gegn öfgasamtökunum.
„Baráttan við að sigra íslamska
hryðjuverkamenn heldur áfram
annars staðar í heiminum,“ sagði
Cameron í Kabúl. „Þar sem þetta
ógnar okkur heima fyrir verðum
við að halda áfram að leggja okkar
af mörkum.“
Ghani Ahmadzai þakkaði Bret-
um fyrir fórnir þeirra í Afganist-
an, sérstaklega fjölskyldum þeirra
sem féllu í stríðinu. „Þeir stóðu
með okkur og við munum ekki
gleyma þeim,“ sagði hann.
Degi eftir að Ahmadzai tók við
embætti skrifaði ríkisstjórn hans
undir samning um að Bandaríkin
fái að halda 9.800 manna herliði í
landinu fram yfir frest sem átti
að renna út um næstu áramót, til
að þau geti þjálfað upp þarlendar
öryggissveitir. freyr@frettabladid.is
Styður við bakið á
nýkjörnum forseta
Forsætisráðherra Bretlands fór í óvænta heimsókn til Afganistans í gær. Hann
ætlar að styðja við bakið á nýkjörnum forseta landsins, Ashraf Ghani Ahmadzai.
VIÐSKIPTI Aukning á sölu mjólk-
urvara mjólkurvinnslunnar Örnu
var vel merkjanleg í síðustu viku,
að því er samlagsstjórinn, Hálf-
dán Óskarsson, greinir frá. Aukn-
inguna telur Hálfdán vera vegna
umræðunnar um Mjólkursamsöl-
una, MS. Um tvær vikur eru síðan
greint var frá því að Samkeppnis-
eftirlitið hefði lagt 370 milljóna
króna sekt á MS fyrir misnotk-
un á markaðsráðandi stöðu. MS
var sagt beita smærri keppinauta
samkeppnishamlandi mismunun
með því að selja þeim hrámjólk á
17 prósenta hærra verði en fyrir-
tæki sem eru tengd MS greiddu.
„Ég held að umræðan sem verið
hefur í gangi með MS hafi haft
þessi áhrif. Menn hafa ekki mikið
val ef þeir vilja ekki versla við MS.
Ætli fólk sé ekki bara að sýna hvað
því finnst um þetta. Svo erum við
náttúrlega að selja afbragðsgóðar
mjólkurvörur sem eru laktósafrí-
ar. Þetta eru mjólkurvörur sem
henta öllum og fólk virðist sækja
í þær,“ segir Hálfdán. - ibs
Fleiri farnir að kaupa mjólkurvörur frá mjólkurvinnslunni Örnu ehf:
Umræðan um MS jók söluna
HITTUST Í KABÚL David Cameron ásamt Ashraf Ghani Ahmadzai, forseta Afganistans, í heimsókninni í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í
gær gengislán, sem sveitarfélagið
Skagafjörður tók hjá Lánasjóði
sveitarfélaga ohf., ólöglegt.
Skagafjörður tók lánið hjá lána-
sjóðnum í erlendum gjaldmiðlum
og taldi Hæstiréttur að lánið hefði
verið í íslenskum krónum bundið
með ólöglegum hætti við gengi
erlendra gjaldmiðla.
Hagsmunir Skagafjarðar í mál-
inu voru miklir, eða rúmar 115
milljónir króna. Með dómnum var
viðurkennt að í mars 2012 stóð
lánið í rúmum 103 milljónum króna
en ekki rúmlega 218 milljónum líkt
og lánasjóðurinn hélt fram.
„Það eru engir aðrir lánasamn-
ingar hjá okkur nákvæmlega eins
og þessi,“ segir Óttar Guðjónsson,
framkvæmdastjóri Lánasjóðs
sveitarfélaga ohf. Hann segir for-
dæmisgildi dómsins því vera tak-
markað.
Lánasjóðurinn á í tvennum deil-
um fyrir dómstólum vegna upp-
gjörs á gengislánasamningum.
Annars vegar við Fjarðabyggð en
það mál hefur þegar verið dæmt
í héraðsdómi þar sem samningur-
inn var talinn löglegur. Þá hefur
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
stefnt sjóðnum og er málflutning-
ur fyrirhugaður í desember.
Óttar segir marga hafa samband
við sjóðinn til að spyrjast fyrir um
lögmæti lána sinna.
„Það er mjög mikill áhugi á
Íslandi um þessar mundir fyrir því
að borga ekki til baka lán sem fólk
eða fyrirtæki hafa tekið,“ segir
Óttar. - fbj
Framkvæmdastjóri Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. segir mikinn áhuga á því að borga ekki lán til baka:
Ólöglegt lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga
MARGAR FYRIRSPURNIR Óttar Guð-
jónsson, framkvæmdastjóri Lánasjóðs
sveitarfélaga, segist fá þó nokkrar fyrir-
spurnir um lögmæti lána.
SAMFÉLAG Um helgina fer fram
árleg Norræn stúdentaráðstefna
í höfuðstöðvum KFUM&K á
Íslandi.
Þátttakendur eru frá Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi,
Færeyjum og Íslandi. Þátttöku-
þjóðir skiptast á að halda ráð-
stefnuna, en markmiðið með
henni er ávallt að sameina
kristna stúdenta á Norðurlönd-
um, kynnast og fá fræðslu sem
hægt er að nýta í starfinu heima-
fyrir. - glp
Norræn ráðstefna á Íslandi:
Sameinast í
kristinni trú
SAMLAGSSTJÓRINN Hálfdán Óskars-
son telur fólk vera að sýna hvað því
finnst um MS.
breskir her-
menn hafa
fallið í Afganistan.
453