Fréttablaðið - 04.10.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 04.10.2014, Blaðsíða 24
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 og mikið að pæla í andlegum og siðfræðilegum málefnum. Bjó úti í Svíþjóð árið 1990 í hippanýlendu þar sem ég var grænmetiskokkur á náttúrulækningasjúkrahúsi en festi ekki yndi í Svíþjóð, kom heim og fór á sjóinn einn vetur. Þar varð ég fyrir sterkri trúarlegri reynslu.“ Hann kveðst þó ekki hafa lent í bein- um sjávarháska. „Auðvitað fengum við á okkur brot og háskinn er allt- af fyrir hendi á sjó, eins og kvik- myndatónlist í bakgrunni. Það var samt ekkert eitt atriði sem hafði þessi áhrif á mig heldur sú sterka tilfinning að vera hluti af einhverju miklu stærra, meira og æðra en ég sjálfur, partur af sköpunarverkinu.“ Kata Jak sleit sambandinu Nú er komið að því að forvitnast um einkalífið og þótt Davíð Þór sé einn heima þessa stundina kemst ég að því að hann á konu. Hún heit- ir Þórunn Gréta Sigurðardóttir og er frá Egilsstöðum. Þórunn Gréta er tónskáld, útskrifaðist í janúar á þessu ári með mastersgráðu í klass- ískum tónsmíðum frá Tónlistarhá- skólanum í Hamborg og Davíð Þór bjó hjá henni þar úti í eitt ár. Nú er hún nýráðin organisti á Eskifirði. „Við gerum ráð fyrir að flytja til Eskifjarðar því við ætlum að reyna að komast af með einn bíl í vetur,“ segir hann brosleitur. Þrjú börn og þrjú barnabörn fær- ast Davíð Þór líka til tekna. „Ég á dóttur fædda 1983, þá var ég 18 ára. Hún býr í Kaupmannahöfn og er að læra landslagsarkitektúr, á mann og tvö börn. Svo eignaðist ég dóttur fædda 1990 og son fæddan 1991 með þáverandi eiginkonu minni Elínu Ellingsen en við skildum árið 1993. Á sjö ára tímabili bjó Davíð Þór með Katrínu Jakobsdóttur, for- manni Vinstri grænna. „Við Kata kynntumst þegar við unnum saman í Gettu betur í sjónvarpinu. Það neistaði á milli okkar. Svo fór það eins og það fór og gat í rauninni ekki farið öðru vísi því ég varð smám saman veikari og veikari af alkóhól- isma. Hún bar gæfu til að slíta því sambandi. Ári síðar var ég kominn inn á Vog. Að þurfa að gera upp eigið líf og taka þá ákvörðun að láta það lúta handleiðslu guðs, eins og maður er fær um að skilja hann, varð til þess að glæða á ný áhuga minn á guðfræði og á verulegan þátt í að ég byrjaði aftur að stúdera hana. Ég þurfti að rifja upp trúarvit- und mína og trúarlíf sem ég hafði drekkt í áfengismóðu. Þá var ég í tvö ár búinn að glíma við að laga líf mitt að nýjum andlegum lifnaðar- háttum.“ Hratt skilnaðurinn þér í þá sjálfs- skoðun? (Smá þögn) „Ef ég fer að tala um einkalíf mitt á þeim tíma sem við Kata vorum saman er ég um leið að tala um einkalíf hennar og ég hef engan rétt til þess. Ég get sagt að skilnaðurinn lagðist ekki vel í mig en í raun og veru stend ég í þakkarskuld við Kötu fyrir að hafa slitið sambandinu þegar hún gerði það. Ég fékk mjög lögmæta afsökun fyrir að sökkva mér í drykkjuskap en náði botninum og viðspyrnunni. Það var lífsreynsla.“ Ekki trúboð innan fjölskyldunnar Spurður út í trúarlegt uppeldi svar- ar Davíð Þór: „Ég lærði helstu grundvallaratriðin. Var signdur áður en ég var settur í bolinn og kennt versið Nú er ég klæddur og kominn á ról. Ég var flest sumur til 14 ára aldurs hjá afa og ömmu og það var alin upp í mér sterk siðvit- und frá blautu barnsbeini en ekki kirkjurækni. Það er frekar í seinni tíð að ég uppgötva að fjölskylda mín er ákaflega trúrækilega sinn- uð. Móðir mín er í kvennakirkjunni, pabbi og dóttir mín eru ásatrúar og eini bróðirinn minn er Vantrúar- maður. Ekkert okkar lítur á það sem sitt hlutverk að stunda trúboð innan fjölskyldunnar en við bróðir minn ræðum mikið um heimspeki- leg og siðferðileg málefni. Þó svo hann hafi ekki fundið sínum lífs- skoðunum farveg innan kirkjunnar þá gleðst hann yfir að ég hafi fund- ið mína köllun meðan ég virði hans afstöðu. Kirkjan hagar sér stund- um eins og gömlu valdhafarnir sem verða móðgaðir og sárir þegar þeir fá ekki atkvæðin sem þeim finnst þeir eiga. En kirkjan á að iðka sam- tal við aðra og ekki móðgast og fara í vörn ef einhver vill fermast borg- aralega eða standa vörð um það sem við höldum að við vitum um trúar- iðkun forfeðra okkar áður en þeir tóku kristni.“ En hvað finnst honum um Krists- daginn sem haldinn var í Hörpu um síðustu helgi? „Ég held að Krists- dagurinn hafi undirstrikað það sem Dagur vonar gaf til kynna í fyrra, að Þjóðkirkjan eigi að láta sam- kirkjulegt starf með bókstafstrúar- fólki alveg eiga sig. Auðvitað er gott að geta látið ágreining lönd og leið og snúa bökum saman um það sem við erum sammála um. En þegar frjálslynt og umburðarlynt kristið fólk er narrað á forsendum sam- kirkjulegra hugsjóna til að frábiðja sér sjálfsögð mannréttindi á borð við kvenfrelsi og kynfrelsi er betur heima setið en af stað farið.“ Ætlar ekki að velta um borðum Davíð hefur unnið sjálfstætt við þýðingar síðustu ár. Gaf líka út skáldsöguna Orrustan um Fold fyrir tveimur árum og á aðra bók full- skrifaða. En nú tekur hann við nýja embættinu 1. nóvember og þyrfti að byrja fyrr. „Síðustu helgina í októ- ber er æskulýðsmót þjóðkirkjunnar og fermingarnámskeið og leiðtoga- námskeið í nóvember. Þetta allt eru prestarnir fyrir austan að skipu- leggja upp í hendurnar á mér og í samráði við mig. Um leið og haust- törnin er búin kemur jólatörnin. Ég sé fram á að geta byrjað að draga andann upp úr áramótum.“ Aldrei er hlutverk presta vanda- samara en á sorgarstundum fólks, það er Davíð Þór meðvitaður um. „Ég hef töluverða reynslu af sál- gæslu, segir hann. „Það kom mér á óvart þegar ég var fyrir austan hvað mikið var leitað til mín. En það sem ég hlakka mest til er að fá að móta fræðslu- og félagsstarf. Kirkjan stendur sig ágætlega í æskulýðs- starfi og líka félagsstarfi fyrir eldri borgara. Hún stendur sig ekki eins vel í að gera eitthvað fyrir kynslóð- irnar þar á milli en mig langar að koma til móts við fólk sem hefur heimspekilegan og siðferðilegan áhuga á trúarlegum málefnum og opna því dyr inn í kirkjuna.“ Hann telur breytinga þörf á innra skipulagi kirkjunnar, þar vill hann auka almennt safnaðarlýðræði. „En ég ætla að hafa mig hægan og læra reglurnar til að byrja með,“ lofar hann. „Ég er ekkert að fara að velta um borðum á næstu prestastefnu.“ Í Vatna- skógi þekktu krakkarnir mig fyrir að hafa talað fyrir Sigmar í Svampi Sveinssyni og leikið vonda karlinn í Astrópíu. Þeir hafa aldrei heyrt talað um Radíusbræður eða Bleikt og blátt. Það er bara forn- aldarstöff fyrir þeim. LUXOR er alhliða tækjaleiga og tækjasala fyrir kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinn, viðburða- og tónleikafyrirtæki, leikhús, stofnanir og önnur fyrirtæki. Verkefnastjóri í afgreiðslu kvikmyndabúnaðar Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi til að taka þátt í uppbyggingu tækjaleigunnar. Helstu verkefni: Tilboðsgerð við tæknilegar lausnir kvikmyndaverkefna Umsjón með kvikmyndavélum og öðrum búnaði Stuðla að jákvæðum og árangursríkum samskiptum við viðskiptavini, birgja og samstarfsmenn ~ ~ ~ Nákvæmni og metnað í starfi Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð Brennandi áhuga og frumkvæði Góða íslensku- og enskukunnáttu Góða samskipta- og skipulagshæfni, jákvæðni og stundvísi ~ ~ ~ ~ ~ Menntunar- og hæfniskröfur: Tæknileg þekking á úrlausnum verkefna tengdum kvikmyndagerð Reynsla við gerð kvikmynda (grip, ljós eða camera) Þjónustulund og söluhæfileikar eru lykilatriði ~ ~ ~ Lagerstjóri tækjaleigu Luxor Starfsmaður er ábyrgur fyrir daglegum samskiptum lagersins við viðskiptavini. Undirbúningi verkefna og frágangi að þeim loknum. Sendið umsóknir merktar LUXOR - VERKEFNASTJÓRI / LUXOR - LAGER til Sagafilm, Laugavegi 176, 105 Reykjavík, eða á netfangið ragnheidur@luxor.is. UMSÓKNIR BERIST FYRIR 10.10.2014. Helstu verkefni: Skráning búnaðar á lager Pökkun búnaðar í verkefni og úr verkefnum Stuðla að jákvæðum og árangursríkum samskiptum við viðskiptavini, birgja og samstarfsmenn ~ ~ ~ Menntunar- og hæfniskröfur: Þekking á skipulagi lager Þekking á úrlausnum verkefna tengdum tónleikum, sviðlistum, viðburðahaldi og kvikmyndabúnaði er kostur Þjónustulund og útsjónarsemi ~ ~ ~ LUXOR er hluti af Sagafilm, stærsta framleiðslu- fyrirtæki landsins á sviði sjónvarpsefnis, kvikmynda og viðburða. Við leitum að rétta fólkinu í eftirtaldar stöður: Fyrir bæði störfin gerum við almennar kröfur um: FERILLINN Í FÁUM DRÁTTUM 1985 Eftir stúdentspróf og ásamt leikmunavörslu hjá Sjónvarpinu fór fyrsti útvarpsþáttur Davíðs Þórs og Steins Ármanns Magnússonar í loftið. Hann hét Stungið í Stúf og var á samtengdum rásum 1 & 2. 1986-1995 Þáttagerðarmaður á Aðal- stöðinni, meðal annars með þáttinn Górilla. Á sama tíma leikari, leikskáld, þýðandi, höfundur texta og leikstjóri hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar og Flugfélaginu Lofti, lék m.a. Fúsa í Fúsa froskagleypi. 1996 Spyrill í spurningakeppni Framhaldsskólanna Gettu betur en árin 2007-2009 handrits- höfundur og dómari. 1994-1996 Sem Radíusbróðir, ásamt Steini Ármanni með skemmtiþætti í sjónvarpi eftir eigin handriti. 1997-2001 Ritstjóri Bleikt og blátt, tímarits um kynlíf. 2002-2010 Fastur þátttakandi í Orð skulu standa, vikulegum spurningaleik um ís- lenskt mál á Rás 1 og í Borgarleikhúsinu. 2004-2012 Í stjórn Íslands- deildar Amnesty International, þar af formaður frá 2008-2012. 2006-2012 Höfundur Bakþanka í Fréttablaðinu hálfsmánað- arlega. 1994-2014 Þýðandi fyrir leikhús, bíó, sjónvarp, hljóð- setningarfyrirtæki auk þess að ljá ótal persónum rödd sína. 1985 1989 1994 1999 2004 2009 2014
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.