Fréttablaðið - 04.10.2014, Side 30
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
Svandís Dóra bíður mín við starfsmannainngang Þjóð-leikhússins í rigningu og roki, klædd stuttum pels og hnéháum grænum gúmmí-stígvélum á la Kate Moss.
Ég hrylli mig yfir veðurofsanum en
hún hlær að aumingjaskapnum í mér
og segist vera alvön því að vera úti í
öllum veðrum, enda nánast alin upp
á hestbaki.
„Ég er fædd og uppalin í Kópa-
vogi, en foreldrar mínir eru mikið
hestafólk og eiga land uppi í Gnúp-
verjahreppi þar sem við erum með
hestana, þannig að ég segist alltaf
vera fiftí fiftí úr Kópavoginum og
Gnúpverjahreppnum, enda er ég
mikil sveitastelpa og kann best við
mig í lopapeysu og stígvélum.“
Fjölskyldan er stór, Svandís á
tvær alsystur og tvö hálfsystkin, en
hún er örverpið, tíu árum yngri en
systirin á undan. „Við erum samt öll
jafnmikil systkini, það hefur alltaf
verið mikill samgangur á milli og við
erum mjög náin.“
Vildi komast í Nemó
Svandís er dóttir Einars Bollason-
ar, sem sat saklaus í fangelsi í Geir-
finnsmálinu, en það var löngu áður
en hún fæddist og hún segist ekki
vilja tjá sig um það mál. Móðir henn-
ar er Sigrún Ingólfsdóttir sem stund-
aði ballett á yngri árum og heim-
sóknir í leikhúsið voru fastur liður
í uppeldinu. Það var þó ekki fyrr
en í Verzlunarskólanum sem Svan-
dís lét reyna á þann draum sinn að
stíga á svið. „Ég var í Kópavogsskóla
allan grunnskólann og lék eitthvað
smávegis í skólaleikritum en lang-
aði alltaf að verða leikkona og fór
í Verzló til að geta tekið þátt í sýn-
ingum Nemó. Mamma og pabbi voru
reyndar ekkert voðalega hrifin af
því að ég legði leiklistina fyrir mig,
fannst fylgja því lítið starfsöryggi,
en mér fannst sniðugt að fara í versl-
unarskóla, sem er mjög alhliða nám,
og halda þannig öllum möguleikum
opnum um leið og ég gæti fengið
útrás fyrir leiklistarbakteríuna. Ég
var reyndar svo hræðilega feimin
að ég þorði aldrei í prufur fyrir leik-
sýningarnar, fyrir utan það að ég
var oftast að keppa á hestum á sama
tíma og æfingar áttu að hefjast. Það
var ekki fyrr en á síðasta árinu mínu
að ég fór í prufu og fékk þá hlutverk
í Sólsting sem Jóhann G. Jóhanns-
son var að leikstýra og hann spark-
aði í rassinn á mér og sannfærði mig
um að ég yrði að láta reyna á það að
verða leikkona.“
Skólakerfið drap skriflöngunina
Hvaðan kom þessi leiklistaráhugi?
„Veistu, ég eiginlega veit það ekki,
það eru engir leikarar í minni fjöl-
skyldu. Ég hafði bara alltaf þessa
þörf fyrir að skapa eitthvað. Ég var
náttúrulega langyngst og pabbi og
mamma voru mikið að vinna þann-
ig að ég byrjaði snemma að skrifa
sögur og teikna til að hafa ofan af
fyrir mér. Ég hef alltaf verið mikil
draumóramanneskja og get auðveld-
lega gleymt mér við að skapa heilu
heimana í höfðinu á mér. Hætti
reyndar alveg að skrifa og teikna á
tímabili en er nú búin að koma mér
upp trönum og finnst gott að mála til
að hreinsa hugann. Fer gjarna upp í
bústað þar sem við erum með hest-
ana, tek trönurnar með mér og hleð
batteríin ein í náttúrunni.“
Hvað með skriftirnar, hefurðu
verið að skrifa eitthvað? „Nei, þótt
mér fyndist gaman að skrifa sögur
þegar ég var krakki þá drap skóla-
kerfið þá löngun niður. Allar ritgerð-
ir þurftu að fara eftir settum reglum,
sem mér fannst ógeðslega þurrar og
leiðinlegar. Ég fékk aldrei nógu gott
fyrir ritgerðir, að mínu mati, þann-
ig að ég beit það bara í mig að ég
gæti ekki skrifað. Mér finnst alveg
nóg að hafa sögurnar í hausnum. Er
líka voða dugleg við að skoða fólk,
oft ómeðvitað, og á það til að gleyma
mér í margmenni við það að velta
fólki fyrir mér og ímynda mér líf
þess, sem sumum finnst eflaust mjög
óþægilegt.“
Fann ástina á föstudaginn langa
Þrátt fyrir hvatningu leikstjórans
lá leiðin úr Verzlunarskólanum ekki
beint í leiklistarnám. „Ég hafði verið
að vinna með skólanum í Jack and
Jones og Selected og eftir útskrift
bauðst mér verslunarstjórastaða þar
sem ég þáði. Eftir eitt ár þar fann
ég að ég bara varð að láta reyna á
leiklistina, skráði mig í ensku uppi í
Háskóla til að undirbúa það að fara í
leiklistarnám erlendis. Mig langaði
bara ekkert að vera á Íslandi á þess-
um tíma og var á fullu að skoða leik-
listarskóla í Bretlandi og Bandaríkj-
unum. Í Háskólanum fór ég að leika
með Stúdentaleikhúsinu og kynnt-
ist fullt af fólki með leiklistaráhuga
sem stefndi á að sækja um í Listahá-
skólanum. Ég ákvað að gefa því séns,
fór í inntökupróf og komst inn, mér
alveg að óvörum. Útskrifaðist 2010
og hef blessunarlega getað unnið við
leiklistina síðan.“
Í Nemendaleikhúsinu urðu örlög-
in á vegi Svandísar þegar Sigtrygg-
ur Magnason leikskáld var fenginn
til að skrifa verk fyrir hópinn. „Við
kynntumst í Nemendaleikhúsinu um
haustið en það gerðist ekkert á milli
okkar þar. Um páskana fór ég síðan
að heimsækja skólasystur mína vest-
ur á Ísafjörð með bekknum mínum
og þá var Sigtryggur staddur þar
og við hittum hann. Svo bara gerð-
ist eitthvað á föstudaginn langa, við
stukkum bæði á ölduna sem skall
yfir okkur og höfum verið saman
síðan.“
Trúlofun Svandísar og Sigtryggs
á síðasta ári komst í blöðin, enda til-
þrifamikið atriði á alblóðugu leik-
sviði í Berlín, eru þau búin að ákveða
brúðkaupsdaginn? „Ekki daginn, en
við stefnum að því að gifta okkur
næsta sumar. Við erum ekki búin að
skipuleggja það í smáatriðum, það
eina sem er alveg öruggt er að það
verður uppi í sveit.“
Heimsmeistari í hlýðni
Á hestbaki kannski? Ertu ekki enn
á kafi í hestamennskunni? „Jú, jú,
en ég hætti að keppa þegar ég var
í Nemendaleikhúsinu og hef ekki
keppt síðan, nema reyndar einu sinni
síðastliðinn vetur. Ég var búin að
vera svo lengi í því, keppa á mörgum
landsmótum og vera í unglingalands-
liðinu, varð til dæmis heimsmeistari
í hlýðni eitt árið. Það þótti bekkjar-
systkinum mínum í Listaháskólanum
óskaplega fyndið, enda er ég ekkert
mjög hlýðin. Hef alltaf haft mikla
þörf fyrir að stjórna, hef aðeins feng-
ist við að leikstýra og langar að gera
meira af því. Ef ég fer í mastersnám
langar mig að taka leikstjórn, og þá
helst kvikmyndaleikstjórn, en ég veit
ekki ennþá hvenær af því verður.“
Þið eruð ekkert farin að skipu-
leggja barneignir í framhaldi af
brúðkaupinu? „Jú, jú, mér finnst
ég bara aldrei vera tilbúin. Ég á
hins vegar þrjú stjúpbörn með Sig-
tryggi og þau eru hjá okkur aðra
hverja viku svo ég hef alveg fengið
að spreyta mig í móðurhlutverkinu
síðustu fjögur ár. Auðvitað voru það
viðbrigði að vera komin með þrjú
börn á heimilið en þau eru alveg ynd-
isleg og tóku mér strax mjög vel. Það
hefur verið alveg ómetanlegt að fá að
fara með þeim inn í unglingsárin og
ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa
þau í lífi mínu. Þau hafa kennt mér
svo margt.“
Stærsta hlutverk Svandísar til
þessa var þokkagyðjan Dí ana Klein
í kvikmyndinni um Harry og Heimi:
Morð eru til alls fyrst, langar hana
ekkert til að koma sér á framfæri í
kvikmyndaheiminum erlendis? „Jú,
alveg eins. Ég er eiginlega fyrst núna
komin með efni til að gera kynning-
arræmu en ég er ekkert mikið fyrir
það að plana of langt fram í tím-
ann. Það eru einhverjar viðræður í
gangi um möguleg hlutverk í bíóum
og sjónvarpsþáttum, en ekkert nið-
urneglt. Núna er ég á samningi við
Þjóðleikhúsið, vinn með yndislegu
fólki sem ég lít upp til og læri mikið
af. Það er svo margt sem mig lang-
ar að gera, en fyrst og fremst ætla
ég að halda mínu striki. Mér finnst
skipta mestu máli að reyna að vera
góð manneskja, rækta sjálfan sig,
fólkið sem maður elskar og finna
sinn eigin takt.“
Friðrika
Benónýsdóttir
fridrikab@frettabladid.is
Feimna hestastelpan sem
þorði ekki í leikprufur
Fyrsti þáttur sjónvarpsseríunnar Hraunsins fór í loftið um síðustu helgi og margir áhorfendur veltu því fyrir sér hver hún
væri þessi unga leikkona sem leikur Auði. Hún heitir Svandís Dóra Einarsdóttir og æfir nú af kappi fyrir frumsýningu
Karitasar í Þjóðleikhúsinu um þarnæstu helgi, hestakona sem segist kunna best við sig í lopapeysu og gúmmístígvélum.
Meðal hlutverka Svandísar Dóru í leikhúsi eru Jóa í Veghúsum í Heims-
ljósi í Þjóðleikhúsinu, Lilja í Nú er himneska sumarið komið sem sýnt
var í Árbæjarsafni, ýmis hlutverk í Hvörfum í uppsetningu Lab Loka og
Þjóðleikhússins, Lovísa í TRANS í Útvarpsleikhúsinu, Sirrý í Nóttin var sú
ágæt ein í uppsetningu Óskabarna ógæfunnar og Sylvía í verkinu Útundan
í uppsetningu Háaloftsins. Hún var einnig aðstoðarleikstjóri Þórhildar
Þorleifsdóttur í verkinu Dagleiðin langa í Þjóðleikhúsinu.
Sjónvarp og kvikmyndir
Svandís Dóra hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Rétti, Pressu og Ástríði,
kvikmyndunum Kurteisu fólki, Borgríki, Faust eftir Aleksander Sukorov,
Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson og Díönu Klein í kvikmyndinni Harrý
og Heimir– Morð eru til alls fyrst. Hún leikur einnig í spennuþáttaröð
Reynis Lyngdal, Hrauninu, sem RÚV sýnir þessar vikurnar.
HELSTU HLUTVERK SVANDÍSAR DÓRU
Svo bara
gerðist eitthvað á
föstudaginn langa,
við stukkum bæði á
ölduna sem skall
yfir okkur og
höfum verið saman
síðan.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/STEFÁN