Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 30

Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 30
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30 Svandís Dóra bíður mín við starfsmannainngang Þjóð-leikhússins í rigningu og roki, klædd stuttum pels og hnéháum grænum gúmmí-stígvélum á la Kate Moss. Ég hrylli mig yfir veðurofsanum en hún hlær að aumingjaskapnum í mér og segist vera alvön því að vera úti í öllum veðrum, enda nánast alin upp á hestbaki. „Ég er fædd og uppalin í Kópa- vogi, en foreldrar mínir eru mikið hestafólk og eiga land uppi í Gnúp- verjahreppi þar sem við erum með hestana, þannig að ég segist alltaf vera fiftí fiftí úr Kópavoginum og Gnúpverjahreppnum, enda er ég mikil sveitastelpa og kann best við mig í lopapeysu og stígvélum.“ Fjölskyldan er stór, Svandís á tvær alsystur og tvö hálfsystkin, en hún er örverpið, tíu árum yngri en systirin á undan. „Við erum samt öll jafnmikil systkini, það hefur alltaf verið mikill samgangur á milli og við erum mjög náin.“ Vildi komast í Nemó Svandís er dóttir Einars Bollason- ar, sem sat saklaus í fangelsi í Geir- finnsmálinu, en það var löngu áður en hún fæddist og hún segist ekki vilja tjá sig um það mál. Móðir henn- ar er Sigrún Ingólfsdóttir sem stund- aði ballett á yngri árum og heim- sóknir í leikhúsið voru fastur liður í uppeldinu. Það var þó ekki fyrr en í Verzlunarskólanum sem Svan- dís lét reyna á þann draum sinn að stíga á svið. „Ég var í Kópavogsskóla allan grunnskólann og lék eitthvað smávegis í skólaleikritum en lang- aði alltaf að verða leikkona og fór í Verzló til að geta tekið þátt í sýn- ingum Nemó. Mamma og pabbi voru reyndar ekkert voðalega hrifin af því að ég legði leiklistina fyrir mig, fannst fylgja því lítið starfsöryggi, en mér fannst sniðugt að fara í versl- unarskóla, sem er mjög alhliða nám, og halda þannig öllum möguleikum opnum um leið og ég gæti fengið útrás fyrir leiklistarbakteríuna. Ég var reyndar svo hræðilega feimin að ég þorði aldrei í prufur fyrir leik- sýningarnar, fyrir utan það að ég var oftast að keppa á hestum á sama tíma og æfingar áttu að hefjast. Það var ekki fyrr en á síðasta árinu mínu að ég fór í prufu og fékk þá hlutverk í Sólsting sem Jóhann G. Jóhanns- son var að leikstýra og hann spark- aði í rassinn á mér og sannfærði mig um að ég yrði að láta reyna á það að verða leikkona.“ Skólakerfið drap skriflöngunina Hvaðan kom þessi leiklistaráhugi? „Veistu, ég eiginlega veit það ekki, það eru engir leikarar í minni fjöl- skyldu. Ég hafði bara alltaf þessa þörf fyrir að skapa eitthvað. Ég var náttúrulega langyngst og pabbi og mamma voru mikið að vinna þann- ig að ég byrjaði snemma að skrifa sögur og teikna til að hafa ofan af fyrir mér. Ég hef alltaf verið mikil draumóramanneskja og get auðveld- lega gleymt mér við að skapa heilu heimana í höfðinu á mér. Hætti reyndar alveg að skrifa og teikna á tímabili en er nú búin að koma mér upp trönum og finnst gott að mála til að hreinsa hugann. Fer gjarna upp í bústað þar sem við erum með hest- ana, tek trönurnar með mér og hleð batteríin ein í náttúrunni.“ Hvað með skriftirnar, hefurðu verið að skrifa eitthvað? „Nei, þótt mér fyndist gaman að skrifa sögur þegar ég var krakki þá drap skóla- kerfið þá löngun niður. Allar ritgerð- ir þurftu að fara eftir settum reglum, sem mér fannst ógeðslega þurrar og leiðinlegar. Ég fékk aldrei nógu gott fyrir ritgerðir, að mínu mati, þann- ig að ég beit það bara í mig að ég gæti ekki skrifað. Mér finnst alveg nóg að hafa sögurnar í hausnum. Er líka voða dugleg við að skoða fólk, oft ómeðvitað, og á það til að gleyma mér í margmenni við það að velta fólki fyrir mér og ímynda mér líf þess, sem sumum finnst eflaust mjög óþægilegt.“ Fann ástina á föstudaginn langa Þrátt fyrir hvatningu leikstjórans lá leiðin úr Verzlunarskólanum ekki beint í leiklistarnám. „Ég hafði verið að vinna með skólanum í Jack and Jones og Selected og eftir útskrift bauðst mér verslunarstjórastaða þar sem ég þáði. Eftir eitt ár þar fann ég að ég bara varð að láta reyna á leiklistina, skráði mig í ensku uppi í Háskóla til að undirbúa það að fara í leiklistarnám erlendis. Mig langaði bara ekkert að vera á Íslandi á þess- um tíma og var á fullu að skoða leik- listarskóla í Bretlandi og Bandaríkj- unum. Í Háskólanum fór ég að leika með Stúdentaleikhúsinu og kynnt- ist fullt af fólki með leiklistaráhuga sem stefndi á að sækja um í Listahá- skólanum. Ég ákvað að gefa því séns, fór í inntökupróf og komst inn, mér alveg að óvörum. Útskrifaðist 2010 og hef blessunarlega getað unnið við leiklistina síðan.“ Í Nemendaleikhúsinu urðu örlög- in á vegi Svandísar þegar Sigtrygg- ur Magnason leikskáld var fenginn til að skrifa verk fyrir hópinn. „Við kynntumst í Nemendaleikhúsinu um haustið en það gerðist ekkert á milli okkar þar. Um páskana fór ég síðan að heimsækja skólasystur mína vest- ur á Ísafjörð með bekknum mínum og þá var Sigtryggur staddur þar og við hittum hann. Svo bara gerð- ist eitthvað á föstudaginn langa, við stukkum bæði á ölduna sem skall yfir okkur og höfum verið saman síðan.“ Trúlofun Svandísar og Sigtryggs á síðasta ári komst í blöðin, enda til- þrifamikið atriði á alblóðugu leik- sviði í Berlín, eru þau búin að ákveða brúðkaupsdaginn? „Ekki daginn, en við stefnum að því að gifta okkur næsta sumar. Við erum ekki búin að skipuleggja það í smáatriðum, það eina sem er alveg öruggt er að það verður uppi í sveit.“ Heimsmeistari í hlýðni Á hestbaki kannski? Ertu ekki enn á kafi í hestamennskunni? „Jú, jú, en ég hætti að keppa þegar ég var í Nemendaleikhúsinu og hef ekki keppt síðan, nema reyndar einu sinni síðastliðinn vetur. Ég var búin að vera svo lengi í því, keppa á mörgum landsmótum og vera í unglingalands- liðinu, varð til dæmis heimsmeistari í hlýðni eitt árið. Það þótti bekkjar- systkinum mínum í Listaháskólanum óskaplega fyndið, enda er ég ekkert mjög hlýðin. Hef alltaf haft mikla þörf fyrir að stjórna, hef aðeins feng- ist við að leikstýra og langar að gera meira af því. Ef ég fer í mastersnám langar mig að taka leikstjórn, og þá helst kvikmyndaleikstjórn, en ég veit ekki ennþá hvenær af því verður.“ Þið eruð ekkert farin að skipu- leggja barneignir í framhaldi af brúðkaupinu? „Jú, jú, mér finnst ég bara aldrei vera tilbúin. Ég á hins vegar þrjú stjúpbörn með Sig- tryggi og þau eru hjá okkur aðra hverja viku svo ég hef alveg fengið að spreyta mig í móðurhlutverkinu síðustu fjögur ár. Auðvitað voru það viðbrigði að vera komin með þrjú börn á heimilið en þau eru alveg ynd- isleg og tóku mér strax mjög vel. Það hefur verið alveg ómetanlegt að fá að fara með þeim inn í unglingsárin og ég er ótrúlega þakklát fyrir að hafa þau í lífi mínu. Þau hafa kennt mér svo margt.“ Stærsta hlutverk Svandísar til þessa var þokkagyðjan Dí ana Klein í kvikmyndinni um Harry og Heimi: Morð eru til alls fyrst, langar hana ekkert til að koma sér á framfæri í kvikmyndaheiminum erlendis? „Jú, alveg eins. Ég er eiginlega fyrst núna komin með efni til að gera kynning- arræmu en ég er ekkert mikið fyrir það að plana of langt fram í tím- ann. Það eru einhverjar viðræður í gangi um möguleg hlutverk í bíóum og sjónvarpsþáttum, en ekkert nið- urneglt. Núna er ég á samningi við Þjóðleikhúsið, vinn með yndislegu fólki sem ég lít upp til og læri mikið af. Það er svo margt sem mig lang- ar að gera, en fyrst og fremst ætla ég að halda mínu striki. Mér finnst skipta mestu máli að reyna að vera góð manneskja, rækta sjálfan sig, fólkið sem maður elskar og finna sinn eigin takt.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is Feimna hestastelpan sem þorði ekki í leikprufur Fyrsti þáttur sjónvarpsseríunnar Hraunsins fór í loftið um síðustu helgi og margir áhorfendur veltu því fyrir sér hver hún væri þessi unga leikkona sem leikur Auði. Hún heitir Svandís Dóra Einarsdóttir og æfir nú af kappi fyrir frumsýningu Karitasar í Þjóðleikhúsinu um þarnæstu helgi, hestakona sem segist kunna best við sig í lopapeysu og gúmmístígvélum. Meðal hlutverka Svandísar Dóru í leikhúsi eru Jóa í Veghúsum í Heims- ljósi í Þjóðleikhúsinu, Lilja í Nú er himneska sumarið komið sem sýnt var í Árbæjarsafni, ýmis hlutverk í Hvörfum í uppsetningu Lab Loka og Þjóðleikhússins, Lovísa í TRANS í Útvarpsleikhúsinu, Sirrý í Nóttin var sú ágæt ein í uppsetningu Óskabarna ógæfunnar og Sylvía í verkinu Útundan í uppsetningu Háaloftsins. Hún var einnig aðstoðarleikstjóri Þórhildar Þorleifsdóttur í verkinu Dagleiðin langa í Þjóðleikhúsinu. Sjónvarp og kvikmyndir Svandís Dóra hefur leikið í sjónvarpsþáttunum Rétti, Pressu og Ástríði, kvikmyndunum Kurteisu fólki, Borgríki, Faust eftir Aleksander Sukorov, Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson og Díönu Klein í kvikmyndinni Harrý og Heimir– Morð eru til alls fyrst. Hún leikur einnig í spennuþáttaröð Reynis Lyngdal, Hrauninu, sem RÚV sýnir þessar vikurnar. HELSTU HLUTVERK SVANDÍSAR DÓRU Svo bara gerðist eitthvað á föstudaginn langa, við stukkum bæði á ölduna sem skall yfir okkur og höfum verið saman síðan. FRÉTTABLAÐ IÐ /STEFÁN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.