Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 32

Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 32
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 MASAI-STÚLKUR Mary í skólabúningnum fyrir framan ABC-skólann í Naíróbí á sínum þriðja skóladegi og Susan með móður sinni, sem ber skart og klæði að sið Masai-manna, fyrir utan heimili þeirra. MYND/GUNNISAL Staða unglingsstúlkna er víða skelfi-leg og mega fjölmargar búa við sláandi misrétti, nauðungarhjóna-bönd, mannréttindabrot og mis-munun. Næstu vikuna verða ung-lingsstúlkur í fátækustu löndum heims í brennidepli í vitundarvakningu frjálsra félagasamtaka í alþjóðastarfi og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands. Vit- undarvakningin kallast Sterkar stelpur – sterk samfélög. Því átakið felur jafnframt í sér hvatningu til allra stúlkna um að standa á rétti sínum og láta rödd sína heyrast, hátt og snjallt. Menntun veitir bjartari framtíð Susan Moyaso er ein slík stúlka sem til- heyrir Masai-ættbálknum við rætur fjalls- ins Kilimanjaro í Kenía. Ættbálkurinn er einn þekktasti þjóðflokkur Afríku vegna sérstakrar menningar, klæðaburðar og fastheldni við gamla lífshætti. Þar eru lim- lestingar á kynfærum stúlkna enn við lýði, stúlkum er þröngvað í hjónaband frá barns- aldri og afar fáar eiga kost á menntun. Susan var þó ein af þeim heppnu og fékk pláss á heimavist ABC-skólans áður en hún var gefin eldri karlmanni. „Skólavist frestar undirbúningi fyrir hjónaband og þar af leiðandi líka kynfæralimlestingum,“ segir Susan. „Því lengri skólaganga, því meiri líkur á að maður sleppi algjörlega við þessi örlög og möguleikarnir á framtíð sem maður fær að hafa áhrif sjálfur á, aukast verulega.“ Susan er hæglát og feimin. Hún lítur undan þegar hún brosir, heldur fyrir munn- inn og afsakar í sífellu ensku sína. En sögur af baráttu hennar fyrir kynsystur sínar og björgunarleiðöngrum sem hún hefur farið á heimili þeirra passa ekki við þessa hóg- værð. Henni er lýst sem miklum eldhuga. „Eftir að ég útskrifaðist úr skóla fann ég að mitt hlutverk í lífinu er að breyta hugs- unarhættinum sem ríkir í ættbálknum. Ég á í góðu samstarfi við ABC-skólana þannig að ég get boðið stúlkum sem standa frammi fyrir nauðungarhjónabandi eða limlestingu skólavist. Það er eina leiðin til að koma þeim burt úr aðstæðunum en það þýðir að ég þarf að kljást við foreldrana, sérstaklega feður þeirra, og fá þá til að samþykkja skóla- vistina. Stundum þarf ég bókstaflega að toga stelpurnar út af heimilinu.“ Erfitt að geta ekki hjálpað öllum Susan eflist þegar líður á samtalið og verð- ur ákveðin í tali og fasi þegar hún talar um björgunarferðir sínar. „Það eru ekki allir ánægðir með það sem ég er að gera. En ég er ekki hrædd, ekki lengur. Ég fæ heim- sóknir daglega frá stúlkum sem biðja mig um að hjálpa sér. Það er ótrúlega sársauka- fullt að geta ekki hjálpað öllum og ég þarf að vega og meta aðstæður hverrar og einnar og ákveða í samráði við ABC-skólana hverjar fá pláss í skólanum. Hinar snúa aftur heim í ömurlegar aðstæður. Við hreinlega verðum að fá fleiri pláss fyrir stúlkur í skólana.“ Hugarfarsbreyting hjá föður Susan segist þó finna fyrir stuðningi frá ótrúlegustu stöðum, þar á meðal fjölskyldu sinni, en það hefur ekki alltaf verið svoleiðis. Hún er dóttir fjórðu eiginkonu föður síns og á 37 systkini. Fjölskyldan er afar hefðbund- in og fylgir siðum Masai-fólksins. Þannig að fyrst þegar hún hóf baráttu sína snéru elstu bræður hennar við henni bakinu og hættu að tala við hana því þeim fannst hún van- virða siðina. Í dag hafa þeir mildast í afstöðu sinni og samskiptin eru betri en þeir eru ekki endilega sáttir við starf Susan og vilja sem minnst af því vita. „Afstaða föður míns, sem er háaldraður og á ekki langt eftir ólifað, hefur aftur á móti gjörbreyst. Hann hefur mýkst með aldrinum og sér betur hversu ósanngjarnt hlutskipti kvennanna í fjöl- skyldunni er. Ég finn að núna þegar dauðinn nálgast þá vill hann tryggja sem best framtíð okkar stelpnanna og eiginkvennanna. Það að faðir minn hafi áhyggjur af stöðu kvennanna gefur mér von um að hugarfarsbreyting sé ekki langt undan.“ BJARGAR STÚLKUM UNDAN RAKVÉLAR- BLAÐINU Susan Moyoso er tvítugur eldhugi í Kenía sem segir sitt hlutverk í lífinu vera að bjarga stúlkum frá nauðungar- hjónaböndum og kynfæralimlestingum. Hún reynir að koma stúlkum í nám til að þær fái að eiga lengri bernsku og möguleika á framtíð á eigin forsendum. Mary Yanoi er þrettán ára stúlka sem átti að giftast 58 ára gömlum manni. Í undirbúningi fyrir brúðkaupið var skipulögð athöfn þar sem átti að skera af kynfærum hennar með rakvélarblaði. Móðir Mary fékk aftur á móti miklar áhyggjur af dóttur sinni. Hún hefði orðið fjórða eiginkona mannsins og þar af leiðandi mjög neðarlega í virðingarstiganum. Daginn fyrir athöfnina ferðaðist móðirin því um langan veg til að biðja Susan og ABC- skólann um hjálp. Þegar hún kom heim aftur var hún lamin af eiginmanni sínum fyrir að vanvirða fjölskylduna. Susan fór strax daginn eftir ásamt starfs- mönnum ABC-skólans á heimili Mary. Þegar þau komu á staðinn var búið að undirbúa allt í kofanum fyrir skurðinn. En þau ruddust inn og báðu um að fá að tala við foreldrana. Faðirinn varð mjög reiður og ógnandi en Susan gaf ekkert eftir. Hún sagðist geta boðið dóttur hans ókeypis skólavist og uppihald og þannig veitt henni tækifæri á bjartari framtíð. Faðirinn var aftur á móti í klípu. Hann var búinn að lofa eldri manninum dóttur sinni og heiðurinn var í húfi. Þá hótaði Susan því að fara á lögreglustöðina og kæra hann fyrir lögbrot. Það er nefnilega ólöglegt að limlesta kynfæri stúlkna í Kenía, en lögreglan fylgir því ekki eftir og löggjöfin er því afar máttlaus. Hótunin virkaði þó á föður Mary og Susan tók Mary strax út af heimilinu, burt frá aðstæðum sem hún lét sig aðeins dreyma um að vera bjargað frá. Mary fékk pláss í ABC-skólanum í Naíróbí. Blaðamaður hitti Mary þar, aðeins fáeinum dögum eftir að henni var bjargað, en greini- lega naut hún sín í náminu. Þetta er falleg, ung stúlka og erfitt að ímynda sér að ef Susan hefði ekki gripið inn í væri hún nú gift kona í sveitinni og framtíð hennar fullkomlega fyrirsjáanleg– án þess að hún hefði nokkur áhrif þar á. Stúlku bjargað fáeinum tímum fyrir vígsluathöfn Það er ótrúlega sársauka- fullt að geta ekki hjálp- að öllum og ég þarf að vega og meta aðstæður hverrar og einnar og ákveða í samráði við ABC- skólana hverjar fá pláss í skólanum. Susan Moyaso. Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is 13 ÁRA STÚLKA Mary Yanoi var bjargað sama dag og átti að limlesta kynfæri hennar og gefa hana 58 ára gömlum manni. MYND/GUNNISAL M YN D /G U N N IS AL
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.