Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 82

Fréttablaðið - 04.10.2014, Page 82
4. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 46 fullri tign og riddaramennsku. Albúín Lang- barðakóngur vann sigur og felldi konung Gepída, sem hét Kúnímundur. Núnú, meðal þess herfangs sem kom í hlut Albúíns eftir stríðið var dóttir Kúní- múndar Gepídakonungs, sem Rósamunda hét, og gekk hann að eiga hana. Hún lét Albúín aldrei finna annað en hún væri sátt við þennan ráða- hag, en í raun og veru hataði hún af öllu hjarta eiginmann sinn, svo sem kannski er varla furða, þar sem hann hafði náttúrlega drep- ið föður hennar og tekið hana sjálfa nauðuga. Og ekki var nóg með að Albúín hefði drepið Kúnímund, heldur hafði hann kastað eign sinni á hauskúpu hins fallna andstæðings og hafði látið silfursmiði sína fylla upp í augn- tóftirnar á henni og önnur göt en saga ofan af henni, svo úr varð þessi líka prýðilegi drykkjarbikar, en að vísu heldur óskemmtilegur ásýndum – ekki síst fyrir Rósamundu drottningu. Morð skipulagt Gerðist nú um stund fátt sem máli skiptir fyrir þessa sögu en Albúín leiddi hins vegar lið sitt suður á Norður-Ítalíu og lagði undir sig stórt svæði sem síðan heitir Langbarða- land eða Lombardia á ítölsku. Árið 572 var Albúín kóngur svo sem oftar á fylleríi og þegar orðinn pöddufullur. Þá datt honum í hug að gaman gæti verið að halda áfram drykkjunni úr hauskúpubikarnum. Hann lét sækja bikar- inn og fylla með víni og síðan svolgraði hann í sig úr hauskúpu Gepídakonungs. Og næst fékk Albúín þá hugmynd að skemmtilegt gæti verið að Rósamunda fengi sér líka sopa úr hauskúpu pabba síns, hann lét því fylla bikarinn að nýju og rétti hann síðan yfir til Rósamundu. Rósamunda bar hann að vörum sér og þóttist drekka, en í huganum bölv- aði hún eiginmanni sínum og einsetti sér að sætta sig ekki lengur við grimmd hans, held- ur fyrirkoma honum sem fyrst. Rósamundu tókst nú að kúga eða tæla mann nokkurn til að taka að sér að drepa Albúín. Sá var reyndar enginn smákall við hirðina, heldur fóstbróðir Albúíns, Helmik- is að nafni. Nokkru seinna hafði Albúín enn verið á fylleríi og lá drykkjudauður í rekkju sinni. Rósamunda kallaði þá á Helmikis og tók slagbrandinn af hurðinni á svefnher- bergi kóngs, svo launmorðinginn kæmist inn. En rétt í því rumskaði Albúín og þó rykaður væri af drykkjunni áttaði hann sig á því að fóstbróðir hans hafði ekki gott í hyggju, svo hann rauk á fætur og fálmaði eftir sverði sínu, en Rósamunda hafði þá búið svo um hnútana að það sat fast í slíðrum sínum. Albúín greip þá stólkoll sem hann reyndi að sveifla í kringum sig en missti jafnvægið, datt og féll síðan fyrir spjóti Helmikis. Rósamunda tók sér nú Hel- mikis að ástmanni og reyndi að fá höfðingja Langbarða til að fall- ast á að hann yrði konung- ur þeirra og hún drottning eftir sem áður. En höfð- ingjarnir vildu það ekki, heldur lögðu fæð á jafnt Rósamundu sem Helmikis, og niðurstaðan varð sú að þau neyddust til að leggja á flótta. Ekki var það einungis morðið á Albúín sem varð skötuhjúunum til óhelgi í augum aðalsmannanna, heldur voru þau líka grunuð um að ganga erinda Býsans- manna í Miklagarði sem höfðu víðtæk áhrif á Ítalíu. Hjónaleysin komust til Ravenna, en þar ríkti valda- mikill borgar- eða héraðsstjóri sem Longinus hét. Longinus heillaðist af Rósamundu enda mun hún hafa verið íðilfagur kvenmaður, og Rósamunda áttaði sig á því að ef hún þyrfti ekki að dragnast með Helmik- is í eftirdragi gæti hún vafið Longinusi um fingur sér og eftir það væru henni allir vegir færir í Ravenna. Elska hennar til Helmikis virðist sem sé ekki hafa verið ýkja djúp, að minnsta kosti greip hún nú til þess hefð- bundna morðvopns sem sagan kennir eink- um við konur, það er að segja eiturs. Hel- mikis var náttúrlega ekki síður drykkfelldur en Albúín og eitt sinn er hann sat að sumbli lagði Rósamunda fyrir hann bikar fullan af víni sem hún hafði blandað í svo sterku eitri sem hún hafði getað útvegað. Og Helmikis teygaði drukk sinn svikalaust en síðan fór honum fljótlega að verða eitthvað bumbult í maga og áttaði sig á því hvernig í öllu lá – að hin fagra Rósamunda hafði gefið honum inn einhverja svívirðilega ólyfjan. Og enda þótt hann hefði þegar innbyrt nóg eitur til að verða honum að bana, þá var þó ekki allt fjör úr honum strax, og hann þreif upp rýting sinn og beindi að hálsi Rósamundu. Hann neyddi hana þannig til að drekka það sem eftir var af víninu í bikarnum og féll svo um koll steindauður en Rósamunda dó líka, og hafði því hlotið makleg málagjöld. Nema hvað sú saga er líka til að Helmikis hafði vitað hvað til stóð og því neytt Rósamundu til að drekka eitrið, en síðan viljað fylgja henni í dauðann og þá fyrst bergt á sjálfur. Sögurnar eru endalausar. Sögur, sögur, það eru svo margar sögur, mér mun ekki endast ævin til að segja allar þessar sögur. En þó hlýt ég að reyna, gefst aldrei upp frekar en Vladimir og Estragon, og sögurnar hlaðast upp í alveg óskipulegri röð; nú er ég allt í einu farinn að skoða gamlar heimildir um eiturmorð. Að drepa fjendur sína með eitri hefur gjarn- an verið vinsælt en þó hafa komið þeir tímar að aðferðin hefur ekki verið í tísku. Á mið- öldum þótti hraustum riddurum það helstil fyrirlitlegt að drepa fólk á eitri, það væri helst við hæfi vesælla kvenna sem ekki gætu sverði valdið. Hér er dæmi: Á ofanverðri 15. öld átti Ungverjakóngurinn Mátyas í stríði við Bæheimskónginn Jiri. Hann gerði út RÓSAMUNDA HIN FAGRA OG EITURMORÐIÐ En rétt í því rumsk- aði Albúín og þó rykaður væri af drykkjunni áttaði hann sig á því að fóstbróðir hans hafði ekki gott í hyggju. SVERÐIÐ SITUR FAST Í SLÍÐRUM Helmikis ræðst með spjóti að Albúin, Rósamunda kemur í veg fyrir að hann fái brúkað sverð sitt. FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson vildi svo gjarnan skrifa eingöngu um hina djúpu þungu strauma sem knýja elfu sögunnar áfram, en lendir þó einlægt í blóð- ugum þverám þar sem kóngar og drottningar og laun- morðingjar halda til. MÁTYAS JIRI launmorðingja til að bana Jiri með rýtingi en sá varð frá að hverfa, Jiris var svo vel gætt. Launmorðinginn stakk þá upp á að Mátyas prófaði að eitra fyrir Bæheimskóngi, það væri kannski vinnandi vegur, en sú uppá- stunga vakti þvílíka fyrirlitningu Mátyas- ar að hann sendi morðvarginn burtu með skömm. Og hann gekk lengra því hann skrif- aði Jiri og vakti athygli hans á því að einhver annar kynni að vilja eitra fyrir honum, og hvatti óvin sinn til að koma sér upp embætti hirð smakkara svo enginn freistaðist nú til að lauma ólyfjan í mat hans. Jiri þakkaði ábend- inguna og þeir kóngarnir reyndu svo áfram að fyrirkoma hvor öðrum með reglulega kurt- eislegum hætti, eins og sverðalögum eða rýt- ingsstungum. Ein þeirra sagna frá fyrri tíð sem áttu kannski sinn þátt í að vekja andúð miðalda- manna á hinum „kvenlegu“ eiturbyrlun- um, ég læt hana svo fylgja hér líka. Hún Rósamunda prinsessa Gepída var reynd- ar stórtækari en svo að hún léti sér eitrið nægja, en hún var líka uppi nokkru fyrir þær miðaldir sem kenndar eru við riddara- mennsku og hefur ef til vill ekki áttað sig á þeirri skiptingu í kurteislegar drápsaðferðir og dónalegar, sem Mátyas Ungverjakóngur hafði síðar í heiðri. En hún bjó þó á því sama svæði og þeir Mátyas og Jiri Bæheimskóng- ur börðust um eitthvað tæpum þúsund árum seinna. Rósamunda hataði eiginmann sinn Árið 567 eftir Krist var allt á hverfanda hveli í Evrópu; Rómaveldi var fallið í vestri og germanskir þjóðflokkar voru á faralds- fæti að leggja undir sig þau lönd þar sem legíónir Rómar höfðu áður haldið uppi lögum og reglu. Einn þessara germönsku þjóðflokka voru Langbarðar en þeir bjuggu þá þar sem nú heitir Slóvakía. Kóngur Lang- barða árið 567 hét Albúín og hann atti það ár kappi við annan ættflokk sem nefndist Gepídar og bjuggu á ungversku sléttunni þar sem Mátyas átti seinna að ríkja með
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.