Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.10.2014, Qupperneq 90

Fréttablaðið - 04.10.2014, Qupperneq 90
4. október 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 54TÍMAMÓT Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru GUÐNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR Suðureyri við Súgandafjörð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki bráðadeildar Fjórðungssjúkrahússins á Ísafirði fyrir góða umönnun og hlýju. Sigurvin Magnússon og aðrir aðstandendur. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA BJÖRNSDÓTTIR Lindargötu 57, Reykjavík, lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 17. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Marsibil Harðardóttir Elfar H. Þorvaldsson Guðmundur Harðarson Kristín Snorradóttir Erla Harðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Inger Steinsson Inger Rós Ólafsdóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA athofn@athof in. s - Akralandi 1 - 108 Reykjavík Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför HARALDAR ARNAR SIGURÐSSONAR klæðskerameistara. Haukur Már Haraldsson Erla Sigurbergsdóttir Þóra Haraldsdóttir Sigurður Haraldsson Haraldur Örn Haraldsson barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Móðursystir okkar, SÓLRÚN HANNIBALSDÓTTIR lést á Grund fimmtudaginn 25. september. Jarðarförin fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 7. október kl. 13.00. Fyrir hönd annarra systkinabarna, Elva, Bára, Lilja og Aðalheiður Steinsdætur, Guðrún Jónsdóttir Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og afi, STEFÁN STEINAR STEFÁNSSON lést á Landspítalanum 29. september sl. Útför hans fer fram frá Fossvogskapellu, föstudaginn 10. október kl. 13.00. Ingvar Stefánsson Guðrún Björk Bjarnadóttir Brynhildur Gígja og Hugrún Freyja „Þetta líf er bara eins og hraðlest,“ segir Guðrún Helgadóttir, um að í ár verða fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta bók hennar kom út, um tvíburabræð- urna Jón Odd og Jón Bjarna. „Ég skrif- aði að vísu bók þegar ég var þrettán ára og sýndi hana útgefanda en hún kom nú aldrei út,“ segir Guðrún. Í tilefni af þessum tímamótum verð- ur sýning haldin til heiðurs Guðrúnu í Borgarbókasafninu við Tryggva- götu. Sýningin verður opnuð með sér- stakri hátíðardagskrá á safninu klukk- an þrjú á sunnudaginn. Þar munu Ari Eldjárn, Katrín Jakobsdóttir og Silja Aðalsteinsdóttir meðal annarra halda tölu yfir gestum safnsins auk þess að tónlist sem samin var við Ástarsögu úr fjöllunum verður flutt. Sýningin verður uppi allan október á safninu. Þar verður að finna teikn- ingar úr bókum Guðrúnar og fleygar tilvitnanir í bækur hennar. Þá verður brúðan Páll Vilhjálmsson á staðnum auk þess sem hægt verður að lesa bréf sem Astrid Lindgren sendi Guðrúnu. Guðrún segir bræðurna smám saman hafa orðið til í kollinum á henni. „Þetta var saga sem ég fór að segja börnunum mínum. Aðeins örfáir höfundar skrifuðu af einhverri alvöru fyrir börn á þessum tíma og nægir þar að nefna Jennu Jensdóttur og Stefán Jónsson. En obbinn af þessum bókakosti sem maður sótti á bókasöfn- in handa börnunum var fremur óvand- aður,“ segir hún. Staðan á barnabókamarkaði hafi batnað til muna síðan þá. „Fólk sem sinnir bókum, eins og kennarar, útgef- endur og bókasafnsfræðingar, hafa sýnt barnabókum vaxandi athygli enda hefur miklu meira verið vandað til barnabóka á síðustu áratugum.“ Guðrún segir sölu fyrstu bókar- innar um Jón Odd og Jón Bjarna hafa farið hægt af stað. „Hún seldist auð- vitað afskaplega lítið fyrir þau jól en svo gerðist það að hún fór að roksel- jast eftir jól. Um vorið fékk ég síðan barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur sem var mér mikil hvatn- ing.“ „Svo fór boltinn að rúlla.“ segir Guðrún sem gefið hefur út 25 bækur á ferlinum og hafa þær verið þýddar verið þýddar á fjölmörg tungumál. Guðrún segist alla tíð hafa reynt að vanda sig við að skrifa bækur sem bæði börn og fullorðnir hafa gaman af. „Börn vita ekkert betra en að njóta ein- hvers með hinum fullorðnu,“ segir hún. Aðspurð hvað standi upp úr á síðustu fjörutíu árum segir Guðrún: „Ég er nú eiginlega sammála Silju Aðalsteins- dóttur sem hefur oft sagt að bestu bækurnar mínar séu þríleikurinn Sitji guðs englar, Saman í hring og Sæng- inni yfir minni. Ég get alveg tekið undir það að ég er ánægð með þær bækur, annars er erfitt að gera upp á milli barnanna sinna.“ - ih Jón Oddur og Jón Bjarni halda upp á fertugsafmæli Í ár verða fj örutíu ár síðan fyrsta bók Guðrúnar Helgadóttur, Jón Oddur og Jón Bjarni, kom út. Í tilefni af því verður haldin sýning á Borgarbókasafninu við Tryggvagötu Guðrúnu til heiðurs. VANDAÐRI Guðrún segir mun meira lagt í barnabækur nú en fyrir fjörutíu árum. Fyrsta Opna bandaríska meistarmótið í golfi var haldið á níu holu golfvelli við Newport Country Club á Rhode Island þann 4. október árið 1895. Ellefu kepp- endur tóku þátt í mótinu. Þeir spiluðu 36 holur yfir daginn og fór Horace Rawlins, tuttugu og eins árs gamall Englendingur, með sigur af hólmi. Rawlins fékk 150 dollara í verðlaunafé, sem í dag að teknu tilliti til verðbólgu er virði ríflega hálfrar milljónar króna. Fyrstu árin höfðu Bretar mikla yfir- burði á mótinu. Það var ekki fyrr en árið 1911 sem Bandaríkjamaður fór með sigur af hólmi í fyrsta sinn. Mótið hefur verið haldið árlega síðan að undanskildum stuttum hléum þegar fyrri og seinni heimsstyrjaldirnar stóðu sem hæst. Í dag er Opna banda- ríska meistarmótið, eitt af fjórum risamótum sem haldin eru ár hvert og verðlaunaféð mun meira en það var árið 1895. Martin Kaymer, sigurvegari mótsins í ár, fékk 1,6 milljónir dollara í verðlaunafé, tæplega 200 milljónir íslenskra króna. ÞETTA GERÐIST: 4. OKTÓBER 1895 Fyrsta Opna bandaríska meistaramótið JÓN ODDUR OG JÓN BJARNI Þeir brölluðu nú ýmislegt, þessir. MYND/ÚR KVIKMYND ÞRÁINN BERTELSSON
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.