Fréttablaðið - 04.10.2014, Blaðsíða 108
4. október 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 72
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Sú mýta að norrænt fólk sé þögult og leiðinlegt lifir góðu lífi víða á Spáni.
Óviljandi hef ég nú lagt mín lóð á vogar-
skálarnar til þess að blása nýju lífi í hana
hér í strandbænum Fuengirola, þangað
sem ég er nýfluttur.
ÞAÐ vildi þannig til að ég fór svo illa að
ráði mínu að fá mér rótsterkan kaffisopa
áður en ég fór í morgunskokkið nú um dag-
inn. Ég var rétt kominn af stað þegar mér
varð ljóst að kaffið tók svo hraustlega til
í kroppnum að farið var að þrýsta á að
kvöldverðinum frá deginum áður yrði
fleygt út um óæðri endann. Ég hafði þó
ekki trú á öðru en ég yrði ekki inntur um
þetta óþarflega mikið meðan á skokkinu
stæði.
VIRTIST það ætla að ganga eftir þar
til ég er kominn að strandbarnum
þar sem ég sný við til að skokka
heim. Þá var eins og dyraverðir í
þörmum yrðu slakir, farnir að hugsa
sem svo að nú værum við á heim-
leið og því óþarfi að vera að þrengja
óþarflega að kvöldverðinum. En
það voru þó nokkrir kílómetrar enn
í Gustavsberg. Þeir sem hafa reynt vita
að það er óþægilegt að skokka við þessar
aðstæður. Ég varð nú að sperra rasskinnar
af miklu afli. Skokkið varð því að göngu-
keppni og er ég nú meðvitaður um hvernig
sú ólympíska íþróttagrein varð til.
ÞETTA varð að þvílíkri píslargöngu að ég
var aðframkominn er mig bar að blokkinni
minni. Þegar ég er loks kominn í lyftuna
þurfti nágranni minn endilega að skella sér
inn með mér. Hjá honum voru það dyra-
verðirnir í efra opinu sem virkuðu ekki
því munnræpan stóð út úr honum og skipti
engu þó ég væri hrelldur í framan líkt og
sjóveikur krakki og síðan með höndina í
rassinum svo ekki yrði úr hin óþægilegasta
lífsreynsla fyrir okkur báða.
ÞEGAR ég er loks kominn á mína hæð
lýkur hann kjaftavaðli sínum með því að
segja: „Ég heiti Juan, Gaman að kynnast
þér.“ Svo réttir hann mér höndina.
JÁ, mýtan um ókurteisa, þögula og bein-
línis leiðinlega norræna fólkið lifir góðu lífi
hér í Fuengirola. Alla vega á stigaganginum
hjá mér.
Hið leiðinlega norræna fólk
Difret er eþíópísk mynd sem kom
út á árinu og hefur farið sigur-
för um kvikmyndahátíðir heims-
ins enda kjörið efni fyrir kvik-
myndahátíðir með áherslu á
samfélagsmál. Leikkonan Angel-
ina Jolie hefur líka vakið verð-
skuldaða athygli á myndinni fyrir
að vera einn framleiðenda hennar.
Orðið „difret“ á amharísku þýðir
bæði „hugrekki“ og „nauðgun“ en
myndin fjallar um hefð sem kallast
„telefa“ og hefur viðgengist í sveita-
héruðum Eþíópíu í gegnum aldirnar.
Samkvæmt hefðinni má karlmaður
ræna ungri stúlku, nauðga henni og
gera hana að eiginkonu sinni.
Myndin er byggð á sannri sögu
frá tíunda áratugnum. Hirut (Tizita
Hagere) er 14 ára bóndadóttir sem
sækir skóla og þráir fátt meira
en að mennta sig. Á leiðinni heim
úr skólanum er henni rænt sam-
kvæmt telefa-hefðinni og nauðgað
af tilvonandi „eiginmanni“ sínum.
Þegar tækifæri gefst stelur hún
riffli mannsins og flýr eftir að hafa
myrt manninn. Hún fær lögfræði-
aðstoð frá Meaza (Meron Getnet),
ungum lögfræðingi í höfuðborginni
Addis Ababa, sem þarft að berjast
með kjafti og klóm gegn hinu rót-
gróna feðraveldi. Þá er barátta
Meözu og Hiruts í raun tvíþætt þar
sem þær takast á bæði við hið opin-
bera lagakerfi í landinu og síðan
hið hefðbundna öldungaráð í þorpi
Hirut, en Hirut á yfir höfði sér ann-
aðhvort lífstíðardóm eða dauðarefs-
ingu fyrir að hafa varið sig á þenn-
an hátt.
Difret er merkileg mynd sem
vekur athygli á klikkuninni á bak
við suma rótgróna siði og þá stað-
reynd að reynsla Hirut er ekki
einsdæmi í heiminum, þótt reynsla
hennar hafi kannski breytt viðhorfi
Eþíópíumanna til telefa og jafnvel
breytt lagastöðu hefðarinnar í land-
inu líka. - þij
Barist við hefðirnar
★★★ ★ ★
Difret
LEIKSTJÓRI:
Zeresenay Mehari
IMDB 7,1
VARÐI SIG
Hirut myrti
manninn
sem rændi
henni.
MYND/SKJÁSKOT
DRACULA KL. 5.45 - 8 - 10.15
DRACULA LÚXUS KL. 10.45
THE EQUALIZER KL. 5 - 8 - 10.45
THE EQUALIZER LÚXUS KL. 2 - 5 - 8
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8 - 10.30
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8 - 10.15
PÓSTURINN PÁLL ÍSL. TAL2D KL. 1 - 3
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL2D KL. 1 - 3.15
SMÁHEIMAR 2D KL. 1 - 3
SMÁHEIMAR 3D KL. 1 - 3*
GONE GIRL FORSÝNING KL. 10.15*
THE EQUALIZER KL. 6 - 10.15**
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8
VONARSTRÆTI KL. 3 - 9
SMÁHEIMAR KL. 3.30
*AÐEINS LAUGARDAG
**AÐEINS SUNNUDAG
“TÖFF, BRENGLUÐ OG ÖGRANDI”
- EMPIRE
“HALDIÐ YKKUR FAST!”
- TIME OUT
DRACULA UNTOLD 6, 8, 10:20 6, 8, 10
GONE GIRL 10:20
SMÁHEIMAR 1:45, 3:50 1:45, 3:50
THE EQUALIZER 8, 10:40 8
WALK AMONG TOMBSTONES 5:45, 8, 10 5:45, 8, 10:40
MAZE RUNNER 2, 5 2, 5
PÓSTURINN PÁLL 2D 1:50, 3:50 1:50, 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Laugardagur Sunnudagur
FORSÝNING
SUNNUDAG
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
Miðasala og nánari upplýsingar
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
ÁLFABAKKA
EGILSHÖLL
LEIKSTJÓRI TALSETNINGAR RÓSA GUÐNÝ
FRÁBÆR NÝ ÍSLENSK GAMANMYND
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
HJÖRDÍS STEFÁNSDÓTTIR, MORGUNBLAÐIÐ EIRÍKUR JÓNSSON
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
THE CONJURING
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA
THE FRIGHT FILE
Allir borga barnaverð