Fréttablaðið - 04.10.2014, Qupperneq 110
4. október 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 74SPORT
MMA „Ég veit ekki alveg hvar ég er
en ég verð góður á morgun,“ sagði
John Kavanagh, þjálfari Gunnars
Nelson, en hann stendur í ströngu
þessa dagana.
Um síðustu helgi var hann með
Conor McGregor í Las Vegas og
hann kom beint þaðan til Stokk-
hólms til þess að fylgja Gunnari
alla leið gegn Rick Story. Kav-
anagh lenti þrjú um nóttina í
Stokkhólmi og þurfti svo að vakna
klukkan sex um morguninn. Nóg
að gera.
Story hentar Gunnari
„Ég er gríðarlega spenntur enda er
þetta í fyrsta skipti sem Gunni er
í aðalbardaga. Story hentar Gunn-
ari vel og ég er viss um að hann
mun sýna að hann eigi skilið að
berjast um titilinn,“ segir Kav-
anagh en hann er orðinn einn heit-
asti þjálfarinn í bransanum og fjöl-
miðlamenn kepptust um að ná af
honum tali.
Þó svo Kavanagh hafi misst af
hluta undirbúnings bardaga Gunn-
ars og Story þá segir þjálfarinn
það ekki koma að sök.
„Gunni var með okkur á Írlandi
og tók vel á því með Conor. Við
erum að æfa allt árið en ekki bara
að taka á því þegar bardagi nálg-
ast. Það eru sjö ár síðan við byrj-
uðum að vinna saman. Það hefur
verið æft fyrir þennan stóra bar-
daga í sjö ár. Undirbúningurinn
var frábær og Gunni lítur hrika-
lega vel út,“ segir Kavanagh en
hann birti einmitt sjö ára gamla
mynd af sér og Gunnari á Twitter
á dögunum. „Hann lítur út fyrir
að vera tólf ára á myndinni,“ segir
hann og hlær við.
Kannski aðeins ljótari
Story hefur tapað fimm af síðustu
níu bardögum sínum en allir vita
þó hvað hann getur. Hversu góður
er hann í dag að mati Kavanaghs?
„Þetta er reyndur og harður
strákur. Mér finnst hann hafa
staðið í stað. Hann hefur ekki
þróað sinn stíl eins og Gunnar
hefur gert til að mynda. Það er
mikill munur á Gunnari í dag og
þegar hann keppti í UFC. Margir
af þessum strákum taka ekki mikl-
um framförum á fimm árum. Þeir
eru kannski aðeins ljótari eftir
alla bardagana,“ sagði Kavanagh
og glotti.
Gunnar sagði í viðtali í Frétta-
blaðinu á dögunum að ný kynslóð
væri að koma upp í UFC. Hann
væri hluti af þeirri kynslóð rétt
eins og Conor McGregor. Story
væri það ekki.
„Það er hárrétt hjá Gunnari.
UFC er sífellt að þróast og nýir
stílar að taka yfir. Það virðist
verða mikil framför í íþróttinni á
tveggja ára fresti. Story er til að
mynda ekki jafn tæknilega sterk-
ur og Gunni og þess vegna held ég
að hann muni tapa bardaganum,“
sagði John Kavanagh að lokum.
Mikið undir
Bardagakvöldið hefst klukkan
19.00 og verður í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 Sport. Gunnar er
ósigraður í fjórtán bardögum í
MMA, þar af fjórum í UFC.
Á skilið að keppa um titilinn
Þjálfari Gunnars Nelson, John Kavanagh, er gríðarlega ánægður með lærling sinn og spáir því að Gunnar
muni rota Rick Story í kvöld. Kavanagh segir Gunnar geta gert tilkall til titilbardaga í náinni framtíð.
HRESSIR John Kavanagh og Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars, slá á létta strengi í Speglasalnum á Grand Hotel í
Stokkhólmi þar sem fjölmiðladagurinn og opna æfingin fóru fram á fimmtudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN SIGURÐSSON
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
Frá Stokkhólmi
ÚRSLITALEIKUR FH OG STJÖRNUNNAR fer fram klukkan
16.00 í dag en í gær var tilkynnt að uppselt væri á
leikinn. Alls verða 6.450 áhorfendur á leiknum og
ljóst að aðsóknarmet verður bætt á deildarleik í
knattspyrnu hér á landi. Stjórn knattspyrnudeildar
FH hefur hvatt áhorfendur til að koma sér tímanlega
á völlinn eða að nota almenningssamgöngur, þar
sem ljóst er að bílastæði verða af skornum skammti
í grennd við völlinn. Umfjöllun Stöðvar 2 Sports hefst
með upphitunarþætti klukkan 13.00 en hálftíma síðar
hefst útsending frá leik Fram og Fylkis en inn í hana
verður skotið inn mörkum úr öðrum leikjum. Tvöfaldur
skammtur af Pepsi-mörkunum fer svo í loftið klukkan
21.15 þar sem bæði lokaumferðin og mótið allt verða
gerð upp.
0DAGAR Í ÚRSLITALEIK OG
MMA „Gunnar hefur verið að berjast
lengi og við höldum að Gunnar eigi
eftir að verða heimsmeistari einn
daginn,“ segir Garry Cook, yfirmaður
UFC í Evrópu, Asíu og Afríku, í sam-
tali við Fréttablaðið.
Margir muna kannski eftir honum
úr enska boltanum þar sem hann var
áður stjórnarformaður Manchester
City sem leikur í úrvalsdeildinni.
„Gunnar er sérstakur einstaklingur
og berst eins og hann lifir lífinu.
Hann byrjar rólega og maður veit
aldrei hvað gerist síðan. Tæknilega
er hann einn besti bardagamaður
heims,“ segir Garry Cook sem heldur
mikið upp á okkar mann, Gunnar.
„Ég vildi að Gunnar myndi klífa
styrkleikalistann hraðar en hann er
á réttri leið. Hann er frábær strákur
sem leggur mikið á sig.“
UFC hefur áhuga á því að koma til
Íslands og halda hér alvöru bardaga-
kvöld ef íþróttin verður leyfð hér á
landi. „Við viljum að bestu mennirnir
fái að keppa í sínu landi. Bestu kapp-
arnir hrífa þjóðirnar með sér og vilja
keppa heima hjá sér. Það væri auð-
vitað frábært ef Gunnar gæti keppt
um titil í Reykjavík. Við skoðum þetta
að sjálfsögðu ef íþróttin verður leyfð
á Íslandi.“ - hbg
Gunnar verður heimsmeistari
YFIRMAÐUR Garry Cook ræður öllu í
UFC í Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN SIGURÐSSON
FÓTBOLTI Það kom fátt á óvart ef
nokkuð þegar Lars Lagerbäck
og Heimir Hallgrímsson, lands-
liðsþjálfarar karla í fótbolta, til-
kynntu hópinn sem mætir Lett-
um og Hollendingum í næstu
verkefnum liðsins í undankeppni
EM 2016. Alfreð Finnbogason,
framherji Real Sociedad, kemur
inn eftir að hafa glímt við meiðsli
síðast, á kostnað Hauks Heiðars
Haukssonar, bakvarðar KR.
„Það var frekar auðvelt að velja
hópinn að þessu sinni. Fyrir utan
Birki Má eru allir að spila mikið
og standa sig vel. Svo eru nokkrir
strákar þarna til vara sem við
höfum verið að fylgjast með,“
sagði Lars Lagerbäck við Frétta-
blaðið í Laugardalnum í gær.
Jón Daði Böðvarsson verður
með A-landsliðinu en ekki U21
árs liðinu sem mætir Dönum í
mikilvægum umspilsleikjum um
sæti á EM 2015. Það var aldrei
neitt annað sem kom til greina
hjá Svíanum en að Jón Daði yrði
með A-liðinu eftir frammistöðu
hans gegn Tyrkjum.
„Við áttum gott spjall um
þetta [við Eyjólf Sverrisson], en
við reynum alltaf að tala mikið
saman. Á meðan við teljum að
leikmaður eigi möguleika á að
byrja fyrir A-landsliðið þá geng-
ur það fyrir jafnvel þó U21 árs
liðið eigi fyrir höndum erfiða
leiki og mikilvæga fyrir íslensk-
an fótbolta,“ sagði Lars. - tom
Ekkert mál að
velja hópinn
ÁKVEÐINN Lars Lagerbäck vildi ekki
taka nýliða inn núna. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI