Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 2
18. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
SUNNUDAGUR Neyðarlán rétt ákvörðun Geir H.
Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fullyrðir að það
hafi verið rétt ákvörðun að veita Kaupþingi neyðarlán.
Útilokað er að birta viðtal hans og Davíðs Oddssonar,
þáverandi bankastjóra.
MÁNUDAGUR Matarkostnaður vanmetinn Bryndís
Loftsdóttir, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, setur
fram efasemdir um forsendur fjárlagafrumvarpsins.
ÞRIÐJUDAGUR Ísland taplaust í toppsæti Íslenska
landsliðið vinnur sannfærandi sigur á stórliði Hollands
á Laugardalsvelli.
Sigur Íslands
á Hollendingum
Íslenska karlalandsliðið í
knattspyrnu vann sögulegan
sigur á Hollandi, 2-0, í þriðja leik
liðsins í undankeppni EM 2016 á mánudag.
Gylfi Sigurðsson skoraði bæði mörk liðsins
og annað þeirra úr vítaspyrnu á
tíundu mínútu leiksins.
„Ég æfi þetta á hverjum
degi þannig að þegar þetta
gerist er maður pollrólegur,“
sagði Gylfi Þór un vítaspyrnuna og hrósaði um leið
varnarleik Íslands.
MIÐVIKUDAGUR Biðja fyrir fóstrum Hópur
kaþólikka kemur saman fyrir framan kvennadeild
Landspítalans og biður fyrir fóstrum sem er eytt og
viðhorfsbreytingu til fóstureyðinga.
FIMMTUDAGUR Skelfileg umgengni Svo illa er
gengið um skála Ferðafélags Íslands að félagið íhugar
að loka þeim að óbreyttu.
FÖSTUDAGUR Ekkert veð fyrir 85 milljarða láni
Hreiðar Már Sigurðsson fullyrðir að engin málskjöl
hafi verið undirrituð þegar Kaupþing fékk frægt lán frá
Seðlabanka Íslands 6. október 2008.
LAUGARDAGUR Íslenska kvennalandsliðið í fim-
leikum keppir til úrslita í „Fimleikahöllinni“ í dag.
„Það er miklu meira stress
sem fylgir því að horfa á í
SKIPULAGSMÁL „Að okkar mati eru engin
haldbær rök fyrir því að neita þessum
framkvæmdum,“ segir Kristján Berg í
Fiskikónginum, sem borgin hefur í annað
sinn neitað um leyfi fyrir þaki yfir port
við verslunina á Sogavegi 3.
Ofangreind tilvitnun er úr greinar-
gerð Kristjáns til borgarinnar. Þar rekur
hann að miklar breytingar hafi orðið við
Sogaveg 3 frá því húsið var byggt árið
1983; húsið hafi verið stækkað til austurs
og vesturs, undir nýbyggingu sé kjallari
og stórt port fyrir vörumóttöku sé nú við
húsið.
Það er einmitt yfir þetta port sem
Kristján vill byggja. Ósk hans þar að
lútandi var fyrst synjað af borgaryfir-
völdum fyrir þremur mánuðum, meðal
annars með vísan til nágranna sem höfðu
áhyggjur af auknum umsvifum á staðn-
um.
„Að sjálfsögðu er mikið rask þegar
verið er að byggja hús og þá sérstak-
lega þegar versluninni hefur ekki verið
lokað í eina einustu mínútu á meðan á
öllu þessu stóð,“ rekur Kristján í nýju
umsókninni og undirstrikar þar eftir-
farandi: „Á meðan allt þjóðfélagið var á
„hold“ þá var verið að stækka, byggja,
breyta og bæta húsnæðið frá a til ö.“
Við þetta bætir Kristján
að peningar vaxi ekki á
trjánum. Allur kraftur og
peningar eigandans hafi
farið í að láta húsnæðið
standast kröfur. „Skiljum
við gremju einhvers ef það
hefur verið sjónrænt drasl á
lóð Sogavegar 3 út af bygging-
arframkvæmdum,“ segir Kristján
í greinargerðinni og tekur fram að
allt sé nú komið í 100 prósent lag.
Þá ítrekar Kristján að ekki
standi til að auka umfang verslun-
arinnar. „Fyrst og fremst er þessi
umsókn um bygginguna yfir port-
ið til þess fallin að gera þetta að
fallegu húsi sem getur sómt sér
vel fyrir borgarbúa og íbúa
hverfisins ásamt eiganda
fyrirtækisins,“ segir
Kristján sem kveður
fiskverslunina eiga að
vera til fyrirmyndar.
Þá minnir Kristján
á að fyrir um þremur
áratugum hafi Soga-
vegur fengið verðlaun
fyrir fallegustu fyrirtækja-
lóðina. Stefnan nú sé að fá slík
verðlaun á næstu tveimur til
þremur árum.
Embætti skipulagsfulltrúa segist lýsa
ánægju með bættan frágang lóðar Fiski-
kóngsins og umgengni um hana en synjar
ósk Kristjáns.
„Ekki er fallist á að framkomin séu rök
fyrir breyttri afstöðu til umsóknarinnar
enda hafa, eins og fram kemur í greinar-
gerðinni, verið veitt nokkur leyfi fyrir
þróun hússins á lóðinni undanfarin ár,“
segir skipulagsfulltrúinn.
gar@frettabladid.is
Stefnir á verðlaunin
fyrir fegurstu lóðina
Þótt skipulagsfulltrúi segi umgengni hafa batnað mikið á lóð Fiskikóngsins á Sogavegi er aftur
synjað um leyfi fyrir þaki yfir port. Eigandi Fiskikóngsins segir rökin ekki haldbær. Hann stefni
að því að fá verðlaun fyrir fallegustu fyrirtækjalóðina.
FISKIKÓNGURINN Svona var umhorfs við Fiskikónginn í sumar en nú hefur draslið verið fjarlægt
og eigandinn stefnir að því að lóðin verði valin fegursta fyrirtækjalóð borgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
KRISTJÁN BERG
VIÐSKIPTI Það var skilanefnd
Kaupþings sem staðfesti lána-
samning vegna 500 milljón evra
neyðarláns sem bankinn fékk
frá Seðlabankanum daginn sem
neyðarlögin voru sett. Þetta gerði
nefndin eftir fall bankans. Kröfu-
hafar Kaupþings hafa aldrei gert
athugasemdir. Í Fréttablaðinu í
gær kom fram að gengið var frá
láninu eftir símtal sem Davíð
Oddsson seðlabankastjóri og
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings, áttu snemma
þann dag.
Í grein sem Hreiðar skrifaði um
málið fullyrti hann að Seðlabank-
inn hefði ekki gengið frá lána-
samningum og veðsetningu FIH-
bankans fyrr en nokkrum dögum
eftir að lánið var veitt. Seðlabank-
inn vísaði þessu á bug í yfirlýs-
ingu í gær.
Í henni kemur fram að starfs-
menn Seðlabankans hafi strax
fullvissað sig um að veðið fyrir
láninu stæði til reiðu. Lögmaður
Kaupþings hafi gert hluthafaskrá
í Danmörku viðvart um að Seðla-
bankinn væri að taka veð í öllum
hlutum FIH-bankans.
„Veðgerningurinn var full-
kláraður fyrir lok viðskiptadags
og réttarvernd veðsins hafði þá
verið að fullu tryggð. Stjórnend-
ur Kaupþings undirrituðu gern-
inginn fyrir lok viðskiptadags 6.
október. Þannig að fullyrðingar
um að ekki hafi verið gengið frá
veðsetningu fyrr en einhverjum
dögum síðar eru rangar,“ segir í
yfirlýsingu Seðlabanka Íslands.
Í skýrslu fjárlaganefndar um
málið frá því í fyrra segir að lána-
reglur Seðlabankans hafi verið
verið brotnar þegar neyðar lánið
var veitt. Í skýrslunni kemur fram
að veðgerningurinn hafi verið
kláraður sama dag og lánið var
veitt en lánasamningurinn sjálfur
hafi ekki verið undirritaður fyrr
en seinna. En þótt veðið hafi verið
undirritað í tæka tíð tryggði það
ekki fullar endur heimtur. Ljóst er
að tap ríkissjóðs af láninu er um
35 milljarðar króna.
- aó
Seðlabankinn segir ekki rétt að engin veð hafi verið fyrir neyðarláni:
Skilanefndin staðfesti lánið
DAVÍÐ ODDSSON HREIÐAR MÁR
SIGURÐSSON
staðinn fyrir að vera inni á
gólfinu. Maður er nefni-
lega svo ósjálfbjarga að
horfa á.“ SÍÐA 70
Íris Mist Magnúsdóttir fi mleikadrottning,
sem fylgist með stelpunum úr stúkunni
þar sem hún ákvað að hætta á síðasta ári.
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM MATARSKATTUR OG MJÓLKURSAMSALAGLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 12.10.➜18.10.2014
BRYNDÍS LOFTSDÓTTIR , húsmóðir
og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins,
hrinti af stað mikilli umræðu um hækkun
á matarskatti. Hún segist verja tveimur
milljónum í mat á ári, um það bil helm-
ingi meira en gert er ráð fyrir í virðis-
aukaskattsfrumvarpinu.
RAGNHEIÐUR ELÍN
ÁRNADÓTTIR , ráðherra
neytendamála, telur eðlilegt
að samkeppnislög taki til allra
atvinnugreina, þar með talið
Mjólkursamsölunnar. Hún
telur að einokunarstaða, án
tilefnis, leiði til tjóns og sóunar.
SALÓME GUNNARSDÓTTIR
hefur verið önnum kafin frá
því hún útskrifaðist sem leik-
kona fyrir rúmu ári. Hún seg-
ist fá útrás fyrir ævintýraþrá
og spennu í gegnum listina.
GUÐMUNDUR LÖVE, fram-
kvæmdastjóri SÍBS, segir að af
þeim tæplega 70 milljörðum
sem varið er til heilbrigðis-
kerfisins á Íslandi sé aðeins
einu prósenti varið til beinna
forvarna, sem sé miklu minna
en hjá öðrum þjóðum.
➜ Bjarni Bendikts-
son fj ármálaráðherra
hefur staðið í ströngu
við að útskýra hvernig
ráðuneyti hans hafi
fengið það út að
fj ögurra manna
fj ölskylda eyði
tæpum þremur
þúsund krónum í
mat á dag.
Skiljum við gremju einhvers
ef það hefur verið sjónrænt drasl
á lóð Sogavegar 3.
Kristján Berg