Fréttablaðið - 18.10.2014, Page 4
18. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 4
1 milljarð
tæpan greiddi
Hvalur í arð til
eigenda félagsins
í fyrra. Eigendur
voru 110 í sept-
emberlok 2013.
9 þúsund
hafa smitast af ebóluveirunni. Yfir 4.500 þeirra
eru látnir, upplýsir Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin.
745 krónur
er upphæðin sem gert er
ráð fyrir að það kosti að
fæða hvern einstakling á
dag í frumvarpi fjármála-
ráðherra um breytingar á
virðisaukaskatti.
11.10.2014 ➜ 17.10.2014
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
9.800
er áætlað að ferðir Icelandair
verði á næsta ári. Fyrir fimm
árum voru þær 4.900.
1 prósenti
er varið til beinna forvarna utan heilsugæslunnar
af þeim tæplega 70 milljörðum sem varið er
til heilbrigðiskerfisins á Íslandi á ári. 70 til 80
prósent kostnaðar í kerfinu eru vegna lífsstíls-
tengdra sjúkdóma.
10,1
MILLJARÐI
nam kortavelta útlendinga
hér á landi í september
síðastliðnum.
280 farþega
og 5 einkabíla tekur nýja
Breiðafjarðarferjan Baldur.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VÍÐA HVASST Í DAG Norðaustan og austan 10-18 m/s á dag og rigning en þurrt
að mestu vestanlands. Lægir um tíma á morgun en víða einhver úrkoma og gengur í
fremur stífa suðvestlæga átt síðdegis.
6°
8
m/s
6°
7
m/s
8°
6
m/s
10°
15
m/s
Hæg A-átt
en SV
síðdegis.
Gengur í
norðátt
seint.
Gildistími korta er um hádegi
20°
28°
10°
23°
19°
9°
21°
15°
15°
27°
20°
28°
28°
29°
23°
17°
14°
19°
10°
11
m/s
9°
17
m/s
7°
8
m/s
7°
12
m/s
5°
5
m/s
4°
6
m/s
2°
10
m/s
7°
7°
3°
5°
8°
7°
6°
5°
4°
4°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN
MENNTAMÁL Það er byggðamál að
styðja við og styrkja starfsemi fjöl-
brauta- og menntaskóla úti á landi,
segja stjórnmálamenn og undir
það tekur skólafólk úti á landi. Með
því móti fái fleiri háskólamenntað-
ir störf á landsbyggðinni.
Fólk sem hefur hætt í skóla á
unglingsaldri hefur komist í nám í
sinni heimabyggð hafi það á annað
borð hug á að afla sér menntunar.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu,
verði það að lögum, á að neita fólki
sem orðið er 25 ára um skólavist
í framhaldsskólum og það kemur
illa við marga litla skóla á lands-
byggðinni, svo sem Menntaskólann
á Egilsstöðum, Menntaskólann á
Tröllaskaga og Fjölbrautaskóla
Snæfellsness.
„Ég var að vona að við gætum
haldið áfram að byggja áfram
upp og leyft skólanum að stækka
og þróast. Fólk hefur viljað flytja
hingað til að stunda nám því skól-
inn hefur þótt góður. Nú er hins
vegar verið að skjóta okkur niður,“
segir Lára Stefánsdóttir, skóla-
meistari Menntaskólans á Trölla-
skaga, sem hefur höfuðstöðvar í
Ólafsfirði.
Hún segir að verði fjárlaga-
frumvarpið samþykkt í þeirri
mynd sem það liggi fyrir og 25 ára
og eldri fái ekki aðgang að fram-
haldsskólunum verði hún að vísa
40 til 60 nemendum úr skólanum.
Þetta sé allt fullorðið fólk sem sé
að reyna að verða sér úti um stúd-
entspróf.
„Ég veit hins vegar ekki hvort
mér er heimilt samkvæmt lögum
að vísa þessu fólki frá. Það er búið
að bjóða það velkomið í skólann og
svo stendur skólinn ekki við sitt,
það þarf að athuga vel stöðu þessa
hóps,“ segir Lára.
Önnur áhrif segir hún þau að
það muni draga úr námsframboði
fyrir yngri nemendur, auk þess að
um leið og kennsla minnki verði að
fækka kennurum við skólann.
Illugi Gunnarsson menntamála-
ráðherra hefur sagt að það séu
aðrar menntunarleiðir fyrir 25 ára
og eldri en fara í framhaldsskóla.
Vissulega er það rétt. Þar má til
að mynda nefna Mími, eina af ell-
efu símenntunarstöðvum landsins.
Þar er hægt að ljúka nógu mörgum
einingum á framhaldsskólastigi til
þess að eiga möguleika á að komast
í frumgreinadeild í Keili, Háskól-
anum í Reykjavík og Háskólanum
á Bifröst og þaðan í háskólanám.
Hulda Ólafsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mímis símenntunar, segir
að Mímir hafi mikla reynslu í að
mennta fullorðið fólk og segir ekk-
ert því til fyrirstöðu að taka við
fleiri nemendum fáist til þess fjár-
magn.
„Við getum fjölgað nemendum en
til þess þurfum við fjármagn frá
hinu opinbera. Við höfum reynslu
og þekkingu og erum viðurkennd
fræðslustofnun. Faglega getum við
gert þetta en við bætum ekki við
okkur nemendum nema til komi
aukið fjármagn,“ segir Hulda.
Fólk sem fer í frumgreinadeildir
getur lokið eins árs námi sem und-
irbýr það fyrir háskólanám.
Við háskólabrúna á Keili eru
nú um 200 manns við nám, bæði á
Ásbrú á Suðurnesjum og á Akur-
eyri.
„Auðvitað þarf fjármagn með
hverjum nemenda, fáist það er ekk-
ert því til fyrirstöðu að við getum
tekið við mun fleiri nemendum
en stunda nú nám hjá okkur. Við
myndum gera viðeigandi ráðstaf-
anir til þess að taka á móti fleirum
ef á þyrfti að halda,“ segir Soffía
Waag, forstöðumaður Háskólabrú-
ar Keilis. johanna@frettabladid.is
Verið að skjóta okkur niður
Meistari Menntaskólans á Tröllaskaga segir að verið sé að skjóta skólann niður verði fjárlagafrumvarpið samþykkt.
Forstöðumenn hjá Keili og Mími segja ekkert því til fyrirstöðu að fjölga nemendum komi peningar á móti.
LÁRA
STEFÁNSDÓTTIR
HULDA
ÓLAFSDÓTTIR
AÐRAR LEIÐIR Verði fjárlagafrumvarpið samþykkt fá þeir sem orðnir eru 25 ára og eldri ekki inngöngu í framhaldsskóla. Þeir
verða því að fara aðrar leiðir ætli þeir í háskólanám. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Innritunargjöld í framhalds-
skóla eru um 13 þúsund krónur
á önn. Námskeið hjá Mími eru
mjög misdýr en Menntastoð,
sem undirbýr fólk undir nám í
frumgreinadeildum, er dýrust
og kostar 81 þúsund krónur. Ef
fólk er á vinnumarkaði greiða
stéttarfélög oft helming eða
meira af þeim kostnaði. Hvert
námskeið á Háskólbrúnni hjá
Keili kostar 37.500, flestir taka
sex á önn. Önnin kostar því 225
þúsund krónur. Árið kostar því
450 þúsund krónur.
➜ Misdýrt nám
MENNTAMÁL Tæplega 900 nemend-
ur sem skráðir voru í nám í fram-
haldsskólum í upphafi vorannar
2014 hættu námi án þess að ljúka
prófum í lok annarinnar. Þetta
kemur fram í skýrslu menntamála-
ráðuneytisins um brotthvarf úr
framhaldsskólum vorið 2014.
Tæplega þrjátíu prósentum þess-
ara nemenda var vísað úr skóla
vegna brota á skólareglum, sem
er algengasta ástæða brotthvarfs.
Gert er ráð fyrir að um sé að ræða
nemendur sem ekki stóðust viðmið
um reglur er varða mætingar.
Kristrún Birgisdóttir, sérfræð-
ingur hjá ráðuneytinu, segir reglur
skólanna þó ekki vera of strangar.
Hún segir vandamálið liggja frekar
í því að nemendur taki skólann og
nám sitt ekki nægilega alvarlega.
- esp
Fjöldi nema hættir í námi:
Taka námið
ekki alvarlega
SAMKEPPNISMÁL Sam keppnis eft ir-
litið hef ur beint erindi til ríkissak-
sóknara þar sem farið er fram á
opinbera rannsókn á því hvaðan og
hvernig trúnaðarupplýsingum um
efni kæru Samkeppniseftirlitsins til
embættis sérstaks saksóknara hafi
komist til óháðra aðila. Er þar átt
við umfjöllun Kastljóss um meint
samráð Eimskips og Samskipa.
Þetta kem ur fram í til kynn ingu frá
Sam keppnis eft ir lit inu. „Um er að
ræða kæru um ætluð brot til tek-
inna starfs manna tveggja fyr ir-
tækja á sam keppn is lög um. Er þetta
gert í til efni af um fjöll un Kast ljóss
um málið nú í vik unni.“ - vh
Meintur leki trúnaðargagna:
Fara fram á
rannsókn
SAMSKIP Explorer, flutningaskip sem
var afhent Samskipum haustið 2006