Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 6
18. október 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
BRETLAND Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunin WHO viðurkennir að
hafa klúðrað fyrstu viðbrögðum
vegna ebólufaraldursins í vestan-
verðri Afríku. Heilbrigðisstarfs-
fólk þar hafi engan veginn ráðið
við verkefnið og upplýsingar hafi
verið af skornum skammti.
„Nærri allir sem tóku þátt í við-
brögðum við faraldrinum brugð-
ust að því leyti að þeir sáu ekki
hvað var í vændum,“ sagði WHO í
drögum að innra minnisblaði, sem
fréttastofan AP hefur komið hönd-
um yfir.
Þar kemur fram að sérfræð-
ingar hefðu átt að gera sér grein
fyrir því frá upphafi að venjuleg-
ar aðferðir við að halda smitfar-
aldri í skefjum duga engan veginn
á þessu svæði, þar sem heilbrigðis-
kerfi er mjög vanburða og fólk fer
hindrunarlítið yfir landamæri.
Peter Piot, læknirinn sem ásamt
öðrum uppgötvaði fyrst ebóluveir-
una fyrir rúmlega fjórum áratug-
um, tekur undir þetta og segir að
WHO hafi brugðist alltof seint við.
Einkum sé þar starfsfólki stofnun-
arinnar í Afríku um að kenna.
„Það er svæðisskrifstofan í Afr-
íku sem stendur þarna í eldlín-
unni,“ sagði hann. „Og þeir gerðu
ekkert. Þessi skrifstofa er alls ekki
hæf til verka.“
Samtökin Læknar án landa-
mæra, sem í raun hafa gegnt lykil-
hlutverki í baráttunni við faraldur-
inn í Afríkuríkjunum, segja mikið
vanta upp á að nægileg fjárfram-
lög hafi borist til þess að hægt
verði að koma ástandinu í viðráð-
anlegt horf.
Ákall um fjárframlög hafi til
þessa ekki skilað nema tæplega
400 milljónum dala, en nærri
milljón þurfi í heildina.
Þá segir Christopher Stokes frá
Læknum án landamæra, í við-
tali við BBC, að það sé hreinlega
fáránlegt að sjálfboðaliðar frá
samtökunum hafi borið hitann og
þungann af baráttunni við ebólu-
faraldurinn í Afríkuríkjunum
þremur sem verst hafa orðið úti.
Góðar fréttir af ebólunni bár-
ustu þó í gær þegar WHO lýsti því
yfir að í Senegal hefði tekist að
ráða niðurlögum veirunnar.
Stofnunin hrósar stjórnvöldum
í Senegal fyrir snögg og góð við-
brögð eftir að maður greindist þar
ebólusmitaður í lok ágúst. Hann
hafði komið frá Gíneu, og fékk að
snúa þangað aftur þann 18. sept-
ember. Stjórnvöldum í Senegal
tókst að koma í veg fyrir að fleiri
smituðust þar.
Í Nígeríu hafa 20 manns greinst
með smit og eru átta þeirra látnir.
Smituðum er enn að fjölga í Líb-
eríu, Síerra Leóne og Gíneu, þar
sem ástandið hefur verið verst.
Alls hefur faraldurinn kostað
meira en 4.500 manns lífið, en hátt
í tíu þúsund hafa smitast frá upp-
hafi faraldursins snemma á þessu
ári. gudsteinn@frettabladid.is
Fyrstu viðbrögð klúðruðust
Ebólufaraldurinn fór úr böndunum í vestanverðri Afríku meðal annars vegna mistaka starfsfólks Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar. Læknar án landamæra segja enn vanta mikið upp á nauðsynlegt fjármagn.
FRUMSTÆÐAR AÐSTÆÐUR Sjálfboðaliðar á vegum samtakanna Læknar án landa-
mæra hafa borið hitann og þungann af aðgerðum gegn ebólu í vestanverðri Afríku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BÚNING-
ARNIR
BRENNDIR
Hlífðarfötin,
sem notuð
eru meðan
ebólusjúk-
lingum er
sinnt, eru
ónothæf
eftir notkun.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
PETER PIOT Læknirinn sem uppgötvaði
ebóluveiruna sakar starfsfólk WHO í
Afríku um að hafa brugðist.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Tæplega þrítugur karlmaður
var í gær dæmdur í Héraðsdómi
Reykjaness til fjögurra mánaða
fangelsisvistar. Maðurinn játaði
skýlaust brot sín fyrir dómi en
honum var gefið að sök að hafa
keyrt bíl undir áhrifum fíkni-
efna síðastliðið vor. Maðurinn
játaði einnig að hafa stolið fjórum
DVD-diskum og sælgætispoka
úr verslun Hagkaups í Smára-
lind og vínflösku úr Vínbúðinni
við Dalveg. Hefur hann ítrekað
gerst sekur um brot á fíkniefna-
löggjöf og verið staðinn að akstri
undir áhrifum fíkniefna. Hann
hefur sex sinnum gengist undir
lögreglustjóra sátt vegna þess og
fjórum sinnum hlotið dóm. Auk
fangelsisvistarinnar var hann
í fimmta sinn sviptur ökurétt-
indum ævilangt. Manninum var
einnig gert að greiða 175 þúsund
krónur í sakarkostnað, þar með
talda þóknun skipaðs verjanda
síns. - vh
Síbrotamaður dæmdur:
Missir prófið
ævilangt aftur
JÁTAÐI Maðurinn játaði skýlaust brot
sín í Héraðsdómi Reykjaness.
BORGARSTJÓRN Kostnaður vegna
sérstaks stjórnkerfis- og lýð-
ræðisráðs nemur tæpum fjór-
um milljónum króna á þessu
ári. Á næsta ári mun kostnaður-
inn nema rúmum 18 milljónum
króna. Halldór Auðar Svansson,
borgarfulltrúi Pírata, mun veita
ráðinu formennsku. Þetta kemur
fram í svari Dags B. Eggertsson-
ar, borgarstjóra Reykjavíkur, við
fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins frá því í ágúst. Í fyrir-
spurninni var stofnun ráðsins
gagnrýnd og það meðal annars
sagt hafa óljós verkefni. Í svari
borgarstjóra kemur fram að svo-
kallaður „erindreki gagnsæis og
samráðs“ muni starfa með stjórn-
kerfis- og lýðræðisráði en hann
tekur ekki til starfa fyrr en um
áramót. - vh
Lýðræðisráð tekur til starfa:
Kostar fjórar
milljónir á ári
HALLDÓR AUÐAR SVANSSON Oddviti
Pírata í Reykjavík.
NOREGUR Tíundi hver prestur í
Þrændalögum í Noregi, þar sem
eru 135 sóknir, hefur hegðað sér
ósæmilega í vinnunni, að því er
greint er frá á vefnum vårtland.no.
Prestarnir hafa verið sýnilega ölv-
aðir við störf, sagt klúra brandara,
verið í fatnaði sem ekki er við hæfi
í umgengni við söfnuðinn og dæmi
er um að prestur hafi greint frá
trúnaðarsamtali í predikunarstól.
Haft er eftir prófasti að prest-
arnir séu ekki vandinn heldur lin-
kind stjórnenda kirkjunnar. - ibs
Könnun á prestum í Noregi:
Ölvaðir og segja
klúra brandara
SAMFÉLAGSMÁL Landspítalinn
hyggst ekki meina bænahópi, sem
kemur saman fyrir framan kvenna-
deildina til þess að biðja fyrir eydd-
um fóstrum, að halda áfram iðju
sinni.
Páll Matthíasson, forstjóri Land-
spítalans, segir spítalann vera á
sautján stöðum í borginni og mikla
umferð vera um byggingar hans.
„Landspítali hefur ekki bolmagn
til að fylgjast með einstaklingum
sem fara um lóðir hans. Ekki hafa
borist kvartanir vegna þessa til-
tekna hóps né höfum við upplýs-
ingar um að hann hafi haft áhrif á
þá sem til okkar sækja þjónustu.“
Aðspurður hvort spítalinn myndi
endurskoða afstöðu sína ef kvart-
anir vegna hópsins berast segir
Páll að það yrði skoðað eins og
aðrar kvartanir.
Fréttablaðið greindi frá því á
miðvikudag að hópur fólks mætir
vikulega fyrir framan kvennadeild
Landspítalans til að biðja fyrir
eyddum fóstrum og viðhorfsbreyt-
ingu kvenna til fóstureyðinga. - hó
Landspítalinn hyggst ekki banna bænahópnum að mótmæla á lóðinni:
Fá að biðja við kvennadeild
Á BÆN Bænahópurinn kemur saman
vikulega fyrir framan kvennadeildina til
að biðja fyrir eyddum fóstrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
SAMGÖNGUR Í upprunalegri fram-
kvæmdaáætlun um gerð Vaðla-
heiðarganga stóð til að nota um
200 tonn af sementi við alla ganga-
gerðina. Nú hafa 40 prósent gang-
anna verið grafin og þegar er búið
að nota um tólf hundruð tonn af
sementi.
Valgeir Bergmann, fram-
kvæmdastjóri Vaðlaheiðarganga,
segir þó enn of snemmt að segja til
um það hvort framkvæmdin muni
fara fram úr áætlunum. „Eins og
staðan er núna erum við innan
fjárhagsáætlunar. Verkáætlun
okkar inniheldur á þriðja hundrað
útgjaldaliði. Sumir eru vel innan
marka en aðrir, líkt og kaup á sem-
enti, hafa farið fram úr áætlunum.
Þó er þessi tiltekni liður afar lítill
hluti af áætluðum heildarkostnaði
við gangagerðina svo við höfum
enn sem komið er ekki miklar
áhyggjur.“
Fréttablað-
ið hefur áður
greint frá því að
nú þurfa Vaðla-
heiðargöng hf.
að endursemja
við lánardrottna
sína vegna fyrir-
hugaðrar seink-
unar á opnun
ganganna. Einnig er í bígerð
endurnýjuð verkáætlun verktak-
ans Ósafls. Til stóð að tveir bor-
flokkar ynnu, hvor sínum megin
Vaðlaheiðar. Vegna hita og raka
í göngunum vestanmegin hefur
starfseminni þar verið hætt um
óákveðinn tíma.
Tilboð Íslenskra aðalvertaka
og Marti í gerð Vaðlaheiðarganga
hljóðaði upp á um 8,8 milljarða
króna. - sa
Framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng munu taka lengri tíma en áætlað var í fyrstu vegna hita og raka:
Sexfalt meira notað af sementi en áætlað var
VAÐLAHEIÐARGÖNG Kostnaður hefur farið fram úr áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
VALGEIR
BERGMANN
ATVINNUMÁL Rannveig Gunn-
arsdóttir, forstjóri Lyfjastofn-
unar, lætur af störfum í febrú-
ar næstkomandi að eigin ósk.
Embættið verður auglýst laust
til umsóknar innan skamms.
Rannveig hefur verið forstjóri
frá því stofnunin var sett á fót
með lögum árið 2000. Verkefni
Lyfjastofnunar eru tilgreind í
lyfjalögum og heilbrigðisráð-
herra skipar forstjóra Lyfja-
stofnunar til fimm ára í senn
samkvæmt lyfjalögum.
- vh
Lyfjastofnun í leit að forstjóra:
Rannveig hætt