Fréttablaðið - 18.10.2014, Side 22
Leiksýningin Karitas var frumsýnd í gærkvöldi í Þjóðleikhúsinu. Sýning-in er byggð á bók Krist-ínar Marju Baldurs-dóttur og Ólafur Egill
Egilsson skrifaði leikgerðina í
samvinnu við Símon Birgisson.
Tveimur dögum fyrir frumsýn-
ingu voru þau full tilhlökkunar
að sjá sýninguna en viðurkenndu
þó að þau muni líklega sitja í saln-
um í fullkominni angist, að fylgj-
ast með öðrum listamönnum með
sköpun þeirra í höndunum.
Kristín Marja segir að það
reyni á hana að sjá verkið í hönd-
um annarra, jafnvel þótt það sé í
höndum fremstu listamanna þjóð-
arinnar. „Það er erfiðara með
þetta verk en önnur því sagan
er aðeins tengd mér. Ég er mjög
stolt af því að Þjóðleikhúsið taki
verkið til sýningar og ég vona að
móðir mín, ömmur og langömm-
ur séu líka stoltar en þær stíga
nú allar dansinn á hvítum himni.
Þótt bókin sé einber skáldskapur
og persónur allar fæddar í mínum
huga eru þó þarna myndir sem ég
sótti í reynslu þeirra eða sögur
sem þær sögðu mér,“ segir Krist-
ín og bætir við að hún hafi ekk-
ert komið að uppsetningunni en
hafi þó sett eitt skilyrði. „Ég vildi
að Ólafur Egill skrifaði handrit-
ið. Ég vissi að ef einhver gæti náð
kjarnanum í sögunni þá væri það
hann.“
Kristín Marja nær oft djúp-
um tengslum við persónur sínar
og því hlýtur að vera erfitt að
sleppa af þeim tökunum. „Ég hef
hugsað mikið um þetta og held
að með því að verkið fái nýtt
form komist bókmenntirnar með
sínum persónum til fleiri, til
dæmis til fólks sem almennt les
ekki, en hefur ánægju af leik-
húsi. Tökum sem dæmi Budden-
brooks eftir Thomas Mann. Ég
hef lesið þessa bók þrisvar en
það var ekki fyrr en ég sá verk-
ið á sviði í leikhúsi í Þýskalandi í
vetur sem ég áttaði mig á kjarna
verksins. Bókin er 800 blaðsíð-
ur en handritshöfundi tókst að
koma þessu til skila með tveggja
tíma flutningi. Ég hef fylgst með
handriti Ólafs á öllum stigum og
veit því að hann fann kjarnann
og kemur honum til skila.“
Ólafur skýtur inn í að kjarn-
inn sé líka góður. „Bókin sog-
aði mig til sín eins og aðra les-
endur.“ En hver er þessi kjarni?
„Meginkjarni verksins er, eins
og ég upplifi það, að fólk verði
að fylgja köllun sinni, hver svo
sem hún er, og það geti útheimt
fórnir af ýmsum toga. Sagan
gerist vissulega á öðrum tíma
en mér finnst hún þó, eins sorg-
legt og það er, skírskota til
okkar tíma. Þarna er kona sem
velur að „krota“ umfram það að
standa í barnauppeldi eða fá sér
almennilega vinnu eins og það
heitir. Það er þungur kross að
bera og enn í dag hallar ákaf-
lega á konur í þessum efnum.
Kona sem velur starfsframa
umfram börn er dæmd á annan
hátt en karlmaður sem gerir
það.“
Kristín Marja grípur orðið og
segir þessa togstreitu vera erf-
iða. „Þetta eru tvö sterkustu
öflin í sálu mannsins. Ástin og
listin. Ástin og draumarnir.
Þegar slík öfl mætast þá gneist-
ar á milli.“
Kristín Marja og Ólafur Egill
eru í sömu sporum. Þau hafa
unnið sinn hlut í verkinu og hafa
nú sleppt af því tökunum til leik-
hússins. Ólafur segir það algjöra
grundvallarreglu að geta gefið
verkið frá sér. „Þó það sé gert
í angist. Það er alltaf ákveð-
in angist í skapandi ferli. Ang-
ist, draumar og fullt af vinnu
sem vonandi gerir sig þegar allt
kemur saman. Á milli leiktext-
ans í handritinu eru mínar hug-
myndir um sviðsetningu, leiklýs-
ingar, en ég veit að lögmálið er
að yfirleitt er þeim hugmyndum
kollvarpað – sem betur fer. Það
er farsælast að sviðið fái að taka
yfir og að ferðalagið sem leik-
hópurinn og leikstjórinn leggja
upp í sé á þeirra forsendum. Þá
blómstrar allt.“
Sleppa tökunum á verkinu
Kristín Marja Baldursdóttir, höfundur bókarinnar Karitas, og Ólafur Egill Egilsson, höfundur leik-
gerðar eftir bókinni, segja hluta af sköpunarferlinu vera að sleppa tökunum á verkinu og færa það
í hendur annarra listamanna. Þau viðurkenna þó bæði að það sé gert í fullkominni angist.
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/ERN
IR
HÖFUNDUR SKÁLD-
SÖGU OG HÖFUNDUR
LEIKGERÐAR Ólafur
Egill Egilsson og Kristín
Marja Baldursdóttir
komu við á æfingu
tveimur dögum fyrir
frumsýningu en hafa
annars haldið sér sem
mest til hlés.
KARITAS Brynhil-
dur Guðjónsdóttir í
hlutverki sínu.
Erla Björg
Gunnarsdóttir
erlabjorg@365.is
Á SÝNINGUNA GRÁSKALA
sem lýkur nú um helgina í
Gallerí Þoku. Á sýningunni má
sjá einfalt vídeóverk eftir listamann-
inn Curver þar sem hann klæðir sig í
föt sem spanna allan gráskalann frá
hvítum til svarts og aftur til baka.
Á SILKIDRANGA nýjustu
plötu hljómsveitarinnar
Samaris, sem greinarhöf-
undur tímaritsins Time sagði vera
„fullkomna til að búa til stemningu
í sunnudagsbrönsi eða bíltúr síðla
nætur“. Á vefsíðu tímaritsins voru
lesendur hvattir til að kynna sér
sveitina og tíu aðrar hljómsveitir víða
úr heiminum.
ÆVINTÝRAFERÐ FAKÍRS-
INS SEM
FESTIST
INN Í IKEA SKÁP
fyrstu bók Romain
Puértola. Söguhetjan
er indverskur fakír
sem leggur upp í
ferð til Parísar með
falsaðan hundrað
evra seðil upp á
vasann í því skyni
að kaupa naglarúm á tilboði í IKEA
og selja það hæstbjóðanda þegar
heim er komið.
ÓSKALÖG ÞJÓÐARINNAR
á RÚV í kvöld klukkan 19.40,
nýjan íslenskan skemmtiþátt
þar sem þjóðin fær tækifæri til að
velja og heyra óskalögin sín.
Steinunn Þórðardóttir,
sminka og jógakennari
Mjölnissýning á Borgríki 2
Ég verð að kenna jóga í Mjölni á morgun og um
kvöldið ætla ég í bíó á sérstaka Mjölnissýningu á
Borgríki 2, en hún var einmitt frumsýnd í fyrradag.
Ég er reyndar búin að sjá hana, sérstaka við-
hafnarsýningu fyrir aðstandendur myndarinnar.
Þá skoðaði ég bara vinnuna mína en ég sá um
smink í myndinni. Svo ég hlakka til að sjá hana
aftur og njóta myndarinnar.
Það er farsælast að
sviðið fái að taka yfir og að
ferðalagið sem leikhópur-
inn og leikstjórinn leggja
upp í sé á þeirra forsend-
um. Þá blómstrar allt.
Ólafur Egill Egilsson
Ævar Þór Benediktsson,
leikari og rithöfundur
Fagnar útgáfu
með bróður
Ég er með útgáfuboð fyrir nýju
bókina mína sem heitir Þín
eigin þjóðsaga í dag. Ég held
það með bróður mínum sem
var að vinna Íslensku barna-
bókaverðlaunin í vikunni. Við
ákváðum því að skella saman í
partí. Svo á sunnudaginn ætla
ég að leyfa mér að sofa út.
Ása Dýradóttir,
bassaleikari Mammúts
Fer á Northern Wave
kvikmyndahátíðina
Ég ætla að fara á Northern
Wave-kvikmyndahátíðina á
Grundarfirði. Ég mun vera
alveg fram á sunnudagsmorg-
un. Sunnudagurinn fer síðan
í að skipuleggja komandi viku
á Stofunni, ásamt því sem
stefnt er á að semja nýja og
þunga tóna með Mammút.
Hrönn Marinósdóttir,
framkvæmdastjóri RIFF
Rólegheit eft ir
vinnutörn
Ég ætla aðallega að vera í róleg-
heitum eftir mikla vinnutörn.
Kannski rölti ég með í bæinn
með dætrunum í dag og við
kíkjum inn á söfn og fáum
okkur ís. Í kvöld er fjölskyldunni
boðið í mat til vinafólks og á
morgun á miðdóttirin afmæli
og þá verður veisla hér heima.
HELGIN
18. október 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...