Fréttablaðið - 18.10.2014, Qupperneq 28
18. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 28
Beið dóms í frelsi
En ég var samt fangi og mátti ekkert fara eða gera. Í
fjögur ár og átta mánuði var ég stanslaust í bið milli
vonar og ótta. Ég fékk í raun ekkert andlegt svigrúm til þess
að gera nokkurn skapaðan hlut. Ég var þakklátur fyrir að
vera ekki í fangelsi en óttaðist líka hvað myndi verða.
Annað tækifæri
Ég jarðtengdist og sá hvernig ég hafði lifað síðustu
ár. Þarna var ég við það að deyja og ég fékk annað
tækifæri og ætla mér að nýta það vel. Mig langar að
helga líf mitt því að hjálpa öðrum enda er ég virkilega
þakklátur fyrir hvern dag.
Smygltilraunin
Á þessum tíma var ég stjórnlaus í neyslu. Þegar komið var til mín og mér
sagt að ég ætti að fara þarna út þá hugsaði ég með mér að ég hefði
ekkert val. Það var annaðhvort að axla ábyrgðina svona eða að eiga á hættu að
mér yrði gert eitthvað eða fjölskyldu minni. Þessi gegndarlausa neysla hafði
slökkt á öllum tengslum við sjálfan mig og mér var alveg sama hvað ég gerði.
Ætli ég sé ekki bara fyrst og fremst þakklátur. Fyrir það að vera á lífi og að hafa fengið annað tækifæri til þess að
lifa lífinu til fulls,“ segir Ragnar
Erling Hermannsson sem í maí árið
2009, þá 24 ára gamall, var tekinn
með tæplega sex kíló af kókaíni í
farangri sínum á alþjóðaflugvell-
inum í Recife í Brasilíu.
Ragnar kom aftur til Íslands í
lok síðasta árs og hefur frá þeim
tíma tekið líf sitt í gegn; fór í lang-
tímameðferð og er í dag á beinu
brautinni. „Ég geri mér fullkom-
lega grein fyrir því að það eru ekki
allir jafn lánsamir og ég var,“ segir
hann brosandi en á sama tíma örlít-
ið alvarlegur þegar við sitjum yfir
kaffibolla á Kjarvalsstöðum sól-
ríkan en ögn kaldan haustviðris-
dag. Fyrir fimm árum var hann
staddur í Brasilíu og vissi ekki hver
örlög sín yrðu. Þó hann hefði vonað
að hann kæmist aftur til Íslands þá
vissi hann í raun ekkert hvað biði
sín.
Átti sín góðu tímabil
Mikið var fjallað um handtöku
Ragnars í íslenskum fjölmiðlum
sem og brasilískum. Hann hafði
nokkru áður stigið sín fyrstu skref
í sjónvarpi þegar hann var meðal
keppenda í sjónvarpsþáttunum
Leitin að strákunum þar sem tíu
manns kepptu um að fá sinn eigin
sjónvarpsþátt.
Frá þrettán ára aldri var hann
meira og minna í neyslu. Hann átti
sín góðu tímabil en þau stóðu yfir-
leitt stutt. „Ég náði samt sjaldn-
ast að halda mér lengi á beinu
brautinni. Sem barn og unglingur
þá var ég aldrei sáttur við sjálf-
an mig. Mér leið alltaf eins og ég
væri einskis virði. Þegar ég kynnt-
ist áfengi og eiturlyfjum þá fann ég
frelsi. Síðan varð ég eldri og neysl-
an ágerðist. Henni fylgdi líka mik-
ill óheiðarleiki en kannski fyrst
og fremst flótti frá raunveruleik-
anum.“
Ætlaði að smygla frá Danmörku
Á unglingsárum kom hann einnig
út úr skápnum. „Eftir það kynntist
ég líka dálítið nýjum heimi. Ég fór
inn í ákveðinn glansheim þar sem
allt snerist um að vera sem flott-
astur og djammið var mikið.“ Hann
segist sífellt hafa verið að reyna að
vera annar en hann var en í raun
og veru aldrei liðið vel, kannski
komist næst því þegar hann var
undir áhrifum. Um tvítugt jókst
djammið og neyslan sem svo end-
aði með því að hann ákvað vegna
skulda sem hann hafði safnað að
taka að sér að smygla eiturlyfjum
frá Danmörku til Íslands. Þegar á
hólminn var komið guggnaði hann
og tapaði efnunum.
Þegar hann kom aftur til Íslands
eftir misheppnaða smyglferð var
hann því kominn í skuld við þá
sem áttu efnin og var gert að borga
hana með því að fara til Brasilíu.
„Á þessum tíma var ég stjórnlaus í
neyslu. Þegar komið var til mín og
mér sagt að ég ætti að fara þarna
út þá hugsaði ég með mér að ég
hefði ekkert val. Það var annað-
hvort að axla ábyrgðina svona eða
að eiga á hættu að mér yrði gert
eitthvað eða fjölskyldu minni.
Þessi gegndarlausa neysla hafði
slökkt á öllum tengslum við sjálf-
an mig og mér var alveg sama hvað
ég gerði.“
Var dofinn
Fyrst fór hann til Amsterdam þar
sem hann var í um þrjár vikur áður
en hann fór til Brasilíu þar sem
hann var í aðrar þrjár vikur áður
en hann var sendur í smyglferðina.
Þegar hann lenti á flugvellinum í
Recife þótti tollvörðum hann grun-
samlegur. Hann var beðinn um
að koma afsíðis þar sem tæplega
sex kíló af kókaíni fundust vand-
lega falin í tösku hans. „Það er svo
skrýtið að þegar ég hugsa til baka
þá finnst mér að vissu leyti eins og
ég hafi ekki verið þarna. Ég var
bara dofinn. Búinn á því andlega
og líkamlega. Mig langaði bara að
leggjast niður því ég var gjörsam-
lega að niðurlotum kominn.“
Því næst var hann leiddur burt
í járnum. „Ég var leiddur niður-
lægður í gegnum allan flugvöllinn
fyrir framan myndatökuvélar og
aðra ferðamenn, guði sé lof að það
voru ekki fleiri á ferð,“ segir Ragn-
ar og hryllir sig við tilhugsunina.
Óttaðist um líf sitt
Eftir skýrslutökur var hann færð-
ur í fangelsi. „Þarna gerði ég
mér engan veginn grein fyrir því
hversu alvarlega stöðu ég var kom-
inn í.“
Í fangelsinu óttaðist hann svo
sannarlega um líf sitt. Fyrst um
sinn náði hann ekki sambandi við
fjölskyldu sína og fyrsti Íslend-
ingurinn sem hann talaði við eftir
handtökuna var fréttamaður Stöðv-
ar 2 sem hringdi í fangelsið og
fékk að tala við hann. Ragnar bað
fréttamanninn örvæntingarfullur
um hjálp enda vissi hann ekkert
hvað hann væri kominn úti í.
Eftir að hafa dvalið fjóra mánuði
í einu alræmdasta fangelsi Brasilíu
fékk Ragnar að bíða dóms í frelsi.
Þá hafði dómur á fyrsta dómsstigi
kveðið á um fjögurra ára skilorðs-
bundinn dóm en því var áfrýjað af
ákæruvaldinu. Dómsstigin í Brasi-
líu eru þrjú og á öðru dómsstigi
fékk hann fjögurra ára fangelsis-
dóm sem hann sjálfur áfrýjaði og
fékk að bíða í frelsi eftir að hæsti-
réttur dæmdi á því dómsstigi.
Í stanslausri neyslu
„Meðan ég beið dómskvaðningar
þá fékk ég ekki atvinnuleyfi og
mátti ekki fara úr landi. Þannig að
fjölskylda mín fann kristið með-
ferðarheimili þar sem mér var
sýndur skilyrðislaus kærleikur
og þolinmæði. Sem ég átti engan
veginn skilið vegna þess að ég var
í stanslausri neyslu meðan ég var
úti. Alltaf tók presturinn sem rak
heimilið mér opnum örmum kær-
leikans, sama hvað ég hafði gert
og í hvaða ástandi ég var. Þeir
björguðu mér,“ segir hann. „Hefði
ég verið annars staðar þá veit ég
ekkert hvernig þetta hefði farið.
Flestir hefðu hent mér út á götu og
þá veit ég ekki hvort ég væri hér
í dag.“
Þrátt fyrir að aðstaðan á með-
ferðarheimilinu væri langtum
betri en í fangelsinu þá var hún
samt bágborin. „Það voru þrjú
herbergi með kojum þar sem voru
10–17 saman í herbergi. Það voru
ekki dýnur í öllum kojum en þær
sem voru til staðar voru eldgamlar
og örþunnar. Hreinlætisvörur voru
líka af skornum skammti. Aðbún-
aður þar var vægast sagt slæm-
ur þar sem ekkert fjármagn er til
staðar til að gera upp hluti og hafa
mannsæmandi aðbúð þá níu mán-
uði sem meðferðin tekur.“
Ólíkir heimar
Ragnar dvaldi þó þar lengur en
sem meðferðartíma nemur. Sam-
tals var hann þar í um fjögur ár
meðan hann beið þess að úrskurðað
yrði í máli hans. Þrátt fyrir að vera
á meðferðarheimili harðnaði neysl-
an sífellt. „Þarna leiddist ég út í
að prófa krakk og var líka í mik-
illi kannabisneyslu. Ég fór af með-
ferðarheimilinu inn á milli og hélt
til á alls konar stöðum. Bæði hjá
góðu fólki en líka í dópgrenjum,“
segir hann og leggur áherslu á
hversu ólíkur þessi heimur er þeim
íslenska. „Ég bjó í fátækasta hluta
Norðaustur-Brasilíu. Ég kynntist
alls konar fólki; allt frá 10 barna
einstæðri móður sem var krakksali
yfir í vel setta enskukennara sem
bjuggu í strandbæ.“
Stanslaus bið
Hann segist hafa verið týndur á
þessum tíma. Ánægður að vera
utan múranna en á sama tíma var
óvissan mikil og erfitt að bíða þess
sem yrði. Hugsanlega myndi hann
fá fangelsisdóm á þriðja dómsstigi.
„Mér leið oft eins og ég væri fastur
í eins konar paradís. Það var líka
svo fallegt þarna og margt gott.
En ég var samt fangi og mátti ekk-
ert fara eða gera. Í fjögur ár og
átta mánuði var ég stanslaust í bið
milli vonar og ótta. Ég fékk í raun
ekkert andlegt svigrúm til þess að
gera nokkurn skapaðan hlut. Ég
var þakklátur fyrir að vera ekki
í fangelsi en óttaðist líka hvað
myndi verða.“
Sendur heim af mannúðarástæðum
Í ágúst 2013 veiktist Ragnar alvar-
lega og var lagður inn á spítala nær
dauða en lífi. „Ég var þar í rúma tvo
mánuði. Mér leið hræðilega og var
nokkuð viss um að þarna myndi ég
deyja,“ segir hann. „Ég var fárveik-
ur og var vart hugað líf. Fjölskylda
mín fór þá á fullt að finna lögfræð-
inga fyrir mig til þess að fá mig
heim. Ég er henni ótrúlega þakk-
látur fyrir það. Vegna þess hversu
veikur ég var þá fékk ég að koma
heim af mannúðarástæðum. Þeir
í raun sendu mig heim til að leyfa
mér að deyja hér.“
Ragnar fékk þó heilsuna aftur og
er stálsleginn í dag. „Ég grét þegar
ég komst um borð í vélina og var á
leið til Íslands. Ég trúði þessu ekki.“
Í byrjun desember í fyrra kom
hann aftur til landsins.
„Meðan ég var á spítalanum
úti mælti vinkona mín með því að
ég færi í meðferð á Krýsuvík. Ég
ákvað að gera það. Ég komst þar
inn í janúar og þá hófst bati minn,“
segir Ragnar.
Horfðist í augu við sjálfan sig
„Ég var þar í meðferð í sex mánuði
og þar hófst í fyrsta skipti eitthvað
sem hægt er að kalla bata. Ég horfð-
ist í augu við sjálfan mig, hvernig
hlutirnir voru og á hvaða stað ég
var. Afneitun fíkilsins fór að rjátlast
af mér. Ég fékk loksins þann verk-
færakassa lífsins sem ég hef alltaf
þurft á að halda,“ segir Ragnar.
„Ég jarðtengdist og sá hvernig ég
hafði lifað síðustu ár. Þarna var ég
við það að deyja og ég fékk annað
tækifæri og ætla mér að nýta það
vel. Mig langar að helga líf mitt því
að hjálpa öðrum enda er ég virki-
lega þakklátur fyrir hvern dag,“
segir hann.
Þakklátur fyrir að vera á lífi
Ragnar Erling Hermannsson var handtekinn árið 2009 í Brasilíu með tæplega sex kíló af kókaíni í fórum sínum. Ragnar
bjó við erfiðar aðstæður í rúm fjögur ár úti meðan hann beið dóms. Lengst af bjó hann á meðferðarheimili en var þrátt
fyrir það í mikilli neyslu. Nú hefur hann snúið lífi sínu við og vonast til þess að geta helgað það því að hjálpa öðrum.
KOMINN HEIM Ragnar Erling er ánægður að vera kominn heim og vill helga líf sitt því að hjálpa öðrum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Ég grét
þegar ég
komst
um borð
í vélina
og var á
leið til
Íslands.
Ég trúði
þessu
ekki.