Fréttablaðið - 18.10.2014, Page 32
18. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Ég vil ekki berjast. Ég vil ekki drepa,“ segir Mustafa Abubakr, þrí-tugur Kúrdi sem hing-að er kominn til að óska eftir hæli.
Hann er stoltur af því að vera frá
Kúrdistan, landi sem er raunveru-
legt en þó ekki til á landakorti sjálf-
stæðra ríkja. „Auðvitað,“ svarar
hann spurður hvort Kúrdar í Írak,
Sýrlandi, Tyrklandi og Íran líti á
sig sem eina heild, eina þjóð.
„Þetta eru bræður mínir og syst-
ur,“ segir hann um Kúrdana, sem
vígasveitir Íslamska ríkisins hafa
verið að drepa í Sýrlandi og Írak
undanfarið.
Mustafa segist ekki vita hvort
foreldrar hans séu á lífi, það er
ekki svo auðvelt að fá fréttir að
heiman. Hann á ekki von á því að
snúa nokkurn tímann aftur.
„Nei, það væri of erfitt. Ég gæti
það aldrei.“
Linnulaust stríð
„Þetta stríð stóð yfir í átta ár.
Tómar sprengjur og bardagar.
Eftir það fór Saddam að ráðast
á Kúrda, og það stóð yfir í þrjú
ár. Fimm þúsund manns voru til
dæmis drepnir í bænum Halabja.“
Þar er Mustafa að vísa til
alræmdrar eiturefnaárásar þann
16. mars árið 1988 þegar eiturgas-
hylkjum var varpað úr herþotum
Saddams á bæinn Halabja, en þar
búa nú nærri 120 þúsund manns.
„Eftir þetta tímabil tekur Sadd-
am upp á því að fara í stríð við
Kúveit,“ heldur Mustafa áfram.
Þetta var árið 1991, en þá var
Mustafa sjö ára gamall. Síðan
þegar Persaflóastríðinu lauk með
ósigri Saddams hófu Kúrdar upp-
reisn gegn honum.
„Eftir það skánaði ástandið svo-
lítið hjá okkur. En svo tóku Kúrd-
ar að berjast innbyrðis. Þar áttu
tveir hópar í stríði sín á milli. Svo
þegar þeim átökum lauk þá skán-
aði ástandið aftur um stund, en svo
komu loks Bandaríkin og réðust inn
í Írak. Þannig að ég spyr: Hvenær
á þessu eiginlega að ljúka? Hve-
nær hætta menn að berjast og kasta
sprengjum? Hvenær fær fólk frið
til að vera hamingjusamt?“
Hvað vilja þeir Kúrdum?
Nú er það Íslamska ríkið, sem á
þessu ári hefur sölsað undir sig stór
svæði í Sýrlandi og Írak og herjar
þaðan á Kúrdahéruðin í norður-
hluta beggja landanna.
„Enn er farið að varpa sprengj-
um og drepa fólk. Sprengja,
sprengja, sprengja. Það sem ég skil
ekki er hvað þeir vilja okkur Kúrd-
um eiginlega. Við höfum aldrei ráð-
ist á aðrar þjóðir. Við höfum okkar
eigin menningu og okkar eigið land.
Við eigum okkar borgir og okkar
tungumál. Við þurfum ekkert á
því að halda að aðrir komi til að
stjórna okkur. Hvers vegna kemur
þetta fólk til okkar að drepa börnin
okkar? Það er verið að leggja allt í
rúst hjá okkur.“
Hann bendir á að Kúrdar hafi
aldrei látið sér detta í hug að fara í
stríð út af trúarbrögðum. Þeir hafa
barist fyrir réttindum sínum, en
trúin hafi aldrei blandast í þau átök.
„Við erum Kúrdar. Við þurfum
ekki þessi stríð. Þetta hefur alltaf
bara snúist um peninga og olíu hvort
sem er. Við verðum að stöðva þetta.“
Hann kann svo sem engin ráð
til að stöðva ofbeldið. Kúrdar hafa
hins vegar farið fram á aðstoð frá
umheiminum. Vígasveitir Íslamska
ríkisins megi ekki fá að vaða uppi
með voðaverk sín.
Dauðinn sífellt nálægur
Sjálfur segist hann vera svo hepp-
inn að hafa aldrei þurft að taka þátt
í hernaði. Hann hafi hins vegar
horft upp á fólk deyja í stórum stíl,
þar á meðal vini og ættingja. Dauð-
inn sé sífellt nálægur og þannig
hafi það verið alla ævina.
Nokkur ár eru nú liðin frá því
honum tókst að flýja land. Fyrst
fór hann til Noregs en bíður nú
afgreiðslu Útlendingastofnunar.
Hann vill ekki kvarta þótt hælis-
leitendur fái lítið fé til að lifa af,
rétt um átta þúsund krónur á viku.
„Já, það er allt í lagi. Það er bara
eðlilegt fyrir einn mann,“ segir
hann og brosir. Það er stutt í brosið
hjá Mustafa, þótt hann hafi átt erf-
iða ævi. Hann segir vini sína stund-
um segja að hann brosi of mikið.
„En ég get ekki annað. Ég verð
að brosa.“ Hann er í sambandi við
Kúrda sem búa hér á landi. Þeir eru
á milli tíu og tuttugu, segir hann.
„Það er gott að hittast og spjalla og
elda mat saman. Það hjálpar.“
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
MUSTAFA ABUBAKR Ólst upp í Kúrdahéruðum Íraks, þar sem hvert stríðið rak annað, og óskar nú eftir hæli hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÍRAK: HVERT STRÍÐIÐ Á FÆTUR ÖÐRU
Kúrdar í Tyrklandi, Sýrlandi, Írak og Íran hafa lengi látið sig dreyma um að stofna
sjálfstætt ríki, sem héti Kúrdistan. Alls búa 50 til 60 milljónir Kúrda þar á nokkuð
samfelldu svæði sem nær yfir 100 til 150 þúsund ferkílómetra.
Stjórnvöld ríkjanna fjögurra hafa aldrei léð máls á þessu, og oftar en ekki hafa
réttindi Kúrda verið fótum troðin í öllum ríkjunum fjórum.
Í norðanverðu Írak hefur sjálfstjórnarsvæði Kúrda samt haft nokkuð sterka
stöðu á síðustu árum, ekki síst vegna veikleika stjórnarinnar í Bagdad.
➜ Leiðtogar vígasveita Íslamska ríkisins boða
af miklum ákafa allsérstæða heimsendatrú,
sem óspart hefur verið notuð til að laða að
liðsmenn frá Vesturlöndum. Þar er vísað í
forna spádóma úr helgiritum múslima um úr-
slitaorrustu milli múslima og Rómverja, sem
sögð er verða í bænum Dabik í Sýrlandi.
➜ Beri múslimar sigur úr býtum rís upp nýr og
betri heimur, þar sem múslimar þurfa ekki
lengur að sæta ofríki Vesturlanda heldur geti
lifað upp frá því í sátt og samlyndi og um-
fram allt í tandurhreinni trú. Í raun er þetta
því ekki réttnefnd „heimsendatrú“ heldur
frekar „heimsendurnýjunartrú“, rétt eins og
hinar ýmsu útgáfur heimsendatrúar kristinna
manna sem snúast flestar um einhvers konar
endurnýjun heimsins.
➜ Dabik í Sýrlandi er smábær norður af Aleppo,
ekki langt frá landamærum Tyrklands og ekki
mjög langt frá Kúrdabænum Kobani, sem
vígasveitirnar hafa herjað á af mikilli grimmd
undanfarið.
Í Dabik búa ekki nema þrjú þúsund manns
og ekkert bendir til þess að þar sé yfirvofandi
eitthvað sem kalla mætti úrslitaorrustu í
þessu stríði, sem Íslamska ríkið stendur í.
➜ Dabik er einnig nafn á tímariti, sem Íslamska
ríkið hefur gefið út á ensku til að vekja áhuga
vígfúsra ungra manna á Vesturlöndum.
Þetta er eins konar „glanstímarit“, þar sem
birtar eru ljótar myndir af limlestum líkum
með stóryrtum yfirlýsingum um hetjulega
baráttu. Einnig er þar að finna fjölda greina
um hugmyndafræði og stefnu samtakanna,
sem eins og aðrir öfgasöfnuðir eru ekki í
vandræðum með að réttlæta voðaverkin fyrir
sjálfum sér.
➜ Íslamska ríkið fetar þarna í fótspor nokkurra
annarra róttækra íslamistahreyfinga sem í
orði segjast vilja endurreisa forna dýrð og
snúa aftur til hreinleika trúarinnar en virðast
í raun gera lítið annað en að drepa fólk og
kúga.
➜ Hreinleikann og dýrðina hafa hreintrúarmús-
limar sumir hverjir séð í hinu forna kalífaveldi
múslima, en kalífar voru þeir leiðtogar nefndir
sem upphaflega tóku við af Múhameð spá-
manni. Síðar gerðu ráðamenn í Tyrkjaveldi
tilkall til þessa titils, en með stofnun lýðveldis
í Tyrklandi árið 1924 leið hið forna kalífaveldi
múslima endanlega undir lok.
➜ Fyrr á árinu lýstu leiðtogar Íslamska ríkisins
svo yfir stofnun kalífaveldis í Sýrlandi og Írak,
og þykja taka harla stórt upp í sig með svo
digurbarkalegum yfirlýsingum.
Sérstæð heimsendatrú býr að baki voðaverkum Íslamska ríkisins í Sýrlandi og Írak
Dauðinn ávallt verið nálægur
Öfgasveitir Íslamska ríkisins hafa herjað á Kúrdahéruðin í Sýrlandi og Írak undanfarið. Mustafa Abubakr er landflótta Kúrdi sem svíður að
fylgjast með fréttum af grimmdarverkunum. Hann ólst upp í Írak og hefur varla kynnst öðru um ævina en stanslausum stríðsátökum.
Heimild: Bandaríkjaher og Associated Press © GRAPHIC NEWS
ÍRANS Ý R L A N D
LÍBANON
JÓRDANÍA SÁDI-ARABÍA
KÚVEIT
ÍRAK
TYRKLAND
KúrdabyggðirÁ valdi Íslamska ríkisins
Sjálfstjórnarsvæði
Kúrda í Írak
Rakka
Damaskus
Haditha
Amirli
Tikrit
Mosul
Kirkuk
Bagdad
Tígris
Efrat
Ramadi
Falludjah
Basra
Sindjar
Arbil
100km
Kobani
Aleppo
Deir Ezzor
Hassakeh
Tall Afar
Mosulstíflan
Íslamskt ríki og kúrdabyggðirnar
Saddam
Hussein nær
völdum
í Írak.
1979
Efnahagslegar
refsiaðgerðir Sameinuðu
þjóðanna ásamt misvel-
heppnuðum tilraunum
til vopnaeftirlits. Refsiað-
gerðirnar bitna hart á
þjóðinni og eru taldar
hafa kostað hundruð
þúsunda manna lífið.
1991 - 2003
Borgarastríð
meðal Kúrda
í Írak, þar
sem PUK og
KDP takast á.
1994 - 1997
Írakar fá leyfi
til að selja olíu
í skiptum fyrir
matvæli handa
hungraðri þjóð.
1995
Saddam
tekinn af lífi
að loknum
réttarhöld-
um.
2006
Bandaríkjaher
fer frá Írak.
Eitthvað
hafði dregið
úr átökum í
landinu, en það
reyndist skamm-
góður vermir.
2011
Sigurganga her-
skárra íslamista í
Írak hefst í janúar
þegar þeir ná borg-
unum Falludjah og
Ramadi á sitt vald.
Þeir sölsa undir
sig æ stærra svæði
þegar líður á árið.
2014
Stríð Íraks
og Írans
hefst og
lýkur ekki
fyrr en árið
1988.
1980
Íraksher
hrekst
frá
Kúveit.
1991
Uppreisn íraskra Kúrda gegn
veldi Saddams Hussein.
Tvær annars andstæðar
fylkingar Kúrda, PUK og
KDP, standa þar saman.
Fleiri hópar í Írak gera upp-
reisn þetta sama ár.
Hersveitir
Saddams ráðast
inn í Kúveit. Fyrra
Persaflóastríðið
hefst þegar Banda-
ríkjaher kemur
Kúveit til varnar.
1990
Menn á
vegum
Saddams gera
eiturefnaárás
á Kúrdabæinn
Halabdjah.
Þúsundir
manna deyja.
1988
Refsiaðgerðum
að mestu
aflétt eftir að
árásarþjóðirnar
vinna sigur að
nokkru.
Bandaríkin,
Bretar og fleiri
þjóðir hefja
Íraksstríðið og
steypa Saddam
Hussein
fljótlega af
stóli.
2003
➜ Kúrdistan