Fréttablaðið - 18.10.2014, Qupperneq 46
FÓLK|HELGIN
Það er óvenju mikið að gera hjá Sölku Sól þessa dagana. „Jú, þetta hafa
verið annasamir dagar og verða
áfram,“ segir hún. „Á morgun
langar mig að komast í að gera
upp eldhúsið mitt en ég er
nýflutt í eigin íbúð í miðbænum
ásamt kærastanum, Albert Hall-
dórssyni leiklistarnema. Ég fer í
upptöku á sjónvarpsþættinum
Óskalög þjóðarinnar í dag og
verð síðan með útvarpsþáttinn
minn, Hanastél,“ segir Salka. Hún
er í mörgum hljómsveitum með
ólíkum áherslum.
„Við vorum að klára plötuna
okkar í Amabadama en hún
kemur út 6. nóvember. Það hefur
verið mikil vinna í kringum hana
og ég hlakka mikið til þegar hún
kemur loks út. Um síðustu helgi
dvöldum við í Hernámssetrinu
í Hvalfirði og æfðum fyrir Air-
waves. Yndislegur staður sem
gefur manni mikinn kraft. Maður
finnur orkuna læðast yfir sig.
Hlustunarpartí verður þegar
platan kemur út en síðan spilum
við á sex stöðum á Airwaves. Ég
kem reyndar fram á níu tónleik-
um á hátíðinni ef ég tel Reykja-
víkurdætur með og Rvk Sound-
system sem er plötusnúðahópur
sem leikur reggítónlist.
BÆJARLISTAMAÐUR Í KÓPA-
VOGI
Auk þessa er Salka bæjarlista-
maður í Kópavogi ásamt Tinnu
Sverrisdóttur og Þuríði Blævi
Jóhannsdóttur en þær skipa
hljómsveitina Tazmaníu. Þær
eru að fara í gang með námskeið
í unglingabekkjum bæjarins.
„Við ætlum að kenna ljóðagerð,
ljóðlist, framkomu og rapp. Auk
þess segjum við okkar sögu og
hvernig hægt er að öðlast trú á
sjálfan sig,“ útskýrir Salka.
Salka Sól bjó í London í þrjú
ár og lærði Actor Musicianship.
„Það er leikaranám fyrir hljóð-
færaleikara sem var bæði þrosk-
andi og gefandi. Ég lærði margt
í London, það er lærdómsríkt
að búa í öðru landi. Ég saknaði
samt Íslands og fann að ég var
ekki tilbúin að hasla mér völl
eða harka sem listamaður í Bret-
landi,“ segir hún.
„Lífið tók nýja en óvænta
stefnu þegar ég kom heim. Ég
hafði ekki mótað mér farveg en
leyfði hlutunum að gerast. Það
hefur alltaf blundað smávegis
töffari í mér. Ég hafði til dæmis
ekki hugsað mikið út í rapp en
þegar vinkonur mínar tróðu
upp á Bar 11 var ég staðráðin í
að vera með næst. Við settumst
niður og sömdum lag fyrir rapp-
kvöld á Gauknum í desember en
þá varð lagið Reykjavíkurdætur
til,“ segir Salka Sól en lagið varð
strax mjög vinsælt. Sömu sögu er
að segja um lagið Hossa Hossa
með Amabadama sem allir krakk-
ar kunna að syngja.
LEIKKONAN VAKNAÐI
„Stelpurnar í Reykjavíkur-
dætrum eru allar bæði skapandi
og gefandi. Ég lít upp til þeirra
allra. Við erum ólíkar en náum
ótrúlega vel saman, enda fá allir
að vera eins og þeir eru innan
hópsins,“ segir Salka en þegar
hún er spurð hvernig Amaba-
dama hafi komið til, svarar hún:
„Reykjavíkurdætur komu fram
á árshátíð MH þar sem Amaba-
dama var aðalnúmerið. Söng-
kona hljómsveitarinnar var að
hætta um það leyti. Ég var ekki
alveg komin út úr skápnum sem
söngkona á þessum tíma, engu
að síður var ég allt í einu orðin
söngkona í bandinu.“
Salka hefur auk alls þessa
Í MÉR BLUNDAR SMÁ TÖFFARI
HÆFILEIKARÍK Salka Sól Eyfeld, leikkona og tónlistarmaður, hefur haft ótal margt á sinni könnu frá því hún kom heim frá námi í
London fyrir rúmu ári. Þau eru ófá hlutverkin sem hún hefur tekið sér fyrir hendur á mismunandi listsviðum.
ÁHUGAMÁLIÐ Salka hefur gaman af því að gera fígúrur í kaffið sitt, til dæmis Super
Mario-bræður.
MARGT SPENNANDI Það er ýmislegt að gerast hjá Sölku Sól,
bæði á sviði leiklistar og tónlistar. MYND/ERNIR
unnið við talsetningu barnaefnis.
„Ég byrjaði á því fljótt eftir að ég
kom heim. Meðal mynda sem ég
hef talað inn á er Lego Movie og
Planes,“ segir Salka sem er þessa
dagana að leika í þáttum Steinda
sem verða sýndir á Stöð 2. „Svo
verð ég í þáttunum Ófærð undir
leikstjórn Baltasar Kormáks en
aðalhlutverkið er í höndum Ólafs
Darra. Tökur á þeim þáttum
hefjast í nóvember og ég hlakka
mikið til. Það verður ótrúlega
spennandi. Ég var eiginlega búin
að taka ákvörðum um að leggja
leikkonuna á hilluna og vera bara
tónlistarmaður. Núna er leik-
listaráhuginn að vakna hjá mér
aftur,“ segir Salka Sól sem utan
alls þessa vinnur í Popplandinu á
RÚV alla virka daga. „Ég hef alltaf
haft gríðarlegan áhuga á allri
tónlist og finnst gaman að grúska
í henni.“
RAPPAÐI FYRIR SIGMUND
Salka Sól rappaði fyrir forsæt-
isráðherra landsins í þætti Loga
Bergmann í síðustu viku. Hún
segist aldrei hafa verið feimin og
þetta hafi verið skemmtileg upp-
ákoma. „Ég fékk alveg frábær við-
brögð eftir þáttinn.“
Hún á mörg áhugamál. „Ég
elska kaffi og finnst ótrúlega
gaman að gera myndir í það. Ég
hef áhuga á alls kyns kaffiteg-
undum og kaffikönnum. Ég safna
líka hljóðfærum og á mikið safn
hljóðfæra frá hinum ýmsu heims-
álfum,“ segir þessa atorkusama
listakona. Hún byrjaði ung að
spila á píanó, síðan trompet og
nú er hún að prófa sig áfram með
klarinett.
„Ég er dugleg að prófa þau
hljóðfæri sem ég hef safnað að
mér.“
■ elin@365.is
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Alþjóða heilsu
Qigong félagið
WORKSHOP
Heldur
kynningarnámskeið
24.-27. október
5 helstu ástæður þess að iðka qigong
Qigong (borið fram “tsí-gong”) er yfir 5.000 ára gamalt
æfingakerfi í heilsurækt þarsem saman fer qi, sem merkir
“lífskraftur”, og gong, sem merkir “nákvæmar æfingar”.
1. Aukin vellíðan og lífsþróttur
Minnkar blóðþrýsting, bætir hjarts- og æðastarfsemi,
jafnar hjartsláttartíðni og minnkar kólesteról.
2. Dregur úr þrálátum sársauka
Með hjálp sjónar og stjórn hugar og líkama getur
þú dregið úr þrálátum sársauka frá liðagigt.
3. Betra blóðstreymi
Með sérstökum öndunaræfingum getur þú aukið
súrefnisflæði í líkamanum.
4. Dregur úr spennu
Með því að minnka viðbrögð við spennuvekjandi álagi.
Hjálpar gegn þráhyggu- og áráttuhegðun, þunglyndi
og kvíða og persónuleikaeinkennum af A-gerð.
5. Byggir upp sjálfsvirðingu
Með því að leyfa þér að líða vel og þægilega.
Skráning
í síma
553 8282
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR