Fréttablaðið - 18.10.2014, Qupperneq 48
FÓLK|HELGIN
● MÁLÞING
Félag um átjándu aldar fræði
heldur málþing undir yfirskrift-
inni „Lof og last um Ísland og
Íslendinga á átjándu og nítj-
ándu öld,“ í fyrirlestrarsal á 2.
hæð í Þjóðarbókhlöðunni.
Flutt verða fjögur erindi.
Sumarliði R. Ísleifsson, doktor
í sagnfræði, flytur erindið Sið-
lausir villimenn eða menntaðir
fræðaþulir? Ímyndir Íslands á
18. öld.
Kristín Bragadóttir, doktors-
nemi í sagnfræði, heldur töluna
Ljós og litir í norðrinu: Willard
Fiske á Íslandi 1879.
Már Jónsson, prófessor í sagn-
fræði, flytur erindið Sannleiks-
korn í Íslandslýsingu Johanns
Andersons frá 1746.
Að lokum flytur Baldur Haf-
stað, doktor í íslenskum bók-
menntum, erindið Konrad
Maur er: jákvæður gagnrýn-
andi.
Allir eru velkomnir og boðið
verður upp á veitingar í hléi.
LOF OG LAST
UM ÍSLAND
Bræðurnir Guðni Líndal og Ævar Þór Benediktssynir gáfu báðir nýlega út barnabækur
og ætla að bjóða landsmönnum í
einstakt útgáfuhóf í bókabúðinni
Eymundsson í Kringlunni í dag milli
kl. 14 og 15. Guðni Lín-
dal sendir frá sér bókina
Ótrúleg ævintýri afa –
Leitin að Blóðey, sem
nýlega hlaut Íslensku
barnabókaverðlaunin
og Ævar Þór sendir
frá sér bókina Þín
eigin þjóðsaga sem nú
trónir á toppi barna-
bókalista Forlagsins.
Báðir voru þeir
miklir bókaormar sem
börn að eigin sögn og
byrjuðu snemma að
semja ýmsar sögur heima í sveit-
inni. Guðni segir áhugann líklega
hafa sprottið af því að þurfa að hafa
ofan af fyrir sjálfum sér. „Sjónvarp
og bækur voru virkilega heillandi
fyrir okkur og ég ákvað mjög
snemma að ég myndi vilja vinna við
eitthvað tengt skapandi miðlum.“
Ævar bætir við að foreldrar þeirra
hafi alltaf verið duglegir að gauka
að þeim bókum og segja þeim sög-
ur. „Þegar ég var 17 ára kynntist ég
Þorvaldi Þorsteinssyni rithöfundi
og listamanni og eftir langt og gott
spjall spurði hann mig hvort mér
hefði einhvern tímann dottið í hug
að skrifa. Það kveikti á höfundinum
í mér fyrir alvöru og síðan þá hef ég
eiginlega ekki stoppað.“
Í bók Ævars ræður lesandinn
sjálfur hvað gerist með því að fletta
fram og til baka og ákveða hvað
söguhetjan gerir. „Ég flétta heim
íslensku þjóðsagn-
anna í bók-
ina vegna
þess að þar
ertu með
kvikindi og
karakt-
era sem
allir þekkja.
Þetta er
heimur
sem er
stórhættu-
legur sem
er bæði
spennandi fyrir lesandann
og höfundinn.“
Hann segir að mörgum krökkum
finnist bækur ekki lengur spenn-
andi og þetta form sé einstakt
tækifæri til að kveikja áhuga þeirra
aftur. „Hvern hefur ekki langað til
að glíma við Lagarfljótsorminn eða
fylgjast með uppvakningum rísa úr
gröf sinni? Þarna ertu með íslensku
jólasveinana eins og þeir gerast
verstir og stórhættulegar íslenskar
hafmeyjur. Þú ræður hvort þú ætlar
að hjálpa þeim eða jafnvel skemma
fyrir þeim.“
Bók Guðna segir hins vegar frá
afa sem sest við rúmstokkinn hjá
barnabarninu sem neitar að fara
að sofa. „Hann ákveður að deila
með barninu þessari „sönnu“ sögu
frá yngri árum sínum þegar hann
barðist við dreka og óvættir til að
finna ömmu. Sagan er mjög lifandi
því barnið er sífellt að grípa
inn í og spyrja spurn-
inga og þá þarf afi að
haga frásögninni eftir
því. Pabbi okkar var
alltaf duglegur að segja
okkur systkinunum
sögur þegar við vorum
lítil. Flestar voru þær
búnar til á staðnum og
fylgdu ekki hefðbundn-
um reglum í sagnagerð.
Þetta blundaði í mér í
rúma tvo áratugi þar til
ég ákvað loksins að prufa
mig áfram með þennan
sagnastíl.“
Bræðurnir munu lesa upp úr
bókum sínum í dag auk þess sem
boðið verður upp á þjóðlegar
veitingar; harðfisk, piparkökur, flat-
brauð með hangikjöti og malt og
appelsín. Fyrstu þrír afarnir sem
koma og heilsa upp á Guðna fá fría
bók og fyrstu þrír sem koma í lopa-
peysu fá fría bók frá Ævari. „Svo
verður boðið upp á happdrætti þar
sem bækurnar verða í verðlaun
þannig að þetta verður mikið stuð
og bara gaman. Við hvetjum alla
til að mæta, það er ekkert víst að
þetta gerist aftur.“
DREKAR, UPPVAKNINGAR OG
STÓRHÆTTULEGIR HEIMAR
FORLAGIÐ KYNNIR Bræðurnir Guðni Líndal og Ævar Þór halda sameiginlegt útgáfuhóf í Eymundsson í Kringlunni í dag.
SKAPANDI BRÆÐUR Ævar Þór og Guðni Líndal halda sameiginlegt útgáfuhóf í dag.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Geir Gunnar Markússon, næringarfræðingur HNLFÍ setur málþingið.
Ávarp: Gunnlaugur K. Jónsson, forseti NLFÍ.
Fundarstjóri: Haraldur Erlendsson, forstjóri og yfirlæknir á Heilsustofnun NLFÍ.
Berum ábyrgð á eigin heilsu
Hvítt hveiti
Skaðvaldur og næringarlaus orkugjafi?
Náttúrulækningafélag Íslands efnir
til málþings á Icelandair hótel Reykjavík
Natura, Þingsal 1, þriðjudaginn
21. október 2014 kl. 19:30.
• Er hvítt hveiti ofnæmisvaldur?
• Er glúten slæmt fyrir meltinguna?
• Hvernig er hvítt hveiti unnið?
• Hver er munur á spelti og hveiti?
• Lífrænt korn eða hefðbundið?
Er hveiti bara hveiti? Hvað segir meltingin?
Sigurjón Vilbergsson, lyflæknir og meltingasérfræðingur.
Að vera eða vera ekki óþolandi hveiti,
það er spurningin
Dr. Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor og yfirlæknir,
ónæmisfræðideild LSH.
Glútenóþol, hveitiofnæmi, Seliak og glútenóþolssamtök Íslands
Ösp Viðarsdóttir, næringarþerapisti og Birna Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
Lífrænn bakstur
Sigfús Guðfinnsson, bakarameistari, Brauðhúsinu Grímsbæ.
Reynslusaga
Þorleifur Einar Pétursson, flugmaður.
Hveitilaus matargerð
Sólveig Eiríksdóttir, GLÓ.
Pallborðsumræður
Allir velkomnir.
Aðgangseyrir 2.000 kr.
Frítt fyrir félagsmenn.
Sigurjón Vilbergsson Björn Rúnar Lúðvíksson
Birna Óskarsdóttir Ösp Viðarsdóttir
Sigfús Guðfinnsson Þorleifur E. Pétursson
Haraldur Erlendsson Sólveig Eiríksdóttir