Fréttablaðið - 18.10.2014, Side 53
@
@
Óskum eftir rafvirkjum Næg verkefni framundan
Almennar raflagnir, þjónustusamningar við fyrirtæki og stofnanir,
tölvu og ljósleiðaralagnir, töflusmíði á verkstæði.
Spennandi störf sem henta bæði konum og körlum.
Rafholt ehf. er framsækið fyrirtæki sem starfar á útboðsmarkaði og í þjónustu
við fyrirtæki og stofnanir.Boðið er upp á mjög góða aðstöðu fyrir starfsmenn.
Öflugt starfsmannafélag er starfrækt hjá fyrirtækinu.
Umsóknir ásamt ferilskrá
sendist til helgi@rafholt.is
Starf yfirlæknis við endurhæfingardeild LR er laust til umsóknar.
Um fullt starf er að ræða og veitist það frá 1. desember
2014 til 5 ára í samræmi við stefnu Landspítala um ráðningu
yfirmanna. Umsækjendur skulu hafa sérfræðiviðurkenningu í
geðlækningum og víðtæka reynslu af meðhöndlun einstaklinga
með geðrofssjúkdóma.
Endurhæfing LR býður upp á sérhæfða meðferð og endur-
hæfingu fyrir einstaklinga á aldrinum 18-25 ára með byrjandi
geðrofssjúkdóm með snemmíhlutun í þróun geðsjúkdóms að
markmiði.
Helstu verkefni og ábyrgð
» Yfirlæknirinn stýrir geðrofsteymi geðsviðs.
» Áhersla er lögð á uppbyggingu og þróun snemmíhlutunar
geðrofssjúkdóma.
» Yfirlæknir ber ábyrgð á greiningu, meðferð og eftirfylgd
þessa sjúklingahóps.
» Hann vinnur í fjölfaglegu teymi og handleiðir meðal
annars málastjóra.
» Hann sér um fræðslu og kennslu til fagaðila,
þjónustuþega og aðstandenda um geðrofssjúkdóma og
mikilvægi snemmíhlutunar.
» Yfirlæknirinn ber ábyrgð gagnvart framkvæmdastjóra
geðsviðs.
Hæfnikröfur
» Stjórnunarreynsla, leiðtogahæfileikar og framúrskarandi
samskiptahæfni skilyrði.
» A.m.k. 5 ára starfsreynsla
» Yfirgripsmikil þekking á hugmyndafræði um
snemmíhlutun geðrofssjúkdóma skilyrði.
» Reynsla af málastjórnun og geta til að handleiða
málastjóra.
» Reynsla af kennslu og vísindavinnu í faginu.
Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun
Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið
rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum.
Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala.
Nánari upplýsingar
» Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2014.
» Starfshlutfall er 100%.
» Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr.
yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags.
2 maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006.
» Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu
berast til Maríu Einisdóttur, framkvæmdastjóra geðsviðs
34A við Hringbraut.
» Allar umsóknir eru sendar til mats hjá stöðunefnd
lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við
umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið
einnig á þeim.
» Fylla þarf út lágmarksupplýsingar á almenna umsókn og
setja viðhengi, en ítarlegri upplýsingar fyllist út í umsókn
fyrir læknastöðu, sjá vef Landlæknis.
» Upplýsingar veita Sigríður Edda Hafberg, mannauðs-
ráðgjafi, shafberg@landspitali.is, sími 543 4453 og
Hallbera Stella Leifsdóttir, læknaritari, hallalei@landspitali.is,
sími 543 4077.
Yfirlæknir geðrofsteymis
Laugaráss
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu íslenska ríkisins en lýtur sérstakri stjórn. Seðlabankinn
fer með stjórn peningamála á Íslandi og er meginmarkmið hennar stöðugleiki í verðlagsmálum. Seðla-
bankinn skal ennfremur sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem
að varðveita gjaldeyrisvarasjóð og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu
og við útlönd.
Laust starf hjá Seðlabanka Íslands
Sérfræðingur í reikningshaldi - tímabundið starf
Nánari upplýsingar veitir Erla Guðmundsdóttir forstöðumaður reikningshalds. Sími 569-9600.
Umsóknir gilda í sex mánuði. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun
bankans. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Umsóknarfrestur er til og með 3. nóvember 2014.
Seðlabanki Íslands óskar eftir að ráða sérfræðing í tímabundið starf á fjárhagssvið bankans.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík.
Fjárhagur hefur umsjón með fjárhagsupplýsingum bankans og félögum í eigu hans. Starfsemi sviðsins skiptist í tvær einingar,
reikningshald og bakvinnslu.
Helstu verkefni og ábyrgð Hæfnikröfur
Sérfræðingur í verðvísitölum
Vísitöludeild Hagstofu Íslands sér um útreikning verðvísitalna, úrvinnslu
útgjalda rannsóknar og alþjóðlegan verðsamanburð. Starfið felur í sér vinnu við
mælingu og útreikning verðvísitalna og annarrar verðtölfræði. Þar má nefna vísitölu
byggingar kostnaðar, vísitölu framleiðsluverðs og vísitölu neysluverðs. Starfið felur
að auki í sér samskipti við gagnaveitendur, meðhöndlun stórra gagnasafna, þátttöku
í þróun aðferða og framleiðsluferla og þjónustu við notendur. Viðfangsefnin eru
fjölbreytt og fela í sér mikil samskipti við innlenda og erlenda aðila.
Hæfniskröfur
Háskólapróf í verkfræði, stærðfræði, hagfræði eða önnur sambærileg
menntun sem nýtist í starfi
Þekking á vinnslu gagnagrunna (t.d. SQL/Access) er æskileg
Reynsla af tölfræðilegri úrvinnslu
Forritunarkunnátta er kostur
Geta til að vinna sjálfstætt, skipulega og undir álagi
Góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Hagstofa Íslands er miðstöð
opinberrar hagskýrslugerðar
á Íslandi. Hlutverk hennar
er að vinna hlutlægar
hagskýrslur, hafa forystu
um sam hæfingu hagtalna,
stunda rannsóknir og stuðla
þannig að upplýstri umræðu
og faglegum ákvörðun um.
Umsóknarfrestur er til 3. nóvember 2014.
Um er að ræða fullt starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt kjara samningi fjármálaráðuneytis og hlut aðeigandi stéttar-
félags. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið
tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknar frestur rennur út.
Póstáritun Hagstofa Íslands, starfsumsókn, Borgartúni 21a, 105 Reykjavík
Netfang starfsumsokn@hagstofa.is
Upplýsingar Helga Hauksdóttir [helga.hauksdottir@hagstofa.is]
Borgartúni 21a · 105 Reykjavík
Sími: 528 1000 · Bréfasími: 528 1099
www.hagstofa.is
Hagstofa Íslands
óskar eftir að ráða metnaðarfullan
og áhugasaman starfsmann