Fréttablaðið - 18.10.2014, Síða 74

Fréttablaðið - 18.10.2014, Síða 74
18. október 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson bíður spenntur eftir nýjustu tíðindum frá Gunung Pad- ang en þar er verið að grafa eitthvað afar óvænt upp úr frum- skógar- moldinni. lingsaldri, Svisslendinginn sem leitaðist við að sanna að verur frá öðrum hnöttum hefðu leikið lausum hala á Jörðinni fyrrum og hefðu í þjóðsögum okkar orðið að máttugum guðum, og ég skemmti mér líka löngu seinna alveg ágætlega við að lesa eina eða tvær bækur eftir Graham Hancock sem skrifaði bráðfjöruga bók um háþróað menningarríki sem hann fullyrðir að hafi verið á Suðurskautslandinu fyrir tugþúsundum ára en svo horfið á undra- skjótum tíma í ísinn eftir pólskipti – en þótt þeir félagar skrifuðu líflegar bækur og settu fram svo frumlegar kenningar að þær glöddu nýjungagirnina og hina ævintýralegu hugsun, þá vissi ég fullvel að þær voru og eru bara bull. Enginn söguáhugamaður með sjálfs- virðingu getur til dæmis tekið minnsta mark á Hancock. Við þekkjum fortíðina og söguna í stórum dráttum og héðan af mun ekkert hagga alvarlega því sem við vitum. Ég les og les en allur sá lestur eru ekki annað en mjúkar pensilstrokur til að fylla upp í myndina sem fyrir er, nýjar myndir verða ekki málaðar á minni vakt. Eða hvað? Er nú hið ótrúlega einmitt að ger- ast? Nýtt og áður óþekkt menningarríki fund- ið? Getur virkilega verið að nú þurfi menn að fara að endurskrifa sögubækurnar? Ekki náttúruleg hæð– heldur mannvirki Nú víkur sögunni til Indónesíu, nánar til- tekið á eyjuna Jövu. Í frumskóginum vestar- lega á eyjunni er hæð ein og efst á hæðinni nokkrir drangar sem bersýnilega hafa verið höggnir til. Fyrir réttum hundrað árum var athygli fræðimanna vakin á þessum stað og drangarnir efst á hæðinni voru rannsakaðir lauslega. Þeir reiknuðust vera um það bil þús- und ára gamlir en þá hafði fyrir allnokkru risið á Jövu fyrsta menningarríkið þar sem verk- og byggingarkunnátta var nægilega mikil að menn hefðu getað reist og höggv- ið til slíka dranga. Innfæddir í skógunum í kring sögðu fræðimönnum að þessi hæð héti Gunung Padang sem þýðir „fjall birtunnar“ eða „fjall upplýsingarinnar“ og fullyrtu að hún væri ekki náttúruleg, heldur mannvirki, og hefði verið reist þegar þjóðsagnakóngur einn gerði tilraun til að reisa sér höll á einum degi. Fræðimenn sáu fljótlega ýmis merki um framkvæmdir og mannvirki við hæðina, upp á hana liggja til dæmis miklar tröppur úr stórum steinum, en þeir töldu þó af og frá að hinir innfæddu gætu haft rétt fyrir sér um að öll hæðin væri eitt mannvirki, enda er hún nærri 100 metrar á hæð og umfangs- ÞURFUM VIÐ AÐ HENDA SÖGUBÓKUNUM? Brátt varð ekki litið framhjá aug- ljósri hugmynd sem varkárir fræðimenn reynt eftir megni að streitast gegn, sem sé að Gunung Pad- ang væri í rauninni stór og myndar- legur píramídi, stallapíramídi svokallaður, en slík mannvirki má finna um veröld víða og eru komin aftan úr grárri forneskju. Ég gæti vel hafa minnst á það áður en þegar ég var strákur og fór að lesa mannkynssögu fannst mér stund-um að ég hefði fæðst of seint. Það væri búið að þefa upp allt hið helsta í fortíð okkar. Ég gæti því miður ekki búist við því að verða einhvern tíma á ævinni alveg þrumu lostinn, já, alveg stand- andi hlessa og bit, yfir nýjum uppgötvunum aftan úr einhverri grárri forneskju, allt í einu kæmi eitthvað upp úr dúrnum sem kollvarp- aði algjörlega fyrri vitneskju, allt í einu væri grafið upp úr fáfarinni eyðimörk heilt menn- ingarríki áður óþekkt, allt í einu væru allar fjölfræðibækurnar mínar um mannkynssögu úreltar og þyrfti að skrifa þær upp á nýtt. Engum slíkum umbyltingum gæti ég búist við, jafnvel ekki þótt það fyndist gamla bóka- safnið í Alexandríu og reyndist hafa varðveist heilt og óskemmt einhvers staðar, jafnvel þá myndi öll hin nýja þekking ekki gera annað en fylla út í þá mynd sem við höfum þegar gert okkur af fortíðinni, ekkert alveg splunkunýtt yrði að finna í því bókasafni því svo vönduð og ítarleg væri mynd okkar af sögunni nú þegar. Í þrá eftir hinu óþekkta, eftir nýjum bylt- ingarkenndum uppgötvunum hef ég stund- um látið eftir mér að lesa verulega frumleg- ar útlistanir á sögu okkar og fortíð – ég las Erich von Däniken mér til gamans á ung- FJALL BIRTUNNAR Innfæddir í skógunum í kring sögðu fræðimönnum að þessi hæð héti Gunung Padang sem þýðir „fjall birtunnar“ eða „fjall upplýsingarinnar“ og fullyrtu að hún væri ekki náttúruleg. mikil sem því nemur. Og varð svo ekki af öllu meiri rannsóknum við Gunung Padang í bili. En svo leið og beið. Smátt og smátt fóru menn að rífa upp og ryðja burt meira af frumskógargróðrinum sem huldi hæðina og æ fleiri ummerki um mannvirkjagerð komu í ljós bæði á hæðinni sjálfri og í næsta nágrenni. Og að fræðimönnum fór að læðast grunur um að innfæddir kynnu að einhverju leyti að hafa rétt fyrir sér, efst á hæðinni hefðu kannski verið einhverjar steinbygg- ingar sem seinna hefðu hulist jarðvegi og gróðri. Þeir fræðimenn sem komu að líta á Gunung Padang og djarfastir voru í ályktun- um slógu því föstu að mannvirkin á hæðinni gætu verið töluvert eldri en áður hafði verið talið, jafnvel frá því 1500 til 2000 fyrir Krist. Nokkur lög af byggingum En nú kemur til sögunnar maður að nafni Danny Natawadjaja. Hann er jarðfræðing- ur og vann við jarðvísindastofnun Indónes- íu þegar hann heillaðist af Gunung Padang. Hann fór á staðinn og horfði í kringum sig og hnusaði og potaði í jarðveginn og rann- sakaði og mældi steindrangana sem birst höfðu úr gróðurflækjunni, og svo brá hann bor sínum oní svörðinn og sendi í rannsókn sýnishorn af mold og grjóti sem borinn kom með upp á yfirborðið. Og bráðabirgðaniður- stöður hans gáfu nú æ betur til kynna að oní jarðveginum efst á hæðinni væru vissu- lega töluvert umfangsmeiri mannvirki en áður hafði verið talið. Þarna virtust vera nokkur lög af byggingum, hvert ofan á öðru, og brátt varð ekki litið framhjá augljósri hugmynd sem varkárir fræðimenn höfðu reynt eftir megni að streitast gegn, sem sé að Gunung Padang væri í rauninni stór og myndarlegur píramídi, stalla píramídi svo- kallaður, en slík mannvirki má finna um veröld víða og eru komin aftan úr grárri forneskju. Nú. Þetta er nú alveg þokkalega merkilegt í sjálfu sér. Enginn hafði áður haft minnstu hugmynd um að þarna inni í frumskógum á Jövu hefði verið við lýði svo háþróuð menn- ing að þar hefðu menn haft tæknikunnáttu til að reisa heilan píramída – hvað þá af þessari stærð, en sé öll hæðin manngerð, eins og margt bendir til, þá er sá píramídi sem þar leynist um það bil tveir þriðju af hæð stóra píramídans í Egiftalandi. Það er að segja með þeim allra hæstu í heimi, 20 metrum hærri en Hallgrímskirkja svo ég taki nærtækan samanburð. Elstu mannvirkin 29.000 ára gömul En þetta er þó ekki allt og sumt. Nú kemur nefnilega að því sem gerir mig að minnsta kosti verulega spenntan. Sá góði maður Natawadjaja hefur nefnilega látið kolefn- isgreina það sem komið hefur úr borun- um hans oní svörðinn á Gunung Padang og niðurstöðurnar eru vægast sagt óvæntar. Fyrst kom upp úr dúrnum að leifarnar efst úr píramídanum virtust vera frá því um 2500 árum fyrir Krist. Eða um nákvæm- lega sama leyti og píramídarnir stóru voru reistir í Egiftalandi. Það var nógu óvænt til að allar bjöllur færu að klingja. En síðan hafa æ fleiri aldursgreiningar frá Gunung Padang orðið æ villtari. Og „smíði“ píra- mídans sem þarna leynist greinilega undir hefur færst æ lengra aftur í grámósku tím- ans. Natawadjaja er djarfur maður og hug- myndaríkur og hefur haft gaman af að koma mönnum á óvart með niðurstöðum sínum en jafnvel honum er þó farið að blöskra. Nýjustu próf frá Gunung Padang benda nefnilega til þess að elstu mannvirkin á hæðinni kunni að vera 29.000 ára gömul! Og það er svo geggj- að að það getur eiginlega ekki staðist. Fyrir svo löngum tíma voru jafnvel hinir háþró- uðu menn á jörðinni enn safnarar og veiði- menn sem áttu engin verkfæri stórtækari en steinaxir – héldum við! Og höfðu hvorki færi né áhuga á að reisa nærri 100 metra háa píramída. Allra síst það fólk sem á Jövu bjó. Varkárir fræðimenn reyna að skýra nið- urstöður Natawadjajas með því að súr efni í eldfjallaöskunni á Jövu rugli aldursgrein- ingarprófin og því sé lítið að marka þau, en viðurkenna jafnframt að þarna sé eitthvað á seyði sem ekki verði skýrt með venjuleg- um ráðum og venjulegri sögu. Formlegur fornleifauppgröftur í Gunung Padang hófst í haust en var stöðvaður nú í byrjun október, því það þykir ljóst að þarna niðri í moldinni sé að finna eitthvað svo óvænt og furðulegt að undirbúa verði uppgröftinn betur. Þegar hann fer af stað á ný gætum við þurft að henda gömlu sögubókunum okkar og skrifa sögu mannkynsins upp á nýtt. Ég játa að ég bíð spenntur. Ég lifi kannski þrátt fyrir allt á tímum bylting- arkenndra tíðinda. Það eina sem fær mig til að efast um að eitthvað sé merkilegt við Gunung Padang er hins vegar sú uggvæn- lega staðreynd að Graham Hancock er víst mættur á svæðið. Borðapantanir: 552 1630 Hverfisgata 56 Opið: sun.-fim. 17:30-22:00 og fös.-lau. 17.30-23.00 Í október galdra kokkarnir f ram eftirlætisrétti úr 20 ára reynslubrunni Austur-Indía. Ekta indverskt afmæli í j breyttum og glæsilegum veitingasalg ör a verður m eiri veislan! - þett m rétta hátíðarmatseðill: Fim 0 kr. 5.99 mán.-mið. og 6.990 kr. fim.-sun. rvalin v ín m eð mat á 4.990 k r. Sé g seiðandi afmæliskokteill á einum o uggulegasta bar l andsins á 1.500 kr.h Tryggðu þér sæti núna í s. 5 52 1630. www.austurindia.is BROT AF ÞVÍ BESTA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.