Fréttablaðið - 18.10.2014, Qupperneq 82
18. október 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 50TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför
EINARS VALS BJARNASONAR
læknis.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Lundi.
Fyrir hönd aðstandenda,
Else Bjarnason
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐRÚN ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR
Tröllakór 1, Kópavogi,
lést mánudaginn 13. október síðastliðinn
á Landspítalanum í Fossvogi. Jarðsungið
verður frá Digraneskirkju miðvikudaginn
22. október kl. 13.00.
Guðlaug S. Björnsdóttir Þór Magnússon
Guðjón Björnsson Friðrika A. Sigvaldadóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við andlát móður minnar,
ömmu og langömmu okkar,
HALLDÓRU Ó. SIGURÐARDÓTTUR
(DÓDÓ)
áður til heimilis að Hamarsbraut 10,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sólvangs fyrir alúð og umhyggju.
Sigríður Jústa Jónsdóttir Jón Eyvindur Bjarnason
Guðrún Bjarnadóttir Þórður Sturluson
Jökull Guðmundsson Harpa Kolbeinsdóttir
Jón Trausti Guðmundsson Selma Þórsdóttir
María, Sigríður, Logi, Auður, Valgerður og Emilía
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, dóttir og systir,
ELÍN BIRNA HARÐARDÓTTIR
lést á Landspítalanum miðvikudaginn
15. október. Útförin verður auglýst síðar.
Adolf Ársæll Gunnsteinsson
Björn Kristinn Adolfsson Guðrún Númadóttir
Jóhann Karl Adolfsson Bjarney Lára Sævarsdóttir
Júlía Lind Jóhannsdóttir
Halldóra K. Guðjónsdóttir
Katrín Ú. Harðardóttir Guðni B. Guðnason
G. Svafa Harðardóttir
Þórhallur G. Harðarson Brynja B. Rögnvaldsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð,
hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
systur, ömmu, langömmu
og langalangömmu,
BJARGAR ÁRNADÓTTUR
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Hlévangs, Keflavík, fyrir einstaklega góða
umönnun, hlýju og alúð. Guð blessi ykkur öll.
Jórunn Jónasdóttir
Árni Jónasson Birna Kolbrún Margeirsdóttir
Guðmundur Jónasson Ína Dórothea Jónsdóttir
Friðrik Árnason
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
OTTÓ GÍSLASON
Seljahlíð, heimili aldraðra,
áður Heiðnabergi 12,
lést á Vífilsstöðum laugardaginn 11.
október. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 23. október kl. 13.00.
Þórður Gísli Ottósson
Ingibjörg Ottósdóttir Guðjón Hreiðar Árnason
Anna Karólína Ottósdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1906 Sjö hús brenna á Akureyri og um áttatíu manns missa
heimili sín.
1913 Ljósahátíð er haldin á Seyðisfirði þegar rafveitan er vígð
og rafljós kveikt í fyrsta sinn.
1918 Þýskur kafbátur sökkvir togaranum Nirði suðvestur af St.
Kilda. Tólf manna áhöfn kemst í báta og er bjargað.
1954 Einar Jónsson myndhöggvari andast áttræður að aldri.
1968 John Lennon og Yoko Ono eru handtekin fyrir að hafa
eitur lyf undir höndum.
1989 Leiðtogi Austur-Þýskalands, Erich Honecker, er neyddur til
að segja af sér.
Á þessum degi árið 1980 heimsótti
Elísabet Englandsdrottning Páfagarð í
Róm á Ítalíu. Jóhannes Páll páfi annar
bauð hana og eiginmann hennar, Filippus
prins, hjartanlega velkomin.
Drottningin var klædd í síða svarta
kápu samkvæmt reglum Vatíkansins.
Blásið var í lúðra meðan hin konunglega
fylking gekk hægt inn í Klemensarsalinn
en páfinn tók á móti konungshjónunum
við innganginn að einkabókasafni sínu.
Páfinn afhenti drottningunni afrit af
handriti Dantes að Hinum guðdómlega
gleðileik en fékk í staðinn bók um
Windsor-kastala og tvær áritaðar myndir
af drottningunni.
Heimsókn drottningarinnar var álitin
stórt skref í samskiptum ensku biskupa-
kirkjunnar og kirkju rómversk-kaþólskra í
Bretlandi.
Tveimur árum síðar heimsótti Jóhannes
Páll páfi drottninguna í Buckingham-höll
á ferðalagi sínu um Bretland. Árið 2000
heimsótti drottningin Vatíkanið á ný til
að halda upp á að tuttugu ár voru frá því
að þau páfinn hittust fyrst.
ÞETTA GERÐIST: 17. OKTÓBER 1980
Drottningin heimsækir páfann
Listasafn Íslands fagnar 130 ára
afmæli sínu um þessar mundir.
Aðspurður segir Halldór Björn Run-
ólfsson safnstjóri það vera dásam-
legt að starfa þar. „Ég held að flest-
um starfsmönnum hérna finnist mjög
gaman að vinna hérna. Það má segja
að það séu ákveðin forréttindi að fá
að umgangast alla þessa list daglega,“
segir hann.
Listasafn Íslands á merkasta safn
íslenskra verka hér á landi eftir alla
helstu myndlistarmenn þjóðarinnar.
Safneignin er í dag um ellefu þúsund
verk og rúmast því aðeins hluti henn-
ar í núverandi salarkynnum safnsins.
„Það verður að segjast eins og er að
geymslur okkar eru löngu sprungnar.
Málverkasafnið er allt í húsinu og tölu-
vert af þessum gömlu verkum sem eru
í gylltu römmunum eru ekki geymd á
boðlegum stöðum,“ segir hann. „Þau
eru ofan í kjallara safnsins og þar
liggja rör nærri og svo er Tjörnin rétt
hjá. Það þarf ekki annað en lítið flóð,
þá er þetta í hættu.
Við þurfum að
stækka við okkur
og við stólum á að
við fáum úrlausn í
þeim efnum mjög
fljótlega.“
Safnið á sér að
baki merka sögu
en það var stofnað
í Kaupmannahöfn
árið 1884 af Birni
Bjarnarsyni lögfræðingi og stórhuga
listunnanda.
Hann stóð sjálfur fyrir söfnun verk-
anna í Kaupmannahöfn, fékk norræna
málara til að gefa verk til safnsins og
skipulagði fjársöfnun meðal Íslend-
inga til að kosta innrömmun þeirra og
flutning. Verk safnsins voru til sýnis í
Alþingishúsinu frá 1885 til 1950 þegar
það fluttist í safnahúsið við Suðurgötu
sem það deildi með Þjóðminjasafni
Íslands. Árið 1987 fluttist safnið að
Fríkirkjuvegi 7. Aðalbygging safns-
ins var reist sem íshús árið 1916 eftir
uppdráttum Guðjóns Samúelssonar en
nýbyggingin er verk Garðars Halldórs-
sonar, húsameistara ríkisins.
Afmælishátíð Listasafnsins heldur
áfram í dag og á morgun frá klukk-
an 11 til 17 og að sjálfsögðu eru allir
boðnir velkomnir. Í nóvember verða
svo opnaðar nýjar sýningar í safninu,
efnt til málþings um framtíð þess og
gefin út bók með völdum verkum úr
safneigninni. Nánari fregnir má finna
á Listasafn.is. freyr@frettabladid.is
Ellefu þúsund verk
í eigu Listasafnsins
Listasafn Íslands sem fagnar 130 ára afmæli sínu á að baki merka sögu. Safnið á merk-
asta safn íslenskra verka hér á landi eft ir helstu myndlistarmenn landsins.
LISTASAFN
ÍSLANDS Safnið
á sér merka sögu.
Það var stofnað
árið 1884 af
Birni Bjarnarsyni
lögfræðingi.
HALLDÓR BJÖRN
RUNÓLFSSON
➜ Fleiri erlendir lista-
menn en íslenskir
Fleiri erlendir listamenn en ís-
lenskir eiga verk á Listasafni Íslands.
Ástæðan er sú að þegar safnið var
stofnað voru engir íslenskir listamenn
starfandi og því voru verk m.a. frá
dönskum listamönnum keypt í safnið.
Af þeim 11 þúsund verkum sem eru
núna í eigu safnsins eru 1.100 erlend.