Fréttablaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 92
18. október 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 60
LAUGARDAGUR
SUNNUDAGUR
Sérfræðingar þér við hlið
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
18. OKTÓBER
Tónleikar
17.00 Orgeltónleikar í Hafnarfjarðarkirkju.
Mark Anderson leikur á bæði orgel
kirkjunnar.
20.00 Leikararnir Kristjana Skúladóttir og
Þór Breiðfjörð halda skemmtilega sýningu
ásamt dóttur þeirra, píanóleikaranum Aðal-
heiði Þorsteinsdóttur. Fer fram í Salnum í
Kópavogi. 3.900 krónur inn.
21.00 Hilmar Jensson spilar í Mengi í kvöld.
Ferskur spuni á rafmagnsgítar, góð hljóð og
óhljóð í mátulegum hlutföllum.
21.00 Hin sígilda hljómsveit Þokkabót
kemur fram á Café Rósenberg í kvöld.
22.00 Þriðji hluti tónleikaseríunnar Skriðið
úr skelinni á Hansen Bar í Hafnarfirði.
Svenni & Krissi, Fox Train Safari og Kvika
troða upp.
22.00 Í kvöld munu Endless Dark, We Made
God og Icarus halda magnaða tónleika-
veislu á Gauknum. Miðaverð er 1.000 kr.
Ekki missa af happy hour á milli 21 og 22.
22.00 Young Karin & Hermigervill koma
saman til þess að gleðja og kæta lands-
menn á Húrra 18. október. Kostar kr. 1.000
inn. Young Karin byrjar, svo tekur við
Hermigervill við og kvöldið klárast svo með
DJ setti frá Benna B-Ruff og Loga Pedro.
22.00 Í tilefni áttundu LP-plötu Todmobile
leggur hljómleikasveitin land undir fót með
viðkomu á Græna Hattinum sem er uppá-
haldstónleikastaður Todmobile. Öll bestu
lögin eins og Pöddulagið, Brúðkaupslagið,
Spiladós, Stelpurokk og Eldlagið í bland við
nýju smellina eins og Úlfur, Gleymér ei og
Hér og nú. 3500 krónur inn.
23.00 Mannakorn fagnar 40 ára starfsaf-
mæli sínu í ár. Því er blásið til sannkallaðrar
veislu tóna og texta í Menningarhúsinu
Hofi í kvöld. Gömlu félagarnir með þá
Magga og Pálma í fararbroddi, ásamt
Ellen Kristjánsdóttur og einvala liði
hljómlistarmanna sér við hlið munu
renna í alla helstu smellina í bland við
ýmsa gullmola frá löngum og farsælum
ferli. 7.990 krónur inn.
23.00 Ingvar Grétarsson og félagar leika og
syngja á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8 í
kvöld. Aðgangur er ókeypis.
Leiklist
14.00 Tjarnarbíó kynnir nýtt íslenskt
leikverk í uppsetningu leikhópsins 10
fingur, Lífið, eftir sömu listamenn og
gerðu leiksýninguna Skrímslið litla systir
mín. Charlotte Böving og Helga Arnalds
eru listrænir stjórnendur. Margrét Kristín
Blöndal semur tónlist.
How to become Icelandic in 60 min,
sýning á ensku flutt af Bjarna Hauki
Þórssyni. Fer fram í Kaldalóni í Hörpu og
kostar 4.200 krónur inn.
Umræður
14.00 Skúli Pálsson heldur heimspeki-
kaffihús, Skipulag eða glundroði, á
Veitingahúsinu Horninu í dag. Hvort
er heimurinn skipuleg heild eða
óútreiknanlegur glundroði? Hvernig sér
maður muninn? Hvernig gengur þér að
skipuleggja líf þitt?
Uppákomur
13.30 Langar þig að vera í tónlistarmynd-
bandi? In The Company Of Men mun
taka upp tónlistarmyndband við lagið
„Lost In Black“ í dag. Mætið upp úr kl.
13.00 á Hverfisgötu 42 til að taka upp
massívt þakpartí. Verið tilbúin að dansa,
rokka og hreyfa ykkur mikið. Pizzur í boði.
Uppistand
22.00 Rökkvi Vésteinsson skemmtir
lýðnum á Fjalakettinum í kvöld en
galdramaðurinn og grínistinn Jón Víðis
kemur fram eftir á. Fer fram á ensku.
Leiðsögn
11.00 Í tilefni af Lestrarhátíð í Reykjavík
mun Guttormur Þorsteinsson, bókavörður
í Kringlusafni, leiða bókmenntagöngur um
Kringluna í dag. Rölt verður um Kringluna
og lesið upp úr skáldsögum, örsögum og
ljóðum sem tengjast verslunarmiðstöðinni.
Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Fyrirlestrar
13.30 Félag um átjándu aldar fræði
heldur málþing undir yfirskriftinni Lof
og last um Ísland og Íslendinga á átj-
ándu og nítjándu öld í Þjóðarbókhlöðu,
fyrirlestrasal á 2. hæð.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
19. OKTÓBER
Tónleikar
13.15 Jazz í hádeginu í Gerðubergi í dag.
16.00 Á sunnudag verða flutt þekkt
dægurlög sem urðu vinsæl í flutningi
Öddu Örnólfs og fleiri í Salnum í Kópavogi.
Söngvarar eru Einar Clausen tenór og
Ragnhildur Þórhallsdóttir sópran, dóttir
Öddu. Hljómsveit skipa þau Lilja Egg-
ertsdóttir á píanó og klukkuspil, Grímur
Helgason á klarinett, Guðbjörg Sigurjóns-
dóttir á harmonikku og Þórður Högnason
á kontrabassa. Lögin eru úr ýmsum áttum
og má þá nefna lög eins Vertu ekki að
horfa svona alltaf á mig, Manstu gamla
daga, Í Hallormsstaðaskógi, Indæl er æsku-
tíð (Bjössi á mjólkurbílnum) og fleiri góðar
perlur. Miðaverð er 3.500 eða 3.100 kr.
17.00 Andrea Jónsdóttir leikur og kynnir
lög af hljómplötum á Ob-La-Dí-Ob-La-Da,
Frakkastíg 8 á sunnudag. Aðgangur er
ókeypis.
20.00 Bjarni Ara syngur Elvis í Háskólabíói.
Miðaverð frá 6.900 krónum.
20.00 Baritónninn Jóhann Kristinsson
spilar fræg íslensk lög ásamt lögum eftir
Schubert, Schumann og Strauss, og aríur
eftir Wagner og Leoncavallo í Hörpunni
í kvöld.
20.00 Sveppi og Villi halda risatónleika
sína í Háskólabíói í kvöld.
21.00 Lowercase nights kynnir raftón-
listarmanninn O|S|E| eða Sindra Geirsson.
Þekktur fyrir tilraunakennda takta og
drunuhljóð.
Listasmiðja
10.00 Opin smiðja fyrir börn í tengslum
við sýninguna A posteriori: Hús, högg-
mynd sem nú stendur yfir í Ásmundar-
safni. Umsjón með listsmiðjunni hefur
Emma Lindahl myndlistarmaður og list-
greinakennari. Hús og skúlptúr, leikur með
efni er opin smiðja fyrir 7 ára og eldri
börn. Þátttakendum smiðjunnar er boðið
að vinna í fjölbreytt efni og verkefnið er
að búa til módel sem gæti verið hús og
skúlptúr í einni heild. Börn yngri en 7 ára
í umsjón forráðamanna eða eldri systkina
eru velkomin, en þátttakendur þurfa að
skrá sig fyrirfram á listasafn@reykjavik.is.
Kvikmyndir
21.00 Þynnkubíó Priksins fer fram í kvöld.
Uppákomur
13.00 Fjölskyldunefnd Stúdentaráðs
Háskóla Íslands stendur fyrir Fjölskyldu-
deginum mikla í samstarfi við Lands-
bankann á Háskólatorgi. Pollapönk mun
skemmta börnum og fullorðnum. Einnig
verður boðið upp á margvíslegar uppá-
komur eins og Sprengjugengið og lítið
útibú Bangsaspítala. Hoppukastali fyrir
börnin.
Tónlist
21.00 Trúbadorinn Danni treður upp á
English Pub í kvöld.
22.00 DJ Kristinn Pálsson spilar á Kaffi-
barnum í kvöld.
Leiðsögn
15.00 Á sunnudag tekur Ívar Valgarðs-
son myndlistarmaður þátt í leiðsögn og
ræðir við gesti um verk sín á sýningunni
Rás, sem nú stendur yfir í Hafnarborg en
sýningunni lýkur nú um helgina.
Samkomur
14.00 Félagsvist í Breiðfirðingabúð á
sunnudag. Allir velkomnir.
19.00 Spilað verður bridge í Breiðfirðinga-
búð á sunnudag.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is