Fréttablaðið - 18.10.2014, Side 100
18. október 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 68
Það var um miðnætti í skuggalegu stræti í úthverfi Malagaborgar. Ég er að leiða
aldraðan tengdaföður minn gegnum ljóslaust
öngstrætið þegar maður birtist, svo ógæfu-
legur að hann minnir helst á Mörtu Maríu í
mannfræðirannsókn. Gamli karlinn er vel til
hafður með fullt seðlaveski inná sér, drag-
haltur einsog sjóræningi og ég illa að mér í
átökum við uppdópaða. Það var því kannski
að hlaupa á snærið hjá ógæfumanninum.
Hjartað berst um í brjósti mér.
ÉG verð þó að fá að útskýra hvað ég var
að þvælast þarna með jarðyrkjubónda á
níræðisaldri sem kann helst ekkert við sig á
stöðum þar sem ekki er hægt að setja niður
útsæði eða slá ólífur úr tré. Málið var að
við vorum að koma af knattspyrnuleik
en borgin fyllist af bullum og bílum við
slík tækifæri svo ég varð að leggja
bílnum langt frá leikvanginum og
sóttist okkur ferðin að honum seint.
ÞEGAR ógæfumaðurinn er kominn
upp að okkur gríp ég um hönd gamla
mannsins og greikka sporið. „Eigið
þið ekki pening að gefa mér?“ mælir
hann uppljómaður af ólyfjan. Hjartað
í mér tekur kipp. Hann gæti hvað úr hverju
herjað á þann gamla, rifið af honum jakkann
eða jafnvel rotað hann. Og ég sem hef aldrei
ráðist á mann.
ALLT í einu spyr jarðyrkjubóndinn: „Þú
ert ekki héðan, er það?“ „Nei, ég er kominn
langt að,“ svarar beiningamaðurinn. „Já, mér
fannst þú dökkur á hörundið,“ segir sá gamli
sem er alveg laus við tepruskap kenndan
við pólitíska rétthugsun. Svo setur hann upp
samúðarsvip og spyr: „Og er enga vinnu að
fá?“ Nei, nei, henni var ekki fyrir að fara. „Og
hvar býrðu?“ spyr sá gamli. „Ég halla höfði
undir brúnni hér fyrir neðan.“ Jarðyrkju-
bóndinn verður þá illur á svip. „Þetta er ekki
hægt. Sko, Rajoy sagðist ætla að bæta ástand-
ið ef hann yrði kosinn og svo hefur hann ekk-
ert gert. Bara ekki baun, þetta er hræðilegt.“
ÉG hvísla því að tengdó að fara að kveðja
manninn en hann átti þá eftir að segja honum
frá búháttum í gamla daga þegar bestíur,
verkfæri og berar hendur voru látin vinna
verkin. Þá var næga vinnu að hafa.
EF hagur útigangsmannsins vænkar sendir
hann tengdó örugglega jólakort um næstu jól.
Með tengdó í skuggasundi
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Hipphopptvíeykið Run the
Jewels, taktsmiðurinn og rapp-
arinn El-P og rapparinn Killer
Mike, ætla að endurgera nýju
plötuna sína RTJ2 með engu
nema kattarhljóðum.
Þeir kappar eru miklir húmor-
istar og auglýstu á heimasíðu
sinni í ár að þeir myndu bjóða
upp á „Meow the Jewels“ pakk-
ann fyrir 40.000 Bandaríkjadali
eða um það bil fimm milljónir
íslenskra króna. Því var einhver
sniðugur aðdáandi sem stofnaði
til hópsöfnunar á Kickstarter
fyrir verkefninu.
„Ertu virkilega að segja mér
að ef ég safna 40.000 dölum, þá
geti ég heyrt rappplötu sem er
öll búin til með kattarhljóðum?
ÁSKORUN TEKIÐ,“ segir á síð-
unni.
Söfnunin er nú komin langt
yfir 40.000 dala markið en
þegar þetta er ritað hefur 56.000
Bandaríkjadölum verið safn-
að fyrir verkefninu, sem er for-
dæmalaust í sögu rappsins.
„Meow the Jewels er besta rök-
semd gegn grasreykingum sem
ég hef heyrt, af því að það er í
alvörunni einhver sem ætlar að
fjármagna þetta,“ sagði El-P á
tónleikum í vikunni.
Fjölmargir frægir tónlistar-
menn munu taka þátt í verk-
efninu og leggja dúóinu lið, t.d.
söngkonan Zola Jesus sem spilaði
á Airwaves í fyrra, Geoff Barrow
úr Portishead og taktsmiðirnir
goðsagnakenndu The Alchemist,
Dan the Automator, Just Blaze og
Bauuer.
Söfnuðu fi mm milljónum til að
gera rappplötu úr kattarhljóðum
Hipphopptvíeykið Run the Jewels gefur út tvær útgáfur af sömu plötu, með og án kisuhljóða.
HÚMORISTAR Killer Mike og El-P sýna
sitt sanna eðli.
BORGRÍKI 2 - LAUGARDAG 5:50, 8, 10:10
BORGRÍKI 2 - SUNNUDAG 3:45, 5:50, 8, 10:10
KASSATRÖLLIN 2D 1:45, 3:50, 5:50
KASSATRÖLLIN 3D 1:45
GONE GIRL 10
DRACULA UNTOLD 8, 10:20
WALK AMONG TOMBSTONES 5:40, 8
SMÁHEIMAR 2D 1:40, 3:40
-T.V., biovefurinn
-EMPIRE
ÍSL TAL
ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
Sími: 553-20755%
Allir borga barnaverð
BORGRÍKI 2 KL. 5.45 - 8 - 10.10
BORGRÍKI 2 LÚXUS KL. 1 - 3.30 - 5.45 - 8
GONE GIRL KL. 4.45 - 8 - 10.30
GONE GIRL LÚXUS KL. 10.10
DRACULA KL. 10.45
THE EQUALIZER KL. 8
THE MAZE RUNNER KL. 5.30 - 8
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL.1 - 3.15 - 5.30
KASSATRÖLLIN 3D ÍSL TAL KL. 1 - 3.15
SMÁHEIMAR 2D KL. 1 - 3.15
AÐ TEMJA DREKANN SINN ÍSL TAL 2D KL. 1
BORGRÍKI KL.5.45 - 8 - 10.10
GONE GIRL KL. 5.45 - 9
THE EQUALIZER KL. 10.15
BOYHOOD KL. 9
PARÍS NORÐURSINS KL. 3.30 - 5.45 - 8
VONARSTRÆTI KL. 6
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL 2D KL.3.30
KASSATRÖLLIN 3D ÍSL TAL KL 3.30
SMÁHEIMAR 2D KL. 3.30
- EMPIRE
- TIME OUT
-T.V., BIOVEFURINN
BYGGÐ Á SAMNEFNDRI METSÖLUBÓK
MYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
BRÁÐSKEMMTILEG M YND
FYRIR ALLA F JÖLSKYLDUNA
IL
F I LL F L L
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
LEIKSTJÓRI TALSETNINGAR RÓSA GUÐNÝ
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR
THE CONJURING
THE FRIGHT FILE
FRÁBÆR GRÍNMYND FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA MEÐ STEVE CARELL
ROBERT DOWNEY JR. ROBERT DUVALL
NEW YORK OBSERVER TOTALFILM.COM
ROBERT DOWNEY JR OG ROBERT DUVALL FARA Á KOSTUM
Í FRÁBÆRRI MYND SEM KEMUR SKEMMTILEGA Á ÓVART
Meow the Jewels er
besta röksemd gegn
grasreykingum sem ég
hef heyrt.
- El-P