Fréttablaðið - 11.03.2015, Síða 10
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Umsóknarfrestur 1. apríl
Æskulýðs-
sjóður
Mest seldu
sendibílar
Evrópu
Gríðarsterk sendibílalína Ford
Ford hefur hlotið titilinn Sendibíll ársins –
International Van of the Year árin 2013 og 2014.
Í áratugi hafa fyrirtæki sett traust sitt á styrk,
virkni og áreiðanleika Ford Transit enda
mest seldu sendibílar Evrópu síðustu 40 ár.
Ford Transit Connect, EcoBoost bensín 100 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 5,6 l/100 km. CO2 losun 129 g/km. Verð með bensínvél frá 2.950.000 m/vsk.
Ford Transit Connect, 1,6TDCi dísil 75 hö. beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,4 l/100 km. CO2 losun 115 g/km. Verð með dísilvél frá 3.210.000 m/vsk.
Ford Transit Custom, 2,2TDCi dísil 100 hö., 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 6,9 l/100 km. CO2 losun 183 g/km. Verð frá 4.330.000 m/vsk.
Ford Transit Van, 2,2TDCi dísil 125 hö. 6 gíra beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 7,3 l/100 km. CO2 losun 194 g/km. Verð frá 5.495.000 m/vsk.
Tökum allar tegundir bíla upp í nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
FORD TRANSIT CUSTOM
FR
Á
FORD TRANSIT VAN
FR
Á
FORD TRANSIT CONNECT
FR
Á 2.379.032 3.491.935 4.431.452
ford.is
ÁN VSK
KR. KR. KR.
ÁN VSK
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga 12-16.
ÁN VSK
Kíktu í kaffi og spjall. Í sameiningu finnum
við hagstæða fyrirtækjalausn fyrir þig.
Brimborg er stærst í sölu atvinnubíla á Íslandi.
Veldu traust umboð með einstöku þjónustu-
framboði fyrir bíla- og tækjaflota.
BRETLAND Philip Hammond, utan-
ríkisráðherra Breta, segir nóg
komið af þeirri gagnrýni á leyni-
þjónustuna vegna njósnastarfsemi,
sem Edward Snowden ljóstraði upp
um. Nú sé kominn tími til að leyfa
leyniþjónustunni að sinna störf-
um sínum án þess að láta þessa
umræðu trufla sig.
Þetta sagði hann á breska
þinginu í gær, þar sem rætt var
meðal annars um aðgerðir til að
hamla gegn því að breskir ríkis-
borgarar gangi til liðs við hryðju-
verkasamtök erlendis.
Hammond boðaði frumvarp,
sem hann ásamt David Cameron
forsætisráðherra og Theresa May
innanríkisráðherra mun leggja
fram á næsta þingi, sem veitir
leyniþjónustunni þær heimild-
ir sem hún þarf á að halda. Jafn-
framt eigi að tryggja skýrt eftir-
lit með starfsemi hennar. Þar með
eigi umræðunni um þessi mál að
geta lokið.
Undanfarið hefur mikil umræða
verið í Bretlandi um ungt fólk,
sem farið hefur til Sýrlands til að
ganga þar til liðs við vígasveitir
Íslamska ríkisins. Fullyrt hefur
verið að böðullinn, sem myrt hefur
gísla í Sýrlandi, sé breskur og heiti
Mohammed Emwazi. Einnig hafa
borist fréttir af þremur breskum
unglingsstúlkum, sem farið hafi
frá Bretlandi til Sýrlands í þeim
tilgangi að giftast þar liðsmönnum
Íslamska ríkisins.
Innanríkismálanefnd breska
þingsins kallaði til yfirheyrslu
í gær feður stúlknanna þriggja.
Einnig ræddi nefndin við Mark
Rowley, sem er yfirmaður í lög-
reglunni í London. Hann upplýsti
þar að 87 manns, sem tilkynnt var
um að hefðu horfið á síðasta ári,
hafi að mati lögreglunnar líklega
farið úr landi. Þar af séu 26 konur.
Rowley segir lögregluna telja að
stúlkurnar hafi fengið peninga til
að kaupa sér farmiða með því að
stela skartgripum frá fjölskyldum
sínum. Hann sagði samt engar vís-
bendingar enn hafa borist um að
þær hafi tekið þátt í hryðjuverka-
starfsemi. Snúi þær aftur til Bret-
lands eigi þær enga málshöfðun
yfir sér.
Hammond notaði ræðu sína
meðal annars til þess að beina
spjótum sínum að þeim, sem hann
segir hafa ýtt undir það að fólk
gangi til liðs við hryðjuverkasam-
tök.
„Það fer ekkert á milli mála
að ábyrgðin á hryðjuverkum er
þeirra sem fremja þau. En mikil
ábyrgð hvílir einnig á þeim sem
verja þau,“ sagði hann
gudsteinn@frettabladid.is
Leyniþjónusta Breta
fái að starfa í friði
Utanríkisráðherra Breta segir nóg komið af gagnrýni á leyniþjónustuna. Nú eigi
hún að fá að sinna störfum sínum í friði. Hann boðar frumvarp um auknar heim-
ildir. Á breska þinginu voru umræður um aðgerðir gegn hryðjuverkastarfsemi.
PHILIP HAMMOND Utanríkisráðherra Bretlands segir nóg komið af umræðu um
uppljóstranir Snowdens. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
FRAKKLAND Franska lögreglan
hyggst rannsaka þyrlu slysið í Arg-
entínu, sem kostaði tíu manns lífið,
sem manndráp. Átta hinna látnu
voru Frakkar, þar af þrír frægir
íþróttamenn.
Slysið varð við upptökur á vin-
sælum sjónvarpsþætti, Dropped,
þar sem fylgst er með frægu fólki
sem skilið er eftir úti í óbyggðum
og þarf að bjarga sér sjálft. - gb
Rannsaka þyrluslysið í Argentínu sem manndráp:
Sorg í Frakklandi
Á SLYSSTAÐ Þrír hinna látnu voru
frægir franskir íþróttamenn.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1
0
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
7
-1
2
5
8
1
4
1
7
-1
1
1
C
1
4
1
7
-0
F
E
0
1
4
1
7
-0
E
A
4
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K