Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 14
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÁ DEGI
TIL DAGS
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
H
vað ætli hafi vakað fyrir útgerðunum sem ákváðu að
gefa einungis þingmönnum og þingmannsefnum Sjálf-
stæðisflokksins peninga fyrir síðustu kosningar? Þeir
sömu ákváðu að auki að styrkja nær eingöngu núverandi
stjórnarflokka, Framsóknarflokk og Sjálfstæðisflokk.
Réð góðvilji í garð frambjóðendanna för? Óneitanlega vekur athygli
að einungis þingmenn eða þingmannsefni Sjálfstæðisflokks fengu
peninga frá útgerðarfyrirtækjum. Er það tilviljun, eða ekki?
Og er það tilviljun að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur einn
beitt sér gegn breytingum á lögum um stjórn fiskveiða, og hefur haft
betur? Breytingar verða ekki gerðar, einmitt að kröfu þingflokksins.
Hvorki hér né annars staðar á
að fullyrða að útgerðin hafi með
peningagjöfunum keypt sér frið-
helgi, stuðning og haft þannig
áhrif á störf þingmanna.
Það var fréttastofa Ríkisút-
varpsins sem tók saman upp-
lýsingar um styrki útgerðarinnar
í landinu til stjórnmálaflokka og
stjórnmálamanna. Í úttektinni kom fram að nokkuð yfir 75 prósent
af þeim peningum sem gefnir voru til stjórnmálaflokka fóru til
núverandi stjórnarflokka. Í fréttinni sagði: „Þrjú fyrirtæki í sjávar-
útvegi styrktu Samfylkinguna um 900.000 krónur samtals. Eitt
fyrirtæki lét Pírata fá hundrað þúsund kall. Fjögur fyrirtæki styrktu
Bjarta framtíð um 325.000 krónur og eitt fyrirtæki styrkti Vinstri
græna um 250 þúsund krónur.“
Þetta er ekki mikið í samanburði við það sem stjórnarflokkarnir
fengu. Framsóknarflokknum fékk gefnar 7,4 milljónir króna, eða
36,6 prósent heildarstuðnings fyrirtækjanna, Sjálfstæðisflokkurinn
fékk rúmar sjö milljónir króna, eða tæp þrjátíu prósent af heildar-
greiðslum sjávarútvegsfyrirtækja til stjórnmálaflokkanna fyrir
kosningarnar vorið 2013.
Eðlilega vakna efasemdir þegar fjársterk fyrirtæki, sem eiga
mikið undir hvernig þingið og þingmenn starfa, veita peninga til
valinna þingmanna og flokka. Í okkar litla hagkerfi, kunningjasam-
félagi og fámenni getur mjög sterk staða fyrirtækja haft áhrif á það
fólk sem er kjörið til að taka ákvarðanir. Ekki þarf alltaf peninga til.
Útgerðin, drjúgur hluti hennar hið minnsta, hefur keypt mestan
hluta Morgunblaðsins. Engin launung er með eignarhaldið, það er
öllum ljóst. Hvort eigendur blaðsins hafa keypt það til að auðgast
eða til að koma á framfæri eigin hagsmunum er annað mál. Þau sem
efast um hlutleysi Morgunblaðsins geta hafnað blaðinu. Blaðið getur
vissulega haft áhrif, en það hefur ekki vald. Öðru máli gegnir um
þingmenn og stjórnmálaflokka. Þar er valdið.
Erfitt er að benda á að þiggjendur peninganna hafi misbeitt valdi
sínu í viðleitni sinni til að gera gefandanum til geðs. Það kemur ekki
í veg fyrir að spurningar vakni. Höfðu peningagjafir útgerðarfyrir-
tækja áhrif á afstöðu, til að mynda þingmanna Sjálfstæðisflokksins,
þegar þeir beittu óformlegu neitunarvaldi sínu og komu þannig í
veg fyrir að breytingar yrðu gerðar á lögum um stjórn fiskveiða?
Breytingar sem gefendur peninganna lögðust gegn.
Best er að trúa á það góða í manninum og að ekkert óeðlilegt eða
óheiðarlegt hafi verið gert. Samt verður að spyrja, voru gjafirnar
frjáls framlög eða fjárfestingar?
Útgerðir gáfu þingmönnum og flokkum peninga:
Frjáls framlög
eða fjárfestingar?
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
Ferðamannaiðnaðurinn á Íslandi er orð-
inn stærsti gjaldeyrisskapandi atvinnu-
vegur landsins. Um 80 prósent erlendra
ferðamanna segjast koma til Íslands
vegna einstæðrar náttúru landsins. Þar
trónir efst ósnortið hálendið. Hálendi
Íslands er því eitt og sér orðið ein af
mikilvægustu tekjuskapandi auðlindum
landsins, ásamt fiskistofnum og náttúru-
legum orkugjöfum. Það segir sig sjálft að
háspennumöstur og þjóðvegir passa illa
inn í þessa hálendismynd og myndu rýra
þá auðlind sem hálendið er.
Hvað snertir virkjanir á hálendinu
verðum við að vanda valið með tilliti til
þeirra gríðarlegu hagsmuni sem eru í
húfi. Möguleikarnir eru sem betur fer
margir og fjölbreyttir og því ætti að vera
hægt að komast að góðri niðurstöðu í
þeim efnum án þess að því fylgi stöðugt
römm pólitísk átök sem sundra þjóð-
inni. Slík átök eru sóun á tíma og orku
sem annars gæti farið í skynsamlega
umræðu.
Stjórnvöldum á hverjum tíma ber
skylda til að setja þessi mál í forgang
í samræmi við mikilvægi þeirra. Því
miður höfum við alls ekki staðið okkur
sem skyldi, þrátt fyrir að ríkisstjórn-
in hafi haft forgöngu um að verja 400
milljónum króna til þessara mála í fyrra.
Hvernig stendur á því að við horfum upp
á vinsælustu ferðamannastaði drabb-
ast smám saman niður vegna þess að
uppbyggingu innviða og nauðsynlegu
viðhaldi er ekki sinnt nógu vel? Auð-
vitað munu vinsældir Íslands sem ferða-
mannalands dvína hratt ef ekki verður
tekið fast í taumana hér.
Ég bið menn um að hafa í huga að fjár-
magnið til þessara verkefna verður að
koma einhvers staðar frá. Frá ferða-
mönnum beint og rukkað inn á hverjum
stað, með einum ferðamannapassa sem
allir greiða, gistináttagjaldi, komugjöld-
um ferðamanna eða beint af skattfé sem
í sjálfu sér má réttlæta í ljósi þess hversu
tekjusköpunin er mikil í greininni. Virkj-
anakostir, vegir, raflínur og uppbygg-
ing innviða á ferðamannastöðum; öll
eru þessi mál hjá Alþingi einmitt nú og
ég hvet okkur sem þar starfa til að rísa
undir okkar ábyrgð. Við megum lítinn
tíma missa.
Hálendið er auðlind
Andlitskrem
fyrir þurra húð
Fæst í apótekum
· Engir parabenar
· Engin ilmefni
· Engin litarefni
➜ Möguleikarnir eru sem betur fer
margir og fjölbreyttir og því ætti
að vera hægt að komast að góðri
niðurstöðu í þeim efnum án þess að
því fylgi stöðugt römm pólitísk átök
sem sundra þjóðinni.
AUÐLINDIR
Elín Hirst
alþingismaður
Peningum vel varið
Kjarninn greindi frá því í gær að
innanríkisráðuneytið hefði greitt 2,4
milljónir króna fyrir fjölmiðlaráðgjöf
vegna lekamálsins. Markaðsstofan
Argus gaf ráðin. Þeim peningum er
sannarlega vel varið og raunar leitun
að fumlausari og öruggari fjölmiðla-
viðbrögðum en starfsfólk ráðuneytis-
ins, með ráðherrann sjálfan í broddi
fylkingar, sýndu í málinu umdeilda.
Hvernig öllu var neitað sem hægt var
að neita þar til blákaldar staðreyndir
og óhrekjanlegar sannanir neyddu
fram breyttar skýringar sem
síðan voru oft og tíðum hraktar
og aftur komu nýjar og breyttar
skýringar. „Ekki sýna neina auð-
mýkt fyrr en þú ert komin
svo langt út í horn að
herðablöðin nema
við sitthvorn útvegginn,“ er líklega
ráðleggingin sem Steingrímur Sævarr
Ólafsson hjá Argus gaf Hönnu Birnu
og öðrum í innanríkisráðuneytinu.
Hver á að borga?
Eftir stendur hins vegar sú spurning
hvers vegna innanríkisráðuneytið
þurfti að leita til einkafyrirtækis
vegna fjölmiðlaráðgjafar í lekamálinu.
Margir í ráðuneytinu eru þaulvanir
fjölmiðlum og nægir að nefna þar
aðstoðarmanninn fyrrverandi,
Gísla Frey Valdórsson. Enn
stærri spurning er hvort
rétt sé að þóknun fyrir
fjölmiðlaráðgjöf sé greidd
af skattfé. Var ráðgjöfin
sem Steingrímur Sævarr veitti
greidd með hagsmuni
skattgreiðenda í huga?
Af hverju fjölmiðlaráðgjöf?
Langstærsta spurningin er hins vegar
sú af hverju í ósköpunum þurfti sér-
staka fjölmiðlaráðgjöf í þessu máli
yfirhöfuð. Hvers vegna mál tengd
einum hælisleitanda urðu svo stór að
kaupa þurfti sérstaka ráðgjöf. Hér eru
ókeypis ráð sem hvaða ráðherrar sem
er mega nýta sér: Segið satt og skil-
merkilega frá. Ekki forðast fjölmiðla.
Veitið aðgang að gögnum. Talið hreint
út. Markaðsstofan Argus má líka eiga
þessi ráð. Mögulega er hún komin
með nýjan kúnna, en framkoma
Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur
lögreglustjóra við fjölmiðla
minnir á margan hápunktinn
hjá innanríkisráðuneytinu á
sínum tíma.
kolbeinn@frettabladid.is
1
0
-0
3
-2
0
1
5
2
1
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
7
-0
D
6
8
1
4
1
7
-0
C
2
C
1
4
1
7
-0
A
F
0
1
4
1
7
-0
9
B
4
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
4
8
s
C
M
Y
K