Fréttablaðið - 11.03.2015, Page 20

Fréttablaðið - 11.03.2015, Page 20
 | 4 11. mars 2015 | miðvikudagur Eftirspurnin eftir atvinnuhús- næði er að aukast, segir Garð- ar Hannes Friðjónsson, forstjóri fasteignafélagsins Eikar. Hann segist hafa talið 80-85 þúsund fermetra lausa haustið 2013. „Við teljum það vera komið niður í 65-70 þúsund núna einu og hálfu ári síðar,“ segir Garðar. Þetta sé vegna meiri mannfjölda, lækk- andi atvinnuleysis og fl eira fólks á atvinnualdri. Fólki sem þarf atvinnuhúsnæði er því að fjölga. Þegar ársreikningur Eikar fyrir árið 2014 var kynntur kom um leið fram að félagið yrði skráð á markað. Eik fasteigna- félag stefnir á að skrá hlutabréf félagsins í Kauphöll í apríl, að undangengnu útboði. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri Eikar, hefur fylgt Eik frá upphafi en félagið var stofn- að árið 2002. „Á árunum 2003- 2006 óx félagið hratt með kaup- um á eignum,“ segir Garðar og bætir við að eftir það hafi félagið hægt á vextinum þar sem það var komin ákveðin stígandi í markað- inn og verktakar farnir að sýna þessum geira áhuga,“ segir Garð- ar. Árið 2011 komu nýir eigendur að félaginu sem tóku ákvörðun um að styrkja efnahag félagsins og stækka með það að markmiði að skrá félagið á hlutabréfamark- að. Félagið endurfjármagnaði allar skuldir sínar, meðal ann- ars með því að gefa út skulda- bréfafl okk skráðan í Kauphöll. Félagið hélt áfram að byggjast upp jafnt og þétt með kaupum á einstaka eignum en á árinu 2013 var ákveðið að stækka félagið allverulega með kaupum á fast- eignafélaginu EF1 sem á Turn- inn í Kópavogi og fasteignafélag- inu Landfestum sem á mikið af skrifstofuhúsnæði í Borgar- túninu og Ármúlanum. „Það var mikið ferli sem tók langan tíma og lauk í raun ekki fyrr en um mitt ár 2014. Í dag á félagið gott, arðbært og vel staðsett safn fast- eigna og því telur stjórn félags- ins þetta vera rétta tímann til að óska eftir skráningu í Kauphöll- ina,“ segir Garðar Hannes í sam- tali við Markaðinn. Við kaupin á EF1 og Landfest- um stækkaði efnahagsreikning- ur Eikar úr 22-23 milljörðum í um það bil 66 milljarða. Garðar segir að félagið leggi nú áherslu á arðsemi og þjónustu við hlut- hafa, fremur en frekari stækk- un. „Stjórn hefur sett sér arð- greiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri . Það skiptir máli að fjárfestar viti hver markmið félagsins eru,“ segir Garðar. jonhakon@frettabladid.is Þrefaldaðist að stærð á fáeinum mánuðum Fasteignafélagið Eik verður skráð á markað í apríl. Gríðarleg breyting varð með kaupum félagsins á Landfestum og EF1. Frekari stækkun er ekki markmið heldur arðgreiðslur til hluthafa. MEÐ MIKLA REYNSLU Garðar Hannes Friðjónsson hefur starfað fyrir Eik allt frá árinu 2002. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Stjórn hefur sett sér arð- greiðslustefnu um að greiða árlega út arð sem nemur 35% af handbæru fé frá rekstri. Hluthöfum í félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands hefur fækkað úr 7.000 að meðaltali í árslok 2007 í 1.400 í árslok 2014. Þá voru sex fyrirtæki með á milli 20 og 30 þúsund hluthafa í árs- lok 2007 en hluthafar í því félagi í Kauphöllinni, sem nú er með fl esta hluthafa, eru þrjú þúsund. Þetta kom fram í máli Magnus Billing, forstjóra Kauphallarinnar í Svíþjóð, á fundi um góða stjórn- unarhætti í Háskóla Íslands í gær. Magnus segir að til þess að almenningur fjárfesti á ný í hlutabréfum á Íslandi þurfi stofn- anaumhverfi að vera sterkt og traust til staðar. Ein leið til að efl a traust sé að fyrirtæki fylgi þeim reglum sem settar hafa verið um góða stjórn- arhætti af Viðskiptaráði, SA og Kauphöllinni. Einungis þrjú fyrirtæki sem eru skráð í Kauphöllina hafa hlot- ið vottun á því sviði. Páll Harðar- son, forstjóri Kauphallarinnar á Íslandi, segir að hann vilji gjarn- an að fleiri fyrirtæki taki upp vottunina. - ih Traust nauðsynlegt til að almenningur kaupi hlutabréf á ný en hluthafar eru mun færri en fyrir hrun: Fjöldi hluthafa úr 7.000 í 1.400 MAGNUS BILLING Forstjóri sænsku kaup- hallar innar segir traust brýnt til þess að Íslend ingar kaupi hlutabréf á ný. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 525 2080 // sala@valitor.is // www.valitor.is Valitor býður upp á lausnir við móttöku greiðslukorta á netinu, hvort sem er fyrir stærri vefverslanir eða minni. Nú hefur opnast sá möguleiki að söluaðilar geta boðið viðskiptavinum sínum að nota Visa Electron og Maestro debetkort í vefviðskiptum. Geta söluaðilar því boðið upp á greiðslur með bæði debet- og kreditkortum í gegnum Greiðslusíðu og Greiðslugátt Valitor. 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 1 7 -2 F F 8 1 4 1 7 -2 E B C 1 4 1 7 -2 D 8 0 1 4 1 7 -2 C 4 4 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.