Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 42

Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 42
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26 FÓTBOLTI Sölvi Geir Ottesen, lands- liðsmiðvörður í fótbolta, spil- aði sinn fyrsta leik fyrir Jiangsu Guoxin-Sainty í kínversku úrvals- deildinni í fótbolta á laugardaginn þegar liðið tapaði, 2-1, á útivelli gegn Shanghai SIPG. Sölvi gekk óvænt í raðir kínverska liðsins frá FC Ural í Rússlandi þar sem hann átti hálft ár eftir af samningi. Víkingurinn var í æfingaferð með Ural-liðinu þegar þetta kom upp. „Ég var á Kýpur þegar ég heyrði af áhuga Kínverjanna. Þetta gerð- ist mjög hratt. Ég fékk góðan samning og vegna þess, auk fjár- málaástandsins í Rússlandi, var ég tilbúinn til að fara eitthvað annað,“ segir Sölvi Geir í viðtali við Fréttablaðið. „Mér þótti virkilega spenn- andi að fara til Kína. Það er fínt að fara úr rússnesku í kínversku,“ segir hann og hlær. „Ég á ekki mikið eftir af atvinnumannaferl- inum sem er allt í lagi. En það er um að gera að upplifa hitt og þetta núna og eiga sem flestar og bestar minningar eftir ferilinn.“ Aldrei með í umræðunni Sölvi upplifði ýmislegt nýtt við Úralfjöllin í Rússlandi. Aðspurð- ur hvort það sé ekki kúltúrsjokk að færa sig enn austar á landakortinu svarar hann: „Ég á erfitt með að átta mig á hvað þetta þýðir.“ Hann segir líf fótboltamanns- ins einfaldlega svipað hvar sem hann drepur niður fæti. „Þetta er auð vitað öðruvísi, en fótboltinn og allt í kringum hann er svipað og annars staðar. Ég fer á æfingar, fer svo heim og geri eitthvað til að drepa tímann. Fólkið lítur öðru- vísi út og maturinn er öðruvísi en annars er þetta alltaf sami pakk- inn hvort sem þú ert í Danmörku, Rússlandi eða Kína.“ Miðvörðurinn viðurkennir að erf- iðast sé að skilja ekki neitt í neinu. „Félagslega hliðin var önnur í Dan- mörku. Þar gat maður allavega talað tungumálið og reytt af sér brandara og tekið þátt í umræðunni. Í Rússlandi og Kína veit maður ekk- ert hvað er að gerast fyrr en túlkur- inn mætir. Þetta er reyndar aðeins öðruvísi hérna því ég er með Viðar með mér og get haft gaman af honum,“ segir Sölvi Geir. Fær ekki ökuréttindi Jiangsu Guoxin-Sainty keypti ekki einn Íslending heldur tvo. Liðið fékk til sín framherjann Viðar Örn Kjartansson frá Vålerenga og Sölvi segir þá félagana vera mikið saman. „Hann heimtar að spila helvítis Creed-lagið sem hann söng inn á plötu hjá Vålerenga trekk í trekk. Ég er orðinn frekar þreyttur á því,“ segir Sölvi léttur. „Við erum mikið saman. Við hittumst auðvitað á æfingum og svo vorum við herbergisfélagar í þriggja daga ferð til Sjanghæ um daginn. Hann er samt með konuna sína hérna úti.“ Þeir félagarnir búa í um 20 mín- útna göngufæri hvor frá öðrum. Aðeins tekur um fimm mínútur að keyra en það er ekkert rosalega líklegt að þeir setjist undir stýri á meðan á dvöl þeirra stendur. „Maður þarf að læra hluta af kínversku til að fá ökuréttindi hérna. Það þýðir ekkert að sýna bara íslenska ökuskírteinið hérna. Við erum alltaf sóttir á æfingar og keyrðir heim,“ segir Sölvi. Kínverjarnir góðir Gæði fótboltans í Kína og kín- versku leikmannanna hefur komið Sölva skemmtilega á óvart. „Þeir eru mjög sprækir en vantar kannski smá meiri fótboltaskiln- ing, sérstaklega í varnarleiknum. Hér eru samt rosalega hæfileika- ríkir strákar sem kunna ýmislegt fyrir sér,“ segir hann, Aðspurður um fyrsta leikinn á Sölvi erfitt með að trúa að hann hafi tapast. Við byrjuðum ekki vel og vorum að missa boltann mikið til að byrja með. Það var smá stress í mönnum. En seinni hluta fyrri hálfleiks og allan seinni hálf- leikinn vorum við með tökin á vell- inum. Það var grátlegt að skora ekki fleiri en eitt mark. Við áttum það skilið.“ Klárar samninginn Sölvi Geir varð 31 árs gamall í byrjun árs. Vegna fjölskyldu- aðstæðna þarf hann kannski að binda enda á atvinnumannsferil- inn fyrr en seinna. Það verður þó ekki strax. „Ég á nóg eftir. Ég er búinn að vera rosalega góður í skrokknum lengi núna og bakið verið í góðu lagi síðan ég fór til Rússlands. Ég hef sjaldan verið að spila jafn vel en það er af öðrum ástæðum sem ég kem heim fyrr ef svo verður. Ég tel mig samt eiga nóg eftir,“ segir Sölvi. Hann gerði tveggja ára samning við Sainty og ætlar að klára þann samning. „Það er markmiðið. Ég veit svo ekkert um fram- haldið eftir það. Þegar þessi samningur klár- ast kíkir maður bara á hvernig landið ligg- ur,“ segir Sölvi Geir Ottesen. tomas@365.is Ekki einfalt að fá ökuréttindi í Kína Sölvi Geir Ottesen spilaði sinn fyrsta leik með Jiangsu Guoxin-Sainty í kínversku úrvalsdeildinni í fótbolta um síðustu helgi. Hann segist sjaldan hafa verið betri og ætlar að klára tveggja ára samning hjá liðinu. Líður vel í bakinu og hefur verið meiðslafrír í nokkurn tíma. LÍÐUR VEL Sölvi Geir hefur það gott í Kína og er að spila vel. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Íslenska landsliðið í fótbolta mætir Kasakstan í lok mánaðarins í mikil- vægum leik í undankeppni EM 2016. Sölvi Geir hefur verið fastamaður í landsliðshópnum í mörg ár og Viðar Örn Kjartansson komið inn á síðustu mánuðum eftir að hann fór að blómstra í Noregi. Sparkspekingar velta sér nú sumir hverjir upp úr því hvort þeir verði valdir eftir að þeir fóru að spila í Kína eða hvort aðrir leikmenn verði teknir inn í hópinn. „Ég sé ekki af hverju við ættum að vera að gefa eftir landsliðssæti með því að koma hingað. Kínverska deildin er hörkugóð. Hér eru alveg frábærir framherjar þannig að það verður allavega nóg að gera hjá mér,“ segir Sölvi Geir sem viðurkennir að hann verði ekki sáttur verði hann ekki í hópnum sem ferðast til Astana. „Ég sé ekki neina ástæðu fyrir því að við verðum ekki valdir. Ég held áfram að gera mitt allra besta og verð mög svekktur verði ég ekki valinn í hópinn,“ segir Sölvi Geir. Svekktur ef ég verð ekki valinn HANDBOLTI „Hann hefur litið vel út á æfingum og hefur ekki glat- að neinu af leikskilningi sínum,“ segir Aron Kristjánsson, þjálf- ari Danmerkurmeistara Kolding, en félagið tilkynnti í gær að Ólaf- ur Stefánsson muni spila með því gegn Zagreb í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Fyrri leikur liðanna fer fram í Zagreb um næstu helgi og síðari leikurinn er í Kaupmannahöfn viku síðar. Ólafur byrjaði að æfa með félaginu í síðustu viku og gengi það vel myndi hann spila. Það er nú ljóst að hann mun gera það enda hefur hann litið vel út á æfingum. „Hreyfingarnar eru að koma og hann var fljótur að komast inn í spilið hjá okkur. Nú erum við að koma öxlinni á honum í gang. Það er ekkert rosalega mikið dýnamít í öxlinni á honum núna en við erum að ná því upp. Svo þegar hann kemur í leik þá lætur hann frekar vaða. Annars er Óli í flottu formi og þetta lítur vel út. Hann hefur haft mjög gaman af þessu og er eins og barn að leika sér.“ Aron segir að ekki komi til greina að Ólafur beri leik liðsins uppi heldur mun hann leysa Svíann Kim Andersson af hólmi en hann er að spila þó svo hann sé ekki alveg heill heilsu. „Það væri frábært ef hann gæti tekið tíu mínútur við og við. Hann er reynslumikill og getur komið inn með mörk og sendingar. Auð- vitað ró og reynslu líka á erfiðum útivelli,“ segir Aron en hann gæti líka spilað með Ólaf og Andersson saman. „Kim hefur spilað á miðjunni stundum í vetur og það gæti vel farið svo að ég prófi það og þá með Óla í skyttunni. Við þurfum að vera á lífi eftir leikinn í Zagreb og ég er bjartsýnn á að það takist enda erum við með reynslumikið lið.“ - hbg Óli er eins og barn að leika sér Ólafur Stefánsson mun spila með Kolding í Meistaradeildinni gegn Zagreb. ÖLLU TJALDAÐ Aron segir Ólaf vera kláran í slaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL ÖFLUGUR Damon Johnson í leik með Kefla- víkurliðinu á móti KR á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM MIKILVÆGI DAMONS JOHNSON FYRIR KEFLAVÍKURLIÐIÐ: DAMON Í SIGURLEIKJUM (8)* Stig í leik 20,1 Skotnýting 50 prósent Fráköst í leik 6,9 Stoðsendingar í leik 2,4 Framlag í leik 21,9 DAMON Í TAPLEIKJUM (7)* Stig í leik 9,4 Skotnýting 29 prósent Fráköst í leik 6,0 Stoðsendingar í leik 1,7 Framlag í leik 9,7 *Tölfræði úr Dominos-deildinni KÖRFUBOLTI Damon Johnson hélt upp á 41 árs afmælið sitt 1. mars síðastliðinn en það er ekki hægt að segja að afmælisdagurinn hafi hægt eitthvað á elsta leikmanni Dominos- deildarinnar. Damon hefur farið fyrir tveimur sigrum Keflavíkurliðsins síðan og séð til þess að liðið er ekki aðeins gulltryggt inn í úrslitakeppnina heldur á enn þá möguleika á því að vera með heimavallarrétt í átta liða úrslitunum vinni Keflvíkingar Hauka í lokaumferðinni á fimmtudaginn. Mikilvægi Damons fyrir Keflavíkur- liðið er gríðarlegt og það kemur ein- staklega vel fram í tölfræðinni í vetur. Damon hefur spilað 15 af 21 leik Keflvíkinga í deildinni á tímabilinu og er með 15,1 stig, 6,5 fráköst og 2,1 stoðsendingar að meðaltali á 27,4 mínútum. Þetta er mjög flott tölfræði hjá manni á fimmtugsaldri en það er fylgnin milli góðra leikja hans og sigurleikja Keflvíkinga sem er það athyglisverðasta við framgöngu þessa þrefalda Íslandsmeistara. Keflavík hefur unnið átta leiki sem hann hefur spilað og í þeim hefur Damon skorað 20,1 stig að meðaltali eða 10,7 stigum meira að meðal- tali en í þeim sjö leikjum sem hafa tapast með hann innanborðs. Damon Johnson hefur skorað sextán stig eða meira í níu leikjum í deild- inni í vetur og Keflavíkurliðið hefur unnið átta þeirra. Liðið er hins vegar aðeins með 25 prósent sigurhlut- fall í þeim tólf leikjum sem Damon hefur annaðhvort ekki verið með eða skorað fimmtán stig eða minna. Damon glímdi við meiðsli um mitt tímabil en virðist nú kominn á ný í úrslitakeppnisform. - óój 41 árs en samt gríðarlega mikilvægur fyrir Kefl avíkurliðið SPORT 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 7 -2 B 0 8 1 4 1 7 -2 9 C C 1 4 1 7 -2 8 9 0 1 4 1 7 -2 7 5 4 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.