Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 46

Fréttablaðið - 11.03.2015, Side 46
11. mars 2015 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30 Margrét GnarrAlexandra S. Nikulásdóttir Fyrirbærið mittisþjálfi eða Waist trainer er nýjasta æðið í líkamsræktarheiminum úti í heimi. Um er að ræða mittisbelti sem minnir á korselett og er krækt saman að framan. Samkvæmt leiðbeiningum á að nota beltið í tvo tíma á dag til að byrja með og lengja svo tímann eftir því hvað líkaminn þolir. Dæmi eru þó um að stúlk- ur hafi verið með beltið sam- fleytt í 23 tíma og þá sofið með það. Einnig á að vera gott að nota beltið á æfingu til að veita stuðning við bak. Ekki er mælt með því að nota beltið ef við- komandi stundar ekki líkams- rækt. Skiptar skoðanir eru um til- gang beltisins, hvort hann sé að veita stuðning við bak eða hjálpa til við að ná réttri líkams- stöðu. En eins og nafnið gefur til kynna þá á beltið með tíman- um að minnka mittismál og gefa svokallaðan stundaglasvöxt með því að slaka á oblique-vöðvum eða hliðarkviðvöðvunum. Svo er hægt að þrengja beltið eftir því sem mittið minnkar. Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian setti mynd af sér í haust inn á samfélagsmiðilinn Instagram þar sem hún lofaði Waist trainer í hástert og sagði það notkun hans að þakka að hún væri með grennra mitti núna. adda@frettabladid.is Magabeltið sem á að minnka mittismálið Waist trainer eða mittisþjálfi hefur upp á síðkastið notið mikilla vinsælda hjá stjörnum og líkamsræktarfólki erlendis. Nú virðist bólan vera komin til landsins. Matarræðið mikilvægara „Það er mikið verið að spyrja okkur um þetta, hvort þetta virki,“ segir Alexandra Sif Nikulásdóttir, fjar- þjálfari hjá Betri árangri og fitness- keppandi. „Við erum öll ólík og ég tel að mjótt mitti komi fyrst og fremst frá náttúrunnar hendi. Auðvitað er alltaf gott að hafa stuðning við bakið á æfingum, en til þess eru til öðruvísi belti, sem þú ert ekki með alla æfinguna. Að mínu mati er þetta kannski fullmikið til að nota á heilli æfingu. Þú lítur út fyrir að vera með grennra mitti þegar þú ert með þetta á þér, en ég mæli heldur með að hreinsa til í matar æðinu og æfa samhliða því heldur en að treysta á þetta.“ Vont fyrir jafnvægið „Ég prófaði þetta sjálf í þrjár vikur og notaði á æfingum. Ég var ekki að þrengja þetta þannig,“ segir Margrét Gnarr, fitness-keppandi og fjarþjálfari. „Það sem þetta á að gera er að slaka á hliðarkviðvöðvunum, þannig að þú sért ekki að nota þá, og þess vegna prófaði ég þetta. Þetta hentaði mér ekki því mér fannst þetta hafa vond áhrif á jafnvægið hjá mér, sem hliðar- vöðvarnir hjálpa til með,“ segir Mar- grét sem hætti notkun eftir þessar þrjár vikur. Hún segist hafa heyrt sögur af því að stelpur hér heima hafi verið að þrengja beltið mikið í þeim tilgangi að minnka mittið enn meira. „Ég held að það sé ekki sniðugt að þrengja þetta mikið, það getur haft áhrif á líffæri og rifbein.“ www.betrabak.is Leggur grunn að góðum degi Dýna og Fermingar- Tegund Stærð Classic-botn tilboð C&J Platinum 100x200 89.900 kr. 67.425 kr. C&J Platinum 120x200 99.900 kr. 74.925 kr. C&J Platinum 140x200 114.900 kr. 86.175 kr. C&J Gold 90x200 96.900 kr. 72.675 kr. C&J Gold 100x200 104.900 kr. 78.675 kr. C&J Gold 120x200 119.900 kr. 89.925 kr. C&J Gold 140x200 139.900 kr. 104.925 kr. 25% FERMINGARAFSLÁTTUR AF C&J HEILSURÚMUM Frábært verð! FERMINGAR- TILBOÐ AÐEINS KRÓNUR 89.925 FERMINGAR- TILBOÐ GOLD120X200 AÐEINS KRÓNUR 67.425 FERMINGAR- TILBOÐ PLATINIUM100X200 Heilsudýnan sem lætur þér og þínum líða vel! GAFL SELDUR SÉR „Vatn, lýsi, nokkrar möndlur og kaffi. Í þessari röð. Stundum egg. Annars er morgunmatur ofmetið dæmi sem Kellogg’s og Nestlé hafa náð að ljúga að okkur að sé mikil- vægasta máltíð dagsins.“ Steinþór Helgi Arnsteinsson, annar dómara og spurningahöfunda í Gettu betur. MORGUNMATURINN Skartgripamerkið Kría og fata- merkið Aftur senda frá sér ein- stakan skartgrip fyrir Hönnunar- Mars. Um er að ræða hálsmen og á því hanga litlir gripir úr eldri línum frá Kríu á handperlaðri silf- urkeðju. „Það er mikil hugsun á bak við þetta hjá okkur. Pælingin er að nota formin aftur og setja þau saman á nýjan hátt,“ segir Jóhanna Metúsalemsdóttir, hönnuður hjá Kríu. Línan er öll steypt úr end- urunnum málmi. „Aftur er þekkt fyrir það að endurvinna fatnað og ég er farin að vinna eingöngu með endurunninn málm. Við Bára Hólmgeirsdóttir hjá Aftur erum góðar vinkonur og okkur hefur lengi langað að hanna eitthvað saman,“ segir hún. Jóhanna segist eingöngu vinna með endurunninn málm núna. „Það er sífellt vinsælla í tísku- bransanum að nota hann og mjög margir skartgripasteyparar í New York, þar sem ég bý, eru farnir að nota slíkan málm.“ Hálsmenið verður framleitt í takmörkuðu upplagi og kemur í verslun Aftur á morgun klukkan 17, ásamt nýrri línu frá Kríu, Inc- arnation. Menið verður svo til sölu í Aftur yfir HönnunarMars. - asi Kría og Aft ur hanna saman skart Af tilefni HönnunarMars hanna vinkonur endurvinnanlegt hálsmen saman. KRÍA Nýja línan Incarnation verður einnig til sýnis. MYND/ELÍSABET DAVÍÐS. Það er mikil hugsun á bak við þetta hjá okkur. Pælingin er að nota formin aftur og setja þau saman á nýjan hátt. 1 0 -0 3 -2 0 1 5 2 1 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 7 -1 2 5 8 1 4 1 7 -1 1 1 C 1 4 1 7 -0 F E 0 1 4 1 7 -0 E A 4 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 4 8 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.