Fréttablaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 4
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
24 farþegaþotur á eða leigir Icelandair til að þjónusta
viðskiptavini sína.
Þær voru 18 árið 2013.
LEIÐRÉTT
Ranglega var farið með föðurnafn
ráðuneytisstjórans í umhverfis- og
auðlindaráðuneytinu í undirfyrir-
sögn í Markaðnum í gær.
Hún heitir Sigríður Auður Arnar-
dóttir, eins og fram kom í meginmáli
textans.
NEYTENDUR Verð á innfluttum vörum
hefur ekki lækkað í samræmi við styrkingu
íslensku krónunnar frá árinu 2010. Þetta má
lesa úr skýrslu Samkeppniseftirlitsins um
matvörumarkaðinn, sem kom út í fyrradag.
Hagar eru með 48-49 prósenta markaðs-
hlutdeild í dagvöru. Finnur Árnason, for-
stjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið ekki
hafa hækkað álagningu á þessum tíma.
„Við erum að birta okkar álagningu fjór-
um sinnum á ári, eitt fyrir tækja á þess-
um markaði. Það kemur fram í opinberum
gögnum okkar að yfir þetta tímabil þá hefur
okkar álagning frekar verið að lækka en að
hækka,“ segir Finnur.
Finnur vísar í töflu í
skýrslunni um framlegð
verslunarinnar á árunum
2010 og 2014. „Þar kemur
fram að vegið meðaltal
er 20,2 prósent á báðum
tímapunktum. Sem
segir að ef það er ein-
hver gengis bati umfram
verðlag, þá er hann ekki í
versluninni,“ segir Finnur. Hann vill engu
svara um það hvort birgjar hafi hirt gengis-
hagnaðinn. - jhh
Forstjóri Haga segir að álagning fyrirtækisins á seldar vörur hafi ekki hækkað að undanförnu:
Segir Haga ekki hagnast á gengisbreytingu
FINNUR
ÁRNASON
Innlendar vörur frá inn-
lendum framleiðendum
Innlendar vörur frá
tengdum fyrirtækjum
Erlendar vörur frá
innlendum heildsölum
Erlendar vörur innfl uttar
af verslanasamstæðum
Vegið
meðaltal
19,1%
17,1%
21,2%
24,6%
20,2%
19,2%
20,6%
20,4%
24,6%
20,2%
2010
2014
VEGIÐ MEÐALTAL FRAMLEGÐAR
KJARAMÁL Aðildarfélög Starfs-
greinasambandsins (SGS) kjósa
um mögulegar verkfalls aðgerðir
í rafrænum kosningum fyrir
páska, segir Björn Snæbjörns-
son, formaður SGS. Heimild til að
boða aðgerðir segir hann liggja
fyrir eftir árangurslausan samn-
ingafund hjá Ríkissáttasemjara á
þriðjudag.
Björn segir að atkvæðagreiðsla
um verkfallsboðun verði sameigin-
leg hjá öllum sextán félögunum
sem að SGS standa. „Þetta á því
að verða búið fyrir páska og svo
verður boðað til verkfalls og það
verður þá einhvern tímann eftir
páska.“
„Þetta var svolítið snubbótt. Þeir
neituðu bara að ræða við okkur um
okkar kröfur,“ segir Björn um fund
samninganefndar SGS við fulltrúa
Samtaka atvinnulífsins (SA) hjá
Ríkis sáttasemjara á þriðjudag.
„Við höfum talað um að lægsti
taxti færi í 300 þúsund krónur
innan þriggja ára. Við erum til búin
til að ræða hlutfallslega styttri
samning, en markmiðið er að ná
þessum tölum innan þriggja ára.“
Félagið hefði hins vegar verið til
í að ræða aðrar tölur, mögulega 50
þúsund króna hækkun, í samningi
sem þá næði kannski til eins og
hálfs árs. SA hafi hins vegar bara
hafnað kröfugerð sambandsins og
þar standi málið.
Í tilkynningu á vef SA er SGS
sagt hafa hafnað stöðugleika og
nálgun SA um að „halda áfram
að byggja upp kaupmátt launa á
grundvelli verðstöðugleika“. Í stað
þess sé nálgun SGS að krefjast
tuga prósenta launahækkana sem
leiða muni til mikillar verðbólgu
á skömmum tíma og stökkbreyta
verðtryggðum skuldum heimila
og fyrirtækja, hækka vexti og fella
gengi krónunnar.
Björn segir SGS ekkert gera
með fullyrðingar SA. „Við erum
Í verkfall stefnir eftir páska
Til verkfalla gæti komið eftir viðræðuslit SGS og SA. Ótrúverðugt að fólk á lágmarkslaunum eigi að standa
undir stöðugleikanum, segir formaður SGS. Aldrei þessu vant snúi kröfur ekki að ríkinu vegna svikinna loforða.
VERKFALLSVÖRÐUR Mikið ber á milli
í viðræðum Samtaka atvinnulífsins og
Starfsgreinasambandsins. Viðræðum var
slitið í fyrradag og stefnir í átök.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
með 0,8 prósenta verðbólgu og
kaupmáttar aukningu á sama tíma
og fullt af hópum hafa fengið fínar
launahækkanir.“ Björn segir ein-
kennilegt að sumir geti hækkað
og aðrir ekki. „Ég man ekki eftir
því að rætt væri um að þjóðfélag-
ið færi á hliðina ef læknar fengju
kauphækkun. En svo er alltaf
sami söngurinn ef fólkið sem er
með taxta upp 200 þúsund krónur
ætlar að fara fram á kauphækkun,
100 þúsund kall á þremur árum. Þá
er eins og allir séu að flýja skerið.“
Björn spyr hvar sé ábyrgð þeirra
hópa sem fengið hafi hækkanir
umfram þau markmið sem lagt var
upp með í kjarasamningum í fyrra.
„Á almennt verkafólk bara að sitja
eftir og lofa hinum að leika sér?“
Í nýrri grein sem Gylfi Zoëga,
hagfræðiprófessor og nefnd-
armaður í Peningastefnunefnd
Seðlabankans, skrifar í efnahags-
ritið Vísbendingu, segir hann ríkið
þurfa að koma að samningum á
almennum markaði með einhverj-
um hætti takist ekki að lægja öldur
á vinnumarkaði.
Björn segir ekkert hafa verið
rætt við stjórnvöld í tengslum
við nýja samninga. Það hafi verið
venjan á árum áður, en núna hafi
menn engan áhuga á því. „Ríkis-
stjórnin lofaði ýmsu síðast og er
búin að svíkja það þannig að menn
hafa bara engan áhuga á að tala við
stjórnvöld sem ekki standa við það
sem þau lofa.“ olikr@frettabladid.is
Menn
hafa bara
engan áhuga á
að tala við
stjórnvöld sem
ekki standa
við það sem
þau lofa.
Björn Snæbjörnsson,
formaður Starfsgreinasambandsins.
Á vef Starfsgreinasambandsins
kemur fram að fulltrúar allra 16
aðildarfélaga sambandsins sem
það fari með samningsumboð
fyrir hafi einróma samþykkt
viðræðuslit við Samtök atvinnu-
lífsins. Félögin eru: AFL Starfs-
greinafélag, Aldan stéttarfélag,
Báran stéttarfélag, Drífandi
stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn
stéttarfélag, Stéttarfélagið Sam-
staða, Stéttarfélag Vesturlands,
Verkalýðsfélag Akraness, Verka-
lýðsfélag Grindavíkur, Verkalýðs-
og sjómannafélag Bolungarvíkur,
Verkalýðs- og sjómannafélag Sand-
gerðis, Verkalýðsfélag Snæfellinga,
Verkalýðsfélag Suðurlands, Verka-
lýðsfélag Vestfirðinga og Verka-
lýðsfélag Þórshafnar.
➜ Samþykktu viðræðu-
slitin einróma
STJÓRNSÝSLA Sigríður Lillý Bald-
ursdóttir, forstjóri Trygginga-
stofnunar, segir stofnunina
stöðva bótagreiðslur að upphæð
100 milljónir króna á ári vegna
svika. Snemma í mánuðinum
úrskurðaði Persónuvernd að
fyrirkomulag við móttöku nafn-
lausra ábendinga stæðist ekki
lög.
Sigríður segir úrskurðinn
hafa komið sér og öðrum starfs-
mönnum í opna skjöldu. „Nafn-
lausar ábendingar eru hluti af
eftirlitsumhverfinu í nágranna-
ríkjunum og þar er sams konar
persónuverndarlöggjöf. Ég er
viss um að við finnum á þessu
flöt. Þetta kom okkur í opna
skjöldu. Við töldum að þetta
væri eins og vera bæri, að það
væri sátt um aðferðir okkar.“
- kbg
Mörg hundruð milljóna svik:
Úrskurður kom
forstjóra á óvart
EKKI SÁTT UM VELFERÐARKERFIÐ
Sigríður Lillý Baldursdóttir segir ekki
sátt ríkja um velferðarkerfið sé það
opið fyrir svikum. FRÉTTABLAÐIÐ/EINAR
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein-
grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402:
Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson
jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason
hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Uniq 4202
Glæsilega hannaður og
vandaður sturtuklefi.
Auðveldur í uppsettningu
FRÁBÆR
GÆÐI /
GOTT VERÐ
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
HLÝNANDI Suðaustanátt í dag með hlýnandi veðri og rigningu um sunnan og
vestanvert landið. Vestanstormur syðst á landinu í kvöld en á morgun gengur aftur í
hvassa suðaustanátt með mikilli úrkomu og frekari hlýindum.
-1°
5
m/s
0°
6
m/s
3°
9
m/s
6°
17
m/s
10-23 m/s
síðdegis
og annað
kvöld,
hvassast
S- og V-til.
8-18 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
8°
29°
6°
13°
18°
5°
9°
6°
6°
21°
12°
24°
24°
13°
13°
7°
9°
11°
4°
15
m/s
4°
13
m/s
3°
9
m/s
2°
10
m/s
0°
4
m/s
2°
6
m/s
-2°
7
m/s
5°
6°
2°
3°
6°
7°
6°
6°
3°
6°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
1
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:0
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
1
C
-3
1
4
0
1
4
1
C
-3
0
0
4
1
4
1
C
-2
E
C
8
1
4
1
C
-2
D
8
C
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K