Fréttablaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 50
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
BALÍ
TREND LITRÍKT OG SKRAUTLEGT
Nú segjum við
þessum vetri
stríð á hendur
og klæðumst
skrautlegum
og litríkum
kjólum.
LÍFIÐ
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR
MENNTASKÓLINN
VIÐ SUND
Hvert? Mallorca, Spáni
Hvenær? 6. ágúst
Hve lengi? 7/14 dagar
Hve margir? Um 160 manns
Verð 200.000-250.000 kr.
Áfengi innifalið
í síðari vikunni
Farið fyrir fjórða bekk.
MENNTASKÓLINN Í
REYKJAVÍK
Hvert? Marokkó
Hvenær? 4. ágúst
Hve lengi? 12 dagar
Hve margir? 163 skráðir
Verð 239.000 kr.
Áfengi innifalið
í síðari hlutanum
Farið fyrir 6. bekk
MENNTASKÓLINN
Á LAUGARVATNI
Hvert? Balí, Indónesíu
Hvenær? 2. júní
Hve lengi? Tvær vikur
Hve margir? 31 manns
Verð 275.000 kr.
Áfengi innifalið Nei
Farið eftir fjórða bekk
MENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
Hvert? Bodrum, Tyrklandi
Hvenær? 31. ágúst
Hve lengi? Tíu nætur
Hve margir? 174 skráðir
núna
Verð 175.000 kr.
Áfengi innifalið Nei
Farið fyrir 4. bekk
KVENNASKÓLINN
Í REYKJAVÍK
Hvert? Marmaris, Tyrklandi
Hvenær? 3. júní
Hve lengi? Boðið upp á 7 og
14 daga
Hve margir? Um 150
Verð 220.000 kr. fyrir þá sem
eru lengst
Áfengi innifalið
síðari sjö dagana
Farið eftir 4. bekk
VERZLUNARSKÓLI
ÍSLANDS
Hvert? Marmaris, Tyrklandi
Hvenær? 25. maí
Hve lengi? Boðið upp á 7, 10
og 14 daga
Hve margir? Um 200
Verð 220.000 kr. fyrir þá sem
eru lengst
Áfengi innifalið
síðari sjö dagana
Farið eftir 6. bekk
MARMARIS
MALLORCA
MAROKKÓ
BODRUM
Kostnaður útskriftarnema
íslenskra framhaldsskóla við
útskriftarferðir getur verið hátt
í þrjú hundruð þúsund krónur.
Fjöldi skóla heldur enn uppi þeirri
hefð að fara í útskriftarferð.
Fréttablaðið tók saman hvert sex
íslenskir framhaldsskólar ætla
sér að fara í sumar, hve lengi og
hver kostnaðurinn er.
Skólarnir sex sem urðu fyrir
valinu í úttektinni eru Mennta-
skólinn á Akureyri, Menntaskól-
inn í Reykjavík, Menntaskólinn
við Sund, Menntaskólinn að Laug-
arvatni, Kvennaskólinn í Reykja-
vík og Verzlunarskóli Íslands.
Allir eiga þessir skólar það sam-
eiginlegt að í þeim er bekkjakerfi.
Kostnaðarsamasta ferðin, af
þeim sem Fréttablaðið tók út,
sem farin er í ár er sú sem nemar
Menntaskólans við Laugarvatn
halda í. Í byrjun júní, að útskrift
lokinni, munu þeir leggja í hann
til Balí þar sem dvalið verður í
tvær vikur. Að auki er stefnt að
því að hópurinn gisti í eina nótt
í London áður en haldið er áfram
til Indónesíu. Aðeins morgunverð-
ur er innifalinn í verðinu en ekki
frekari máltíðir eða veigar.
Nemar Menntaskólans í Reykja-
vík halda til Norður-Afríku og
munu dvelja þar í tæpar tvær
vikur. Í upphafi stóð til að hóp-
urinn færi til Mexíkó en fyrir
rúmum mánuði var ákveðið að
breyta um áfangastað þar sem sú
ferð þótti of dýr. Ferðin til Mexíkó
átti að kosta tæplega 310.000
krónur en með því að fara til Mar-
okkó sparast tæplega sjötíu þús-
und krónur. Drykkir og fullt fæði
er í boði síðari hluta ferðarinnar
en þann fyrri er aðeins morgun-
matur innifalinn.
Ferðir Verzlunarskóla Íslands
og Kvennaskólans í Reykjavík
munu skarast í örfáa daga og
um tíma munu því tveir hópar
útskriftarnema vera saman í
Marmaris í Tyrklandi. Ferðir
skólanna kosta ríflega tvö hundr-
uð þúsund krónur og í boði er að
vera í allt að tvær vikur. Einhverj-
ir kjósa þó þann kost að fara að
viku liðinni til að ná inntökupróf-
um í Háskóla Íslands. Matur og
áfengi er innifalið í verðinu síð-
ari hluta ferðarinnar.
Magaluf á spænsku eyjunni
Mallorca er áfangastaður þeirra
sem útskrifast frá Menntaskólan-
um við Sund. Þeir, líkt og nemar
MR og MA, fara í sína ferð áður
en þeir hefja nám á lokaári. Er
það gert til að þétta hópinn og
búa til ný vinabönd, auk þess að
treysta þau gömlu, fyrir síðasta
skólaárið. Nemendum stendur til
boða að vera annaðhvort í viku
eða tvær og veltur kostnaður
hvers og eins á því hve lengi hann
dvelur.
Nemendur Menntaskólans á
Akureyri komast í burtu með
minnstan ferðakostnað. Ferð
þeirra kostar 175.000 krónur en
aðeins morgunmatur er innifal-
inn í verðinu. Hundrað þúsund
krónum munar því á þeirri ferð
sem dýrust er og hinni ódýrustu.
Hvert svo sem ferðinni er nú
heitið og hvað sem hún mun kosta
er morgunljóst að nemar munu
skemmta sér.
ÚTSKRIFTARNEMAR LEGGJA
SÓLARSTRANDIR UNDIR SIG
Hlutur hvers nema vegna útskrift arferðar framhaldsskóla er gífurlega mismunandi eft ir skólum. Hundrað þúsund krónum munar á
dýrustu og ódýrustu ferðinni í úttekt Fréttablaðsins. Dæmi eru um að breytt hafi verið um áfangastað sökum þess hve dýrar ferðir eru.
Á TÓGAKVÖLDI Stjórn Hugins, nemendafélags Menntaskólans á Akureyri, úti á Krít
síðasta haust. MYND/KRISTÍN RELEENA JÓNASDÓTTIR
➜ Dýrasta ferðin er 57%
dýrari en sú ódýrasta.Jóhann Óli Eiðsson
johannoli@frettabladid.is
1
1
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:0
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
1
C
-1
D
8
0
1
4
1
C
-1
C
4
4
1
4
1
C
-1
B
0
8
1
4
1
C
-1
9
C
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K