Fréttablaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 12.03.2015, Blaðsíða 54
12. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 BAKÞANKAR Frosta Logasonar Rokkkóngur Íslands og ein vinsælasta þungarokksveit lands- ins um árabil komu saman síðustu helgi á tónleikum í Hörpu. Bubbi Morthens er ánægður með útkomuna og segir tón- leikana hafa verið sögulega. „Þessir tónleikar voru galdur og af öllum mínum ferli set ég þessa tónleika í topp fjóra.“ Á tónleikunum voru spiluð lög af plötunni Geislavirkir með Utangarðsmönnum, sem kom út árið 1980. Meðal laga á plötunni eru Hiroshima og Kyrrlátt kvöld við fjörðinn. Einnig voru lög af plötunni Lily Marlene spiluð sem hljóm- sveitin Das Kapital gaf út, og má þar nefna lögin Blindsker og Leyndarmál frægðarinnar. „Dimma tók þessi lög og setti þau í þannig búning að þau öðluðust nýtt líf – það má segja að lögin hafi farið að heiman í fullorðinsfötum. Bæði kvöldin voru í einu orði sagt mögnuð og þetta er ein af mínum stóru stundum í rokkinu,“ segir Bubbi um upplifun sína af tónleikunum. Einn af hápunktum ferilsins Síðustu helgi stilltu Bubbi Morthens og Dimma saman strengi sína í Eldborg og fl uttu lög Utangarðsmanna og Das Kapital. Á SVIÐINU Bubbi ásamt meðlimum þungarokk- sveitarinnar Dimmu í Eldborgar- salnum í Hörpu. Hér sýnir Ingó Geirdal gítarleikari snilldartakta. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR FERSKUR Bubbi Morthens lék á als oddi á tónleikunum, fullur af krafti og naut sín í botn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BRÆÐUR Á TÓNLEIKUM Hafsteinn, Egill og Sigurjón Magnússynir voru á tónleikunum ásamt Kristbjörgu og skemmtu sér vel. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Ósjaldan lendi ég í því að fólk vilji ræða við mig um Guð. Mér þykir það ekkert leiðinlegt. Ég kemst hins vegar ekki hjá því að greina oft mikil vonbrigði hjá viðmæl- endum mínum með samskiptin og virð- ast þeir yfirleitt frekar ófullnægðir þegar spjall okkar tekur enda. OFT byrja þessir aðilar samræðurnar á því að vilja undirstrika skynsemi sína og segja mér að þeir trúi sjálfir ekki á einhvern Guð á himnum, í hásæti með sítt hvítt skegg. Þeir séu nú ekki svo vitlausir. En þeir hins vegar viti vel að einhver kraftur sé þarna úti. Án þess að vilja útskýra það eitthvað nánar. ÞEGAR ég segist ekki deila þess- ari skoðun er ég oft sakaður um þröngsýni og mér bent á að það sé sjálfum mér óhollt að sýna lífinu ekki meiri auðmýkt en þetta. Að líf mitt gæti verið miklu innihaldsríkara og jafn- vel betra í alla staði ef ég mundi láta af þessum dæmalausa hroka. Þegar ég reyni að útskýra að fyrir mig persónulega sé ákveðinn ómöguleiki í þessu er mér oft bent á frábæra afsláttarleið. ÉG þurfi nefnilega ekkert endilega að trúa á guð. Ég þurfi bara að vera til í að reyna það, þá muni líf mitt strax verða auðveld- ara. Ég eigi bara að hætta að pæla í því hvort Guð sé til eða ekki til. STAÐREYNDIN er hins vegar sú að ég hugsa aldrei um þetta. Ekki nokkurn tíma. Ég veit í alvöru ekki hversu mörg ár eru síðan hugmyndin hvarflaði síðast að mér að hugsanlega gæti verið til einhver guð þarna úti. Ég veit að það er aðeins styttra síðan en þegar hugmyndin um tilvist jólasveinsins var mér enn óljós. En það er alltént mjög langt síðan. ÉG hef enn ekki séð neitt sem bendir til þess að Guð, jólasveinninn, tannálfar og annað huldufólk séu að leynast þarna úti fyrir öllum öðrum en þeim sem á það vilja trúa. ÞETTA þýðir þó ekki að ég sé algerlega sið- blindur og trúlaus. Ég trúi nefnilega eins og svo margir svokallaðir trúleysingjar meðal annars á mannréttindi, mannúð, þekkingu, dugnað, þrautseigju, heiðarleika, samstöðu, sanngirni, umburðarlyndi og reyndar margt fleira. Það virkar fínt fyrir mig. Siðblindur og trúlaus „Mér þykir ótrúlega leiðinlegt að það sé ekki verið að stofna ný ríki og þjóðir daglega. Ég væri til í að vinna við þetta,“ segir íslenskuneminn Atli Jasonarson. Í frítíma sínum hefur hann dundað sér við að búa til fána fyrir alls kyns ímyndaðar þjóðir og aðstæður. „Ég hafði mik- inn áhuga á fánum þegar ég var yngri og hann kviknaði aftur þegar Quiz- Up-leikurinn kom út kom út .“ Hann byrjaði a ð h a n n a fána fyrir alvöru fyrir um þremur vikum. „ É g v a r annars hugar og að velta hollenska fánanum fyrir mér. Af hverju er appels- ínugulan, lit konungs- fjölskyldunnar og lands- liðsins, ekki að finna í fánanum? Hvernig ætli hann liti út ef Holland væri hluti af Skandi- navíu?“ Í kjölfarið bjó hann fánann til og þá varð ekki aftur snúið. Á annan tug fána hafa litið dagsins ljós og fleiri eru í vinnslu. Afrakstrinum deilir Atli með umheiminum í myndaalbúmi á Facebook en hluta fán- anna má sjá hér til hliðar. Vinir Atla, og fólk sem hann rekst á á förnum vegi hefur verið duglegt við að senda honum beiðnir um mögulega fána sem hægt væri að teikna upp. Þeir muni líta dagsins ljós en fólk verði að bíða rólegt eftir þeim. „Ég óska í raun eftir fleiri ríkjum og byltingum svo ég geti haft þetta að atvinnu,“ segir Atli að lokum í gríni. - jóe Hannar þjóðfána fyrir ímynduð lönd og ríki Ef Kóreuríkin myndu sameinast Ísrael í einu ríki, hvernig liti fáninn út? Háskólanemi hefur svarið við því. HIÐ NÝJA KALMARSAMBAND Ef Ísland, Finnland, Svíþjóð, Danmörk og Noregur myndu sameinast. SJÁLFSTÆÐAR Vilji Vestmannaeyingar kljúfa sig frá Íslandi gætu þeir notað þennan fána. KÓREUÍSRAEL Ísrael, Norður-Kórea og Suður-Kórea í einni sæng. SÁ NÝJASTI Botsvana og Namibía sameinuð sem Pokémon-nýlenda. Leikarinn Ashton Kutcher lýsti yfir óánægju sinni með skipti- aðstöðu fyrir börn á Facebook- síðu sinni. „Það er aldrei skipti- aðstaða inni á karlaklósettum. Fyrsta almenningssalernið sem breytir þessu fær auglýsingu frá mér á Facebook,“ skrifaði Kutcher og merkti færsluna með #BeTheChange. Hann á fimm mánaða gamla dóttur, Wyatt, með unnustu sinni Milu Kunis. Þau hafa sagt frá því í fjölmiðlum að þau ætli ekki að ráða barnfóstru fyrir dóttur sína, líkt og vinsælt er í Hollywood, heldur sinna upp- eldinu sjálf. Ósáttur við skiptiaðstöðu VILL BREYTINGU Kutcher er þreyttur á að geta ekki skipt á dóttur sinni. THE DUFF 5:50, 8 CHAPPIE 8, 10:30 STILL ALICE 5:50, 8 VEIÐIMENNIRNIR 10:10 HRÚTURINN HREINN 5:50 10:10 ÁLFABAKKA AKUREYRI EGILSHÖLL KRINGLUNNI KEFLAVÍK siSAM Nicole Kidman Colin Firth Mark Strong FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA THE GRUMP KL. 5.30 - 8 CHAPPIE KL. 10.20 VEIÐIMENNIRNIR KL. 5.30 BIRDMAN KL. 8 - 10.30 ÖMURLEG BRÚÐKAUP KL. 5.30 - 8 - 10.20 - ÍSL TEXTI THE DUFF KL. 3.30 - 5.45 - 8 CHAPPIE KL. 8 - 10.40 CHAPPIE LÚXUS KL. 5 - 8 -10.40 ANNIE KL. 5 HRÚTURINN HREINN KL. 3.30 FIFTY SHADES OF GREY KL. 10.20 KINGSMAN KL. 8 - 10.45 PADDINGTON KL. 5.45 - ÍSL TAL 20.000 MANNS Wild tales 18.00 Óli prik 18.00 Whiplash 18.00 What we do in the shadows 20.00, 22.00 Blowfly park 20.20 The trip to Italy 20.00 Íslenska krónan 22.00 HAPPY HOUR Á BARNUM 17-20 1 1 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :0 5 F B 0 6 4 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 1 C -4 5 0 0 1 4 1 C -4 3 C 4 1 4 1 C -4 2 8 8 1 4 1 C -4 1 4 C 2 8 0 X 4 0 0 5 B F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.