Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Blaðsíða 9

Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Blaðsíða 9
 GsiaÁaltcí l>iéttisi olis r Utgefandi: Handknattleiksráð karla Stiklað á stóru um handknattleikslið ÍBV1986-1993 Knattspymufélagið Týr og íþróttafélagið Þór kepptu allt til ársins 1986 í handknattleik undir merkjum félaganna. Einhvem tíma á árinu 1986 fóru menn í alvöru að ræöa það að sameina handknatt- leikinn undir merki IBV og lyfta handknattleiknum upp á hærra plan hér í Eyjum. Um haustið 1986 tóku svo Eyjamenn þátt í Islandsmótinu í handknattleik undir merki IBV og spiluðu í 2. deild. Formaður hand- knattleiksráðs karla á þessum tíma var Friórik Már Sigurðsson sturtubíl- stjóri og með honum í ráóinu voru margirgóðirmenn. Þjálfari var ráðinn Eyjólfur Braga- son. Fyrsta árið var gengi liðsins dapurt framan af. Um jólaleytiö var ÍBV í þriðja neðsta sæti í deildinni með 6 stig og var efsta liðið með 15. Eftir áramótin gekk betur og IBV keppti í síðustu umferðinni gegn Þór Akureyri úrslitaleik um 2. sætið sem gaf sæti í l.'deild. ÍBV tapaði leiknum mjög naumlega. Allt annar bragur var á liðinu á Is- landsmótinu 1987-88. Um jólin var liðið í efsta sæti deildarinnar meó 17 stig. Um vorið hömpuðu svo strákamir Islandsmeistaratitlinum í handknattleik í 2. deild. Takmarkinu var náð. Haustið 1988 tóku nýir menn viö stjóminni í handknattleiksráði. For- maður var kjörinn Stefán Jcnsson, ættaóur frá Grund. Eyjólfur hafði á- kveðið að hætta og í staðinn var ráðinn Sigurður Gunnarsson, heims- frægur handknattleiksmaóur og kom hann með margar nýjar og góðar hugmyndir með sér til Eyja sem áttu eftir að verða handknattleiknum til góða. liðið fór til Kanaríeyja í æfingabúðir fyrir Islandsmótið. Fyrsti leikurinn í 1. deild gegn Gróttu vannst auóveldlega en síðan komu fimm tapleikir í röð og mönnum leist ekkert orðið á blikuna Um jólaleytið var liðið í næst neðsta sæti deildarinnar með 4 stig. En strákamir sýndu og sönnuðu á fyrsta árinu að þcir ættu fullt erindi í deild- ina því liðinu tókst að halda sér uppi í 1. deildinni. Fyrir íslandsmótió 1989-90 hætti Sigurður þjálfun liðsins þegar hann ætlaði að fara aftur í atvinnu- mennskuna. Við þjálfun liðsins tók Hilmar Sigurgíslason en hins vegar lék Sigurður áfram með liðinu því ekkert varð úr að hann færi erlendis. Þetta var erfiður vetur hjá strákunum en með mikilii seiglu tókst þeim að halda sérí dcildinni. Handknattleiksvertíðin 1990-91 cr stærsta ár í sögu handknattleiksins í Eyjum. Sigurður Gunnarsson tók aftur við þjálfun liðsins og nú skyldi stefnt hátt. Haustið var mjög erfitt hjá strákunum og voru þeir í ncðri hluta deildarinnar um jólin. Eftir ára- mót var sem nýtt lið kæmi til leiks. Liðið lenti í 5. sæti deildarinnar og einnig geróu þeir sér lítió fyrir og urðu bikarmeistarar eftir hörku leik við Víkinga. Má með sanni segja að ÍBV hafði verið Iió ársins árið 1991. A lokahófi handknattleiksins fengu liðsmenn IBV fjölda viðurkenninga. Björgvin Þór Rúnarsson, fýrirliði IBV í leik gegn Haukum fyrr i vetur. Á íslandsmótinu 1992-93 gckk liðinu ágætlcga enda komið með töluverða reynslu í því að Ieika handknattleik við þá bestu. Hafnaði liðið í 8. sæti deildarinnar um vorið en var slegið út af Val í úrslita- kcppninni. Um mitt sumar 1993 tilkynnti Sigurður Gunnarsson handknatt- lciksráði að hann væri hættur þjálfun liðsins. Einnig .ákvað mcirihluti handknattleiksráðs að segja starfi sínu lausu og til að bæta gráu ofan á svart kom í Ijós að fjárhagsstaða deildarinnar var algjörlcga í rúst. Deildin skuldaði hátt í 15 milljónir. Nýir bjartsýnir menn tóku við rekstri dcildarinnar og um miðjan ágúst var Sigbjöm Oskarsson ráðinn þjálfari liðsins og hófst æfingar fljótlcga eftir ráðningu Sibba, rúmlcga mánuði á cftiráætlun. Einnig gerðist það aö Sigmar Þröstur Oskarsson markvörður á- kvað að ganga til liðs viö KA og þcgar menn voru rctt aö jafna sig eftir áfallið þá tilkynnti Erlingur Richardsson að hann ætlaði aö ganga til liðs við Hauka. Þctta voru tvcir af máttarstólpum liðsins og því gífur- legt áfall aö missa þá. Handknattlciksráð ákvaö aö lcita ekki eftir mönnum úr öðrum liöum heldur trcysta ungu strákunum sem eftir voru hér í Eyjum fyrir því crl'iða hlutvcrki að spila í I. dcild. Var þctta gcrt í samráöi við Sigbjöm þjálfara. Auk þcss kom Hclgi Bragason al'tur úr Víking. Þcgar þetta er skrifað cr liðið í næst neðsta sæti með 3 stig. Við Eyjamenn höfum oft séð þessa stöðu áöur hjá liðinu á stiga- töflunni svona rctt fyrir jólin. En alltaf hafa strákamir okkar náð að rífa sig upp eftir áramótin og sýnt hvaö býr í liðinu. Við sem stöndum á bak við strákana í handknattleiksráði höl'um fulla trú á þeim og treystum þeini til aö klára dæmið á nýju ári. Á morgun eiga þcir að leika viö eitt stcrkasta liðið í deildinni og er þetta síðasti lcikurinn á þessu ári. Valsmcnn eru í einu af efstu sætúnum í deildinni og því er nauðsynlcgt að Eyjamcnn styðji vel viö bakið á liöinu. Skora ég á Eyja- nicnn að fjölmcnna í höllina og öskra vel: Áfram IBV. Oft var þörf en nú er nauðsyn. Pétur Steingrímsson ' ff'' inmnixogm^m^DB Apótek Vestmannaeyja h/f 3D ÍSFÉLAG VF.STMANNAFY.IA HF. f§gf hampiðjan hf Jk&ttéÆ. Stakkholti 4 - S: 28100 GEVALIA Það er kaffið 687510 FLUGLEIDIR ÍBV-Valur

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.