Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Blaðsíða 18

Fréttir - Eyjafréttir - 16.12.1993, Blaðsíða 18
Fimmtudagurinn 16. desember 1993 Brynjar Krist júnsson skrifar: Frjálshyggja, félags- HYGGJA, SJÁLFSTÆÐl! Kaupmannahöfn, 3. des. 1993 í Fréttum þann 18. nóv. sl. birtist grein undir nafninu „Hvar er kjarkurinn og getan?“ Greinin er rituð af ungum manni að nafni Róbert Marshall, sem er talsmaöur Fylkingar (nýtt stjómmálafélag). Fylking hefur væntanlega aðsetur í Kreml, húsi Alþýöubandalagsins í Vestmanna- eyjum, ætti reyndar aö vera Peking eöa Havana því þar em aðsetur síðustu leifa hinnar miklu stefnu úr austri. A árinu 1989 áttu Eyverjar 60 ára afmæli. Ekki var hægt að hugsa sér betri afmælisgjöf en fall Berlínar- múrsins, sem leiddi til hmns kommúnismans. Og skemmst er aö minnast landsfundar Alþýðubanda- lagsins, sem haldinn var á Akureyri. Þar var stefna flokksins tekin, vöðlað saman og hent í ruslið, því enginn vildi vera kenndur við stóra bróður í austri (og undrar engan). Þó voru 13,3% þjóðarinnar búinn að kjósa þessa stefnu. Við Islendingar fengum fljótt að sjá og heyra í fjölmiðlum um þá spillingu og misrétti sem fólk var beitt í austantjaldslöndunum. Má þar nefna myndir í sjónvarpinu um mis- „Vonandi hafa þessi svör veitt Fylkingu ein- hvern skilning á störfum Eyverja, einhver verður að kenna hvolpunum!“ rétti fólks í landi Caucesco, sem síðar var skreytt með gömlum frétta- myndum um komu hans til íslands. En þá héldu forvcrar Alþýðubanda- lagsins honum að sjálfsögðu veislu, hvað annað? Það er Ijótt og leiðinlegt að berá þetta á borð núna, en er sannleikur engu að síður og og það sem meira máli skiptir, þetta kemur okkur við. Skemmtilegur möguleiki að starfa með foreldrum. Er hægt að hugsa sér málefnalegri umræóu en milli tveggja kynslóða? I Eyverjum er enginn látinn gjalda fyrir aldur sinn. Á 26. afmælisdegi félagsmanns Fylkingar verður honum örugglega afhent bréf, sem á stendur: „Því miður ert þú oröinn gamall, takk fyrir ágæt störf.“ Félagsmaður skikkaður í Sjálf- stæðisflokkinn. Eins og þú sjálfur skrifar „Eyverjar félag ungra sjálf- stæðismanna", segir það sem segja þarf. Eru Eyverjar hundsaðir af flokknum? Eyverjar hafa sæti í mörgum nefndum bæjarins! Billjardmót, borðtennismót og Þórsmerkurferðir. Öllum er frjálst að taka þátt í öllum opnum keppnum Ey verja. Þórsmcrkurferðir eru félags- ferðir Eyverja. Eg hefði haldið aó félagshyggjufólk virti rétt félaga! Þá er komið að því sem virðist vera þymir í augum Fylkingar/Róberts, Upplýsingaritið. Aulabrandarar, því ntiður hef ég ekki haft tækifæri til að skoða Upplýsinga- ritið, sökum búsetu minnar. Vera má * Steinar Agústsson skrifar: Hvað er framundan? Ég má bara vera hreykinn yfir þeim jákvæðu ummælum fólks og hvatningarorðum við greinum mínum í Fréttum. Eitt dæmi af mörgum eru skrif mín um slysahættuna í umferðinni, og sér í lagi á mótum Heiðarvegar og Strandvegar. Þar þarf svo sann- arlega að koma upp umferðarljósum sem allra fyrst. Allt kostar þetta peninga en cru mannslífin ekki peningavirði, eða hvað? Ég vil taka það fram að ég efast ekki um vilja bæjaryfirvalda, en er sjálfsagt spurning um forgangsröð verkefna. Ég er undrandi á þeim sofanda- hætti almennings í þessum bæ að láta ekki í sér heyra um þessi brýnu mál sem varða alla bæjarbúa og ekki síst blessuð bömin. Atvinnuleysi er böl sem því miður er til staðar bæði hér í okkar bæjarfélagi og víða um land. Launafólk þarf að sýna stéttar- vitund í verki með því að standa þétt saman í sínum verkalýðsfélögum og vera vel meðvitað um rétt sinn og skyldur. Við eigum hér í bæ að fara fram á þá siðferðiskröfu að heima- fólk gangi fyrir í vinnu. Innflutningur á fólki á ekki að eiga sér stað þegar bamafólk gengur um atvinnulaust. Það á heldur ekki að líðast að fluttur sé út ferskur fiskur þegar verkefnaskortur er í vinnslunni. Miklir erfiðleikar fólks Erfiðleikar fólks eru miklir í dag. Borga þarf af íbúðum og standa í skilum með aðrar skuldir. Þess vegna er það lágmarks krafa að allir hafi vinnu og j)að cr ósk mín og von að öllum aðilum vinnumarkaðarins hér í bæ bcri gæfu til að tryggja öllum vinnu á næsta ári. Það er vá fyrir dyrum cf til vcrkfalls kemur um áramót hjá sjómönnum. Auðvitað gengur þetta kvótabrask ekki lcngur með fiskinn í sjónum. Ég kemst ekki hjá því í síðustu grein minni á þessu ári að ræða samninga ASÍ aðalsins. Ég held að þessi aðall hafi gleymt láglaunafólki sem hefur ekki fengið eina krónu kauphækkun á þriðja ár. Allt í nafni þjóðarsáttar og er það gott svo langt sem það nær. Staðreyndin er nefni- lega sú að í dag lifir enginn á þessum smánarlaunum þó bónus og aukaálag komi til. Húsmæðurnar þurfa að kaupa í matinn til heimil- isins þótt skórinn kreppi, það kostar sitt, sérstaklega landbúnaðar- vörumar. Það er nefnilega landbúnaðarófreskjan og báknið sem er að drepa bændastéttina með óheyrilegu verði á landbúnaðar- vörum. Einokunarstefnu úrelts landbúnaðarkerfis verður verður að linna. Úrelt einangrunarkerfi Ég kemst ekki hjá því að minna fólk á að aðeins einn flokkur berst gegn þessu úrelta einangrunarkerfi, Alþýðuflokkurinn. íhald, Framsókn Steinar Ágústsson. og Alþýðubandalag vilja viðhalda þessu útbrennda kerfi. Þetta ætti launafólk að muna í umræðunni. Við höfum ekki efni á því kæra launafólk að kjósa kerfislið sem engu hefur gleymt og ekkert lært. Er það sæmandi í íslensku þjóðfélagi að henda matvælum á haugana eða brenna það á sama tíma og fjöldi fólks á varla til hnífs og skeiðar? Þetta er siðlaust og við eigum að koma ókkur út úr moldarkofa- hugsunarhættinum og fara að lifa í alvöru velferðarþjóðfélagi og vera jákvæð og hugsa til framtíðar, en hafna úrtökuliðinu, aðlinum og væjinu. Ég óska öllum Vestmanna- eyingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ár. Þakka liðið. Steinar Ágústsson Brynjar Kristjánsson. að þar sé „húmor“, sem ekki allir kunna að meta. En, ég held að þyngsta ásökunin liggi í þínum eigin orðum, því þú hefur „vió nánari athugun ákveðið að draga til baka ó- verðskuldað hrós um bleðil er þjáist af óhjákvæmilega málefnalegri fátækt." Upplýsingaritið er ekki málgagn Eyverja. Eyverjar telja hjálp í við- lögum og símanúmer öryggisstofn- ana málefnaleg og dýrmæt! Staf- setningavillur veróa því miður oft til hjá setjurum, en ekki Eyverjum. Auðvitað má vera að einhverjar villur séu á kostnað Eyverja. Ragnar „gamli“ Óskarsson, ágætur íslensku- kennari minn, fór eitt sinn með okkur (‘68 módelið) í ritmál Halldórs K. Laxness. Við komumst t.d. að því að Laxnes skrifar „saungur", sem er hans frelsi og bcr að viróa það. í grein þinni er Sjálfstæðisflokkurinn með litlu „s“, en Alþýðubandalagið með stóru „A“. Ekki ætla ég að sakast við þig eða Fylkingu um uppsetningu og stafsetningu greinar þinnar, en það er gaman að sjá félagshyggjumann not- færa sér frelsi og frjálshyggju í ritmáli. Samstarf Eyverja og Sjálfstæðis- félaganna í Vestmannaeyjum er mjög gott, má þar nefna Ásgarð. Ef hvert félag hefði setið í sínu homi væri félagsheimilið ekki til. Samstarf innan flokksins hefur einnig verið nijög öfundsvcrð gáta, fyrir vinstri sinnaða, því ekki hefur neinum fiokki tekist að halda höndum saman um þvílíkan fjölda fólks sem Sjálfstæðis- flokkurinn er. Getan liggur í því að árið 1929 stofnuðu ungir Sjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum með sér félag. Þetta félag er enn starfandi og öflugra en nokkru sinni fyrr, og ber nafnið Ey- verjar. Um óttann er eitt að segja: „Komið fagnandi". Óskhyggjan, í fyrsta skipti hittir þú naglann á höfuðið. Vonandi hafa þessi svör veitt Fylkingu einhvcm skilning á störfum Eyverja, einhver verður að kenna hvolpunum! Fylking telur á fjórða tug félags- manna, það væri gaman að sjá skiptinguna milli flokksbundins Alþýðubandalagsfólks og þeirra sem eru óflokksbundnir, fyrr taldi hópurinn skipar eflaust stjómina og sá síðar taldi félagsmenn? Stjóm Fylkingar er sérstæð, þar er ekki að finna oddamann. Einn félagi gegnir tveimur stöðum, er hinum ekki treyst- andi? Þetta er skrýtin útfærsla á stjóm félagshyggjufólks. Fylking, nei takk. Af hverju að ganga í félag, sem getur ekki einu sinni myndað lýðræðislega stjóm? Eyverjar, já takk. 64 ár segja sitt. Með ósk um gleðilega jólahátíð og friðsæls árs. Brynjar Kristjánsson, Eyverji FRETTIR 1 Útgcfandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Óntar Garðarsson. Blaðamaður: Þorsteinn Gunnarsson. Ábyrgðarmenn: Óntar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Aðsetur rit- stjórnar: Strandvegi 47 II. haeð. Sími: 98-13310. Myndriti: 98-11293. FRÉTTIR konta út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu í Tuminunt, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Pinnanum, Kránni, Búrinu, Betri Bónus, Vömval, Herjþlfi, Flugvallarversluninni, Eyjakaup, Eyjakjör og Söluskálanunt. FRÉTTIR em prentaðar í 1750 eintökum. FRÉTTIR cm aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfrétlablaða. Landakirkja Jólafundur Kvenfélags Landakirkju sem átti að vera í kvöld fellur niður. Sunnudagur 19. desember Kl. 11:00 Barna- og fjölskyl- dusamvcra - Börn úr Hamarsskóla flytja helgileik um jólaboðskapinn. Kl. 20:30 Jólafundur KFUM & K Landakirkju. - „Pálínukaffi“. Betel Fimmtudagur kl. 12:00 Súpufundur í Samkomuhúsinu. Fimmtudagur kl. 20:30 Biblíulestur, Steingrímur A. Jónsson. Föstudagur kl. 20:30 Unglingasamkoma (13 ára og eldri). Laugardagur kl. 20:30 Brotning brauðsins. (Beðið sérstaklega fyrir þeim sem þess óska). Sunnudagur kl. 13:00 Sunnudagaskólinn fyriröll brim og kl. 16:30 vakningarsamkoma. Aðventkirkjan Föstudagur: kl. 20:00 Aóventukvöld Laugardagur: kl. 10:00 Biblíurannsókn kl. 11:00 Guósþjónusta Efni: Kristur kjarni allrar tilveru. Gestir helgarinnar eru: Jón Hj. Jónsson og Sólveig Jónsson kl. 20:00 Spilað og spjallaö talar S: 11585 Bahá'i sam- félaqið Opið hús að KirRjuvegi 72B, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar kl. 20:30. Almennt umræðuefni. Allir velkomnir. Heitt á könnunni. Minningarkort: Eftirtaldar sjá um sölu á minn- ingarkortum Krabbavarnar: Kristín s: 11872, Hólmfríður s: 11647, Guóný sími 13084 og Anna s: 11678.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.