Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Síða 6

Skessuhorn - 11.09.2013, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Grænfáninn í Lillulund DALIR: Á morgun, fimmtu- daginn 12. september kl. 17:15, bjóða Ungmenna- og tómstundabúðirnar Dala- mönnum og öðrum áhuga- sömum að koma og fagna með þeim afhendingu Grænfánans og vígslu Lillulundar að Laug- um í Sælingsdal. „Ungmenna- og tómstundabúðirnar hafa verið skóli á grænni grein síð- an í nóvember 2010 og núna höfum við stigið „skrefin sjö“ og því unnið til alþjóðlegr- ar viðurkenningar, Grænfán- ans, sem staðfestingu á góð- um ásetningi og virku í um- hverfisverndarstarfi,“ segir í tilkynningu vegna viðburðar- ins á Laugum. –þá Óhöpp án telj- andi meiðsla LBD: Átta voru kærðir fyr- ir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum í liðinni viku. Þrjú umferðaróhöpp urðu og einn- ig var tilkynnt um slys þar sem maður hafði fallið úr nokk- urri hæð. Öll voru óhöppin án teljandi meiðsla á fólki, að sögn lögreglu. Fimm tilkynn- ingar bárust um að ekið hafði verið á búfé, en ökumenn eru beðnir að sýna sérstaka varúð á vegum nú í haust vegna árs- tíðabundinna fjárrekstra. –þá Hækka hluta Brúartorgs BORGARNES: Innan fárra daga er ráðgert að fram- kvæmdir hefjist við hækk- un hluta Brúartorgs í Borgar- nesi, frá gatnamótum götunn- ar og hringvegarins að gatna- mótunum við Digranesgötu. Að sögn Jökuls Helgasonar, forstöðumanns framkvæmda- sviðs Borgarbyggðar, stendur til að hækka götuna um 60 sm til að jafna hæð hennar betur við lóðir Stöðvarinnar og N1. Það er Borgarverk sem annast framkvæmdirnar sem eru um það bil að hefjast. –hlh Forsetinn við opnun Norðursalts REYKHÓLAR: Saltverk- smiðjan Norðursalt við Reyk- hólahöfn verður formlega opnuð þriðjudaginn 17. sept- ember nk. Af því tilefni mun Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, fara í heimsókn í Reykhólahrepp. Auk þess að vera viðstaddur vígsluna mun forsetinn verða með mót- töku og hádegisverð í Bjarka- lundi. Á Reykhólum heim- sækir forsetinn grunnskólann, Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð og skoðar Báta- og hlunnindasýninguna. –mm Vöruskipti hagstæð LANDIÐ: Samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunnar fyrir ágúst 2013 var útflutn- ingur frá landinu 44,2 millj- arðar króna og innflutningur 41,2 milljarðar króna á FOB verði. Vöruskiptin í ágúst voru því hagstæð um tæpa þrjá milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. -mm Tilnefningar til menningar- verðlauna AKRANES: Á fundi menn- ingarmálanefndar Akraness sl. þriðjudag var m.a. fjallað um þema fyrir menningarhátíðina Vökudaga sem orðin er árviss hátíð og jafnan haldin í byrj- un vetrar. Nokkrar hugmynd- ir voru ræddar en ákveðið að þema Vökudaga að þessu sinni verði „Milli fjalls og fjöru“. Á fundinum var jafnframt fjallað um verklag við val væntanlegs handhafa menningarverðlauna Akraneskaupstaðar, sem til- kynnt verður um á Vökudög- um. Á fundinum var ákveð- ið að opna fyrir tilnefningar- glugga á vef Akraneskaupstað- ar. Tekið verður á móti tillög- um til 10. október. Menning- armálanefndin hvetur bæjar- búa til að nota tækifærið að til- nefna einstaklinga og/eða hópa til verðlaunanna. –þá Ljóðalestur á degi íslenskrar náttúru SNÆFELLSNES: Á degi ís- lenskrar náttúru, mánudag- inn 16. september, býður þjóð- garðurinn Snæfellsjökull upp á ljóðalestur í þjóðgarðin- um. Farið verður með rútu um þjóðgarðinn, lesin ljóð og áð á nokkrum stöðum þar sem skilti með ljóðum hafa verið sett upp. Mæting er við gesta- stofu þjóðgarðsins á Hellnum kl. 14:30 og endar ferðin þar, rúmum tveimur tímum síðar. Allir eru velkomnir. Ferðin er lokapunktur á verkefninu Ljóð í náttúru sem er samstarfs- verkefni þjóðgarðsins og sjáv- arrannsóknarsetursins Varar. Verkefnið var styrkt af Menn- ingarráði Vesturlands. Nánari upplýsingar veitir þjóðgarður- inn Snæfellsjökull í síma 436 6860, 591 2000. –fréttatilk. „Vegna fjölda áskorana, mik- ils þrýstings, góðrar hvatningar og sennilega almennar sturl- unar hef ég ákveðið að halda Sauðamessu í Borgarnesi þann 5 október næstkomandi. Mik- il vinna hefur verið lögð í þessa hátíð undanfarin ár og vel tek- ist til. Fyrir það frumkvæði ber að þakka sem og það traust sem yfirsauðir síðustu ára, þeir Bjarki og Gísli, sýna mér með því að treysta mér fyrir þessu fjöreggi,“ segir í yfirlýsingu frá Hlédísi Sveinsdóttur fram- kvæmdastjóra Sauðamessu 2013. „Ég er ekki alveg ókunnug verk- efninu, því ég hef undanfarin ár verið með þeim félögum í þessu. En svona hátíð er ekki haldin nema að allir leggi hönd á plóg og meira og minna allt sveitarfélagið taki þátt. Ég er bara lítið peð í þessu sem rembist við að púsla þessum bitum á rétta staði svo að úr verði skemmtilegur dagur fyrir stóra sem smáa. Ég er byrjuð að hringja í mann og annan - og ömmu þeirra og ennþá gengur vel, en þetta er auðvitað með fyrirvara um að allir þættir gangi upp. Dagskráin verð- ur metnaðarfull að vanda; fjár- rekstur, tónlist, dans, töframað- ur, hátíðarræða, kjötsúpa, mark- aður og fleira og fleira í Skalla- grímsgarði. Það verða verðlaun fyrir frumlegasta sauðadressið og flottustu fjárhúfuna svo fólki er óhætt að fara að fitja uppá, ekki seinna en strax. Í lokin vil ég óska eftir þátttakendum í hið árlega lærakappát, seljendum á markaði og í raun öllum þeim sem vilja taka þátt í Sauðamess- unni 2013 með einum eða öðrum hætti. Við munum að sjálfsögðu loka deginum með Sauðamessu- balli í reiðhöllinni um kvöldið,“ segir Hlédís. mm Lögfræðidagur Háskólans á Bif- röst var haldinn sl. föstudag á Bif- röst. Þar komu saman núverandi og útskrifaðir nemendur úr við- skiptalögfræði ásamt kennurum á lögfræðisviði skólans. Dagskrá- in var fjölbreytt þar sem fræði- leg erindi voru í bland við hug- arflugsfundi um námið og tengsl eftir útskrift. Þau sem héldu er- indi voru m.a. Einar Karl Hall- varðsson ríkislögmaður og dós- ent við Háskólann á Bifröst, Þor- björg Inga Jónsdóttir hæstaréttar- lögmaður og stundakennari á Bif- röst ásamt Runólfi Ágústssyni fyrr- verandi rektor. „Það sem kom helst fram á fundinum meðal þátttak- enda var að viðskiptalögfræðin sem námsgrein hefur sannað sig á þeim 12 árum sem boðið hefur verið upp á það nám á Bifröst. Viðskiptalög- fræðingar útskrifaðir frá skólanum starfa víða í atvinnulífinu og sinna fjölbreyttum störfum. Voru þátt- takendur sammála um að sú blanda af lögfræðifögum og viðskipta- fögum sé ákjósanleg sérhæfing í störfum lögfræðinga í dag. Þær kennsluaðferðir sem viðhafðar eru á Bifröst eru á margan hátt óhefð- bundnar og ólíkar kennsluháttum í öðrum háskólum hérlendis,“ segir í tilkynningu frá skólanum. Þá segir að mikil samstaða hafi verið í hópnum um gæði námsins og hversu vel kennsluaðferðirn- ar nýtist við störf lögfræðinga þeg- ar út á vinnumarkaðinn er komið. Þá var einróma álit þátttakenda að halda í þá sérstöðu sem viðskipta- lögfræðin á Bifröst hefur skapað og bjóða þannig upp á annað lögfræði- nám en hið hefðbundna. „Háskól- inn á Bifröst er eini háskólinn á Ís- landi sem býður upp á þetta nám hérlendis en margir skólar erlendis bjóða upp á svipað nám. Þá má geta þess að Háskólinn á Bifröst var val- inn í alþjóðlegan hóp háskóla til að bregðast við breyttri stöðu lög- fræðinga á atvinnumarkaði í heim- inum.“ mm Þórdís Sif Sigurðardóttir, Unnar Steinn Bjarndal, Þorbjörg Inga Jónsdóttir, Ástráður Haraldsson og Einar Karl Hallvarðsson eru öll kennarar á lögfræðisviði Háskólans á Bifröst. Viðskiptalögfræðin á Bifröst þykir hafa sannað gildi sitt Sauðamessa verður í Borgarnesi 5. október Svipmynd frá Sauðamessu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.