Skessuhorn - 11.09.2013, Blaðsíða 13
13MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
Sólbakka 8 • Borgarnesi • ejiehf@simnet.is
Eiríkur 894 5151 • Ingólfur 892 8610
Sumarhús • Gluggar • Hurðir • Fög
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2013
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Mánudaginn 16. sept. kl. 10.00 – 18.00
Þriðjudaginn 17. sept. kl. 08.00 – 16.00
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Allar stærðir ökutækja skoðaðar
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
St. 38-58
Í tilefni af 70 ára afmæli mínu
þann 19. september verður
opið hús í Hjálmakletti, húsi
Menntaskóla Borgarfjarðar,
laugardaginn 21. september
frá klukkan 19:00.
Gaman þætti mér og fjölskyldu
minni að sjá ykkur sem flest.
Allar gjafir eru afþakkaðar en
það verður baukur á staðnum
merktur MS félagi Íslands.
Gísli V. Halldórsson.
Afmæli
Um þessar mundir er að hefjast um-
fangsmikil vinna við mótun nýrr-
ar mannréttindastefnu hjá Akra-
neskaupstað. Verkefnið er sam-
starfsverkefni Akraneskaupstaðar
og Rauða kross Íslands. Gunnhild-
ur Björnsdóttir er formaður starfs-
hóps um mótun jafnréttisstefnu
sem heldur utan um verkefnið fyr-
ir hönd Akraneskaupstaðar. Einnig
kemur Anna Leif Elídóttir að mál-
um. Verkefnisstjórn er hins vegar í
höndum Rauða krossins og vinn-
ur Anna Lára Steindal með starfs-
hópnum fyrir hönd RKÍ. „Mark-
miðið er að fá sem flesta að borð-
inu við mótun stefnunnar og við
erum þessa dagana að hafa sam-
band við mann og annan og aug-
lýsa eftir tillögum og sjónarmið-
um,“ segir Anna Lára. Verkefnið er
styrkt um tæpar sjö milljónir króna
af Progress áætlun ESB og ráð-
gert að hafa mismununartilskipan-
ir ESB til grundvallar. Áætlað er að
verkefni þessu verði lokið í júní á
næsta ári.
mm
Komin er til starfa við Garða-
prestakall á Akranesi sr. Ursula
Árnadóttir, sem mun leysa sr. Eð-
varð Ingólfsson af aðra hverja helgi
frá miðjum fimmtudegi til mánu-
dagsmorguns. Um hálfa prests-
stöðu er að ræða. Ursula kemur
ekki ókunnug til starfa í Akranes-
kirkju, söng í kirkjukór Akranes-
kirkju í nokkur ár og er innfædd-
ur Akurnesingur, eða Skagamað-
ur eins og hún sjálf vill kalla sig,
ættuð frá Teigi og Melaleiti. Hún
hefur lengst af starfað á Akranesi
við verslunar- og bankastörf, en
síðustu fimm árin verið sóknar-
prestur í Skagastrandarprestakalli.
Sr. Bryndís Valbjarnardóttir mun
leysa hana af fyrir norðan á með-
an. ,,Ég var mjög glöð og þakklát
þegar biskupsritari hringdi í mig
og bauð mér að starfa hér í hluta-
starfi í vetur og mig hlakkar mik-
ið til að þjóna bæjarbúum og fá
að sinna helgri þjónustu í minni
heimakirkju.“
Stofnsetti Grundaval
Í samtali við Skessuhorn sagði Ur-
sula að hún hafi kunnað mjög vel
við sig á Skagaströnd. „Þar er gott
samfélag og frábært fólk sem tók
mér mjög vel. En það er óneitan-
lega auðveldara að starfa í samfé-
lagi þar sem maður þekkir fólk og
aðstæður. Hér liggja rætur mín-
ar, það var gott að alast hér upp.
Þorpið mitt ól mig upp, enda var
kaupstaðurinn ekki stærri en svo
þegar ég man fyrst eftir mér, rétt
upp úr 1960, að maður tók með sér
nesti upp að Görðum, það þótti
þó nokkuð langur göngutúr,“ seg-
ir Ursula. Aðspurð segist hún hafa
tekið verslunarpróf frá Verslunar-
skóla Íslands að loknu landsprófi
á sínum tíma. „Svo fór ég í tækni-
teiknun og vann á Verkfræði- og
teiknistofunni hér á Akranesi um
tíma, en kláraði svo stúdentspróf-
ið í FVA.“
Ursula segir allt sem snéri að
þjónustu og mannlegum samskipt-
um hafi átt í henni ítök og þeg-
ar Grundahverfið fór að byggj-
ast upp byggði hún verslunina
Grundaval, núverandi Samkaup-
Strax. Sú verslun byrjaði reyndar
í litlum verslunarskúr sem Skaga-
versmenn áttu fyrst, en árið 1989
keyptu Ursula og Loftur Sigvalda-
son skúrinn af Marianne Ellings-
en. Það var síðan árið 1995 sem
hún byggði núverandi verslun-
arhús en þá var Loftur farinn til
annarra starfa.
Fékk sterka köllun
Leiðin lá úr verslunarrekstrin-
um í bankann og hjá Íslandsbanka
starfaði Ursula í nokkur ár, síðasta
sem skrifstofustjóri. – En hvernig
stóð á því að henni datt í hug að
fara í guðfræðina? „Ég hafði lengi
haft þetta nám í sigtinu, hef senni-
lega alltaf verið leitandi í andleg-
um málum og vildi vita meira um
guðdóminn. Sú þrá lét mig ekki í
friði og kallaði stöðugt á mig. Svo
kom að því, þótt ég væri í ágæt-
is stöðu í bankanum, þá varð ég
að sinna þessari köllun. Ég ákvað
haustið 2000 að skella mér í guð-
fræðideild Háskóla Íslands, þótt
ég myndi svo sem ekkert frekar
gera með þá menntun og stefnan
var ekkert í upphafi að taka prests-
vígslu. Sú hugmynd að sækjast eft-
ir að starfa á þessum vettvangi kom
ekki fyrr en á seinni hluta námsins
um leið og trú mín óx og styrkt-
ist. Ég útskrifaðist sem cand.the-
ol. í febrúar 2006. Þá réði ég mig
til starfa hjá Norðuráli á Grund-
artanga og var bara að vinna með
strákunum í kerfóðrun. Við vor-
um reyndar fleiri konur á besta
aldri sem réðum okkur í álverið á
þessum tíma og sumar þeirra eru
þar ennþá og hafa reynst vel. Ég
var hjá Norðuráli í átta mánuði,
fékk þá starf skrifstofustjóra Nes-
kirkju í Reykjavík og starfaði þar
þangað til ég var vígð í Hóladóm-
kirkju sem sóknarprestur Skaga-
strandarprestakalls þann 14. des-
ember 2008.“
Ursula segir að sér hafi því mið-
ur ekki tekist að ná eiginmanni
sínum Guðmundi Ágústi Gunn-
arssyni bónda og vélvirkja með
sér norður á Skagaströnd. Hann
sé sveitamaður og vilji búa útí
sveit, eigi litla jörð inni í Hval-
firði. Saman eiga þau þrjár dæt-
ur frá 21-27 ára og tvö barnabörn.
„Hér á Skaganum er öll fjölskyld-
an mín og öldruð móðir mín á
dvalarheimilinu Höfða, þannig að
það er líka að því leyti sem er gott
að vera komin á Skagann aftur þó
aðeins tímabundið sé. Ég vil nota
tækifærið og þakka sr. Eðvarði fyr-
ir að kalla mig hingað og traustið
sem hann sýnir mér,“ sagði Úrsúla
að endingu.
þá
Anna Lára Steindal.
Unnið að gerð mannréttinda-
stefnu hjá Akraneskaupstað
Ursula Árnadóttir mun þjóna í hálfu starfi við Garðaprestakall næstu níu mánuði.
Hlakkar til að þjóna
bæjarbúum á Akranesi