Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Qupperneq 16

Skessuhorn - 11.09.2013, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Skagakonur luku keppnistíma- bilinu stoltar sl. laugardag þeg- ar þær töpuðu 1:2 fyrir Fylki í úr- slitaleik 1. deildar Íslandsmótsins. Leikurinn fór fram í Lautinni í Ár- bænum á heimavelli Fylkis. Bæði lið buðu upp á ágætan fótbolta- leik og spiluðu vel þótt aðstæðurn- ar væru nokkuð erfiðar. Vindurinn sem fylgdi lægðinni sem þá var að ganga yfir landið jókst þegar leið á leikinn, en leikmenn sluppu samt við rigninguna. Fjöldi stuðningsmanna fylgdi Skagakonum á leikinn og var guli liturinn allsráðandi í stúkunni. ÍA liðið byrjaði af krafti en Fylk- ir hefur líka sterku liði á að skipa og náði að skora strax á 12. mín- útu. Var markadrottning 1. deild- ar Anna Björg Björnsdóttir þar að verki eftir að Skagavörnin hafði opnast. Áfram var leikurinn opinn og skemmtilegur þótt ekki væri í sjálfu sér mikið að gerast upp við mörkin. Þetta eina mark skildi lið- in af í hálfleik, en í upphafi þess síð- ari fengu Skagakonur sitt besta færi í leiknum. Guðrún Karitas Sigurð- ardóttir, helsta ógn ÍA í framlín- unni, komst þá á auðan sjó inn við vítateigshornið en skot hennar fór framhjá markinu. Lítið var síðan að gerast sem líklegt var að leiddi til marka fyrr en á 76. mínútu þeg- ar Fylkismenn bættu við marki eft- ir góða sókn, þar sem Guðrún Val- dís í markinu missti boltann frá sér. Leikurinn virtist ætla að fjara út án þess að Skagakonum myndi takast að klóra í bakkann, en það var síðan bráðefnilegur varamaður ÍA, Bryn- dís Rún Þórólfsdóttir, sem skoraði af miklu harðfylgi í viðbótartíma. Kornungt kvennalið ÍA getur borið höfuðið hátt eftir frammi- stöðuna í sumar. Ári eldri, eft- ir góðan undirbúning næsta vet- ur, ætti það með svolítilli styrkingu að hafa fullt erindi í Pepsídeild- ina. Trúlega bíða margir spenntir að fylgjast með gengi liðsins næsta sumar. þá Meistaraflokkslið kvenna hjá ÍA náði í síðustu viku að tryggja sér sæti í Pepsídeild kvenna á næsta ári þeg- ar liðið spilaði síðari undanúrslita- leik sinn við KR í Vesturbænum í Reykjavík. Síðari viðureign liðanna fór 2:0 fyrir KR en það dugði þeim röndóttu ekki til þar sem Skaga- konur unnu fyrri leik liðanna 3:0, og því samanlagt 3:2. ÍA leikur því í Pepsídeildinni næsta sumar. Í hin- um úrslitaleiknum áttust við Fylk- ir og Grindavík og voru það Fylk- iskonur sem höfðu betur, en þær unnu síðari leikinn 3:2 á heimavelli en samtals 6:3. Það var því ÍA og Fylkir sem mættust í hreinum úr- slitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild kvenna. Liðin léku í sama riðli í sumar og mættust alls þrisvar. Fyrsti leikur þeirra, sem fram fór á Akranesi, endaði með jafntefli 1:1, en sá síðari í Árbænum endaði með stórsigri Fylkiskvenna, 7:1. Skaga- konur áttu því harma að hefna í úr- slitaleiknum, en urðu að játa sig sigraðar 1:2 á laugardaginn. Engu að síður er sæti í deild þeirra bestu á næsta ári staðreynd. Fengu einstakan stuðning í sumar Magnea Guðlaugsdóttir þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍA seg- ir að tímabilið í sumar hafi geng- ið afar vel hjá liðinu sem tapaði ein- ungis þremur leikjum og gerði eitt jafntefli. „Við gerðum jafntefli við Fylki og töpuðum svo fyrir þeim og Frömurunum. Þetta voru ekki allt- af fallegir leikir sem við unnum, en við gerðum alltaf það sem til þurfti. Þegar fjórir leikir voru eftir vorum við búnar að tryggja okkur sæti í úrslitunum. Þetta var glæsilega gert hjá okkur.“ Sumarið 2012 var ÍA hársbreidd frá því að komast upp um deild en að mati Magneu munaði um í sumar að liðið náði að sigra í lélegu leikj- unum sínum. „Þessir lélegu leikir töpuðust í fyrra eða duttu í jafntefli, sem var sárt. Við unnum þá leiki í sumar og það þarf stundum heppni með efstu liðin. Þó er ég ekki að segja að það hafi verið heppni hjá okkur að komast upp. Mér fannst nokkrir leikir vera þannig að við gerðum það sem til þurfti en ekkert meira en það,“ segir Magnea. Á undan áætlun Magnea segir að stemningin í liði ÍA hafi verið mjög góð í sumar. „Þessar stelpur þekkjast vel og vita kosti og galla hverrar annarrar. Þær eru í mjög góðu jafnvægi og eru mjög samheldinn hópur. Ef stemn- ingin væri léleg þegar svona geng- ur hefði maður ekki gaman af fót- bolta. Stelpurnar hafa haft mjög gaman af þessu.“ Kjarni liðsins er sá sami og frá því að uppbyggingará- tak var sett af stað þar sem mark- miðið var að komast í efstu deild 2014. „Þegar farið var að spá í það fyrir alvöru að gera þetta lið að úr- valsdeildarliði fyrir fimm árum, átti að fara upp með hóp sem virkilega væri tilbúinn. Margar af stelpunum eru úr þeim hópi sem ætlað var að klára þetta alla leið. Að halda þess- um hópi saman hefur verið virkileg barátta, en það hjálpar mjög mikið að hafa hóp sem þekkist vel. Einn- ig er það einstakt að við séum með hreinræktað Skagalið. Í liðinu eru bara stelpur frá Akranesi og var það eina liðið í úrslitadeildinni sem ein- göngu var skipað heimamönnum.“ Magnea segir markmiðið að vera í efstu deild til margra ára. „Ef við hefðum ekki farið upp yrðum við í svakalegum vandræðum með að halda hópnum saman. Það er þó eins gott að við höldum hópnum saman því við ætlum okkur ekki að vera í efstu deild í eitt ár. Við ætlum að vera þarna í mörg ár og það ger- ist bara ef við náum að halda fólk- inu okkar.“ Hefði getað grátið Magnea telur að styrkja þurfi liðið fyrir næsta tímabil því mikið bil sé á milli deilda. „Fyrst og fremst þurf- um við að halda hópnum og byggja liðið upp í kringum þær. Stuðning- urinn sem liðið hlaut í sumar hjálp- aði einnig mikið til.“ Sá stuðningur sem við fengum í sumar og sérstak- lega í þessum tveimur leikjum var með ólíkindum. Ég var ekki bara klökk heldur hefði ég getað farið að hágrenja. Í seinni leiknum gegn KR áttum við stúkuna í Frostaskjóli og okkar fólk söng mun hærra en KR-ingarnir. Það er ekki spurn- ing að stuðningurinn hefur hjálp- að til, sérstaklega í heimaleikn- um því þá rúlluðum við yfir þær og áttu þær ekki séns. Stelpurn- ar eiga eftir að lifa á þessu þangað til þær verða gamlar og með flétt- ur,“ segir Magnea og bætir að lok- um við: „Það er alveg einstakt hvað við fengum góðan stuðning og ég elska alla Skagamenn.“ Ungur og samheldinn hópur Fyrirliði liðsins, Guðrún Þór- björg Sturlaugsdóttir, segði í sam- Góð frammistaða Skagakvenna í Árbænum Guðrún Karitas umkringd þremur varnarmönnum Fylkis. Skagakonur þakka áhorfendum stuðninginn að leik loknum. Stuðningsfólk ÍA var allsráðandi í áhorfendastúkunni. „Ætla sér að vera í efstu deild í mörg ár“ tali við Skessuhorn vera himinlif- andi yfir árangrinum og það hafi verið kærkomið að upplifa fagnað- arlætin þegar flautað var til leiks- loka á þriðjudaginn. „Við þurft- um að fá þessa útrás enda búnar að dreyma um það lengi að kom- ast í úrvalsdeildina. Í fyrra vorum við einu stigi frá því að komast í úr- slitakeppnina sem var frekar ömur- legt og því var það frábær og lang- þráð stund þegar seinni leikurinn kláraðist á móti KR. Við erum all- ar sem ein búnar að vera að stefna á að komast upp um deild í sumar og því var mjög gaman að ná þessu markmiði,“ segir Guðrún sem var einnig gríðarlega ánægð með þann stuðning sem liðið fékk á KR vell- inum. „Þegar ég leit yfir stúkuna sá ég að það voru sennilega fleiri Skagamenn á vellinum en KR- ingar. Þessi stuðningur skipti okk- ur miklu máli, en örugglega hefur reynt á taugar margra stuðnings- manna okkar undir lok leiksins,“ bætir hún við kímin í bragði. Guðrún segir að frábær liðsandi sé búinn að vera í hópnum í sum- ar og sé hann mjög samheldinn. „Við erum allar uppaldar Skaga- stelpur og höfum spilað saman upp yngri flokkana. Því þekkjumst við mjög vel og það veitir okkur styrk. Liðið er afar ungt, en sem dæmi er bara þrjár eldri en tvítugt í liðinu; ég, Ingunn og Helga Sjöfn. Restin er yngri en tvítugt.“ Guðrún dreg- ur ekkert undan þegar talið berst að keppni í efstu deild og segir til- hlökkun ríkja í hópnum að takast á við það verkefni. „Helga og Ing- unn eru þær einu af okkur sem leik- ið hafa í efstu deild, þannig að flest- ar okkar vita ekki hvernig það er að leika þar. Það breytir því þó ekki að við erum tilbúnar í slaginn á næsta ári.“ Misstum aldrei trúna Ingunn Dögg Eiríksdóttir hefur verið fastamaður í liði Skagakvenna í sumar en hún, ásamt Helgu Sjöfn Jóhannesdóttur, eru einu leikmenn liðsins sem léku með því þegar það lék í úrvalsdeild síðast árið 2005. „Það er frábært að ná þessum ár- angri og ríkir mikil gleði í hópn- um. Við erum með mjög ungt lið og finnst mér árangurinn enn betri í því ljósi. Allar erum við uppald- ar á Akranesi og erum til dæm- is eina liðið í úrslitakeppninni sem ekki er með erlendan leikmann innan sinna raða. Þetta sýnir styrk kvennaknattspyrnunnar á Skagan- um,“ segir Ingunn sem lofar þjálf- arateymi liðsins. „Þjálfararnir hafa náð að halda huga okkar við efnið í sumar og það hefur gert það að verkum að við misstum aldrei trúna á það að við myndum ná að klára verkefnið.“ Ingunn segir ljóst að langtíma- plan ÍA við að móta meistaraflokks- lið á grunni þess kjarna leikmanna sem nú myndar það. „Við snérum aftur til leiks í fyrra eftir tveggja ára hlé og vorum þá hársbreidd frá því að komast í úrslitakeppnina. Mark- miðið var alltaf að tryggja sér sæti í úrvalsdeild 2014 og sýnir liðið því sterkan karakter að ná því mark- miði. Í hópnum eru afar efnilegir leikmenn sem eiga eftir að bæta sig enn frekar á næstu árum, sérstak- lega þegar við munum nú kljást við bestu liðin á Íslandi á næsta tíma- bili. Það að eiga lið í efstu deild mun líka hvetja enn frekar þær stelpur sem eru að banka á dyrn- ar í meistaraflokki. Framtíðin er því björt í kvennaknattspyrnunni á Akranesi.“ hlh/sko Skagakonur fagna úrvalsdeildarsætinu eftir leikinn. Guðrún Þórbjörg Sturlaugsdóttir fyrirliði. Ingunn Dögg Eiríksdóttir. Þjálfarateymi liðsins, f.v. Margrét Ákadóttir aðstoðarþjálfari, Magnea Guðlaugs- dóttir þjálfari og Steindóra Steinsdóttir markmannsþjálfari.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.