Skessuhorn


Skessuhorn - 11.09.2013, Síða 31

Skessuhorn - 11.09.2013, Síða 31
31MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 2013 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Skagamaðurinn Eyleifur Jóhannesson hefur starf- að sem sundþjálfari í Dan- mörku sl. sex ár og ver- ið farsæll sem slíkur. Nú um helgina var Eyleif- ur, eða Leifi eins og Dan- ir kalla hann, kosinn sund- þjálfari ársins í Danmörku 2012/13. Hann var til- nefndur fyrir árangur sinn við þjálfun Viktor Bromers silfurverðlaunahafa frá Evr- ópuleikunum en einnig fyrir að gera sundlið Ála- borgar að næstsigursælasta sund- liði Danmerkur á árinu. Áður hefur Leifi meðal annars verið valinn ald- ursflokkaþjálfari 2010 í Danmörku og besti unglingaþjálfarinn 2011 og 2012. Þá hefur hann áður þjálfað afreksfólk í fremstu röð ytra. mm Grundarfjörður tók á móti Kára í sannkölluðum Vesturlandsslag fimmtudaginn 5. september sl. Bæði liðin þurftu mikið á stigun- um að halda en fyrir leikinn voru heimamenn í 6. sæti þriðju deildar með 19 stig en Kári sat í því níunda með 16 stig. Það var ljóst að mik- ið var undir þegar leikurinn byrjaði en mikil barátta einkenndi hann. Heimamenn byrjuðu af krafti en gestirnir unnu sig hægt og bítandi inn í leikinn. Það var svo á 38. mín- útu að gestirnir fengu aukaspyrnu við hliðarlínuna. Boltinn var sendur inn í vítateig þar sem að hann berst að lokum til Bjarka Sigmundssonar sem að skoraði gott mark og kom Kára í 1-0 forystu. Þannig var stað- an í leikhléi. Í síðari hálfleik sóttu heimamenn í sig veðrið og töldu sig hafa jafnað metin skömmu eft- ir leikhlé þegar boltinn endaði í neti gestanna en línuvörðurinn flaggaði rangstöðu. Sóknarþungi heima- manna jókst jafnt og þétt og það var svo á 58. mínútu að Dalibor Lazic fékk góða sendingu inn fyrir vörn Kára sem hann nýtti vel og jafn- aði leikinn 1-1. Eftir jöfnunarmark- ið skiptust liðin á um að sækja og áttu heimamenn til að mynda skalla í þverslá á marki gestanna. En hvor- ugu liðinu tókst þó að knýja fram sigur og því varð jafntefli niður- staðan. Með stiginu náðu Grundfirðingar að tryggja sæti sitt í deildinni. Jafnt- eflið dugði hins vegar Kára ekki, þar sem bæði Magni og Leiknir frá Fáskrúðsfirði unnu sína leiki um helgina. Kári og Augnablik falla því niður um deild. Síðustu deildarleik- ir Vesturlandsliðanna þetta sumar- ið verða leikur Grundarfjarðar gegn Víði í Garði og Kári tekur á móti KFR í Akraneshöllinni. Báðir leik- irnir fara fram laugardaginn 14. september. tfk Grétar Ingi Erlendsson hefur geng- ið til liðs við úrvalsdeildarlið Skalla- gríms í Borgarnesi frá Þór Þorláks- höfn, þar sem hann hefur leikið síð- ustu ár. Grétar, sem er 2 metrar á hæð, skoraði 9,5 stig að meðaltali í leik á síðustu leiktíð með Þórsur- um og tók 5,6 fráköst að meðaltali í leik. Samningur Grétars við Skalla- grím er til eins árs með möguleika á framlengingu. Að sögn Björns Bjarka Þorsteinssonar, formanns körfuknattleiksdeildar Skallagríms, er tilkoma Grétars mjög góð viðbót við annars öflugan hóp leikmanna Skallagríms sem kemur vel undan sumri. Reiknað er með að Grétar verði í leikmannahópi Skallagríms í kvöld þegar liðið sækir Stjörnuna heim í Garðabæ, en hann fékk leik- heimild með liðinu í gærmorgun. Auk Grétars gengu tveir aðrir leikmenn til liðs við Skallagrím á dögunum, bakverðirnir Valur Sig- urðsson, sem lék síðast með Grét- ari Inga í Þór Þorlákshöfn 2010, og Borgnesingurinn Sigursteinn Orri Hálfdánarson sem var á mála hjá ÍA á síðustu leiktíð. Leikmannahóp- ur Skallagríms mun síðan styrkjast frekar á næstunni því búist er við að tilkynnt verði um nýjan erlend- an leikmann áður en langt um líð- ur. hlh Kvennalið Snæfells átti í litlum vandræð- um með andstæðinga sína í fyrsta leik sín- um á tímabilinu þeg- ar lið Fjölnis var andstæðingur- inn. Leikurinn var spilaður í Graf- arvogi á miðvikudaginn í liðinni viku. Þetta var fyrsta umferð B-rið- ils Lengjubikars kvenna í körfu- bolta. Lokatölur urðu 49:89. Frem- ur jafnt var með liðunum framan af leiknum en þegar nær dró hálfleik sigu Hólmarar fram úr og leiddu í hálfleik 45:26. Forysta gestanna var aldrei í hættu í síðari hálfleik og lönduðu Snæfellskonur því örugg- um sigri. Stigahæst Snæfellskvenna í leiknum var Hildur Sigurðar- dóttir með 25 stig en næst á eft- ir henni kom Guðrún Gróa Þor- steinsdóttir með 18 stig. Þá skor- uðu Eva Margrét Kristjánsdóttir 12 stig, Chynna Brown 11, Aníta Sæ- þórsdóttir 6, Edda Bára Árnadóttir 6, Helga Hjördís Björgvinsdóttir 4, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 4 og Rebekka Rán Karlsdóttir 3. Næsti leikur Snæfells í Lengju- bikarnum fer fram þriðjudaginn 17. september í Stykkishólmi og verða stúlkurnar í KR andstæðingarnir. hlh Styrktarmót Valdísar Þóru Jóns- dóttur var haldið á Garðavelli sl. sunnudag. Mótið fór fram við ágæt- ar aðstæður og var þátttaka góð. Golfklúbburinn Leynir, Valdís Þóra og aðstandendur hennar þakka öll- um kylfingum og fyrirtækjum sem styrktu hana með einum eða öðr- um hætti vegna mótsins, en eins og fram hefur komið í blaðinu stefnir Valdís Þóra á að komast í Evrópu- mótaröðina á næsta ári og fer í úr- tökumót til Marokkó í desember nk. Vegleg verðlaun voru á styrkt- armótinu og helstu úrslit urðu þessi: Punktakeppni 0-9 1. Hannes Marinó Ellertsson GL 35 2. Viktor Elvar Viktorsson GL 35 3. Hermann Geir Þórsson GVG 34. Punktakeppni 9,1-24 1. Lárus Hjaltested GL 38 2. Ingi Freyr Rafnsson GÁS 37 3. Gunnar Viðar GO 37. Punktakeppni konur 1. Svava Hjartardóttir GKG 36 2. Jóhanna Halldórsdóttir GKG 34 3. Eygló Grímsdóttir GR 34. Höggleikur karlar 1. Rafn Stefán Rafnsson GB 70 2. Bjarki Pétursson GB 78 3. Guðlaugur Rafnsson GJO 79. Höggleikur konur 1. Anna María Reynisdóttir GVG 88 2. Sigurbjörg J. Sigurðardóttir GL 95 3. María B. Sveinsdóttir GL 96. Nándarverðlaun 3. braut: Þórður Jónsson GR 2,08m 8. braut: Bragi Bragason GO 2,32 m 14. braut: Björn H Björnsson GR 3,78 m 18. braut: Þórður Emil Ólafsson GL 0,77m Lengsta teighögg á 17. braut: Karlar: Snorri Páll Ólafsson GR Konur: Hildur Magnúsdóttir GL þá Vel heppnað styrktarmót Valdísar Þóru Stórsigur Snæfellskvenna í Grafarvoginum Jafntefli í Vesturlandsslag Grundarfjarðar og Kára Skallagrímur semur við Grétar Inga Björn Bjarki Þorsteinsson, formaður kkd. Skallagríms, handsalar samning við Grétar Inga Erlendsson, nýjan leikmann Skallagríms. Eyleifur valinn besti danski þjálfarinn

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.