Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Þótt komið sé nýtt ár og lands- menn að mestu búnir að fagna með tilheyrandi flugeldaskotum og blysum er enn ástæða til að biðja fólk að fara varlega, því eftir er að kveðja jólin á þrettándanum. Spáð er stífri norðan- og austanátt á landinu næstu daga. Úrkomulít- ið verður sunnan til, af og til snjó- koma eða slydda á Vestfjörðum og fyrir norðan og austan en rigning með ströndum. Hiti verði yfirleitt í kringum frostmarkið, en aðeins fyrir ofan það syðra. Á miðvikudag er útlit fyrir minnkandi norðaust- anátt. Dálítil él á Norður- og Aust- urlandi, annars víða bjart veður. Víða vægt frost. Spurningin fyrir jól og yfir hátíð- irnar á vef Skessuhorns var: „Hvert er áramótaheitið?“ Flestir þeirra sem það strengja ætla samkvæmt svörunum að verða betri mann- eskjur, eða 12,42%. „Auka lík- amsrækt“ kom næst með 9,84%, „borða hollari mat“ 8,87%, „vinna minna“ 4,52%, „vinna meira“ 3,39% og „hætta löstum“ 3,23%. Fleiri en einn af þessum valmögu- leikum svöruðu 11,13% og „ekkert af þessu“ sögðu 4,52%. Stór hluti sagðist ekki strengja áramótaheit, eða 42,1% þeirra sem þátt tóku í könnuninni. Í þessari viku er spurt: Verður árið 2014 betra eða verra fyrir þig? Framleiðendur áramótaskaupsins, hvaðan sem þeir koma af land- inu, eru menn vikunnar að mati Skessuhorns. Til minnis Veðurhorfur Spurning vikunnar Vestlendingur vikunnar Árbók Akurnesinga 2013 AKRANES: Bókaútgáfan Upp­ heimar sendi frá sér rétt fyr­ ir áramótin Árbók Akurnesinga 2013. Þetta er tíunda árið í röð sem Árbókin kemur út. Ritstjóri hennar er Sigurður Sverris­ son. Í Árbókinni kennir ýmissa grasa. Þar eru fastir liðir á borð við annála frétta og íþróttavið­ burða 2012 og yfirlit um látna Akurnesinga sama ár. Einnig er að finna í bókinni ýmsan sögu­ legan fróðleik, viðtöl og ferða­ sögur. -mþh Kona meiddist við fall af hestbaki LBD: Kona á fimmtugsaldri meiddist rétt fyrir áramótin er hún féll af hestbaki á sveitabæ í Hvalfjarðarsveit. Ástæða óhappsins var að hesturinn fældist. Var konan flutt á sjúkra­ húsið á Akranesi til skoðun­ ar og meðferðar. Hún kvartaði yfir verkjum í baki og mjöðm að sögn lögreglu. –þá 224 börn fæddust á árinu AKRANES: Á fæðingadeild Heilbrigðisstofnunar Vestur­ lands á Akranesi fæddust 224 börn á nýliðnu ári. Börnin eru heldur færri en árið áður, þá fæddist 281 barn. Síðasti Vest­ lendingur liðins árs kom í heiminn á gamlársdag og eru foreldrarnir úr Reykjanesbæ. Reiknað var með að barnið yrði fyrsta barn ársins 2014 en því lá á að komast í heiminn og fædd­ ist seinni partinn á gamlársdag. Fyrsta barn ársins 2014 á Vest­ urlandi var því enn ófætt í gær, þegar Skessuhorn var sent í prentun. –grþ Róleg áramót AKRANES/SNÆF: Jól og áramót voru til þess að gera ró­ leg hjá lögreglunni á Akranesi. Tveir ökumenn voru þó grip­ nir, grunaðir um akstur und­ ir áhrifum fíkniefna. Reyndist annar þeirra vera með fíkniefni í fórum sínum. Þá er einn öku­ maður til viðbótar grunaður um ölvun við akstur. Lögreglumenn sem voru að sinna verkefni í heimahúsi fundu kannabislykt frá einu herbergi. Í framhaldinu framvísaði húsráðandi grammi af kannabis. Þá kviknaði eld­ ur í íbúðarhúsnæði þar sem pottur hafði gleymst á eldavél. Húsráðandi slökkti eldinn með slökkvitæki og kom slökkvilið á staðinn til að reykræsta. Sömu sögu er að segja frá Snæfellsnesi og Akranesi. Lögreglan á Snæ­ fellsnesi segir að allt hafi verið með ró og spekt þar. –þá Samkvæmt samantekt Jónas­ ar Ragnarssonar eru nú við árslok þrír af fjórum elstu Íslendingunum fæddir á Vesturlandi. Sex af tíu elstu eru af Vesturlandi eða Vestfjörðum. Á Facebook­síðu sem Jónas heldur úti um langlífi kemur fram að Guð­ ríður Guðbrandsdóttir í Reykjavík er elsta konan, 107 ára síðan í maí, en hún er fædd í Laxárdal í Dala­ sýslu. Í öðru sæti er Guðrún Jóns­ dóttir í Hafnarfirði, einnig 107 ára, fædd í Vestur­Ísafjarðarsýslu. Í þriðja sæti er Guðný Ásbjörnsdótt­ ir í Reykjavík, 106 ára, fædd á Hell­ issandi. Georg Ólafsson í Stykkis­ hólmi er elstur karla, 104 ára síðan í mars. Hann er fæddur í Akureyj­ um á Gilsfirði í Dalasýslu. Nú eru á lífi 38 Íslendingar sem eru hundrað ára eða eldri, 31 kona og 7 karlar. Fyrir aldarfjórðungi voru 18 á lífi hundrað ára og eldri en aðeins fimm fyrir hálfri öld. mm Eins og kunnugt er heimilaði at­ vinnuvegaráðuneytið með reglu­ gerð frá 22. nóvember 2013 veið­ ar smábáta á síld innan brúar í Kol­ grafafriði, allt að 1.300 lestum. Fyrir þeirri ákvörðun voru fyrst og fremst þau rök að veiðarnar gætu bjargað verðmætum enda þá um­ talsverðar líkur taldar á að ákveðinn hluti síldar innan brúar væri dauð­ vona sbr. reynslu sl. vetrar. Nú hef­ ur ráðuneytið að fenginni umsögn Hafró ákveðið að úthluta ekki frek­ ari leyfum til síldveiða innan brú­ ar í Kolgrafafirði. Tilkynning ráðu­ neytisins er svohljóðandi: „Nú er komið fram að Hafrann­ sóknastofnun telur að hvorki súr­ efnisstaða né magn síldar innan brúar í Kolgrafafirði kalli á sérstak­ ar aðgerðir og telur því eðlilegast að veiðar úr stofninum lúti almennri fiskveiðistjórnun þar sem tekið er mið af ráðgjöf. Stofnunin mun eftir sem áður fylgjast náið með súrefnis­ mettun í firðinum og mun auk þess fara til síldarmælinga í janúar 2014, þannig að ný gögn um stofnstærð og dreifingu síldar liggi þá fyrir. Jafnframt er síldin komin í vetrar­ dvala og allt óþarfa skark í stofnin­ um veldur því að síldin þarf sífellt að eyða meiri orku en ella sem get­ ur haft áhrif á möguleika hennar að lifa af veturinn. Með hliðsjón af framangreindri ráðleggingu Haf­ rannsóknastofnunar hefur ráðu­ neytið ákveðið að stöðva frekari út­ hlutun á síld í samræmi við ákvæði reglugerðar 1036/2013 frá og með 31. desember 2013 að telja. Tekið skal skýrt fram að þeim aflaheim­ ildum í síld sem þegar hefur verið úthlutað fram að þessu skv. 2. gr. a reglug. nr. 1036/2013 og kunna að vera ónýttar, halda gildi sínu og verður hægt að nýta þó nýjum út­ hlutunum sé hætt.“ mm Kvenfataverslunin Litla búðin, sem rekin hefur verið um árabil á Akra­ nesi, hætti störfum á hádegi á gaml­ ársdag. Þar með lauk sögu verslunar sem hófst árið 1998 á tólf fermetra gólfrými við Esjubraut á Akranesi. Árið 2000 fluttu eigendur versl­ unarinnar, hjónin Elínborg Lárus­ dóttir og Birgir Snæfeld Björnsson, síðar reksturinn í fyrrum bílskúr við heimili þeirra á Vesturgötu. Fimm árum síðar opnaði verslun­ in í eigin húsnæði við Akratorg. Þaðan flutti hún síðastliðið haust í verslunarhúsnæði á Kirkjubraut 54 sem er þekktast fyrir að hafa hýst Bókaverslun Andrésar Níelssonar um áratugaskeið. Litla búðin hef­ ur einnig á starfstíma sínum stund­ að verslunarrekstur í Grundarfirði og á Eskifirði. „Það er fyrst og fremst af heilsu­ farsástæðum hjá mér að verslun­ inni var nú lokað. Ég er með gigt og læknirinn sagði að ég yrði að draga úr vinnu og sinna heilsunni. Þessi ákvörðun var tekin núna 10. desember og við hófum lokaút­ sölu þann fimmtánda. Það er búin að vera hálfgerð Þorláksmessu­ stemning hérna síðan,“ sagði Elín­ borg þar sem hún sinnti störfum í versluninni daginn fyrir gamlárs­ dag. Hún kveðst hætta rekstrinum með söknuði. „Ég vildi svo gjarn­ an halda áfram en þetta er mikil vinna. Dagarnir hafa oft verið lang­ ir því kvöldin og helgar hafa oft far­ ið í pappírsvinnu, að ganga frá inn­ kaupalistum og þess háttar sem fellur utan hefðbundins afgreiðslu­ tíma.“ Rekstur Litlu búðarinnar var auglýstur til sölu á liðnu hausti. El­ ínborg segir engan hafa sýnt áhuga á að taka við þannig að nú var ekk­ ert annað að gera en loka hinsta sinni. mþh Ráðuneytið stöðvar frekari úthlutun síldarkvóta í Kolgrafafirði Litla búðin hætt rekstri Elínborg Lárusdóttir eigandi Litlu búðarinnar og Valgerður Sigurðardóttir voru kampakátar við afgreiðslustörf á næstsíðasta opnunardegi verslunarinnar 30. desember sl. Þau eru elst þeirra sem fæddust á Vesturlandi. Heimild: Jónas Ragnarsson 31. desember 2013. Þess má geta að ellefta í röðinni er Ragney Eggertsdóttir í Borgar- nesi, fædd 13. júní 1911. Langlífir Vestlendingar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.