Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 20

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Vörur og þjónusta PARKETLIST PARKETSLÍPUN OG LÖKKUN Sigurbjörn Grétarsson GSM 699 7566 parketlist@simnet.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Árið 1999 setti Ágústa Ýr Sveins­ dóttir frá Skálanesi í Gufudals­ sveit flöskuskeyti í sjóinn. Ágústa var þá stödd við Húnaflóann, nán­ ar tiltekið á Sauðá á Vatnsnesi. Hún var þá tíu ára. Tveimur árum eft­ ir að Ágústa setti flöskuskeyti sitt í sjóinn fæddist ungur piltur sem í dag býr í Árnesi á Ströndum. Hann heitir Kári Ingvarsson og er 12 ára í dag. Nú í haust fann hann flöskuna með skeytinu í þar sem hann var að smala sauðfé. Á vef Reykhóla er sagt frá því þegar Kári opnaði flöskuna og fann í því heillegt bréf sem var þurrt og ágætlega læsilegt. Bréfið var dagsett 18. september 1999 og hljóðar svo: „Hæ hæ, ég er 10 ára stelpa sem heitir Ágústa Ýr. Ég á heima á Laugarbakka og á Skálanesi og set þetta bréf í sjóinn á Sauðá heima hjá Stellu. Þegar þú finnur þetta bréf, viltu þá senda mér bréf í pósti. Viltu líka senda flösku­ skeyti í sjóinn hjá þér?“ Kári varð við beiðninni, fann heimilisfang Ágústu Ýrar og sendi henni svarbréf um að hann hefði fundið flösku­ skeytið hinum megin við Húnafló­ ann frá þeim stað þar sem það var sett út fyrir 14 árum. Ágústa hefur á þeim 14 árum sem liðin eru mennt­ að sig í rafiðn. Hún var stödd í fríi í Nepal þegar henni bárust fregnir heiman frá Skálanesi um að flösku­ skeytið hennar væri fundið. Þaðan frá Nepal sendi hún svo póstkort til Kára í Árnesi í desember. Það fór hefðbundna leið með flugpósti og var komið í hendur viðtakanda nokkrum dögum síðar. mþh „Í dag fer bókavörður í síðasta sinn á Dvalarheimilið Höfða, með bækur til heimilsfólks. Bóka­ safnsþjónusta hefur verið óslit­ ið frá því Höfði tók til starfa. Nú hefur þjónustunni verið sagt upp, í sparnaðarskyni og tekur upp­ sögnin gildi um áramótin,“ sagði í frétt á heimasíðu Bókasafns Akra­ ness 18. desember sl. Þetta ger­ ist þar sem Dvalarheimilið Höfði hefur sagt upp þjónustusamningi sínum við Bókasafn Akraness. Þá segir að heimilisfólk á Höfða geti óskað eftir þjónustunni „Bók­ in heim“ og munu nokkrir heim­ ilsmenn færast yfir í þá þjónustu. En bókaverðir munu ekki lengur heimsækja heimilsfólk og kynna bækur. „Í upphafi sáu sjúkra­ vinir Rauða krossins um þjón­ ustuna, með stuðningi Bókasafns Akraness. Smám saman færðist þjónustan alfarið til bókasafns­ ins og síðustu árin í formi þjón­ ustusamnings. Bókasafnið þakk­ ar starfsfólki Höfða fyrir ánægju­ legt samstarf í gegnum tíðina og þeirra þátt í að gera bókasafns­ þjónustuna eins vinsæla og hún hefur verið,“ segir í frétt Bóka­ safns Akraness. mm Vetrarhæfileikarnir 2013 fóru fram í Borgarleikhúsinu síðastliðinn föstu­ dag með þátttöku hæfileikafólks úr röðum fatlaðs og ófatlaðs fólks. Hæfileikarnir marka upphaf ímynd­ arátaks á vegum Réttindavaktar vel­ ferðarráðuneytisins sem ætlað er að auka vitund almennings um styrk­ leika fatlaðs fólks. Réttindavakt ráðuneytisins stendur fyrir átakinu í samstarfi við Geðhjálp, Landssam­ tökin Þroskahjálp og Öryrkjabanda­ lag Íslands. Teknar hafa verið upp auglýs­ ingar þar sem fatlaðir einstaklingar sýna styrk sinn og sjónum er beint að þeim hæfileikum sem fólk býr almennt yfir. Auglýsingarnar voru frumsýndar við upphaf Vetrarhæfi­ leikanna en þær verða á næstunni sýndar í sjónvarpi og á netmiðlum. Við sama tilefni veitti Eygló Harðardóttir Kyndilinn, sem eru hvatningarverðlaun Réttindavakt­ ar velferðarráðuneytisins ætluð fjöl­ miðli sem fjallað hefur skarað fram úr í umfjöllun um málefni fatlaðs fólks. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi verðlaun eru veitt og féll Kyndillinn í skaut RÚV að þessu sinni. mm Skömmu fyrir jól afhenti Lár­ us L. Blöndal forseti ÍSÍ fulltrú­ um héraðsskjalasafna á Íslandi ein­ tök af afmælisbók ÍSÍ sem ber heit­ ið „Íþróttabókin – ÍSÍ, saga og sam­ félag í 100 ár.“ ÍSÍ hefur ákveðið að gefa öllum héraðsskjalasöfnum á landinu eintök af bókinni, sem inni­ heldur mikinn fróðleik um íþróttir í íslensku samfélagi síðustu 100 árin. Bókin var gefin út í tilefni af aldar­ afmæli sambandsins í fyrra. „Á afmælisárinu stóðu ÍSÍ og hér­ aðsskjalasöfn á landinu fyrir átaki í að safna og skrá skjöl íþróttafé­ laga hér á landi. Meginmarkmið átaksins var að safna og skrá eldri skjöl íþróttafélaga, svo sem fundar­ gerðir, sendibréf, félagaskrár, bók­ hald og ljósmyndir. Góður árangur varð af átakinu en milli 150 og 200 hillumetrar af skjölum frá yfir 300 íþróttafélagum eru nú í vörslu hér­ aðsskjalasafnanna. Átakið var upp­ hafið að góðri samvinnu íþróttafé­ laga og héraðsskjalasafna á landinu sem vonandi skilar áframhaldandi vitundarvakningu um mikilvægi þess að varðveita gögn og ljósmynd­ ir úr starfi íþróttahreyfingarinnar,“ segir í tilkynningu frá ÍSÍ. mm Umræður hafa verið um hlutverk „Sementsreitsins” við uppbyggingu nýrra atvinnutækifæra. Þarna gefst sérstakt tækifæri að búa til einstaka miðju í bænum sem drægi að marg­ vísleg ferðatengd viðskipti ásamt menningar­ og listatengdum grein­ um, auk atvinnu/þjónustu sem með fylgdi, sem þarf að stórefla! Í grein sem birtist á vef Skessuhorns und­ ir Aðsendar greinar eru reifaðar nokkrar hugmyndir fyrir íbúaþing, sem hvatt er til að verði skoðaðar. Fólk velti þessu fyrir sér, svo hægt yrði að sameinast um stefnu sem gæti skilaði Skaganum og bæjarbú­ um öllum nýjum tímum. Hafa ber í huga að núverandi svæði og bygg­ ingar á „Sementsreitnum” geta hýst neðangreind viðskipta­ og ferðaþjónustutækifæri, auk tengd­ rar starfsemi. Pálmi Pálmason Hér er birt fyrsta málsgrein úr grein Pálma Pálmasonar. Greinina í heild má lesa á vef Skessuhorns. Pennagrein Rís stóri ljóti andarunginn úr sementinu sem glæstur svanur? Keppendur Hæfileikanna ásamt dómnefnd og velferðarráðherra. Ímyndarátak um styrk- leika fatlaðs fólks Hætt að senda íbúum á Höfða bækur Frá afhendingu fyrstu bókanna. Frá vinstri er Gerður Jóhannsdóttir frá Héraðs- skjalasafni Akraness, Þorsteinn Tryggvi Másson frá Héraðsskjalasafni Árnesinga, Birna Mjöll Sigurðardóttir frá Héraðskjalasafni Mosfellsbæjar, Hrafn Svein- bjarnarson frá Héraðsskjalasafni Kópavogs, Svanhildur Bogadóttir frá Borgar- skjalasafninu og Lárus L. Blöndal forseti ÍSÍ. ÍSÍ færir héraðsskjalasöfnum íþróttabókina Leiðin sem flöskuskeytið fór er til þess að gera stutt, en engu að síður tók ferðin 14 ár. Flöskuskeyti velktist um í fjórtán ár

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.