Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Dæmd fyrir manndráp af gáleysi AKRANES: Héraðsdóm­ ur Vesturlands dæmdi í vik­ unni fyrir jól rúmlega fer­ tuga konu á Akranesi í tólf mánaða fangelsi fyrir mann­ dráp af gáleysi, þar af níu mánuði skilorðsbundna. Um er að ræða dóm vegna slyss sem varð á Akrafjallsvegi á liðnu vori þegar ung stúlka beið bana. Konan sem dóm­ inn hlaut ók undir áhrif­ um áfengis, of hratt og yfir á rangan vegarhelming á bíl sem kom úr gagnstæðri átt. Vínandamagn í blóði öku­ manns mældist allt að 2,7 prómill. Stúlka sem ók bíln­ um sem ekið var á lést sam­ stundis. Við ákvörðun refs­ ingar leit Héraðsdómur Vesturlands til þess að kon­ an játaði brot sitt skýlaust og hafði ekki áður gerst brot­ leg við lög. Konan var auk fangelsisdómsins svipt öku­ réttindum í fjögur ár og gert að greiða tæpa eina og hálfa milljón króna í málskostnað. –þá Nýskráðum hlutafélögum fjölgar LANDIÐ: Í nóvembermán­ uði voru nýskráð 153 einka­ hlutafélög hér á landi til sam­ anburðar við 132 í nóvember 2012. Nýskráningar voru flestar í fasteignaviðskiptum. Fyrstu ellefu mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.766, en það er 10% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 1.605 fyrirtæki voru skráð. Þá var 71 fyrirtæki tekið til gjald­ þrotaskipta í nóvembermán­ uði. Fyrstu ellefu mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 858, en það er 12,2% fækkun frá sama tímabili í fyrra þeg­ ar 977 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjald­ þrot það sem af er árinu er í flokknum byggingastarfsemi og mannvirkjagerð, samtals 171. –mm Söfnuðu yfir hálfri milljón AKRANES: Eins og fram kom í Skessuhorni fyrir jól stóðu nemendur og starfs­ fólk Grundaskóla á Akranesi fyrir söfnun handa bágstödd­ um í Malaví. Afrakstur jóla­ söfnunarinnar hefur nú ver­ ið millifærður inn á reikning Rauða kross Íslands. Sam­ tals söfnuðust 556.688 kr. að þessu sinni. Alls hafa nem­ endur, foreldrar og starfs­ menn lagt frá 2007 rúm­ ar tvær milljónir króna til hjálparstarfs RKÍ í Malaví. –mm Auka enn meira við greiðslumarkið LANDIÐ: Atvinnuvegaráðu­ neytið hefur gefið út breytingu á reglugerð um greiðslumark í mjólk og eykst það um tvær milljónir lítra strax á næsta ári. Greiðslumarkið verður því 125 milljónir lítra. Fyrr í vetur gaf ráðherra út reglugerð sem hækk­ aði greiðslumarkið um sjö millj­ ónir lítra. Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði komust að þeirri niðurstöðu skömmu fyrir jól að þessi aukning væri ekki nægjan­ leg og sendi ósk til ráðherra um að hækka greiðslumarkið um tvær milljónir lítra til viðbótar. Eng­ in dæmi eru um að greiðslumark hafi verið aukið um níu milljónir lítra milli ára. Ástæðan fyrir þessu er mikil aukning á neyslu mjólk­ urafurða. Aukið greiðslumark hefur engin áhrif á útgjöld ríkis­ sjóðs. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 14. – 31. des. Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 7 bátar. Heildarlöndun: 20.972 kg. Mestur afli: Signý HU: 6.074 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi 8 bátar. Heildarlöndun: 87.791 kg. Mestur afli: Kvika SH: 28.047 kg í sex löndunum. Grundarfjörður 9 bátar. Heildarlöndun: 213.096 kg. Mestur afli: Hringur SH: 42.706 kg í einni löndun. Ólafsvík 17 bátar. Heildarlöndun: 171.822 kg. Mestur afli: Ólafur Bjarnason SH: 38.199 kg í fimm löndun­ um. Rif 16 bátar. Heildarlöndun: 385.963 kg. Mestur afli: Saxhamar SH: 70.022 kg í tveimur löndunum. Stykkishólmur 25 bátar. Heildarlöndun: 200.751 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 61.449 kg í einni löndun. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Saxhamar SH – RIF: 69.566 kg. 17. des. 2. Þórsnes SH – STH: 61.449 kg. 16. des. 3. Tjaldur SH – RIF: 50.603 kg. 17. des. 4. Örvar SH – RIF: 46.172 kg. 16. des. 5. Hringur SH – GRU: 42.706 kg. 17. des. -mþh Daginn fyrir gamlársdag fékk starfsfólk Markaðsstofu Vestur­ lands ánægjuleg tíðindi, en því hafði öllu verið sagt upp miðað við áramót vegna skipulagsbreytinga. „Við fengum góða heimsókn frá fulltrúum Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi. Á þeim fundi var okk­ ur starfsfólkinu á markaðsstofunni tilkynnt að SSV tæki við rekstri markaðsstofunnar frá og með þess­ um áramótum. Jafnframt var samið við okkur um að halda áfram störf­ um okkar hér sem við samþykktum öll,“ sagði Rósa Björk Halldórs­ dóttir framkvæmdastjóri. „Okkur starfsfólkinu á Markaðsstofu Vest­ urlands langar að þakka öllum þeim sem studdu okkur á þeim óvissu­ tímum sem við höfum nú gengið í gegnum og stuðningi við markaðs­ stofuna okkar allra. Áfram Vestur­ land,“ segir Rósa Björk, en ásamt henni á skrifstofunni starfa Krist­ ján Guðmundsson og Sonja Nat­ halie Hille að markaðsmálum Vest­ urlands. mm Söfnun Þjóðkirkjunnar til stuðn­ ings kaupum á línuhraðli á Land­ spítalann er nú lokið. Alls söfn­ uðust 15.360.000 krónur. Agnes M. Sigurðardóttir biskup hitti Pál Matthíasson forstjóra Landspítal­ ans í liðinni viku og afhenti hon­ um söfnunarféð. Í bréfi sem bisk­ up sendi þjóðkirkjufólki sama dag þakkaði hún fyrir bænir og fram­ lag til þessa málefnis. Hún tilkynnti jafnframt að ákveðið hefur verið að helga einn sunnudag kirkjuársins heilbrigðisþjónustunni í landinu. Það verður 19. október á næsta ári. Jafnframt þakkar biskup fram­ lag almennings og kirkjunnar til þessa mikilvæga málefnis. „Þið hafið sannað að hugmyndaauðgi og mannauður er mikill í kirkj­ unni. Fjöldi söfnunarviðburða var á dagskrá í á þriðja tug prestakalla á landinu öllu undanfarna mán­ uði. Ég fagna því nú um áramót að nýr Línuhraðall hefur verið tekinn í notkun á Landspítalanum. Margir komu að því verkefni og lögðu gott til málanna. Krabbameinsfélagið Framför, félagið Blái naglinn og Kvenfélagasambandið ásamt fjölda fyrirtækja, líknarfélaga og einstak­ linga sem hafa stutt Landspítalann með beinum hætti,“ sagði biskup meðal annars í þakkarbréfi til al­ mennings af þessu tilefni. mm Nítján verkefni fengu nýverið út­ hlutað samtals 33,5 milljónum króna úr Þróunarsjóði ferðamála. Að sjóðnum standa Landsbankinn og atvinnuvegaráðuneytið og var hann stofnaður í tengslum við verk­ efnið Ísland allt árið. Markmið­ ið með starfrækslu hans er að efla starfsemi fyrirtækja í ferðaþjónustu utan háannartíma og auka arðsemi þeirra. Þetta er í þriðja sinn sem út­ hlutað er úr sjóðnum og barst hon­ um 61 umsókn að þessu sinni. Þró­ unarsjóðnum er ætlað að styðja við samstarfsverkefni fyrirtækja á til­ teknum svæðum eða afbragðsverk­ efni stakra fyrirtækja undir sömu formerkjum. Þá er hvatt til sam­ starfs skapandi greina við fyrirtæki í ferðaþjónustu. Sjóðurinn styrk­ ir einkum verkefnisstjórn, grein­ ingarvinnu, undirbúning verkefna, kaup á ráðgjöf og þróun hugmynda en einnig önnur verkefni sem stuðl­ að geta að lengingu ferðamanna­ tímans. Styrkir sjóðsins geta að há­ marki numið 50% af heildarkostn­ aði verkefnis. Til verkefna á Vesturlandi runnu tveir styrkir. Skagaferðir ehf. – Tas­ teIceland, fékk eina milljón króna til að skipuleggja ferðir um Akranes og nærsveitir fyrir erlenda ferða­ menn til að kynna atvinnuhætti og menningu heimamanna með áherslu á matarmenningu. Þá hlaut Sigrún Birna Einarsdóttir einn­ ig eina milljón króna í styrk vegna verkefnisins Upplifun á söguslóð. Það miðar að því að virkja þann fjársjóð sem felst í sérstöðu Vest­ urlands í náttúru, alþýðumenningu og ekki síst sögulegri arfleifð með áherslu á Borgarfjörð. mm Rósa Björk Halldórsdóttir og Björn Páll Fálki Valsson fráfarandi formaður stjórnar Markaðsstofu Vesturlands. Starfsfólk Markaðsstofunnar ráðið til SSV Nokkrir styrkþegar ásamt þeim Ragnheiði Elínu Árnadóttur ráðherra ferðamála og nýsköpunar og Steinþóri Pálssyni bankastjóra Landsbankans. Þróunarsjóður veitir styrki til verkefna í ferðaþjónustu Agnes M. Sigurðardóttir og Páll Matthíasson þegar þjóðkirkjan afhenti féð sem safnaðist. Þjóðkirkjan afhenti söfnunarfé vegna línuhraðals

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.