Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 12

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Hjónin og bændurnir Bjarni Sig­ urbjörnsson og Guðrún Lilja Arn­ órsdóttir að Eiði í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi eru Vestlendingar árs­ ins 2013. Ekki hefur farið framhjá lesendum Skessuhorns hversu um­ fangsmikill síldardauðinn mikli í Kolgrafafirði var síðasta vetur þeg­ ar talið var að um 52 þúsund tonn af síld hafi drepist í firðinum. Síld­ ina rak ýmist á fjörur í haugum við Eiði eða sökk til botns til rotnunar með neikvæðum afleiðingum fyrir lífríkið í heild. Útlit var fyrir mikla umhverfismengun. Grútarváin var allt um lykjandi. Hamförunum tók heimilisfólkið á Eiði hins vegar af hógværð og festu svo eftir var tekið í samfélaginu. Bændur eru öðrum þræði útverðir byggðarinnar í land­ inu gagnvart ríki náttúrunnar. Þær náttúruhamfarir sem birtust í síld­ ardauðanum í Kolgrafafirði hafa sýnt að hjónin á Eiði valda því hlut­ verki einkar vel. Þau eru að mati blaðsins og lesenda öðrum til fyr­ irmyndar hvað það snertir. Fyrir það fá þau nafnbótina Vestlending­ ar ársins. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti Bjarna og Guðrúnu á milli jóla og nýárs og ræddi við þau um atburði síðasta árs. Takast á við verkefnin í sameiningu Hjónin á Eiði tóku vel á móti blaða­ manni þegar hann bankaði upp á Eiði eftir akstur um vetrarrík­ ið á Snæfellsnesi. Þar skartaði Kol­ grafafjörður sínu fegursta. Kyrrlátt veður var í lofti og ógrynni fugla á eyrunum við þverun fjarðarins ­ vafalaust saddir eftir síldarát. Eftir stutta viðkynningu var blaðamanni fylgt til eldhúss þar sem hans beið kaffi og úrval af jólabakstri hús­ freyjunnar. Áður en langt um leið voru hafnar hrókasamræður. Það er Guðrún sem á ættir sínar að rekja að Eiði. Faðir hennar, Arn­ ór Páll Kristjánsson, er fæddur og uppalinn á bænum. Hann hóf bú­ skap þar ásamt Auði Jónasdóttur, móður Guðrúnar, árið 1958. Arn­ ór og Auður búa nú á bænum að Eiði 2. Þau fögnuðu 55 ára brúð­ kaupsafmæli sínu í nóvember síð­ astliðnum. „Á Eiði hafa ættmenni mín búið lengi. Hér var stundað­ ur sjálfsþurftarbúskapur áður en mamma og pabbi tóku við búinu. Fyrri ábúendur sóttu einnig sjó­ inn til að draga björg í bú. Mamma og pabbi hófu hins vegar að byggja upp það bú sem nú er, á þeirra bú­ skapartíma. Við Bjarni tókum síðan við þeim upp úr síðustu aldamót­ um,“ segir Guðrún. Bjarni er hins vegar Reykvíking­ ur. Að eigin sögn er hann þó fædd­ ur sem hreinræktaður dreifbýlis­ maður. „Mér hefur alltaf liðið best í sveit. Þar á ég einhvern veginn heima. Ég byrjaði snemma að fara í sveit á sumrin. Þá var ég á bæjun­ um Brennu í Lundarreykjardal og í Svignaskarði í Borgarhreppi. Einn­ ig var ég á bænum Hjalla í Kjós þar sem ég hafði vetursetu sem barn og gekk í skóla í Félagsgarði. Mér leið best í sveitinni. Þar vil ég vera,“ segir hann. Leiðir Bjarna og Guðrúnar lágu saman snemma. Þau hafa verið gift í yfir 25 ár. Bjarni er fæddur árið 1962 og Guðrún 1964. Saman eiga þau tvö börn, Lilju Björk 22 ára og Sigurbjörn 18 ára. „Við eigum ágætlega vel saman og höfum tek­ ist á við verkefnin í lífinu í góðri samvinnu og sátt. Þau hafa verið fjölbreytt – auðveld og erfið eins og gengur,“ segir Bjarni og minn­ ir á síldardauðann. „Við erum hins vegar alltaf viljug að leysa verkefnin sem upp koma og reynum eftir fremsta megni að nálgast lausn með jákvæðum og opnum huga. Hérna kemur lífsreynsla okkar beggja að góðum notum,“ bætir hann við. Ráðsmenn í Viðey Áður en Bjarni og Guðrún fluttu að Eiði voru þau ráðsmenn á ein­ um sögufrægasta stað Íslendinga, í Viðey við Reykjavík. Aðdragandi Viðeyjarára var skammur að þeirra sögn og um leið nokkuð óvænt­ ur. „Við vorum eiginlega ráðin að okkur óforspurðum. Við vorum að skoða uppbygginguna í eyjunni með Jóni Á. Péturssyni. Hann var þá verkstjóri framkvæmdanna þar og réði hann okkur hálfpartinn á staðnum. Þá vorum við búsett á Vopnafirði. Síðan fluttum við í eyj­ una árið 1988 er Viðeyjarstofa var vígð,“ segir Guðrún. „Við vorum ráðsmenn í Viðey þangað til að við fluttum hingað vestur árið 1998. Okkar hlutverk var að gæta eigna borgarinnar í eyjunni, sjá um við­ hald, gæslu, þrif og annað sem féll til. Yfirmaður okkar á þessum tíma var sr. Þórir Stephensen fyrrv. dóm­ kirkjuprestur en hann gegndi em­ bætti staðarhaldara í Viðey. Ég veit ekki hvað margir gera sér grein fyr­ ir því hversu mikið var lagt í endur­ uppbygginguna í eyjunni. Þarna var framkvæmt fyrir marga tugi millj­ óna. Því þótti ráðlegt að hafa fólk í henni allt árið. Við höfðum sérstak­ an bát til umráða og fórum á hon­ um milli lands og eyjar yfir Viðeyj­ arsund,“ bætir Guðrún við. Hún segir árin í Viðey hafa verið mjög minnisstæð fyrir fjölskylduna. „Reykjavíkurborg fékk húsin í Viðey, það er Viðeyjarstofu og Við­ eyjarkirkju, gefins frá ríkinu árið 1986 í tilefni af 200 ára afmæli borgarinnar,“ heldur Bjarni áfram. „Borgaryfirvöld ákváðu í framhald­ inu að láta gera þau upp. Einnig var byggð upp aðstaða í eyjunni til að taka á móti gestum. Það má kannski segja að það hafi verið fyrir til­ stilli Davíðs Oddssonar sem þá var borgarstjóri að ráðist var í þessar stórhuga framkvæmdir. Markmið­ ið var að varðveita söguna. Upphaf Reykjavíkur er einmitt tengt hús­ unum í eyjunni.“ Bjarni segir þennan áhrifa­ mesta stjórnmálamann síðari tíma á Íslandi hafa staðið eins og klett á bakvið uppbygginguna. „Davíð var mjög ákveðinn í að fylgja eft­ ir áformunum. Hann var skjót­ ur að taka ákvarðanir um ýmis mál sem snertu framkvæmdirnar. Við vorum oft í samskiptum við hann vegna starfs okkar. Hann var mjög mannlegur og góður í samskipt­ um, skemmtilegur karakter og eft­ irminnilegur. Sagt var að hann vildi ekki vera minni maður en Skúli Magnússon landfógeti sem hóf uppbygginguna í Viðey 1751 á tím­ um Innréttinganna. Davíð lagði mikla áherslu á að framkvæmd­ ir tækju ekki lengri tíma en gerð­ ust á 18. öld. Það stóð, jafnvel þótt að hann hafi ákveðið einn góðan veðurdag í eyjunni þegar hann var að kanna gang framkvæmda að láta líka gera upp kirkjuna.“ Á árun­ um sem Bjarni og Guðrún bjuggu í Viðey eignuðust þau Lilju og Sig­ urbjörn. Börn þeirra eru því fædd­ ir Viðeyingar. Bú og hestöfl Árið 1998 lá leið þeirri hjóna heim að Eiði. Þar hafa þau búið síðan. „Það var komið fararsnið á okkur þegar komið var fram á árið 1998. Við fundum að það var ekki sami áhuginn hjá nýjum meirihluta í Reykjavík varðandi Viðey. Því varð úr að við fluttum vestur. Fyrstu árin tókum við þátt í búrekstri num með foreldrum Guðrúnar eftir mætti, aðallega þó Guðrún. Sjálfur fékk ég vinnu sem fangavörður á Kvía­ bryggju. Með tíð og tíma tókum við loks við búskapnum á bænum. Þeg­ ar búið gaf nægjanlega af sér fyrir okkur bæði hóf ég að starfa meira við það með Guðrúnu og hætti fangavörslunni,“ segir Bjarni. Í dag er á Eiði rekið blandað bú með um 90 nautgripum. Þar af eru 28 ár­ skýr. Mjólkurkvóti búsins er 145 þúsund lítrar. Einnig eru 100 kind­ ur á Eiðisbúinu. Ekki eru þau með hesta á bæn­ um. Þess í stað skipar áhugi á hest­ öflum nokkurn sess. „Ég er með mikla bíladellu og er sérstakur áhugamaður um Chevrolet­bifreið­ ar. Sjálfur á ég Chevrolet Corvette, árgerð 1979. Ég nýt þess að aka bíl­ num á tyllidögum. Vegna bílaáhug­ ans höfum við hjónin staðið fyrir verkfæra­ og bílasýningu við bæinn í upphafi sumars í nokkur ár. Sindri ehf. hefur þar kynnt nýjustu verk­ færin. Mætingin hefur verið góð og vaxandi. Þarna mæta menn á nýbónuðum köggum af amerískri gerð. Bílarnir eru hver öðrum fal­ legri.“ Hugrekki þarf til að taka ákvarðanir Samtalið leiðist loks á braut síld­ arinnar – „silfurs hafsins“ eins og Íslendingar hafa gjarnan kall­ að þennan kviklynda fisk. Vegna síldardauðans er óhætt að segja að Bjarni og Guðrún Lilja að Eiði eru Vestlendingar ársins 2013 Íslendingum farnast best þegar þeir í sameiningu takast á við hlutina Guðrún Lilja Arnórsdóttir og Bjarni Sigurbjörnsson að Eiði með viðurkenningar sínar, áletraðan kristalsvasa og blóm frá Skessuhorni. Ljósm. hlh. Kolgrafafjörður fyrir og eftir hreinsun. Þykkt lag af grúti lá yfir fjörunni við Eiði.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.