Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.480 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.150. Verð í lausasölu er 600 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Þórhallur Ásmundsson, blaðamaður th@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir, blaðamaður gudny@skessuhorn.is Heiðar Lind Hansson, blaðamaður hlh@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson, blaðamaður mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Pálína Alfreðsdóttir palina@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Þegar land tók aftur að rísa Leiðari Á tímamótum sem þessum, þegar nýtt ár heilsar og það gamla kveður, er ágætt að staldra við og meta stöðuna. Ef eitthvað vit væri í manni ætti að nýta það sem aflaga fór á liðnu ári til að bæta um betur á því nýja. Sumir kjósa að kalla slíkt áramótaheit en aðrir hafa enga trú á loforðum af því tagi sem reynslan sýnir að flestir svíkja sjálfa sig um, gjarnan áður en janúar er liðinn. Hvað sem því líður ætla ég persónulega að stefna á að verða betri en ég var. Einhver myndi segja að það væri ekki háleitt markmið, en stefnu­ mótun er það engu að síður. Ég hef lofað sjálfum mér því að nú muni ég endanlega hætta að reykja, hreyfa mig meira og borða hollari mat. Reynd­ ar hef ég lofað sjálfum mér þessu öllu einhvern tímann áður, en nú hef ég séð að annað hvort er að duga – eða drepast. En hvað um það. Í Skessuhorni í dag er rætt við nokkra valinkunna íbúa á Vesturlandi og þeir beðnir að meta hvernig árið 2013 hafi reynst þeim, hvað standi uppúr og hvernig það nýja leggist í þá. Eðli málsins samkvæmt voru svörin nokkuð misjöfn. Flestir nefna að uppúr standi háleit kosninga­ loforð stjórnmálaflokkanna síðasta vor sem varð til þess að þjóðin valdi nýja stjórn. Reyndar hafa sumir á að orði að seint og illa gangi að uppfylla þessi loforð. Aðrir nefna hluti okkur nær svo sem síldardauðann í Kolgrafafirði, veðráttuna á nýliðnu ári eða persónleg mál. Ánægjulegast er að flestir kjósa að trúa því að nýbyrjað ár verði betra en það liðna. Ég er í hópi þeirra. Fyr­ ir þá atvinnurekendur sem stunda innlend viðskipti án beinnar snerting­ ar við útlönd, var liðið árið erfitt. Kaupmáttaraukning var hverfandi á síð­ asta ári enda hafa stjórnmálamenn lítið viljað um þá hagstærð tala að und­ anförnu. Í mínum huga var árið 2013 það annað erfiðasta á þessari öld í af­ komu og rekstrarumhverfi fyrirtækja sem ekki starfa í ferðaþjónustu, sjáv­ arútvegi eða öðrum gjaldeyrisaflandi greinum. Þess vegna meðal annars kýs ég að trúa því að nýbyrjað ár verði betra því einmitt þessar greinar eru framtíðar burðarásar í atvinnulífi okkar og gjaldeyrissköpun. Í þeim felast tækifæri okkar. Árið 2014 er ár tækifæranna kjósi menn að líta á sóknarfærin sem hvar­ vetna má eygja í okkar litla landi. Úrtölufólk getur náttúrlega sökkt sér ofan í neikvæðni, en það stoðar ekkert. Nefna má að jákvæð teikn eru til dæm­ is á lofti í ferðaþjónustu og væntanlega mun góð afkoma í sjávarútvegi færa okkur öllum betri tíð með blóm í haga, en ekki einvörðungu útgerðarfyr­ irtækjum eins og sumir kjósi að halda fram. Ef áliðnaðurinn, þriðja stærsta útflutningsgreinin, byggi við góðar söluhorfur mætti hreinlega segja að útlitið væri mjög bjart fyrir okkur Íslendinga þrátt fyrir mikla skuldsetn­ ingu ríkis og sveitarfélaga. Birgðasöfnun á áli á heimsvísu er engu að síður staðreynd og meðan meira er framleitt en not er fyrir mun verðið tæpast hækka. En jarðarbúar munu áfram borða fisk og þeir munu ferðast. Þess­ ar tvær atvinnugreinar munu, ásamt þrautseigju landans, leiða til þess að árið 2014 verður árið þegar Íslendingar fóru á ný að sjá til sólar. Fyrir okk­ ur Vestlendinga er fjölgun ferðamanna gleðiefni. Við munum á þessu ári upplifa að landshlutinn mun fá fleiri ferðamenn vegna þess að svæði okk­ ar er hið náttúrulega yfirfall þegar Suðurland, Reykjanes og höfuðborgar­ svæðið er orðið mettað. Við Íslendingar erum farnir að selja tugþúsundum ferðamanna myrkrið til að skoða norðurjósin. Það er loksins að takast það sem Einar Ben hugðist gera forðum. Við eigum gríðarleg tækifæri í nátt­ úrutengdri þjónustu og landið heillar flesta sem hingað koma. Ekki kæmi mér t.d. á óvart að jákvæð umsögn Ben Stillers um land og þjóð á eftir að hafa langtímaáhrif í líkingu við gosið í Eyjafjallajökli. Sjáum allavega til með það. Þessi brotna þjóð þarf að taka aftur upp trú á því að hér séu tæki­ færin. Ef við nýtum þau vel, þá muni allt fara á besta veg. Gleðilegt ár! Magnús Magnússon Næstkomandi laugardag, þann 4. janúar, verða 110 ár liðin frá stofn­ un Kaupfélags Borgfirðinga. Í til­ efni dagsins verður boðið upp á kaffi og afmælistertu í verslun félagsins við Egilsholt í Borgarnesi á milli klukkan 11 og 15 á afmælisdaginn. Að sögn Guðsteins Einarssonar kaupfélagsstjóra er síðan áformað síðar á þessu ári að minnast tíma­ mótanna með veglegri hætti. mm Kvikmyndin „Leynilíf Walters Mitty“ (The Secret Life of Wal­ ter Mitty) sem tekin var að stórum hluta upp í Stykkishólmi og víðar um Vesturland, verður frumsýnd á Íslandi föstudaginn 3. janúar. Mik­ ið verður lagt í sýningu myndar­ innar, ekki síst á landsbyggðinni. Þennan dag verður hún frumsýnd á Akranesi, í Reykjanesbæ, á Selfossi, Akureyri, Sauðárkrók og Ísafirði. Auk þessa verða frumsýningar í Smárabíói, Laugarásbíói, Kringlu­ bíói og Háskólabíói á höfuðborgar­ svæðinu. „Íslandstengingin í mynd­ inni er mjög sterk. Hún gerist hér að stórum hluta. Fjöldi Íslendinga leika í henni eða koma að henni með öðrum hætti. Ólafur Darri Ólafsson er til að mynda áttundi leikarinn á svokölluðum kreditlista myndarinnar. Það segir hve veiga­ mikið hlutverk hans er í myndinni. Hljómsveitin Of Monsters And Men á lag í kvikmyndinni. Íslenskt umhverfi skipar stóran sess og er auðþekkjanlegt. Þetta er frumleg og nýstárleg mynd. Persónulega þá finnst mér hún mjög góð,“ seg­ ir Guðmundur Breiðfjörð hjá Senu í samtali við Skessuhorn, en fyrir­ tækið er umboðsaðili myndarinnar hér á landi.66 Kvikmyndin var frumsýnd í Bandaríkjunum og Bretlandi á jóladag. Dómar gagnrýnenda eru blendnir, allt frá því að sumir lýsa mikilli hrifningu á kvikmynd­ inni yfir til þess að hún fær dræma dóma. Skoða má yfirlit yfir dóm­ ana á vefsíðunni www.metacritic. com. Heildareinkunn myndarinnar er 54 af 100 mögulegum í eins kon­ ar meðaltali sem byggir á áliti 36 gagnrýnenda. Almenningur virð­ ist þó taka myndinni miklu betur en gagnrýnendurnir því heildarein­ kunn þeirra á þessari vefsíðu er 8 af 10 mögulegum. Svipaða sögu er að segja af vefnum www.imdb.com þar sem almenningur gefur mynd­ inni 7,6 í einkunn. Góð aðsókn var að kvikmyndinni vestra á jóladag og annan í jólum. Hún var önnur aðsóknarmesta kvikmyndin af þeim tæplega tíu kvikmyndum sem frum­ sýndar voru ytra á jóladag. Fyrirtæki innan ferðaþjónustu hér á landi telja kvikmyndina mikla landkynningu, enda hefur Ben Still­ er leikstjóri hennar, sem einnig er í aðalhlutverki, tjáð sig mjög lofsam­ lega um Ísland í fjölmiðlum vestra. Nú stendur til að bjóða ferðamönn­ um upp á sérstakar Walter Mitty­ ferðir hér á landi. Í þeim gefst fólki kostur á að heimsækja þá staði sem koma fyrir í kvikmyndinni. Þar er um að ræða Vesturland með Snæ­ fellsnesi, Borgarnesi og austur suð­ urströndina að Jökulsárlóni. Ferð­ irnar kosta frá 754 evrum, eða rúm­ lega 120 þúsund krónur og taka sex daga. Inni í því er meðal ann­ ars innifalinn bílaleigubíll, bátsferð á Breiðafirði ef farið er á tímabilinu 11. maí til 15. september en annars hvalaskoðun í Faxaflóa og fleira. mþh Sveitarstjórn Dalabyggðar sam­ þykkti á fundi sínum þriðjudag 17. desember sl. að rifta samningi við rekstraraðila Leifsbúðar. Rekstrar­ samningurinn gilti fyrir árin 2013­ 2015 en í Leifsbúð hefur auk kaffi­ húss verið starfrækt upplýsingamið­ stöð fyrir ferðamenn. Samningnum var rift frá og með 20. desember og rekstraraðila, Freyju Ólafsdóttur, gert skylt að skila húsinu fyrir ára­ mót. Sveitarstjórn taldi að ekki væri staðið við samninginn að því leyti að opnunartími utan hefðbund­ ins ferðamannatíma væri skemmri en samningurinn fæli í sér. Á næst­ síðasta fundi sveitarstjórnar var byggðarráði falið að funda með rekstaraðila Leifsbúðar áður en sveitarstjórn tæki afstöðu til tillögu byggðarráðs um að samning num yrði rift. Á fundi byggðarráðs með rekstaraðila kom fram að hann vildi losna undan samningnum og myndi senda sveitarstjóra hugmyndir sín­ ar um lúkningu sam ningsins. Fyr­ ir fundinn 17. desember höfðu ekki borist ákveðnar hugmyndir frá rekstraraðila og byggðarráð vísaði málinu því aftur til sveitarstjórnar sem samþykkti eins og áður segir að rifta samningnum. Sveitarstjóra og formanni byggðarráðs var falið að ganga frá peningalegu uppgjöri við rekstraraðila. þá Skjáskot úr kvikmyndinni „Leynilíf Walters Mitty“ þar sem atriði er tekið upp í Stykkishólmi. Hún verður frumsýnd á Íslandi föstudaginn 3. janúar. Þá um kvöldið verður frumsýningin á Vesturlandi í Bíóhöllinni á Akranesi. Kvikmyndin um líf Walters Mitty fær ágætar viðtökur Svipmynd frá verslunarhúsi KB á hausthátíð í ágúst sl. Kaupfélag Borgfirðinga er 110 ára Leifsbúð í Búðardal. Rekstrarsamningi um Leifsbúð rift

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.