Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014
Stjórnarskiptin
standa upp úr
„Það eru náttúrlega stjórnarskiptin
sem standa upp úr,“ segir sr. Geir
Waage, sóknarprestur í Reykholti.
„Í Reykholti miðaði vel, það var
gott ár hjá staðnum og Snorrastofu
þrátt fyrir tíðarfarið. Allt gekk vel
sem við gerðum og allir sem komu
að verkum voru velviljaðir og þol
inmóðir gagnvart öllu því sem þeir
voru að gera með okkur og fyrir
okkur,“ bætir hann við. Aðspurð
ur um væntingar til nýja ársins seg
ir Geir: „Árið 2014 leggst vel í mig,
bara prýðilega. Það verður gam
an að sjá hvað ríkisstjórninni tekst
að gera af því sem hún lofaði fyr
ir kosningar þannig að það fari að
réttast úr hjá þjóðinni. Það verð
ur spennandi að sjá hvað rætist úr
því.“
Minni áherslur á
umhverfismál það
fyrsta sem kemur
í hugann
„Það sem kemur fyrst upp í hugann
eru ríkisstjórnarskipti og breyttar
áherslur og minni áherslur á um
hverfismál heldur en var. Hægt er
að nefna mörg dæmi svo sem afdrif
græna hagkerfisins og afturköllun
náttúruverndarlaga og fleira í þeim
dúr. Þetta er það fyrsta sem mér
dettur í hug,“ segir Stefán Gísla
son umhverfisstjórnunarfræðing
ur og geitfimur fjallvegahlaupari.
„Það sem mér finnst standa upp úr
á heimsvísu er sífellt meiri vissa um
loftslagsbreytingar af manna völd
um og útkoma skýrslu IPCC (Milli
ríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna
um loftslagsbreytingar) í haust.
Hún fól í sér enn stærri vísbend
ingar um þátt mannsins í loftslags
breytingum. Einnig stendur upp úr
aukin áhersla á vinnslu olíusands.
Menn voru með stórar hugmyndir
um að auka vinnslu olíu og gass úr
sandsteini. Svo komu upp á árinu
vísbendingar um hraðari losun
metans á norðurslóðum, til dæmis
úr sífrera í Síberíu. Þetta tvennt eru
neikvæðustu fréttir ársins að mínu
mati. En þó að ýmislegt hafi verið
neikvætt við árið þá var líka margt
jákvætt. Ég hljóp meira en áður og
tók þátt í ótrúlega skemmtilegum
verkefnum á því sviði. Það var oft
gaman í vinnunni og mörg verðug
og skemmtileg viðfangsefni þar.
Árið 2014 leggst ekkert alltof
vel í mig. En það er eins og segir
í norsku orðatiltæki sem ég heyrði
eitt sinn: „Það er ekki málið hvern
ig maður hefur það, heldur hvern
ig maður lítur á það.“ Það má allt
af sjá bjartar hliðar á öllu. Persónu
lega held ég að árið verði fínt en á
landsvísu og heimsvísu er ég ekki
bjartsýnn.“
Viðburðaríkt
sumar
„Það fyrsta sem kemur upp í hug
ann er að þetta var mjög viðburða
ríkt sumar. Ég kynntist mörgu
góðu fólki, bæði innlendu og er
lendu. Nýja árið leggst vel í mig.
Ég held að þetta verði annað við
burðarríkt sumar en vonandi auð
veldara en á síðasta ári,“ segir Jó
hanna Harðardóttir í Hlésey, stað
gengill allsherjargoða.
2013 var mjög
skrýtið ár
Það sem stendur upp úr er að Jón
Gnarr ætlar ekki að gefa kost á sér
áfram sem borgarstjóri. En 2013
var mjög skrýtið ár, það voru hæð
ir og lægðir sem gengu yfir land
ið. Það var mjög gott ferðamanna
sumar hér og mikil umferð bæði
í gistingu og í fjósið. Það varð
meiri heyuppskera en undanfarin
ár en kornuppskeran misfórst al
veg hundrað prósent. Svo það sem
gerðist núna allra síðast á árinu var
að Hjörtur Einarsson, fyrrverandi
bóndi frá Neðri – Hundadal, féll
frá. Hann var mikill baráttumaður
fyrir hagsmunum bænda og Dala
manna. Hann barðist fyrir bættum
vegasamgöngum yfir Bröttubrekku
og var almennt góður talsmaður ís
lensks landbúnaðar, fyrst og fremst
hér í Dölunum. Hann barðist með
al annars fyrir endurreisn Slátur
hússins í Búðardal. Hann var mikill
hugsjónamaður og mikill og góður
félagi, þrátt fyrir að tvær kynslóð
ir væru á milli okkar,“ segir Þor
grímur Einar Guðbjartsson, mjólk
urfræðingur og bóndi á Erpsstöð
um í Dalabyggð. „Nýja árið verður
örugglega meira afgerandi en 2013
var, það var meiri molla yfir því. Ég
held að það verði meiri svipting
ar árið 2014. Það verða ábyggilega
fellibyljir. Draumarnir mínir segja
mér að það skiptist á skin og skúrir
en ég er svo sem engin völva,“ segir
Þorgrímur hlæjandi að endingu.
Fúlt veður
það sem
stendur upp úr
„Það er svo margt sem stóð upp úr
en líka niður úr á árinu 2013,“ segir
Þorkell Símonarson ferðaþjónustu
bóndi í Görðum á Snæfellsnesi.
Mér dettur bara helst í hug fúlt
veður!“ En næsta ár leggst mjög vel
í mig. Ef veðrið verður aftur fúlt, þá
bara tæklum við það. Þetta verður
frábært ár, held ég bara.“
Lítil berjaspretta
Veðrið í sumar er kannski það sem
er eftirminnilegast. En það var auð
vitað margt jákvætt líka. Árið sem
leið var fínt ár nema síst veðrið í
sumar. Það var lítil berjaspretta
hérna hjá okkur en ég er mikil ber
jatínslumanneskja. 2014 leggst
mjög vel í mig. Engin ástæða til
að segja annað en það, þetta verð
ur gott ár,“ segir Ásta Gísladóttir
verslunareigandi á Akranesi.
Tímamótaverk-
efni á Snæfellsnesi
stendur uppúr
Björg Ágústsdóttir lögfræðingur í
Grundarfirði er meðal annars verk
efnastjóri í verkefninu „Svæðisgarð
urinn Snæfellsnes.“ Henni finnst
vinnan í kringum verkefnið standa
upp úr eftir árið en það gengur út á
að aðilar á Snæfellsnesi vinni sam
an og geri m.a. svæðisskipulag sem
er í raun nokkurs konar sóknar
áætlun fyrir svæðið. „Þetta er tíma
mótaverkefni, að menn setjist nið
ur og geri áætlun um hvernig sé
hægt að sækja fram. Það er víða erf
ið staða en það skiptir mjög miklu
máli að menn missi ekki sjónar á
því hvernig við getum nýtt þessi
gæði til lands og sjávar og í fólk
inu okkar. Þetta verkefni stendur
mér nærri og Snæfellingar hafa gef
ið mikið af sér í þetta verkefni og
því finnst mér það standa upp úr á
árinu 2013. Það er margt mjög gott
sem hefur fengist í þessari vinnu
sem á eftir að koma enn betur í ljós
á þessu ári. Einnig er síldarslysið í
Kolgrafafirði ofarlega í huga. Bæði
í upphafi ársins og ákveðnar fyr
irbyggjandi aðgerðir og ótti fólks
um að þetta endurtæki sig í lok árs
ins,“ segir Björg. Hún fylgist einnig
með íþróttum, bæði í nærumhverf
inu og á landsvísu. „Það hefur ver
ið gaman að fylgjast með íþrótta
liðunum hér í kring í sinni baráttu.
Mörg þeirra voru að spila meðal
þeirra bestu á árinu. Ég var einn
ig þátttakandi í auknu samstarfi í
frjálsum íþróttum á Vesturlandi og
sunnanverðum Vestfjörðum. Verk
efnið heitir Samvest og fór af stað í
lok árs 2012, þar sem tekið var upp
samstarf til að reyna að efla þess
ar litlu einingar. Þetta þróaðist og
þroskaðist á árinu og hefur geng
ið vel. Þetta er ný leið til að styrkja
litlar einingar og hefur lofað góðu.
Einnig langar mig að nefna íþrótta
afrek Anítu Hinriksdóttur og gott
gengi kvenna og karlalandsliðsins
í knattspyrnu.
Kosning nýrrar ríkisstjórnar
stendur auðvitað líka upp úr á þess
um erfiða tíma. Erfið staða heil
brigðisstofnana vegna niðurskurð
ar og undiralda er farin að þyngjast
og fátækt farin að vaxa. Við erum
komin í þá stöðu að við verðum að
horfast í augu við hversu mikla fá
tækt við ætlum að þola og leyfa í
landinu okkar, sem er stútfullt af
alls konar auðlindum.
Nýja árið leggst betur í mig en
árið sem leið. Samt er mikil vinna
óunnin síðan eftir hrun og ég vil
vona að horfst verði í augu við þá
vinnu. Ég hef þá tilfinningu að fólk
vilji komast út úr þessari biðstöðu
sem allir virðast vera í. Þá held
ég að kjarasamningar verði erf
iðir á næsta ári og það setji strik í
reikninginn. En ég hef trú á því ef
fólk stendur saman eins og á okk
ar svæði sé hægt að gera mjög mik
ið til að nýta enn betur það sem við
höfum.“
Var ánægð með
veðrið
„Það sem mér fannst merkileg
ast við árið var að það voru engir
stóratburðir á árinu. Það sem stóð
upp úr var að árið var fremur far
sælt. Til dæmis er það góðs viti að
dómskerfið náði að dæma í málum
sem tengdust hruninu. Maður hélt
kannski að dómskerfið réði ekki við
það. Árið var einnig gott að öðru
leyti og sveitarfélagið er á uppleið.
Það fjölgar aðeins og fjárhagurinn
er á réttri leið. Ég var einnig ánægð
með veðrið. Það á að rigna stund
um. Svo fékk maður Mallorka veð
ur þess á milli. Svo er allt í lagi að fá
vetur þegar það á að vera vetur. Það
sem stendur uppúr eftir árið fyrir
mig persónulega er að ég ylja mér
við minningar um ferðir um landið.
Ég fór í fyrsta skipti til Vestmanna
eyja og fannst það mjög litríkur
staður enda eiga Eyjamenn mikla
sögu. Þá fór ég upp að Herðubreið
arlindum, á Herðubreið og í Öskju.
Ísland er ótrúlegt land og ég skynj
aði það vel þar. En ég held að árið
2013 verði ár sem maður minn
ist með góðum hug. Þetta ár leggst
vel í mig. Ef sólin gengur sinn gang
og landið er í lagi þá verður þetta
gott ár. Reyndar hefði ég viljað
hafa sömu stjórnvöld aðeins leng
ur og voru í fyrra, fyrir kosningar.
En maður veit ekki alveg hvað ger
ist, þessi mál eiga eftir að þróast.
Mér finnst það skipta mestu máli
að náttúran sé til friðs og sé í lagi,“
segir Ingibjörg Daníelsdóttir frá
Fróðastöðum í Hvítársíðu.
Hvað stendur upp úr eftir árið 2013 og
hverjar eru væntingarnar?
Nú er árið 2013 liðið og nýtt gengið í garð. Af því tilefni leitaði Skessuhorn til nokkurra valinkunnra Vestlendinga og spurði þá
hvað þeim þótti standa upp úr á árinu sem leið. Einnig spurðum við fólkið hvernig nýja árið legðist í það. Svörin létu ekki á sér
standa og af eftirminnilegum atburðum má nefna stjórnarskipti á liðnu ári og kosningaloforðin, síldardauðann í Kolgrafafirði
og mikið rigningarsumar. Flestir voru þó sammála um að árið 2014 verði gott fyrir landsmenn.
Sr. Geir Waage.
Stefán Gíslason.
Jóhanna Harðardóttir.
Þorgrímur Einar Guðbjartsson.
Þorkell Símonarson.
Ásta Gísladóttir.
Björg Ágústsdóttir.
Ingibjörg Daníelsdóttir.