Skessuhorn


Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 03.01.2014, Blaðsíða 7
7FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 2014 Skaginn hf. á Akranesi er leiðandi fyrirtæki í þróun, hönnun og smíði á búnaði fyrir matvælaiðnaðinn. Fyrirtækið óskar eftir að ráða starfsmenn í eftirfarandi stöður vegna góðrar verkefnastöðu. Málmiðnaðarmenn • Rennismiði sem eru vanir að vinna við tölvustýrð tæki. • Málmiðnaðarmenn sem eru vanir að vinna úr ryðfríu stáli. • Aðstoðarmenn sem eru vanir að vinna úr ryðfríu stáli. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Svein R. Ingason verkstjóra í síma 896-0182 eða í netfangið svenni@skaginn.is. 3D - hönnuður • 3D - hönnuð sem hefur reynslu af 3D hönnun í Inventor. Starfið felst í hönnun á búnaði úr ryðfríu stáli fyrir matvælaiðnaðinn. Áhugasamir eru beðnir að hafa samband við Ingólf Árnason framkvæmdastjóra í síma 897-1403 eða í netfangið ingolfur@skaginn.is. Skaginn hf. | Bakkatúni 26, 300 Akranes | Sími: 430-2000 | www.skaginn.is Hjúkrunarforstjóri Laust er til umsóknar starf hjúkrunarforstjóra hjúkrunarheimilisins Fellsenda. Fellsendi er hjúkrunarheimili fyrir 28 heimilismenn. Húsnæði hjúkrunarheimilisins var tekið í notkun árið 2006 og er vandað að allri gerð. Fellsendi er 20 km. fyrir sunnan Búðardal og í 130 km. fjarlægð frá Reykjavík. Sjá nánar fellsendi.is. Hjúkrunarforstjóri ber ábyrgð á hjúkrun, fjárhags- legum rekstri og stjórnun að öðru leyti. Hjúkrunar- forstjóri er ábyrgur gagnvart stjórn Fellsenda. Leitað er að hjúkrunarfræðingi; menntun og reynsla í geðhjúkrun er æskileg. Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og samskiptum er nauðsynleg. Umsóknir, þar sem gerð er grein fyrir menntun og starfs- ferli, berist stjórn hjúkrunarheimilisis merkt: Ólafur K. Ólafsson, Borgarbraut 2, 340 Stykkishólmi eða á netfangið oko@syslumenn.is fyrir 10. janúar 2014. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Upplýsingar veitir Ólafur K. Ólafsson, sýslumaður og formaður stjórnar, í síma 430 4100. S K E S S U H O R N 2 01 4 Húsaleigubætur - endurnýjun umsókna Athygli er vakin á því að endurnýja þarf allar umsóknir um húsaleigubætur á árinu 2014, fyrir 17. janúar n.k. Húsaleigubætur eru greiddar eftir á fyrir hvern mánuð eins og lög nr. 168/2000 gera ráð fyrir. Umsóknareyðublöð má nálgast í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 1. hæð og á www.akranes.is. Umsóknum ásamt fylgigögnum skal síðan skila í þjónustuver Akraneskaupstaðar. Allar nánari upplýsingar eru gefnar í síma 433 1000. Golfklúbbur Borgarness stóð fyr­ ir árlegu Áramóti sínu á Gamlárs­ dag þar sem golfárið var kvatt á léttu nótunum. Mótið fór að þessu sinni fram í inniaðstöðu klúbbsins og Félags eldri borgara í Borgar­ nesi og nágrenni í fyrir kjötsal á 2. hæð gamla sláturhúss Kaupfélags Borgfirðinga í Brákarey. Um 50 manns lögðu leið sína í inniaðstöð­ una þennan dag til að skoða hana og taka þátt í Áramótinu sem var 36 holu púttkeppni. Sigurvegari varð Jóhannes Ármannsson fram­ kvæmdastjóri GB á 54 púttum, en fast á hæla hans komu þeir Jón Georg Ragnarsson á 55 púttum og Ómar Örn Ragnarsson á 59 pútt­ um. Að sögn Björgvins Óskars Bjarnasonar varaformanns GB kemur nýja aðstaðan til að um­ bylta æfingaaðstöðu kylfinga í Borgarnesi og nágrenni. Gestir Áramótsins gerðu góðan róm að henni en mótið var hugsað til að prófa aðstöðuna. Gólfflötur henn­ ar eru tæpir 300 fermetrar og loft­ hæð allt að fimm metrar. Þar er því gott rými til að sveifla kylfum og fyrirtaks aðstaða til bæta golf­ kunnáttuna yfir vetrarmánuðina. Aðstaðan skiptist í 18 holu pútt­ flöt, með einni leiðréttingarpútt­ braut, og þrjá sláttubása, þar af einn með rými fyrir golfkennara að fóta sig. Einnig er góða setu­ stofu að finna í salnum með sófum og stólum – svokallað „monthorn“ eins og nokkrir kylfingar höfðu á orði í Áramótinu. Þá er ónot­ að rými í norðurhluta salarins sem draumurinn er að nota undir vipp­ aðstöðu eða golfhermi, ef áhugi er fyrir. Einnig er þar anddyri með fatahengi og salernum. Byrjað var að endurinnrétta kjöt­ salinn gamla í upphafi síðasta árs. Stærstur hluti framkvæmdanna fór hins vegar fram í haust og hafa fé­ lagar í GB og Félagi eldri borgara lagt hönd á plóg í sjálfboðvinnu. Einnig hafa starfsmenn GB kom­ ið að verkinu. Framkvæmdum er ekki lokið en stefnt er á að þeim ljúki á næstu vikum að sögn Björg­ vins Óskars. Ekki er komið nafn á aðstöðuna ennþá en auglýst verð­ ur eftir nafni fljótlega. Nafnið og opnunartími verður síðan kunn­ gert við formlega vígslu aðstöð­ unnar. hlh Menn hafa ekki dáið ráðalausir við endurinnréttingarnar. Þak sláturhússins lekur í votviðri og því var brugðið á það ráð að smíða innanhúss þakrennur í salnum með tengingu við niðurfall. Ný inniaðstaða kylfinga í Brákarey prófuð Góð mæting var á Áramótið sem fram fór í inniaðstöðunni í gamla kjötsalnum þar sem áður voru fláningslínur og kæliaðstaða fyrir lambakjöt. Hér sést kjötiðnaðarmaðurinn Bergsveinn Símonarson pútta en hann starfaði í mörg ár í sláturhúsinu í Brákarey. Jóhannes Ármannsson og Jón Georg Ragnars- son fylgjast með.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.